Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1997, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1997, Blaðsíða 24
LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1997 24 ffikarkafli ★ ir mm Sigurður A. Magnússon rithöfundur heldur áfram að segja þroskasögu sína í nýrri bók: Klausturdvöl í Aþenu Siguröur A. Magnússon rithöf- undur hefur sent frá sér æviminn- ingabókina Með hálfum huga. Útgef- andi er Mál og menning. Héma er Sigurður að halda áfram þroska- sögu sinni sem hófst með bókinni Undir kalstjömu. Nýja bókin er þó ekki í skáldsögubúningi. Hann lýsir mótunarárunum í Kaupmannahöfn, Stokkhólmi, New York og á íslandi auk þess sem hann lýsir því hvern- ig Grikkland fangaði hjarta hans. Við grípum niður í kafla í bók- inni þar sem hann lýsir klaustur- dvöl í Aþenu: „Jim Gribble ók mér til Aþenu í lok september, enda átti hann fleiri erindi í miðstöð menningarinnar. Ferðin suður gekk stórslysalaust, en tvívegis voram við hætt komnir á kröppum beygjum, og kenndi Jim þreytu og svefnleysi um tvisýnuna sem hann stofnaði okkur í. Til að hvíla hann um stund fékk ég í fyrsta sinn á ævinni að taka í stýri og var skemmtileg reynsla, en vit- anlega lögleysa jafht í Grikklandi sem anníirstaðar. Við komum til Aþenu í niða- myrkri seint um kvöld. Ég vissi mér engan stað vísan, en afréð að heim- sækja góðvin minn af pílagríma- skipinu, Tassos Maltezos, í Pangratí sem þá var nýbyggð útborg uppaf Ólympíuleikvanginum, en er nú ná- lega miðsvæðis. Ég gerði mér vonir um að foreldrar hans gætu hýst mig fyrstu nóttina. Daginn eftir var ætl- unin að hafa samband við Jannís Poulos og herma uppá hann loforð- ið um að útvega mér hæli í Móní Petrakí. Þó komið væri frammundir miðnætti tók Tassos mér opnum örmum og kynnti mig fyrir foreldr- unum sem sýndu mér staka alúð, bjuggu um mig á bedda í stofunni og buðu mér góða nótt. Húsbóndinn var kaupmaður í miðborginni og þurfti að fara til vinnu árla morg- uns. Sigurður fær gullkross grísku Fönixorðunnar voriö 1955 úr hendi Christians Palamas. Kosningabarátta Við Tassos tókum daginn snemma og héldum inní miðborgina að leita uppi Jannís Poulos. Ég vissi sem var að þingkosningar vora í uppsiglingu, en Tassos sagði mér þau óvæntu tíðindi að Jannís væri á kafi í kosningaslagnum og styddi frambjóðanda íhaldsaflanna, Alex- ander Papagos hershöfðingja, sem sigrað hafði kommúnista í borgarastyrj öldinni með dyggum stuðningi banda- rískra hersveita undir yfirstjórn Van Fleets. Við fé- lagar fundum kosn- ingaskrifstofuna eftir stutta leit og hittum þar fyrir hinn unga prest, sem mér þótti hafa tekið umtalsverðum stakkaskiptum síðan í júní. Nú óð hann í sílinu og hafði naumast tóm til að kasta á okkur kveðju, hvaðþá sinna erindi mínu. Eftir japl og jaml og fúður kom uppúr dúmum að hann hafði stein- gleymt loforðinu, en kvaðst mundu vinda að því bráðan bug að ná tali af erkibiskupi og koma mál- inu í höfn. Við svo búið urðu kveðj- ur heldur snubbóttar og við Tassos héldum stúmir útí miðdegissvækj- una. Samfelld píslarganga Næstu tvær vikur urðu nálega samfelld píslarganga. Daglega lagði ég leið mína á kosningaskrifstofúna og fékk ævinlega sömu svör: Jannís hafði ekki unnist tími til að ná tali af erkibiskupi, en mundi reyna það daginn eftir. Þegar nær dró kosn- ingum sá ég frammá að vonlaust væri um nokkra niðurstöðu fyrren þær væru afstaðnar, en hélt samt af einskærri kergju áfram að angra prestinn með daglegum heimsókn- um, enda hafði ég fátt annað við tímann að gera en arka glorsoltinn um sólböðuð og mcmnmörg strætin í miðborginni, ýmist yfirkominn af vonleysi eða al- tekinn þeim ásetningi að komast klakklaust úr sjálfheldunni. Á þess- ari píslargöngu kom mér iðulega í hug kviðlingur Jóns gamla á Bæg- isá: Margur fengi mettan kvið, má því nærri geta, yrði fólkið vaniö við vind og snjó að éta. Támhentur og vegalaus í þessum ófyrirséðu þrengingum kom áþreifanlega á daginn hversu traustum vináttuböndum ég hafði bundist mörgum Grikkjanna á píla- grímaskipinu. Ég var bæði tómhent- ur og vegalaus, en nú bragðu góöir vinir við skjótt og forðuðu mér frá útigangi og hungurdauða. Sálar- ástandið var vægast sagt bágbor- ið vikurnar tvær sem ég arkaði milli misjafrilega birgra heim- ila og fékk náttból á sófa eða bedda, en hvarvetna mætti ég hjartahlýrri gestrisni og samúð foreldra og annarra aðstandenda sem ekki þekktu mig nema af orð- spori. Fyrstu tvær næt- urnar svaf ég heima hjá Tassosi, aðrar tvær heima hjá Effi þeirri sem að ósekju var óbein orsök vand- ræðanna, og þannig koll af kolli uns þar kom að Jannís náði fundi erkibiskups og mér var heim- iluð langþráð vist í Móní Petrakí. Um svipað leyti sá ég í blöðunum að kominn væri til Aþenu bekkjar- bróðir minn, Öm Clausen, sem víð- þekktur var orðinn fyrir afrek sín í tugþraut. Átti hann að keppa á al- þjóðlegu íþróttamóti sem ég hafði ekki tök á að sækja, en afréð að líta inn til hans á Hotel King George. Kom honum greinilega á óvart að hitta fyrir gamlan skólabróður á þessum breiddargráðum, en tal- drýgst varð honum um hitann sem þjakaði hann, enda nálgaðist hita- stigið 50 gráður og ekki enn komin loftkæling nema í anddyri hótelsins. Örn kynnti mig fyrir grískum þjálf- ara sem annaðist um hann, þó mál- stirður væri á öðrum tungum en móðurmálinu. Sá var sérlega altil- legm- og barnslega forvitinn einsog Grikkja var háttur. Lék honum einkum hugur á að fá skýringu á nafninu Örn sem virtist heilla hann. Þegar hann fékk að vita að það merkti aetos á grísku, ljómaði hann einsog tungl í fyllingu og kvað þama komna skýringu á fimi og léttleik hins unga garps. Öm þurfti að fara á æfingu fyrir keppnina, svo ég hafði stutta viðdvöl. Á leiðinni heim í klaustrið fann ég í svipinn fyrir heimþrá sem lengi hafði legið í dvala. Mér varð líka hugsað til Rúnu og vonbrigðanna sem ég hlaut að hafa bakað henni með því að vera um kyrrt í Grikklandi. Vistaður í tveggja manna klefa í Móní Petrakí var fátt munka, en þeim mun fleiri guðfræðistúdentar hvaðanæva af Grikklandi, sem lutu ströngum klausturaga undir forsjá siðavands biskups. Var ég vistaður í tveggja manna klefa með ungum manni úr fjarlægu héraði sem ekki gat státað af öllu meiri menntun en gengur og gerist meöal grískra al- múgamanna, kunni til dæmis ekki orð í annarri tungu en móðurmál- inu. Kom það mér vitanlega til góða í viðleitninni við að ná valdi á grískunni. Grískir prestar eru að jafnaði ekki langskólagengnir, held- ur valdir af ibúum heimabyggðar- innar og sendir á sérstök tveggja vetra námskeið sem guöfræðideildir háskólanna gangast fyrir. Eiginlegir guðfræðingar grísku kirkjunnar eru flestir óvígðir menn. Petros klefanautur minn var sannkallað gæðablóð, vinhlýr, hrekklaus og skrafhreifur, en ótrú- lega fáfróður um guðfræðileg efni. Ég ræddi við hann á minni bjöguðu grísku og tókst furðuvel að gera mig skiljanlegan, enda umræðuefnin ekki tiltakanlega háfleyg. Fyrsta eða annað kvöldið í klefanum lét ég þess getið í spaugi, að kannski ætti ég að útvega mér jámbent náttfot úrþví ég væri kominn í sambýli við Grikkja, og þótti Petrosi það með eindæmum fyndin athugasemd sem hann átti eftir að rifja upp í tíma og ótíma með miklum hlátrasköllum. Matur af skornum skammti Vetrarvistin í Móní Petrakí var annars ekki giska söguleg nema fyr- ir þá sök, að matur var af ákaflega skornum skammti, þó margir klaustumautanna væru smurtuleit- ir og pattaralegir, enda fengu þeir nálega allir vikulega matarpinkla aö heiman. Vesalingur minn hafði ekki uppá neitt slíkt að hlaupa og varð að una þvi að horast dag frá degi uns þar kom undir vorið að telja mátti í mér hvert einasta rif. Hef ég ekki í annan tíma orðið svo holdgrannur, en það virtist ekki baga heilsufarið. Ég var frjáls allra minna ferða á daginn, en klukkan sjö að kvöldi var klaustrinu lokað og snæddur kvöldmatur með tilheyrandi tíða- gerð undir vökulu auga Grígórís biskups. Síðan las maður eða lét sér leiðast þartil ljós vora slökkt klukk- an ellefu. Við voram vaktir klukkan sjö á morgnana og hófst þá mikill handagangur við morgunþvott og klósettsetur. Af einhverjum dular- fullum orsökum þurftu allir klaust- Við fréttalestur hjá Sameinuöu þjóöunum. urbúar að ganga öma sinna fyrir morgunverð og var mikil þröng fyr- ir dyrum. Verst var þó að vatn var skammtað í Aþenu og kom einungis úr krönum tvo tíma síðdegis annan- hvem dag. Vora þá öll tiltæk ílát fyllt vatni sem endast skyldi til tveggja daga. En í klaustrinu hafði vatnseklan þann hvimleiða fylgi- fisk, að allar klósettskálar barma- fylltust af saur með tilheyrandi fnyk, og var sannast sagna umtals- verð þolraun að stunda morg- unsnyrtingu í þvottasalnum fram- anvið klósettin. Skotsilfur frá fornleifa- fræðingi Meðþví að útlendingar vora til- i i i 4 i i i i i i i i i i i i i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.