Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1997, Síða 4
ftéttir
W! 5í3ðT/3VOV5 .8 HUOAQ5!AOOA 1
LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1997 jLlV
Mikill meirihluti fulltrúa á landsfundi Alþýðubandalagsins:
Á bandi Margrétar
Svavar Gestsson alþingismaður í sáttahug:
Segjum kannski,
kannski, kannski
- um samrunann við Alþýðuflokkinn
Lúðvík Geirsson.
um veiðileyfagjald og sameiningu og
þeirrar nýbreytni væri að vænta að
flokkurinn kæmi sér upp stefnu í báð-
um málum.
Lúðvik Geirsson, bæjarfulltrúi í
Hafnarfirði, sagði ljóst að fylgi við
stefnu formannsins væri afgerandi.
„Það er afgerandi meirihluti í þá
veru að menn leiti eftir samvinnu og
samstaríí. Það eru auðvitað alltaf
Mikil meirihluti fulltrúa á lands-
fundi Alþýðubandalagsins er í bandi
Margrétar Frímannsdóttur, formanns
flokksins, í sameiningarmálinu. í gær
fækkaði enn þeim sem eru á sama
máli og Hjörleifur Guttormsson al-
þingismaður sem boðaði jarðarfor
flokksins ef tillaga framkvæmda-
stjómar yrði ofan á varðandi samein-
ingarviðræður við Alþýðuflokkinn.
Viðbrögð Hjörleifs voru geysihörð en
undir hans sjónarmið tóku Steingrím-
ur J. Sigfússon og Ragnar Amalds
þótt þeir gengju ekki eins langt í sín-
um málflutningi og virtust vilja skilja
eftir útgönguleið. Alls töluðu um 50
fulltrúar undir liðnum almennar um-
ræður og tókst ekki að tæma þá dag-
skrá fyrr en í gær.
Það var mat þeirra fulltrúa sem DV
ræddi við í gær að formaðurinn stæði
með pálmann í höndunum í slagnum
Fulltrúar á landsfundi fögnuðu í gær þrumandi ræðu formanns síns. Margrét
Frímannsdóttir talaði blaðalaust og skammaði þá harðlínumenn í flokknum
sem brugðist hafa illa við hugmyndum um sameiningarviðræöur.
„Það er enginn ágreiningur um
að það eigi að tala við aðra flokka.
Það er enginn sem segir að ekki
eigi að tala við aðra flokka og það
er enginn hér sem segir að það eigi
að leggja Alþýðubandalagið niðim
á morgun,“ segir Svavar Gestsson
alþingismaður um þau ágreinings-
mál sem uppi eru á landsfundi Al-
þýðubandalagsins. Hann flutti á
fimmtudagskvöld harðorða ræðu
þar sem hann sá mörg tormerki á
samstarfi, sérstaklega við Alþýðu-
flokkinn. Svavar var í sáttahug
þegar DV ræddi við hann í gær og
sagði meintan ágreining vera að
mestu tilbúning fjölmiðla.
„Við þurfum hér á þessu þingi
að finna málefnagrundvöll til að
finna út hvað við viljum sjálf. Síð-
an þarf að fara í viðræður við aðra
flokka og niðurstaðan úr þeim
verður síðan lögð fyrir á næsta ári.
Bæði ég og Margrét höfum sagt að
hér séum við fyrst og fremst að
ræða um málefni en ekki form,“
Svavar Gestsson alþingismaður
DV-mynd S
segir Svavar.
Aðspurður um þá heift sem fram
hefur komið fram í ræðum lands-
fundarmanna með og á móti sam-
vinnu segir Svavar að rótina megi
rekja til fjölmiðla.
„Ég held að umræðan hafi að ein-
hverju leyti verið spönuð upp af
fjölmiðlaumræðu. Umræðan í dag
var miklu betri en í gærkvöld og ég
held að það sé af því að menn hafi
allt í einu áttað sig á því að við
erum í raun og veru sammála um
flesta hluti en hafi haldið að þetta
væri öðruvísi þegar þeir komu á
fundinn," segir Svavar.
Hann segir ekkert útilokað í þeim
efnum að A-flokkamir geti náð sam-
an á hinu pólitíska sviði.
„Það er mjög langt á milli í mörg-
um málum en við vitum í raun ekki
hversu mikið skilur í milli. Krat-
amir hafa líka færst til vinstri þar
sem þeir hafa lært sína lexíu af
samstarfinu við ihaldið. Við segjum
ekki nei, við segjum kannski,
kannski," sagði Svavar Gestsson og
raulaði alþekktan dægurlagatexta
frá því á sjöunda áratugnum. -rt
Hjörleifur Guttormsson hefur hótað klofningi Alþýðubandalagsins ef tillaga
um sameiningarviðræður A-flokka verði samþykkt. Hann er talinn einangr-
ast æ meira í afstöðu sinni. Hér er hann á tali við Oddberg Eiríksson úr
Njarðvík.
DV-myndir S
skiptar skoðanir um leiðir og sumir
hafa verið uppteknir af einhverju
formi og skipulagi sem er seinni tíma
mál. Það sem málið snýst irni núna er
hvar málefhasamstaðan liggur. Það er
það sem óklárað er núna og mér finnst
sumir vera komnir nokkuð langt fram
úr sjálfum sér,“ segir Lúðvík.
Hann segir afgerandi vilja vera hjá
sveitarstjómarmönnum og almennum
fulltrúum að ganga til þeirra verka
sem snúa að mögulegri samvinnu eða
samruna.
„Það er afgerandi sameiningarhug-
ur hjá fólki,“ segir Lúðvík.
-rt
Þorvarður Tjörvi Ólafsson:
Nokkrir þing-
menn á móti
„Staðan er mjög ljós og það
verður gengið til viðræðna um
samvinnu við aöra flokka. Það
kristallaðist í umræðunum í gær
að það eru nokkrir þingmenn sem
eru á móti samstarfi. Hitt er alveg
ljóst að langstærstur hluti lands-
fundarmanna vill samstarf við
aðra flokka og ég trúi ekki öðru en
það verði ofan á,“ segir Þorvarður
Tjörvi Ólafsson, landsfundarfull-
trúi Alþýðubandalagsins og for-
maður Verðandi, um þær tillögur
sem liggja fyrir fundinum um að
þegar verði gengið til viðræöna
við Alþýðuflokk og önnur stjóm-
málaöfl á vinstri vængnum.
Hann segir flokkinn veröa að
koma sér upp stefnu í fiskveiði-
málum og samrunamálum. Þann
slag verði aö taka og gera út um
málin.
„Það er alveg ljóst að það verð-
ur fómarkostnaður hvemig svo
sem máliö fer. Við getum ekki
lengur velt málum á undan okkur
Þorvaröur Tjörvi Ólafsson.
og það er nauðsynlegt að útkijá
þau. Alþýðubandalagið verður
einfaldlega að koma sér upp stefnu
í þessum málum,“ segir Þorvarður
Tjörvi.
-rt
HAUSTSYNING
BALENO • SWIFT • VITARA
Sjáðu m.a.:
Upphœkkaðan 33" Vitara
Vitara grind án yfirbyggingar
Fjórhjóladrifinn Baleno Wagon
LAUGARDAG
OG SUNNUDAG FRÁ 12-17
Fáðu fría
ljósastillingu
á meðan þú
skoðar nýju
bílana!
SUZUKI
AFL OG
ÖRYGGI
SUZUKI BÍLAR HF
Skeifunni 17, 108 Reykjavík.
Sími 568 51 00.