Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1997, Blaðsíða 54

Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1997, Blaðsíða 54
LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1997 JLlV Howard Stem er vinsælasti maður- inn í bandarísku útvarpi í dag. Spjall- þáttur hans er sá vinsælasti í Banda- ríkjunum og hlustendahópur hans er yfir 18 milljónir. Hann er einnig með vinsælan sjónvarpsþátt, hefur skrifað varpsstöðvum og sjá hvernig einkalíf hans og stíll hans sem útvarpsmaður þróast í gegnum árin. Áhorfandinn fær að sjá hvernig Howard Stern breytti einkalífi sinu í sápuóperu, reifst hatrammlega við yfirmann sinn Howard Stern á fullu í útvarpsþætti sínum. tvær metsölubækur og er núna einnig farinn að láta til sín taka í kvikmynd- um því hann leikur sjálfan sig í kvik- myndinni Private Parts. Hann er þekktur og jafnvel alræmdur fyrir að láta allt flakka í þáttunum sinum og hneykslar marga en m.a.s. þeir sem hafa megnustu skömm á honum halda áfram að hlusta til að heyra hvað hon- um dettur í hug að segja næst. Lúði verður að stjörnu Kvikmyndin er byggð á sjálfsævi- sögu Howards Stern. Hún rekur ævi- feril hans og lýsir því hvernig hann umbreytist úr aumkunarverðum og fyrirlitnum lúða í aumkunarverða og fyrirlitna ameríska stórstjörnu. Áhorfandinn fær að fylgjast með Howard Stern koma við á fimm út- og sagði og gerði hluti sem engum öðrum hefði dottið í hug, allt saman í beinni útsendingu. En Howard Stern er einnig giftur maður og þriggja barna faðir. Hlust- endur hans þekkja svolítið til konu hans, Alison Stern, því að hún á það til að hringja í hann öðru hvoru með- an hann er i útsendingu. Howard Stem telur það sjálfur kraftaverki lík- ast að hún hafi orðið ástfangin af hon- um, gifst honum og síðan umborið hann öll þessi ár. Það er því einnig lít- il ástarsaga í myndinni. Einn af út- varpsfjölskyldu Howards Stern, Jackie Martling, fer fógrum orðum um samband þeirra og segir að mað- urinn, sem engin stelpa leit við þegar hann var í skóla, sé núna umsetinn af konum og geti ekkert gert því hann er trúr og tryggur eiginmaður. UPPÁHALDSMYNDBANDIÐ MITT Ágústa Johnson framkvæmdastjóri: Hrifin af rómaatkku léttmeti „Sú mynd sem kemur i hugann er myndin the Wind. Mér fannst stórglæsileg saga og mynd. Mér finnst tímabil ið sem hún gerist á lika JjfKJI Ég er hrifin af mörg- myndum en mér þessi alveg einstaklega Hún er klassísk og í eru mjög góðir leikarar. Síðan hef ég líka haldið svolítið upp á myndina When Harry Met Sally þannig að það má segja að ég sé hrifin af rómantísku léttmeti. Annars tek ég mjög sjaldan vídeómyndir og kemst því mið- ur sjaldan í bíó. Ég reyni þó að fara í bió ef það er verið að sýna eitthvað sem mér Ðnnst sérstaklega spennandi. Ég verð nú að viðurkenna að ég er hrifnari af bandarískum myndum en evrópskum. Ég eyði mjög takmörkuðum tíma fyrir framan sjónvarpið en þegar ég sest niður vil ég frekar slappa af við eitt- hvert léttmeti. Mér finn- ast þessar evrópsku myndir vera þyngri. En ef það kemur einhver sér- staklega góð evrópsk mynd fer ég þó stund- um í bíó. -glm Metsöluhöfundur og kvikmyndastjarna ' Howard Stern er fyrst og fremst út- varpsstjarna og ætlaði sér aldrei að stunda ritstörf. En þegar honum var boðin glás af peningum fyrir að skrifa bók settist hann niður og skrifaði sjálfsævisögu sína, Private Parts. Bókin fór á toppinn á metsölulistum og seldist hraðar en nokkur sjáifsævisaga hafði áður gert. í ljósi þessara vinsælda fór Hollywood að banka á dymar og Howard Stern var tvístígandi. Reyndar hafði hann alltaf langað til að gera kvikmynd en á hinn bóginn gat hann ómögulega séð fyrir sér hvemig bókin hans gat orðið að kvikmynd. Hann hafnaði hverju handritinu á fætur öðru þar til framleiðandinn Ivan Reitman hóf afskipti af málinu. Hann fékk handritshöfundinn Len Blum til að skrifa handrit sem legði áherslu á raunverulegt líf Howards Stem frem- ur en að búa til einhvers konar kjána- lega gerviveröld eins og hin handritin höfðu gert og Howard Stem var loks- ins ánægður. Blum var reyndar treg- ur til starfans í upphafi en eftir að hafa setið í upptökusalnum meðan út- varpsþáttur Howards Stern var í gangi áttaði hann sig á því að hann hafði ekki hlegið jafnmikið i langan tima. Howard Stern viðurkennir fús- lega að hann viti nákvæmlega ekki neitt um leikræna tjáningu og í upphafi töldu sumir að Howard Stem ætti ekki að leika sjálfan sig í myndinni. En það var aldrei nein spurning fyrir hann sjálfan og hann segir sem svo að aðdáendur hans hefðu aldrei samþykkt neinn annan í hlut- verkið. Reyndar leikur allt stuðningsfólkið hans í út- varpsþáttunum sjálft sig í myndinni en það eru Robin Quivers, Fred Norris, Jackie Martling og Gary Dell’Abate (öðru nafni Baba Booey). Richard Portnow og Kelly Bishop leika for- eldra hans og Mary McCormack leik- ur Alison Stern. -PJ » • • • Big Night Persuasion Bulletproof Big Night er ein af þessum litlu kvikmyndum sem óvænt slá í gegn. Big Night var gælu- verkefni leikaranna Stanleys Tucci og Campells Scotts og fengu þeir vini og kunningja til að taka þátt í þessu með sér. Myndin sló i gegn og fékk af- bragðs dóma enda er um sérlega skemmtilega mynd að ræða. í myndinni er sagt frá tveimur bræðrum af ítölskum uppmna sem reka veitingastað í stórborg í Banda- ríkjunum. Reksturinn gengur ekk- ert allt of vel, enda er annar bróðir- inn með fullkomnunaráráttu þegar ítalskur matur er annars vegar en það vill nú svo til að Kaninn vill ítalska matinn upp á ameríska mát- ann eins og nágranni þeirra býður á sínum veitingastað. Til að breyta þessu ákveða bræðurnir að halda stórveislu og bjóða þekktum íjöl- miðlamanni að sitja til borðs og fá þannig umfjöllun. Seinni hluti myndarinnar fjallar um þessa veislu sem í einu orði sagt er stórkostleg. Með hlutverk bræðranna fara Stanley Tucci og Tony Shalhoub. Aðrir leikarar era Isabella Rossell- ini, Minnie Driver, Ian Holm og Campbell Scott. Sam-myndbönd gefa út Big Night og er hún leyfð öllum aldurshóp- um. Útgáfudagur er 12. nóvember. Persuasion eða Fortölur og full- vissa er ein vinsælasta skáldsaga hinnar vin- sælu ensku skáldkonu, Jane Austin, en sögur hennar, Sen- se and Sensi- bility, Emma og Pride and Prejudice hafa allar verið kvik- myndaðar nýlega. f myndinni segir frá ástum og örlögmn pilta og stúlkna á nítj- ándu öld. Kafteinn Wentworth hittir aftur hina glæsilegu Anne Elliott átta árum eftir að hún hafði orðið að hafna bónorði hans. Nú er hins vegar engin ástæða lengur til að efast um hug Anne til kafteinsins en um hug hans til hennar ríkir meiri óvissa. Inn í þessa flóknu og viðkvæmu atburðarás fléttast ann- ar heldri maður og skyndilega þarf Anne að horfast í augu við sjálfa sig og hvað það er sem hún vill. Það er BBC sem gerir þessa mynd og leikstjóri er Roger Michell. í aðalhlutverkum eru Amanda Root, Ciaran Hinds og Samuel West. Sam-myndbönd gefa Persuasion út og er hún leyfð öllum aldurs- hópum. Útgáfudagur er 13. nóv- ember. Tveir vinsælir gamanleikarar, sem mestmegnis geta þakkað vin- sældir sínar sjónvarps- þáttum sem þeir hafa slegið í gegn í, Damon Wayans og Adam Sandler, leika aðal- hlutverkin í Bulletproof, gamansamri spennumynd sem lenda hvor sínum megin við lögin. Archie Moses og Rock Keats voru miklir mátar. Nú, þegar ann- ar þeirra er orðinn lögga og hinn er smákrimmi, telja þeir hvor ann- an svikara. Þetta leiðir til þess að þeir þola ekki hvor annan og láta hrakyrðin dynja á víxl hvenær sem færi gefst. Það er samt stutt í vinskapinn og þeir eiga einn sam- eiginlegan óvin, eiturlyfjakónginn Colton (James Caan) sem þeir þurfa sameinast gegn því Colton vill þá báða undir græna torfu og sendir morðingja út af örkinni til að koma þeim fyrir kattarnef. ClC-myndbönd gefa Bulletproof út og er hún bönnuð börnum innan 16 ára. Útgáfudagur er 11. nóv- ember. um tvo æskuvini
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.