Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1997, Side 6
í^*SŒSiirtiŒ
LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1997
stuttar fréttir
Fórnarlamba leitað
Portúgalar og Spánverjar leit-
uðu í gær þeirra sem saknað er
eftir óveðrið sem gekk þar yfir
aðfaranótt fimmtudags. Mikil
flóð urðu á sunnanverðum íber-
iuskaga í kjölfar þriggja daga
rigninga.
Ekki staðgengill Díönu
Sara Ferguson, hertogaynja af
Jórvík, lýsti
þvi yfir að
hana dreymdi
ekki um að
feta í fótspor
Diönu. Sara
vísaði því á
bug að hún
væri að reyna
að vinna hylli
almennings á
ný nú þegar Díana er öll. Dóm-
stóll í París vísaði í gær á bug
tilraun sjö franskra ljósmyndara
til að fá fjarlægðan kafla úr bók
um andlát Díönu. Bókin ber
nafnið „Þeir drápu hana“.
Dauðasveitir
| Dauðasveitir herja i að
minnsta kosti níu fylkjum í
' Brasilíu, aö því er mannréttinda-
1 samtök halda fram. Margir félag-
1 anna í dauðasveitunum eru lög-
á reglumenn.
Með ofnæmi
Mikhail Gorbatsjov, fyrrver-
| andi forseti Sovétríkjanna, er
illa haldinn af ofnæmi. Hann er
í Sviss og getur ekki sótt sam-
I komur eins og fyrirhugað var.
Seldu bórn
ftalska lögreglan hefur haft
hendur í hári alþjóðlegra barna-
níðinga sem seldu böm til vænd-
is á Vesturlöndum. Glæpagengi í
Kína og japönsk mafia stjóma
viðskiptunum.
Cherie gagnrýnd
Nokkur bresk dagblöð gagn-
rýna Cherie
Blair, forsæt-
isráðherra-
frú Bret-
lands, fyrir
að hafa verið
í síðbuxum
er hún heim-
sótti Elísa-
betu drottn-
ingu á
sveitasetri hennar i Skotlandi.
Gagnrýnin þykir skjóta skökku
við í landi þar sem karlmenn
ganga í pilsum.
Matarskortur
Hungursneyð vofir yfir 200
þúsund manns í Sierra Leone í
kjölfar stríðsins sem hefúr
staöið yfir frá því aö herinn tók
völdin í maí.
Vantraust
Velferðarflokkurinn í
Tyrklandi reyndi í gær að fella
stjómina meö því að fara fram á
atkvæðagreiðslu um vantraust.
Heimtar svör
Benjamin Netanyahu, forsæt-
isráðherra
ísraels, heimt-
ar svör við því
hvað Palest-
ínumenn bjóð-
ast til að gera
stöðvi ísraelar
landnám.
Hingað til
hefur ísraelski
forsætisráðherrann harðneitað
að stöðva nýbyggingar ísraela á
herteknu svæðunum.
Á snigilshraöa
Friðarviðræður milli
stjómvalda í Súdan og
uppreisnarmanna tU að finna
lausn á borgarastríðinu, sem
staðið hefur í 14 ár, ganga með
snigilshraöa, að því er
uppreisnarmenn greina frá.
Reuter
Samiö í Frakklandi:
Vegatálmar
fjarlægðir
Stærsta verkalýðsfélag franskra
vörubUstjóra og tveir helstu vinnu-
veitendur bUstjóranna undirrituðu
i gær nýja samninga.
„Við höfum náð því sem við gát-
um í þessari lotu. Ef við höldum að-
gerðunum áfram eiginn við á hættu
að missa aUt. Það er áhætta sem við
getum ekki tekið,“ sagði leiötogi
CFDT, stærsta verkalýðsfélagsins.
Um 80 prósent verkfaUsmanna era í
félaginu og greiddu 62 prósent
þeirra atkvæði með samningunum.
Þrjú önnur verkalýðsfélög neit-
uðu að undirrita samkomulagið
sem náðist snemma í gærmorgun
eftir tveggja daga viðræður.
Samkvæmt samkomulaginu fá
bUstjórarnir strax 6 prósenta launa-
hækkun og tryggingu fyrir lág-
marks mánaðarlaunum.
En jafnvel áður en samkomulag-
ið var undirritað vora bUstjórar
byrjaðir að fjarlægja vegatálma.
Einn af þeim fyrstu sem voru fjar-
lægðir var vegatálminn við Calais.
Hann h£ifði valdið breskum yfir-
völdum mikilli gremju þar sem
hann hindraði umferð breskra
vörabila með ferjum milli Frakk-
lands og Bretlands.
Vörubilstjórar fjarlægðu einnig
vegatálma við tvær stórar olíu-
birgðastöðvar í suðurhluta Frakk-
lands. Þar sem andstæðingar samn-
inganna taka þátt í verkfallsvörslu
við vegatálmana er gert ráð fyrir að
nokkrir dagar líði áður en allir hafa
verið fjarlægðir og umferð verður
eðlileg.
Á leiðtogafundi Bretlands og
Frakklands i gær lofaði Lionel
Jospin, forsætisráðherra Frakklands,
að skaðabótakröfur yrðu afgreiddar
innan þriggja mánaða. Reuter
Ungir bolsjévikkar í Moskvu fögnuðu í gær 80 ára afmæli októberbyltingarinnar. Nokkur þúsund kommúnistar, flestir
aldraðir, söfnuðust saman í Moskvu í gær og gengu um miðborgina með flokksleiðtoga í fararbroddi. Símamynd Reuter
Deilan um bandarísku vopnaeftirlitsmennina:
Clinton svartsýnn á lausn
BiU Clinton, forseti Bandaríkj-
anna, kvaðst í gær svartsýnn á að
samkomulag næðist við írak. Lýsti
forsetinn þessu yfir eftir að augljóst
þótti að erindrekum Sameinuðu
þjóðanna hefði mistekist að fá
Saddam Hussein íraksforseta til að
aflétta banni sínu við þátttöku
Bandarikjamanna í vopnaeftirliti
Sameinuðu þjóðanna í írak.
Búist er við að sendimenn Sam-
einuðu þjóðanna geri á mánudaginn
Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna
grein fyrir heimsókn sinni til
Bagdad. „Þeir munu gefa skýrslu og
síðan verða þjóðir heims að taka
ákvörðun um hvað gera á,“ sagði
Clinton meðal annars á fundi með
fréttamönnum í Hvíta húsinu i gær.
Forsetinn gaf ekkert í skyn varð-
andi skjótar alþjóðlegar aðgerðir
gegn írak. „Við verðum að ráðgast
við bandamenn okkar. Þeir verða
að fá að láta álit sitt í ljós,“ sagði
Clinton. Hann bætti því að allir
virtust ákveðnir í að vopnaeftirlit-
ið færi fram samkvæmt skilyrðum
Sameinuðu þjóðanna en ekki sam-
kvæmt skilyrðum Saddams
Husseins íraksforseta. William
Cohen, vamarmálaráðherra Banda-
ríkjanna, sagði í gær aðgerðir gegn
írak nauðsynlegar. Reuter
Kauphallir og vöruverð erlendis
ffímkfurt
6000 DAX-40
4000'
2000 3823,99
3823,99
J Á S 0
• . ' ■■ Jk
3000C Nlkkel I
1
2000C
1000C )
16533,9
J Á S 0
I Bnrisíri 98 okt.,1
300 200
100
0 201
$/t J Á S 0
Fleiri stjórn-
| málamenn ættu
aö segja af sér
Göran Persson, forsætisráð-
herra Svíþjóðar, segir að fleiri
I stjórnmála-
menn hefðu
átt að segja af
sér. „En þeir
gera það ekki
þar sem við
segjum ekki
af okkur í Sví-
þjóð. Þeir
sitja sem fast-
: ast og þeim
mistekst hvert verkefiiið á fæt-
ur öðru. Aö lokum eru þeir
• orðnir jafn slæmir og umhverfið
fullyrðir að þeir séu.“ Sænski
Íforsætisráðherrann lét þessi orð
falla á ráðstefnu skólastjórnar-
manna í Gautaborg, að því er
sænska blaðið Aftonbladet
greinir frá. „Maður verður að
ákveða hvað maður vili gera og
síðan ræða málið almennilega,
við sjálfan sig og samstarfs-
menn sína,“ bætti Persson við.
Læknir mikil-
vægt vitni í
Palme-morðinu
Lögreglan, sem rannsakar
Emorðið á Olof Palme, fyrrver-
andi forsætisráðherra Svíþjóð-
| ar, lýsir nú eftir lækni sem hún
| telur mikilvægt vitni. Læknir-
inn, sem er kona, hringdi í júní
| 1989 til prests og bað hann að
koma upplýsingum til lögregl-
unnar. Konan kvaöst hafa kom-
| ið til Stokkhólms í september
: 1988. Hún var að fara í bekkj-
; arpartí og gisti á hóteli. Daginn
| eftir fór hún á veitingastað með
starfsbróður sínum. Þau fóru
I síðan með tveimur veitinga-
I hússgestum í veislu í íbúð. Þá
■ tók læknirinn eftir atriðum sem
talin eru geta tengst Christer
; Pettersson. Hann var fyrst
dæmdur fyrir morðið en síðan
j sýknaður vegna skorts á sönn-
: unargögnum.
Vér tillögu um
(! takmörkun út-
blásturs
Ritt Bjerregaai'd, sem fer með
umhverfismál hjá Evrópusam-
bandinu, varði í gær tillögu
sambandsins um 15 prósenta
minnkun útblásturs lofttegunda
| sem hafa gróðurhúsaáhrifi Bjer-
| regaard er í Tokyo í Japan þar
sem ráðherrar 20 landa undir-
! búa ráðstefnu um loftslag í
| Kyoto í desember. Japan,
! Bandaríkjunum og Ástralíu
þykja tillögurnar ganga of langt.
Þær séu óraunhæfar og ógnun
| við efnahagslíf.
Höfuðverkur
gerði Gro að
Ileiðtoga
DV, Ósló:
Innanflokksátök og
stórpólitískar deilur. Þetta hafa
til þessa verið skýringamar á
aö Odvar Nordli sagði af sér
sem forsætisráðherra Noregs í
janúar árið 1981 og Gro Harlem
Brundtland tók við. Nordli hef-
ur nú í fyrsta sinn greint frá af
hverju hann sagði af sér. Hann
þjáðist af óbærilegum höfúð-
verk og fékk ekki bót fyrr en
I fyrir tveimur árum. Nordli vissi
I ekki þá að hann var með Clu-
ster-sjúkdóminn. Þetta er sjúk-
. dómur sem minnir á mígreni en
; er kvalafyllri. „Höfuðverkurinn
kom fyrirvaralaust og margar
| nætur gat ég ekki sofið. Það
1 kom fyrir að ég reif fotin utan af
mér. Á endanum gafst ég upp
vegna þreytu og hræöslu við að
( hitta fólk og fá kast í miðju sam-
tali,“ segir Nordli í viðtali við
| Arbeiderbladet norska. -GK
fc—wrrag u'.i.mw iiiii,iii»ii»iiiaiiiii,ii—i*