Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1997, Blaðsíða 55

Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1997, Blaðsíða 55
i LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 1997 63 lil hamingju með afmælið 12. október 85 ára Fjóla Guðmundsdóttir, Berugötu 6, Borgarnesi. 80 ára Ragnheiður Jónsdóttir, Ásbraut 13, Kópavogi. 75 ára Friðrik Ingimar Jónsson, Naustahlein 18, Garðabæ. 70 ára Sigríður H. Jónsdóttir, Háagerði 21, Reykjavík. Bjöm Helgason, Furugrund 54, Kópavogi. Sigmar Ólason, Brekkugötu 13, Reyðarfirði. 60 ára Teitur Símonarson, Nýbýlavegi 50, Kópavogi. Ingibjörg Þorvaldsdóttir, írabakka 4, Reykjavík. 50 ára Sigríður Ármannsdóttir, Þverholti 7, Mosfellsbæ. Páll Björnsson, Hringbraut 113, Reykjavík. Hafdís Edda Eggertsdóttir, Sæviðarsundi 9, Reykjavik. Þórir Haraldsson, Ásabyggð 11, Akureyri. Hallgrímur Hallgrímsson, Mýrarási 7, Reykjavík. 40 ára Guðmundur Guðmundsson, Brekkusiðu 14, Akureyri. Karl Löve, Sigluvogi 7, Reykjavík. Ólafía Sigríður Hjartardóttir, Lágholti 13, Mosfellsbæ. Ragnheiður A. Þorsteinsdóttir, Laugavegi 157, Reykjavík. Pétur Björnsson, Hveralind 13, Kópavogi. --------TWWWWWl Smáauglýsinga deild DV er opin: • virka daga kl. 9-2 ff • laugardaga kl. 9-14 • sunnudaga kl. 16-22 Skilafrestur smáauglýsinga er fyrir kl. 22 kvölaið fyrir birtingu. AHl. Smáauglýsing í Helgarblað DV verður þó að berast okkur fyrir kl. 17 á föstudag. Smáauglýsingar rspi 550 5000 Sigurður Demetz Franzson Sigurður Vincenzo Demetz Franz- son, tenórsöngvari og söngkennari, Fossagötu 8, Reykjavík, er áttatiu og fimm ára í dag. Starfsferill Sigurður fæddist í fjallaþorpinu Ortisei í Gardenadal í Suður-Týról þar sem hann ólst upp. Hann var skírður Vincenz og kenndur við bæ- inn Four en tók upp íslenskt nafn þegar hann tók sér staðfestu hér á landi. Sigm-ður stundaði söngnám vetr- arlangt í Padova á Ítalíu, fór síðan í læri til Vincenzo Pintomo, nafntog- aðs flautuleikara og hljómsveitar- stjóra í Mílanó. Söngferill Sigurðar hófst mjög snemma en berklaveiki og hörm- ungar stríðsins töfðu mjög fyrir honum. Þó þáði hann vegtyllur af heimsþekktum hljóm- sveitarstjórum eins og Karajan og Böhm og söng við ýmis virtustu óperuhús Evrópu, svo sem í Zúrich, Bem og Barcelona. Hann söng einnig við Scala-óper- una, fyrst 1949. Sigurður kom til ís- lands 1955 í þeim erinda- gjörðum að kenna söng og ílengdist hér síðan. Hann hefur m.a. starfað við söngkennslu og kór- stjóm í Reykjavík, Keflavík, á Akur- eyri og víðar. Hann söng í óperunum Tosca eft- ir Puccini í Þjóðleikhús- inu; í Rigolettó eftir Verdi í Austurbæjar- bíói og í Ævintýrum Hoffmanns eftir Offen- bach í Þjóðleikhúsinu. Þá hefur sungið á fjölda tónleika hér á landi og í Ríkisútvarpið. Meðal þekktra ís- lenskra óperusöngvara sem stundað hafa nám hjá Sigurði má nefna Kristján Jóhannsson, Gunnar Guðbjörnsson, Guðjón Óskarsson, Erling Vigfús- son og Jón Sigurbjömsson. Þá hefur Sigurður stjómað fjölda kóra hér á landi, og stjómað lúðra- sveit. Fjölskylda Sigurður kvæntist 1960 Þóreyju Sigríði Þórðardóttur, f. 26.11. 1912, d. 15.10.1992, húsmóöur. Systkini Sigurðar: Ulrice, f. 1923, húsmóðir; Ivo, f. 1927, kaupmaður; Franz, f. 1929, listamaður; Giancar- lo, f. 1931, d. 1981, húsvörður, öll bú- sett i fæðingarbæ sínum Ortisei. Foreldrar Sigurðar vom Franz Demetz, f. 1888, d. 1958, kaupmaður og bæjarstjóri í Ortisei, og k.h., Maria Demetz, f. Mauroner, 1890, d. af slysforam 1938, verslunarmaður. Sigurður heldur móttöku fyrir vini sína og samstarfsmenn um ár- in í Fóstbræðraheimilinu í dag, laugardaginn 11.10. kl. 17.00. Þar munu ýmsir taka lagið. Siguröur Demetz. Tryggvi Benediktsson Tryggvi Benediktsson járnsmið- ur, Hamraborg 26, Kópavogi, verður sjötíu og fimm ára á morgun. Starfsferill Tryggvi fæddist í Broddanesi í Strandasýslu og ólst þar upp. Hann stundaði nám við Iðnskólann í Reykjavík 1945-49, lærði járnsmíði og lauk prófum í þeirri iöngrein. Tryggvi starfaði lengst af við jámsmíðar í Hamri og Landssmiðj- unni. Tryggvi hóf búskap í Reykjavík 1949. Hann flutti í Kópavoginn 1955 og hefur átt þar heima siðan. Tryggvi sat um árabil í stjórn Fé- lags jámiðnaðarmanna, fyrst frá 1954 og síðast 1987. Hann var ritari félagsins 1955-63 og varaformaður þess 1963-87. Þá sat hann í stjóm Málm- og skipasmíðasambandsins 1965-85 og er formaður Iðnráðs frá 1976. Fjölskylda Eiginkona Tryggva var Sigríður Kjartansdóttir, f. 17.3. 1926, d. 18.12. 1988, húsmóðir. Hún var dóttir Kjartans Vigfússonar, sjómanns í Reykjavík, og Þorsteinu Árnadóttur húmóður. Börn Tryggva og Sig- ríðar era Þórann Björk Tryggvadóttir, f. 18.12. 1951, aðstoðarskóla- stjóri í Sandgerði, gift Reyni Þór Ragnarsson raftækni og eiga þau fjögur börn; Kjartan Tryggvason, f. 23.12. 1956, bílstjóri í Kópa- vogi, kvæntur Þóranni Guðnýju Tómasdóttur og á hann fimm böm og eitt fósturbarn; Gyða Tryggvi Benediktsson. Dröfn Tryggvadóttir, f. 20.4. 1963, 1879, d. blaðamaður, í Kópavogi og á hún eitt bam. Systkini Tryggva era Ingibjörg Sigríður Benediktsdóttir, f. 14.1. 1917, húsmóðir í Dan- mörku; Torfi Benedikts- son, f. 1.1. 1918, jám- smiður í Reykjavík. Foreldrar Tryggva voru Benedikt Friðriks- son, f. 26.9. 1889, d. 1979, bóndi og verkamaður í Strandasýslu, og Magða- lena Jónsdóttir, f. 6.2. 1967, húsfreyja. Guðmundur Sörli Harðarson Guðmundur Sörli Harðarson húsasmiða- meistari, Hólabraut 14, Hafnarfirði, er fertugur í dag. Starfsferill Guðmundur fæddist í Reykjavík og ólst upp í Selásnum og síðan í Heiðarbænum til tólf ára aldurs. Þá flutti hann með fjölskyldu sinni að Kverngrjóti í Saurbæ í Dölum. Guðmundur var í Árbæjarskóla, lauk skyldunámi að Laugum í Sæl- ingsdal, stundaöi nám við Héraðs- skólann í Reykjanesi í einn vetur, stundaði siöar nám við Iðnskólann á Patreksfirði og lauk þar sveinsprófi í húsa- smíði. Guðmundur bjó á Akranesi um hríð og vann þar við pípulagn- ir. Hann flutti síðan til Patreksfjaröar þar sem hann átti heima í fjögur ár. Þar var hann fram- kvæmdastjóri fyrir tré- smíðafyrirtæki sem hann starfrækti, ásamt tveimur félögum sínum. Guðmundur flutti til Reykjavíkur 1988 og hefur síðan átt heima á höfuðborgarsvæðinu. Þar hefur hann stundað húsasmiðar, m.a. hjá Kristni og Pétri og hjá Markholti. Að undanfornu hefur hann verið verktaki fyrir Haghús sem byggir raðhús úr steyptum ein- ingum. Fjölskylda Guðmundur hóf sambúð 1979 með Ingibjörgu Ólafsdóttur, f. 23.3. 1961, nema. Þau giftu sig 7.4. 1985. Ingi- björg er dóttir Ólafs Tr. Elíassonar og Ólafar Guðlaugar Sigurðardóttur sem bæði eru sérhæfðir fisk- vinnslustarfsmenn. Börn Guðmundar og Ingibjargar era Ema Lóa Guðmundsdóttir, f. 22.5. 1979, nemi við Fjölbrautaskól- ann í Breiðholti; Heiða Ösp Guö- mundsdóttir, f. 21.8. 1981, nemi við Fjölbrautaskólann í Breiðholti; Hildur Sif Guðmundsdóttir, f. 31.7. 1994. Systkini Guðmundar era Sigur- björg Daðey Harðardóttir, f. 5.9. 1956, verkakona í Reykjavík; Þröst- ur Harðarson, f. 25.11. 1958, bóndi í Dölum; Steinunn Harðardóttir, f. 2.3. 1963, ritari í Reykjavík; Hörður Harðarson, f. 22.11. 1966, sprengju- fræðingur í Reykjavík. Foreldrar Guðmundar eru Hörð- ur Guðmundsson, f. 25.7. 1932, bif- vélavirki og fyrrv. bóndi að Kvern- grjóti í Saurbæ, og Erna Sörladóttir, f. 3.7.1938, gangavörður og húsmóð- ir. Ætt Hörður er sonur Guðmundar Jón- atanssonar og Daðeyjar Guðmunds- dóttur frá Fossum í Skutulsfirði. Erna er dóttir Sörla Ágústssonar og Sigurbjargar Guðmundsdóttur frá Djúpuvík og síðar að Kirkjubóli i Valþjófsdal í Önundarfirði. Guðmundur Sörli Harðarson. Hans Kristján Arnason Fjölskylda Hans kvæntist 24.6. 1994 Kristínu Petersen, f. 17.6. 1952, en hún starfrækir listaverka- sölu og gallerí í Reykja- vík. Kristín er dóttir Óskars Petersen, f. 12.9. 1917, d. 29.8. 1985, full- trúa hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur, og k.h., Ingibjargar Finns Peter- sen, f. 3.3. 1924, húsmóð- ur. Hans Kristján Árnason. I afmælisgrein sem birtist í síð- asta helgarblaði um Hans Kristján Árnason fórust fyrir mikilvægar upplýsingar um fjölskylduhagi af- mælisbamsins. Greinin er því birt hér leiðrétt, og viðkomandi beðnir velvirðingar á mistökunum. Hans Kristján Ámason varð fimmtugur á sunnudaginn var. Starfsferill Hans Kristján fæddist I Reykja- vík og ólst þar upp. Hann lauk stúd- entsprófi frá VÍ 1969, prófi í við- skiptafræði frá Hí 1973 og stundaði framhaldsnám í viðskipta- og hag- fræði við London Business School 1973-75. Hans var viðskiptafræðingur hjá Sambandi veitinga- og gistihúsaeig- enda 1973, aðstoðarframkvæmda- stjóri hjá SÍS 1975-78, kennari við VÍ 1978-80, framkvæmdastjóri Hans Eide hf. 1978-84, og Alþýðuleikhúss- ins 1984-85, stofnandi, fram- kvæmdastjóri og stjómarformaður Stöðvar 2 og í stjórn íslenska mynd- versins hf. 1985-90, stundaði ráðgjöf og sinnti ýmsum verkefnum frá 1991 og starfrækir nú listaverka- verslunina daDa ehf., í Kirkjuhvoli ásamt eiginkonu sinni. Hans veir aðstoðarmaður við aðal- ræðismannsskrifstofu Hollands á ís- landi, vararæðismaður Hollands 1979-83, sat í stúdentaráöi HÍ 1970-72, stjóm Vöku 1971-72, í fjár- öflunamefnd Rauða kross íslands 1978, í stjórn Lífs og lands 1980-82, er félagi i The American-Scandinav- ian Society í New York og í The LBS Alumni Association, var þátt- takandi í fjölþjóðlegri vinnustofu listamanna, MOB-SHOP, 1981 og hefur átt frumkvæði og haft umsjón með fjölda listaviðburða hér á landi og erlendis. Hans skrifaði bókina Að elska er að lifa. Hans Kristján Ámason ræð- ir við Gunnar Dal, útg. 1994. Hann hefur skrifað fjölda blaðagreina, flutt útvarpserindi og haft umsjón með og stjórnað sjónvarpsþáttum fyrir Stöð 2 og Ríkissjónvarpið. Þá gaf hann út bókina um Vilhjálm Stefánsson landkönnuð 1995. Fyrri kona Hans var Anna Sigríð- ur Pálsdóttir, f. 16.7. 1947. Þau skildu. Synir Hans og Önnu: Árni Páll, f. 27.12. 1968, kvikmyndagerðarmaður í Los Angeles; Gunnar, f. 26.5. 1971, leikari, búsettur í Reykjavík, kvæntur Guðrúnu Lárasdóttur og eiga þau tvö böm, Snæfríði Sól og Kormák Jarl; Ragnar, f. 29.3. 1978, dvelur nú í Washington DC. Stjúpdóttir Hans og dóttir Krist- ínar er Ástríður Viðarsdóttir, f. 23.10. 1985, nemi. Systkini Hans: Ing- unn, f. 3.12. 1948, skrif- stofumaður; Guðrún, f. 28.4. 1950, háskólanemi; Einar, f. 3.2. 1956, hag- fræðingur. Foreldrar Hans: Ámi Kristjánsson, f. 19.1. 1924, fyrrv. fram- kvæmdast. og aðalræð- ismaður í Reykjavík, og k.h., Kristine Eide Kristjánsson, f. 22.10. 1921, húsmóðir. Ætt Foreldrar Áma vora Kristján Einarsson, framkvæmdastjóri Sölu- sambands islenskra fiskframleið- enda og ræðismaður í Reykjavík, og k.h., Ingunn Ámadóttir húsmóðir. Kristine er dóttir Hans Eide, kaupmanns í Reykjavík, og k.h., Guðrúnar Vilborgar Jónsdóttur Eide húsmóður. f
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.