Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1997, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1997, Síða 17
LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1997 Islenskar kvikmyndir: Sjö hátíðir í Svíþjóð í samvinnu Landssambcinds ís- lendingafélaganna og sænska kvik- myndafyrirtækisins Triangeíilm verða á næstunni haldnar sjö ís- lenskar kvikmyndahátíðir í Sví- þjóð. Leggja þessir tveir aðilar um 10 milljónir króna í að kynna ís- lenskar kvikmyndir. Fyrsta hátíðin hófst í Stokkhólmi en hinar verða í Málmey, Gautaborg, Lundi, Uppsöl- um, Umeá og loks Vaxsjö. Myndim- ar sem eru sýndar eru Blossi, Á köldum klaka, Ingaló, Svo á jörðu, Sódóma Reykjavík og Djöflaeyjan. Myndimar hafa þegar fengið já- kvæða umfjöllun í sænskum fjöl- miðlum. Umfangsmest hefur hún verið í blöðunum Dagens Nyheter og Svenska Dagbladet, einkiun um Sódómu og Djöflaeyjuna. Landssamband íslendingafélag- anna er hagsmuna- og menningar- samtök 10 íslendingafélaga í Svíþjóð með 3600 félagsmenn innanborðs. Fyrir hönd félaganna hefúr Ljótur Magnússon umsjón með skipuiagn- ingu hátíðanna. Triangefilm annast m.a. innflutning og dreifingu á kvikmyndum og rekur kvikmynda- hús í þremur stærstu borgum Sví- þjóöar. -bjb Við opnun fyrstu kvikmyndahátíðarinnar í Stokkhólmi buðu sendiherrahjón- in Hörður H. Bjarnason og Áróra Sigurgeirsdóttir til veglegs hófs. Hér eru kvikmyndaleikstjórarnir Kristín Jóhannesdóttir og Júlíus Kemp meö Hörð á milli sín í léttu spjalli. Myndir Elsa Quarsell að sjálfsögðu viðstaddur hófið f Stokkhólmi og ræðir hér við um- sjónarmann kvikmyndaþáttar í sænska ríkissjónvarpinu, Gunnar að nafni. Sharon geislar Kynbomban Sharon Stone, sem gerði alla karlmenn rugl- aða með leik sínum í myndinni Basic Instinct fyrir nokkrum árum, hefúr ástæðu til að gleðj- ast þessa dagana. Kvikmynda- framleiðendur og leikstjórar vilja ólmir fá hana til liðs við sig og tilboðunum rignir inn. Hún er á fostu með Phil nokkrum Bronstein, ritstjóra San Francisco Examiner, og ekki er annað á henni að sjá en hún hreinlega geisli af gleði og hamingju þessa dagana. Leikkonan hefur lýst því yfir að hún hafi ekki tíma fyrir böm í lífi sínu en henni virðist þó ekki leiðast í félagsskap nýjasta meðleikarans, hins sex ára Jean-Luke Figueroa. Þau leika saman í Gloríu, endur- gerð þessarar sígildu myndar Johns Cassavetes frá 1980. Koss frá litla meðleikaranum vlrð- ist falla Sharon Stone vel í geð. Sérstaða Ráðningarþjónustu Gallup eru fagleg vinnubrögð þar sem gæðastaðlar eru hafðir að leiðarljósi. Ráðningarþjónusta Gallup leggur kapp á að veita bæði einstaklingum og fyrirtækjum framúrskarandi þjónustu. Styrkleikamat Gallup (Gallup Employee Selection) metur hæfileika, styrkleika og væntanlega frammistöðu umsækjenda. Styrkleikamat Gallup hefur þá sérstöðu að það er lagað að þörfum einstakra stofnana og fyrirtækja hverju sinni. Gallup á íslandi hefur í samvinnu við fjölmörg íslensk fyrirtæki prófað og staðfært Styrkleikamat Gallup fyrir íslenskar aðstæður með góðum árangri. Ráðningarþjónusta Gallup býður traust, fagleg vinnubrögð og fljóta og örugga þjónustu. HJÁ GALLUP FÆRÐ ÞÚ MÆLANLEG SVÖR VIÐ SPURNINGUM EINS OG: ► Hverjir eni styrkleikar umsækjanda? ► Hvar liggur styrkur umsækjanda samanboríð við núverandi starfsmenn? ► Hversu líklegur er umsækjandi til að standa sig vel í starfi? ► Hvemig fellur umsækjandinn inn í vinnuumhverfi og menningu fyrírtækisins? ► Hver er likleg þjátfunarþörf umsækjanda? ► Hvemig er best að stýra umsækjanda ef tO ráðningar kemur? GALLUP NYJAR OG ARANGURSRIKAR ADFERDIR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.