Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1997, Page 20
LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1997 TIV
★
2« fréttaljós
Stjórn Pósts og sfma hf. hélt fund f gær um málefni liöinna daga.
Kærur til Samkeppnisstofnunar
1997
Ólokln mál
Samkeppnisstaöa vegna breiöbandsins
=i Gjaldskrárhækkanir
Tilboö Pósts og síma hf. á farsímum til félaga FÍB
= —September
==5 Kvörtun Alnets yfir synjun um aögang aö gagnagrunni Pósts og
==i slma hf.
^Maí
==! Internetþjónusta Pósts og síma
:—i
M 1996
I Febrúar
' Erindi Póstdreifingar ehf. um meinta misnotkun Póst- og símamála-
stofnunar á markaösráðandi stööu sinni
.Janúar
'Erindi Nýherja hf. og Öryggisþjónustunnar hf. um notkun Securifon-
búnaöar á símstöövum Pósts og slma
g§ 1995
c==i /Ágúst
“ Erindi Póstdreifingar hf. um fjárhagslegan aöskilnaö tiltekinna
þátta I starfsemi Pósts og sfma
Es , Kvörtun vegna mismunar Póst- og símamálastofnunar viö innritun
[=! \ blaða og tímarita
i=i Apríl
i—i Erindi Samtaka seljenda fjarskiptabúnaöar og fleiri aöila vegna
reglugeröar um Póst- og símamálastofnun
|| 1994
m ^Apríl
Radíómiöun kærir meinta misnotkun Póst- og símamálastofnunar
j=j á einkaleyfisstööu stofnunarinnar
Síbrotamenn hafa löngum verið
kallaðir góðkunningjar lögreglunn-
ar þegar fjallað er um afrek þeirra í
fjölmiðlum. Að sama skapi mætti
kalla Póst og síma hf. (áður Póst- og
símamálastofnun) góðkunningja
samkeppnisyfirvalda þegar litið er
yfir feril fyrirtækisins í ársskýrsl-
um Samkeppnisstofnunar.
Á þeim þremur árum sem Sam-
keppnisstofhun hefur starfað hefur
samkeppnisráð ákvarðað sjö sinn-
um vegna brota P&S á samkeppnis-
lögum og þrisvar sinnum að auki
sent frá sér álit þar sem fyrirtækinu
er bent á mál sem betur megi fara,
þó svo að ekki sé um bein brot á lög-
um að ræða. Þrjú mál eru enn í at-
hugun hjá stofhuninni sem þýðir að
fimm kærur hafa borist vegna
meintra brota P&S á samkeppnis-
lögum á þessu ári.
Harður brotavilji
Lúðvík Bergvinsson, alþingismað-
ur jafnaðarmanna, sagði í ræðu sinni
í utandagskrárumræðum á þingi fyrr
í vikunni að Samkeppnisstofnun
hefði nánast verið með P&S í fóstri
síðan hún tók til starfa, svo oft hefði
veriö fjallað um brot fyrirtækisins á
samkeppnislögum.
„Þetta hefði verið orðað í refsirétti
þannig að þar væri einbeittur og
harður brotavilji," sagði Lúðvík.
Guðmundur Sigurðsson, forstöðu-
maður samkeppnissviðs hjá Sam-
keppnisstofnun, staðfestir að Póstm-
og sími sé það fyrirtæki sem hvað
oftast hafi verið kvartað yfir eða
kært til samkeppnisyfirvalda. Guð-
mundur segir reynsluna reyndar
vera svipaða í öðrum löndum, svo
sem annars staðar á Norðurlöndum
og í Evrópu. Þar hefðu símafyrirtæk-
in verið einokunarfyrirtæki og það
virtist sem þau ættu erfitt meö að
fóta sig í samkeppnisumhverfi.
Innlent
fréttaljós
Sólveig Ólafsdóttir
Misnotkun aðstöðu
Framkvæmdastjóm Pósts og
síma hf. hefur undanfama viku
mátt sæta harðri gagnrýni fyrir að
neita að gefa upp forsendur fyrir
gjaldskrám og aörar upplýsingar
sem eðlilegt getm- talist að símnot-
endur fái og er því borið við að um
atvinnuleyndarmál sé að ræða. Sé
litið yfir „afbrotaferiT fyrirtækis-
ins í ársskýrslum Samkeppnis-
stofnunar kemur glögglega í ljós
að stjómendur beita þessu fyrir
sig aftur og aftur þegar krafist er
rökstuðnings fyrir meinta mis-
- fjölbreyttur afbrotaferill
notkun þess í skjóli einokunarað-
stöðu.
Niðurgreiðsla reksturs
Fyrsta kæra samkeppnisráðs
vegna Pósts og síma barst Sam-
keppnisstofnun í apríl árið 1994.
Radiomiðun hf. leitaði til stofnunar-
innar vegna meintrar misnotkunar
P&S á einkaleyfisstöðu sinni. í
greinargerð fyrirtækisins er því
haldið fram að P&S niðurgreiöi
rekstur söludeilda fyrirtækisins,
sem eiga í samkeppni, með öðmm
rekstrareiningum stofnunarinnar
sem njóta vemdar einkaleyfis.
í þessari fyrstu ákvörðun sam-
keppnisráðs er Póst- og símamála-
stofhun gert að hætta slíkri niður-
greiðslu til að bæta samkeppnisað-
stöðu sína og mælir ráðið með því,
með vísan til samkeppnislaga, að
stofnunin aðskilji þann rekstur sem
lýtur að viðskiptum á frjálsum
markaði og þess sem nýtur einka-
leyfisvemdar.
Þessar ábendingar em margend-
urteknar í flestum þeim málum sem
Samkeppnisstofnun fær síðar til at-
hugunar.
Árið 1995 bámst þrjú erindi til
Samkeppnisstofnunar. Seljendur
fjarskiptabúnaðar og fleiri aðilar
kröfðust þess að samkeppnisráð
tæki afstöðu til nýrrar reglugerðar
um aðskilnað einkaréttarstarfsemi
og samkeppnisstarfsemi. Þeir vildu
að lögin yröu ótvíræð um algeran
fjárhagslegan aðskilnað þessara
tveggja sviða fyrirtækisins. Ráðið
tekur undir þessa kröfú í áliti sínu
og hvetur til þess aö formbreyting-
um fyrirtæksins verði hraðað sem
mest.
í ágúst bárast svo kvartanir frá
Póstdreifingu hf. og Sjónvarpshand-
bókinni þar sem P&S er sakaður um
að, niöurgreiða þjónustu sína og
synja keppinautum um sérstök kjör
varðandi burðargjald og neita að
gefa upp ástæðu fyrir því. Sam-
keppnisráð tekur þama einnig und-
ir málarekstur keppinautanna og
skilar jafnframt sérstöku áliti þar
sem þess er farið á leit við ráðherra
að skerpt verði á samkeppnislögum
þar aö lútandi.
Póstdreifing ítrekaöi svo kvörtun
sína yfir meintri misnotkun P&S á
markaðsráðandi stöðu sinni í janú-
ar 1996. Það er mat samkeppnisráðs
að þar hafi P&S reynt að útiloka
keppinaut stofnunarinnar í póst-
dreifingu með samkeppnishindr-
andi athöfiium.
Strax í febrúar kom önnur kæra
inn á borð Samkeppnisstofnunar
þar sem Nýherji og Öryggisþjónust-
an hf. kvarta yfir því að P&S heim-
ili aðeins öryggisfyrirtækinu Secur-
itas að hafa búnað til línuvöktunar
inni á símstöðvum sínum í tengsl-
um við neyðarhnappa Trygginga-
stofnunar. Afstaða Samkeppnis-
stofnunar er skýr. Þar segir að P&S
brjóti samkeppnislög með mismun-
un fyrirtækja á sviöi öryggisþjón-
ustu og hindri samkeppni.
Fimm kærur á þessu ári
Á þessu ári hefur kærum rignt yfir
Samkeppnisstofnun vegna hins nýja
hlutafélags Pósts og síma hf. í maí síð-
astliðnum er fyrirtækið enn og aftur
snuprað fyrir að brjóta samkeppnislög
með því að niðurgreiða kostnað við
starfsemi í virkri samkeppni. Inter-
netfyrirtæki kærðu P&S fyrir að nið- I
urgreiða símakostnað internetnot- (
enda í áskrift hjá þeim hvar á landinu
sem þeir búa meðan keppinautamir
neyddust til að greiða fyrir langlínu-
samtöl.
Þá úrskurðaði samkeppnisráð í
september að P&S sé gert að veita
keppinautum sínum aðgang að gag-
nagrunni símaskrár. Fyrirtækið haföi
áður synjað Alneti hf. um aðgang að
símaskránni á tölvutæku formi.
Að auki er Samkeppnisstofnun enn (
að meta það hvort breiðbandsþjónusta (
P&S sé með öllu aðskilin einkaréttar-
þjónustu fyrirtækisins, hvort tilboð
fyrirtækisins á farsímum til FÍB-fé-
laga brjóti í bága við samkeppnislög
og síðast en ekki síst hvort nýjar
gjaldskrárhækkanir séu settar fram í
krafti einokunar þar sem hags neyt-
enda sé í engu gætt.
Þetta langa syndaregistur Pósts og
síma sýnir nauðsyn þess að veita fyr-
irtækinu aðhald. Pétur Reimarsson, (
stjómarformaður fyrirtækisins, lýsti i
því yfir í gær að stjómendur litu al- '
varlegum augum endalausar athuga-
semdir samkeppnisyfirvalda og að allt
yrði reynt tU að gera P&S aö nútíma-
legu fyrirtæki sem stæðist samkeppni
á hinum frjálsa markaði. Framtíðin
verður hins vegar að leiða í ljós hvort
fyrirtækinu tekst að hrista af sér
slyðruorðið og síðast en ekki síst að
ávinna sér traust viðskiptavina sinna (
sem því miður brast í síðustu viku
með gamaldags stjómunaraðferðum í
krafti einokunarinnar. ‘
Guömundur Björnsson, forstjóri Pósts og sfma hf., og Pétur Reimarsson, stjórnarformaöur fyrirtækisins, koma af
fundi forsætisráöherra í síöustu viku. Stjórnin samþykkti í gær gjaldskrórtillögur ráöherrans. DV-mynd PÖK