Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1997, Qupperneq 50
58
!yndbönd
LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 1997
PÆ i it !i
Keanu Reeves er ein heitasta
stjarnan vestanhafs núna. Hann
hefur leikið í fjölda góðra kvik-
mynda og hefur verið frekar
vandlátur i hlutverkavali, með
undantekningum þó.
Hánn er í hjarta sínu sviðsleik-
* ari og hefur meðal annars hlotið
lof fyrir frammistöðu sína sem
Hamlet. Þá hefur leikur hans á
köflum þótt vera á svipuðu plani
og tilþrif ódauðlegra stjarna eins
og James Dean.
Rokkuð barnapía
Þegar Alice Cooper var í
Toronto um miðjan áttunda ára-
tuginn að taka upp plötuna „Alice
Cooper Goes to Hell“ bjó Keanu á
efstu hæð í stóru húsi frá Viktor-
íutímabilinu gegnt hljóðverinu.
Cooper segist muna eftir sætum
litlum dökkhærðum krakka sem
hékk klukkustundum saman í
hljóðverinu. „Hann var ágæt-
% iskrakki, mjög rólegur og yfirveg-
aður,“ segir hann. „ Hann hafði
gaman af háværri tónlist," Hann
hlær: „Hver sem lét Alice Cooper
og fullt af tónlistarmönnum passa
krakkann sinn meðan hann sat i
hljóðveri allan daginn og þambaði
kók og úðaði í sig sælgæti hlýtur
að hafa verið hæfilega ruglaður."
Keanu hefur ekki sagt skilið við
rokkið því þegar hann er ekki að
leika er hann yfirleitt á flækingi
með hljómsveit sinni „Dogstar"
þar sem hann spilar á bassa.
Eftir að hafa farið frá Kín-
versk/Hawai-ættuðum föður Ke-
anu þegar hann var tveggja ára
var ensk móðir hans, sem bjó til
búninga á skemmtikrafta, gift
leikstjóra að nafni Paul Aaron.
Hálfgerður Hamlet
Umboðsmaður hans til langs
tíma var Erwin Stoff sem hitti
hann í fyrsta skipti þrettán ára.
„Hann var frábær krakki, til í
hvað sem er. Hann elskaði íþrótt-
ir, sérstaklega hokkí.“
Annar maður, sem þekkir hann
frá fornu fari, er Robert Mark
sem skrifaði kvikmyndahandritið
fyrir „A Walk in the Clouds."
„Hann var eins og núna, mjög
kurteis, þægilegur og með eins
konar sterkar innbyggðar gáfur.
Þetta voru gáfur sem hann notaði
ekki í skóla heldur í leik sínum
sem hann helgaði sig snemma,
undir áhrifum frá Aaron.“
„Ég ákvað mig eiginlega þegar
ég var fimmtán ára,“ segir Keanu.
„Það kom svipur á mömmu: Leik-
ari? En svo sagði hún að ég mætti
jafnvel full-
komnunar á
sér. Það er
ekki nóg
með að
hann
kunni
Frammistaða
hans sem Hamlet í \
Winnipeg, Manitoba,
var samkvæmt The
Sunday Times betri en
mjög góð fyrir kvik-
myndastjörnu,
hafði ákveð
inn blæ
snilldar
eða
Keanu leikur jafnt í hasarmyndum
sem alvarlegri hlutverk.
ber, hetjan á alltaf einhvern dul-
inn galla, veikan blett, og síðast
en ekki síst síst hefur hann fram-
andi fallegt útlit. Úr blöndunni
verður hreint gull þegar kemur
að því að leika í hasarmyndum.
Hann staðfesti þennan hæfileika
svo með leik sínum í myndinni
Speed þremur árum seinna.
Nú er myndin Speed 2 til sýn-
inga í bíóhúsum landsmanna og
enginn er Keanu-inn í henni. Að
margra mati var fyrri myndin
lítið annað en hann.
Ein af flopp-mynd-
um Keanu var
Johnny Mnemonic.
skóli ólafs gauks
Innritun er hafin og fer fram í skólanum, Síðumúla 17, daglega kl. 14-17, sími 588-3730, fax 588-3731.
Eftirtalin námskeið eru í boði á haustönn, en nánari upplýsingar er að fá í skólanum á innritunartíma eða
í ítarlegum bæklingi um skólann, sem við sendum þeim sem þess óska, hvert á iand sem er:
LETTUR
UNDIRLEIKUR
1. FORÞREP FULLORÐINNA
Byrjendakennsla, undirstaða,
léttur undirleikur við alþekkt lög.
2. FORÞREP UNGLINGA
Byrjendakennsla, sama og
Forþrep fullorðinna.
3. Ll'TIÐ forþrep
Byrjendakennsla fyrir börn að 10
ára aldri.
4. FORÞREP II
Beint framhald Forþreps eða
Forþreps 3 - meiri undirleikur,
einkum „plokk" o.m.fl.
5. FORÞREP III
Beint framhald Forþreps eða
Forþreps 2, dægurlög
undanfarinna 20-30 ára, byrjun á
þvergripum o.m.fl. j
6. BÍTLATÍMINN A
Eitt af Forþrepunum. Aðeins leikin
lög frá bítlatímabilinu, t.d. lög
Bítlanna sjálfra, Rolling Stones,
vinsæl íslensk lög o.fl.
7. TÓMSTUNDAGÍTAR
Byrjendakennsla (sama og
Forþrep fullorðinna, en styttra)
fyrir 16 ára og eldri í samvinnu við
Tómstundaskólann.
HEFÐBUNDINN
GÍTARLEIKUR
8. FYRSTA ÞREP
Undirstöðuatriöi nótnalesturs fyrir
byrjendur lærð með því að leika
léttar laglinur á gítarinn o.m.fl.
Forstig tónfræði. Próf.
9. ANNAÐ ÞREP
Framhald fyrsta þreps, leikin
þekkt smálög eftir nótum,
framhald tónfræði- og
tónheyrnarkennslu. Próf.
10. ÞRIÐJA ÞREP
Beint framhald Annars þreps.
Verkefnin þyngjast smátt og
smátt. Framhald tónfræði- og
tónheyrnarkennslu. Próf.
11. FJÓRÐA ÞREP
Beint framhald þriðja þreps. Bæði
smálög og hefðbundið
gltarkennsluefni eftir þekkt
tónskáld. Tónfræði, tónheyrn.
Tekur tvær annir. Próf.
12. FIMMTA ÞREP
Beint framhald Fjórða þreps.
Leikiö námsefni veröur
fjölbreyttara. Tónfræði, tónheyrn.
Tekur tvær annir. Próf.
HÆGT AÐ FA LEIGÐA
HEIMAGÍTARA
KR. 1500 Á ÖNN
Sendum vandaöan
upplýsingabækling
ONNUR
NÁMSKEIÐ
13. JAZZ-POPP I
Þvergrip, hljómauppbygging,
tónstigar, hljómsveitarleikur
o.m.fl. Nótnakunnátta áskilin.
14. JAZZ-POPP II / III
Spuni, tónstigar, hljómfræði,
nótnalestur, tónsmíö, útsetning
o.m.fl.
15. TÓNSMÍÐAR I / II
Byrjunarkennsla á hagnýtum
atriðum varðandi tónsmíðar.
Einhver undirstaða er
nauðsynleg.
16. TÓNFRÆÐI-TÓNHEYRN l/ll
Innifalin í námi.
17. TÓNFRÆÐI-TÓNHEYRN
FYRIR ÁHUGAFÓLK
Fyrir þá, sem langar að kynna
sér hið einfalda en fullkomna
kerfi nótnanna til þess m.a. að
geta sungið eða leikið eftir
nótum.
18. KASSETTUNÁMSKEIÐ
Námskeið fyrir byrjendur á tveim
kassettum og bók, tilvalið fyrir þá,
sem vegna búsetu eða af öðrum
ástæðum geta ekki sótt tíma í
skólanum en langar að kynnast
gítarnum. Sent í póstkröfu.
© 588-3730
INNRITUN DAGLEGA KL. 14-17
r»- 1
Speed festi hann í sessi sem eftirsóttan leikara þótt hann hafi verið á móti
henni í byrjun.
Shakespeare vel og geti leikið
heldur er sjálfsagt erfitt að finna
jafnmikinn Hamlet, allt til þeirrar
staðreyndar að hann ólst upp föð-
urlaus.
Nýr Dean
Það mætti segja að Keanu
hefði fleiri hliðar á sér en
flest okkar. Hann er
bæði sterklegur og
kvenlegur, ákveð-
inn og reikandi,
skarpur og .
aulalegur og
svo mætti
lengi telja.
Margir kom- i
ast í kvikmynd-
ir út á snefil af
hæfileikum,
sæmilegt útlit eða
bara þrautseigju. En
annað veifið kemur
stjarna, nýr James Dean,
sem hefur svo mikla útgeislun og
töfra að áhorfendur dragast að og
týnast í hringiðu kraftmikils leiks
hennar.
Keanu hefur allt þetta en að
auki hefur hann hæfileika sem
heimurinn sá fyrst í Point Break
árið 1991. Það er hæfileikinn til
að leika menn sem hika ekki, að
leika and-Hamleta. Líkamsbygg-
ing hans spilar með honum á öld
hasarmynda auk þess sem hann
er örlítið viðkvæmur eins og vera
Skip fara hægt
Fáar ákvarðanir leikara upp á
siðkastið hafa vakið jafn mikla at-
hygli og þegar Keanu ákvað að
hafna 11 milljón dala tilboði um að
leika í Speed 2 og bregða sér aftur i
hlutverk flotta árásarliðsforingjans
sem bjargaði rútufarþegun-
um og endaði ofan á
Söndru Bullock, glað-
ur í bragði og örlít-
ið undrandi. Með
' þvi að neita að
gera sama hlut-
inn aftur, að
þessu sinni á
skipi, lét hann
hrikta í stoðum
Hollywood sem
aldrei fyrr. Hann
tók í staðinn hlut-
verki á móti A1 Pacino
í Devil’s Advocate, sem
var borgað umtalsvert minna
fyrir, og smáhlutverki í ódýrri
mynd sem heitir The Last Time I
Committed Suicide sem yrði „Síð-
ast þegar ég framdi sjálfsmorð“ á
ástkæra ylhýra.
Um ástæður þessa segir hann:
„Mér fannst bara að ef ég tæki
þessu hlutverki væru allar líkur á
ég kæmi ekki aftur upp úr vatn-
inu,“ en sú varð einmitt raunin
með myndina vestanhafs. , Fara
skip ekki annars frekar hægt?“
-sf
Keanu hefur
ekki sagt skilið
við rokkið því
þegar hann er
ekki að leika er
hann yfirleitt á
flœkingi með
hljómsveit sinni
„Dogstar“ þar
sem hann spilar á
bassa.