Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1997, Page 27
JL>V LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 1997
enmngi
Dario Fo, málsvari smælingja og stjórnleysingja, fær æðstu bókmenntaverðlaun í heimi:
Sænska akademían hefur sannað
að hún hefur húmor. Hún hefur
verðlaunað rúmlega sjötugan ítala
sem áreiðanlega hefur komið fleira
fólki til að hlæja hjartanlega en
nokkur annar núlifandi maður. Fyr-
ir kom að það þurfti að bera fólk út
af sýningu Leikfélags Reykjavíkur á
Þjófum, líkum og fölum konum i
Iðnó 1965-6, svo máttlaust var það af
hlátri. Ég hef hvorki fyrr né síðar
séð fólk detta úr stólum sínum af
hlátri eins og það gerði á sýningu á
Stjórnleysingi ferst af slysförum í
London. Eða á Við borgum ekki!
upprunalegu sýningunni í Lindar-
bæ á vegum Alþýðuleikhússins
1978, þar sem Gísli Rúnar Jónsson
lék sín Qögur hlutverk af tærri
snilld. Þann leik lék svo Eggert Þor-
leifsson eftir í Borgarleikhúsinu
1995.
Frelsandi hlátur
Það góða við þennan hlátur var
að maður þurfti ekkert að skamm-
ast sín fyrir hann á eftir. Því það
var ekki verið að hlæja að óláni ves-
alinga eins og venjan er. Við vorum
að hlæja að lögregluforingjum, góð-
borgurum, fólki sem venjulega er
hafið yfir hlátur en hér var afhjúp-
að í heimsku sinni og grimmd. Best
var þegar við hlógum með smæ-
lingjunum að valdsmönnunum sem
þeir voru að stríða og hrekkja. Þá
leið manni eins og maður væri ofan
á í lífinu.
Dario Fo var sjálfur af alþýðu-
fólki kominn. Hann fæddist 1926,
faðir hans var járnbrautarstarfs-
maður og móðirin vann við land-
búnaðarstörf. En svo varð faðirinn
stöðvarstjóri og sonurinn fékk tæki-
færi til að ganga menntaveginn.
Hann lagði stund á arkitektúr en
lauk ekki námi, leiksviðið heillaði.
Hann fór að leika í atvinnuleikhúsi
1952 og um það leyti varð fyrsta
leikritið hans til sem vakti strax
deilur og reiði ihaldsafla á Italíu.
1954 kynnntist hann konu sinni,
Fröncu Rame, sem er af rótgróinni
leikhúsætt. Hjá tengdafólki sínu
lærði hann að meta commedia dell-
’arte, þá fornu leikhúslist, og skrif
hans sjálfs þróuðust hratt í þá átt.
Þau Franca stofnuðu leikhús 1958
sem lék út um alla Ítalíu, Franca lék
og töfraði áhorfendur með sinni
hásu rödd og Dario skrifaði verkin,
leikstýrði þeim, teiknaði leikmynd-
ina og samdi meira að segja stund-
um tónlistina líka. Formið tók hann
frá ítölsku alþýðuförsunum en sótti
áhrif víðar, meðal annars til
Moliéres og Brechts.
Hárbeitt
þjóðfálagsgagnrýni
En þó að formið væri gamalt var
efnið nýtt. Leikhús Dario Fo og
Fröncu Rame var lifandi leikhús.
Þau hlönduðu sér í öll baráttumál
alþýðunnar af krafti. Þegar verð-
hækkanir riðu yfir í kjölfar gengis-
fellingar á lírunni á áttunda ára-
tugnum opnuðu þau dyr leikhússins
fyrir hverfafundum verkafólks og
atvinnuleysingja sem ekki gátu
lengur keypt brýnustu nauðsynjar.
Fyrir orð þessara gesta sinna skrif-
aði Dario Fo eitt sitt vinsælasta
verk, Við borgum ekki! sem hefur
verið sýnt tvisvar hér á landi. Þar
var beinlínis ýtt undir ólöglegar að-
gerðir almúgans til að þvinga niður
verð á nauðsynjum, og sem oftar
fylgdust yfirvöld grannt með leik-
húsinu.
Gísli Halldórsson og Bríet Héðinsdóttir í Þjófum, Ifkum og fölum konum í
Iðnó 1965. Sagan segir að Gfsli hafi uppgötvað óviðjafnanlega hæfileika
sína sem gamanleikari í þessari sýningu; hann hafi eingöngu leikið dramat-
ísk hlutverk fram að þessu.
sviðsljós
Lára
Margrét
fimmtug
Þingmenn, núverandi sem fyrrverandi, voru eðlilega fjöl-
mennir í veislunni í KR-heimilinu. Hér eru þeir Stefán
Guðmundsson, Ingi Björn Albertsson og Árni Mathiesen.
Afmælisbarnið ásamt Garðari Cortes óperustjóra. Lára
Margrét hefur einmitt verið í stjórn íslensku óperunnar
sl. 10 ár og því mikill óperuunnandi. DV-myndir ÞÖK
Egill Jonsson og
Össur Skarphéð-
insson heiðruöu
Láru meö nærveru
sinni. Án efa hafa
samræður þeirra
snúist um pólitík.
Dario Fo faðmar lífsförunautinn, Fröncu Rame, af fögnuði yfir hinum mikla
heiðri sem honum var sýndur. Sfmamynd Reuter
Alla tíð hefur Dario Fo haft ein-
staklega góða lögregluvernd á leik-
sýningum sínum! Þó keyrði fyrst
um þverbak þegar hann samdi og
sýndi leikritið Stjórnleysingi ferst
af slysförum sem var byggt á því
hörmulega atviki þegar ungur jám-
brautarstarfsmaður „féll“ út um
glugga undir yfirheyrslum lögregl-
unnar. Áhorfendur skemmtu sér
konunglega yfir háðulegri meðferð-
inni á lögreglunni - en yfirvöldum
var ekki skemmt. Alþýðuleikhúsið
sýndi líka þetta verk og lék Þráinn
Karlsson eftirminnOega vel aðalper-
sónuna sem þykist vera galinn eins
og Hamlet til að fá lögregluna til að
koma upp um glæp sinn.
Þegar lætin út af sýningum urðu
hvað mest yppti Dario Fo öxlum og
sagði: „Leikhús á að hræra upp í
fólki!" Hann kærði sig kollóttan þó
að honum væri árum saman bannað
að koma fram í ítölsku sjónvarpi og
þó að bandarísk yfirvöld neituðu
honum um vegabréfsáritun vegna
róttækni hans.
Nú er Dario Fo búinn að fá
nóbelsverðlaunin - og enn er yfir-
völdum ekki skemmt. Á Reuternum
berast viðbrögð Páfagarðs og ann-
arra geistlegra og veraldlegra yfir-
valda í föðurlandi hans og þau eru
ekki kurteisleg. „Alveg er það yfir-
gengilegt - fyrir utan hvað það er
siðlaust - að veita leikara nóbels-
verðlaunin, þó að hann semji sjálfur
sína umdeildu texta,“ segir i dag-
blaði Páfagarðs, Osservatore.
„Ég sé í anda svipinn á dómurum
og stjórnmálamönnum sem ég kann-
ast við. Þeir hafa árum saman reynt
að plástra fyrir munninn á mér - og
nú koma Svíamir og gera þeim
þennan skemmtilega grikk!“ segir
Dario Fo, alsæll með verðlaunin
sin. Og alþýða landanna, sem hefur
hlegið sig máttlausa að yfirvöldum í
spéspegli hans í nærri 40 ár, fagnar
með honum.
-SA
Heildarjóga
Jóga fyrir alla
,Jóga og hugleiMa er það besta sem e'g hef
upplifað til að ná úr mér streitu og þreytu og
kyrra hugann eftir eril dagsins. Ég fyllist orku
ogfinn fyrir meira jafnvxgi.
Ég mceli meðjóga fyrir alla. “
Valgerður Matthíasdóttir,
arkitekt og dagskrárgerðarkona
Heildarjóga samanstendur af teygjuæfmgum, öndunaræfmgum,
hugleiðslu og slökun, sem hjálpa m.a. til að: • endurnæra sál og
líkama • sigrast á kvillum svo sem streitu, svefnleysi, vöðvabólgu,
orkuleysi, kvíða og bakverkjum.
Næsta grunnnámskeið byrjar 21. okt., þriðjud. og fimmtud. kl.
20-21:30.
7 skipti. Leiðbeinandi: Daníel Bergmann.
Tækjasalur með splunkunýjum tækjum ; hlaupabrautir, hjól og æfíngastöð.
TILBOÐ í TÆKJASAL KORT FRAM TIL 23. DES. Á KR. 6.900. (Gildir til 1. nóv.)
Stundaskrá; opnir tímar í jóga
nsi Mánud. Þri&jud. ni&vikuar Fimmtud. f-óstud. Laugard.
10:30-11:45 Ýmsir
1Z:10-13J0 Ásmundur Dsa Dsa Daníel Ásmundur
16:45-17A0 Lisa Lísa
17:15-18:15 Ásmundur Lísa Daniel Lisa Lárus
17:40-10:10 Hugleiösla
1855-19:35 Ásmundur Daníel Ásmundur Daniel Ásmundur
YOGA^
STU D 10
BúOln okkar/algrelðsla
Opin 9:15-13:15 og 14:30-20,
Laug. 8:30-12:30
Yoga Stúdió Hátúnl Bfl, 105 Reykiavík, síml 511 3100