Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1997, Page 18
LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1997 JjV
18
gur í lífi
ys? ifr -
Reikningasúpa í eftirrétt
- Ása Ragnarsdóttir kennari lýsir annasömum degi
„Ég vakna við klukkuna á sama
tíma og venjulega, klukkan sex
þennan fimmtudag. Ég smelli mér
í örstutta sturtu því við erum sex í
heimili með eitt baðhergi og þvi
naumt skammtaður tíminn á vin-
sælasta herberginu á svæðinu.
Krem og önnur notalegheit látin
bíða. Helli upp á kaffi og set brauð,
ost og appelsínusafa á borðið.
Notalegasta stund dagsins hefst,
morgunverður með eiginmannin-
um í kyrrð og ró áður en erill dags-
ins hefst. Við náum spjalli um at-
burði liðinni daga og veljum sam-
an tvær bíómyndir sem okkur
langar að sjá á kvikmyndahátíð-
inni um helgina. Þvi miður er
reikningasúpa i eftirrétt í þetta
sinn en hún bragðast misjafnlega
vel eftir því hve þeir eru háir. Það
eru að koma mánaðamót og við
verðum að velja hvaða reikningar
hafa forgang. Hinir fara aftur í
umslagið og bíða næstu mánaða-
móta, enda von á örlítilli kaup-
hækkun hjá mér.
Kennslan og kjörin
Klukkan sjö er ég komin upp í
Háteigsskóla að undirbúa kennslu.
Ég þarf að setja nokkur verkefni á
glærur, láta önnm- í fjölritun og
semja verkefni fyrir valtíma 10.
bekkjar í frönsku. Tveir kennara-
nemar hafa verið hjá bekknum í
æfingakennslu síðastliðnar þrjár
vikur, en eru nú að ljúka sínum
síðasta degi. Ég pakka inn tveim
litlum kertum sem nemendur og
ég viljum færa þeim og vonandi
veita kertin þeim birtu og yl á
næstunni. Kennsla hefst, en í
fyrsta tíma er íslenska, nemendur
eru að leggja lokahönd á drauga-
sögur sem þeir höfðu samið. í lok
Dagurinn var langur hjá Ásu Ragnarsdóttur kennara.
tímans lesa þeir sögumar upp fyr-
ir bekkinn. Kennaranemarnir
koma okkur þægilega á óvart með
þvl að bjóða upp á kökur í kveðju-
stund í lok timans.
Heitt í kolunum
Fram að hádegi kenni ég til
skiptis dönsku og íslensku. í raun
ætti ég að kenna til hálfþrjú en ég
þarf að fera á trúnaðarmannafund
klukkan eitt á Hótel Sögu þar sem
farið er yfir nýgerða kjarasamn-
inga. Forfallakennari er þvi kallað-
ur inn í staðinn. Ég ákveð að nýta
hádegið og fer í Hagkaup í Kringl-
unni að kaupa í kvöldmatinn. Þar
hitti ég einn fóður úr bekknum
sem gjaman vill spjalla um trillu-
DV-mynd E.ÓI.
ferð sem dóttir hans er að fara í.
Sjóferðin er í tengslum við
kennslu hjá mér um íslenskan
sjávarútveg í samfélagsfræði.
Klukkan eitt er ég mætt á trúnað-
armannafúnd, þar er heitt í kolum.
Margir kennarar eru óánægðir
með samningana og telja að lítið
hafi náðst fram. Aðrir telja samn-'
inginn viðunandi. Karphúsnefndin
kynnir samninginn, kosti hans og
galla, og heit skoðanaskipti fara
fram. Ákveðið er að hraða at-
kvæðagreiðslu félagsmanna eins
og kostur er. Hitti eina móður á
fundinum og segi henni frá því að
strákurinn hennar ætli að mæta í
aukatíma í dönsku hjá mér á laug-
ardag.
Matarboð og heima-
vinna
Ég á pantaða klippingu hjá Jóa
og félögum klukkan þrjú, verð
auðvitað of sein en mér er fyrir-
gefið. Simbi klippir hár mitt af
sinni alkunnu fagmennsku og
bætir við strípum, hann er
skemmtilegur félagi og ég
skemmti mér alltaf konunglega í
hvert sinn. Er komin heim klukk-
an fimm, fer yfir nokkur fallorða-
hefti og hringi tvö foreldraviðtöl.
Um sexleytið hjálpumst við hjón-
in að við að elda góðan fiskrétt en
við eigum von á fóður mínum og
móðursystur i mat. Matarboðið er
hressilegt og við keyrum gestina
heim um klukkan níu. Þá tekur
við undirbúningur undir
kennslu, ég þarf að fara yfir
könnun í dönsku, sem ég ætla að
leggja fyrir á morgun, semja verk-
efni í íslensku, fara yfir fjallháan
bunka af stilabókum og hlusta á
nokkrar spólur með Kim Larsen í
sambandi við dönskuverkefni.
Um miðnætti sest ég niður með
manni minum og við fáum okkur
kaffi. Það er gott að spjalla saman
um allt annað en kennslu. Við
dettum inn í lokin á mynd hjá
Stöð 2 en sængin heillar og loks
tekur Óli lokbrá völdin."
Finnur þú fimm breytingar? 436
„Þú getur þó a.m.k. ekki skammaö mig fyrir að hafa gleymt að taka
bílinn úr bakkgír að þessu sinni."
Vinningshafar fyrir getraun nr. 434 eru:
Myndimar tvær virðast viö fyrstu
sýn eins en þe'gar betur er að gáð kem-
ur í ljós að á myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt. Finnir þú
þessi fimm atriði skaltu merkja við
þau með krossi á myndinni til hægri
og senda okkur hana ásamt nafni þínu
og heimilisfangi. Aö tveimur vikum
liðnum birtum við nöfn sigurvegar-
anna.
1. verðlaun:
Hitachi-útvarpsverkjari frá Sjón-
varpsmiðstöðinni, Síðumúla 2, að
verðmæti kr. 3.490,-
2. verðlaun:
Tvær Úrvalsbækur að verðmæti kr.
1570, Sekur eftir Scott Turow og Kóli-
brísúpan eftir David Parry og Patrick
Withrow.
Vinningamir verða sendir heim.
Nafn:
Heimili:
1. verðlaun:
Lára Baldursdóttir,
Hrísmóum 1.
210 Garðabæ.
2. verðlaun:
Heiða Sigþórsdóttir,
Prestsbakka 13,
109 Reykjavík.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 436
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík