Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1997, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1997, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1997 JjV Stjórn Félags eldri borgara í Reykjavík: Hyggst kaupa dans- húsið í Glæsibæ - gluggalaust svarthol, segja andstæðingar kaupanna Stjórn Félags eldri borgara í Reykjavík hefur nndanfarið átt í viðræðum við eiganda danshússins í Glæsibæ og veitingahússins Öl- vers um að kaupa af honum hús- næði veitingastaðanna fyrir félags- miðstöð eldri borgara í Reykjavík. Páll Gíslason, formaður félagsins, staðfesti þetta í samtali við DV í gær og sagði að málið væri að kom- ast á lokastig og yrði trúlega lagt fyrir borgarráð á þriðjudag en gert er ráð fyrir því að Reykjavíkurborg og öldrunarráð borgarinnar taki þátt í kaupunum. Innan Félags eldri borgara er ekki eining um þessi kaup. Þeir sem leggjast gegn þeim benda á að hús- næðið sé niðurgrafið og gluggalaust aö mestu og kalla það gluggaiaust svarthol og telja að húsnæðið sé lítt fýsiiegt til að veröa félagsmiðstöð aldraðra af þeim sökum. Þá sé það auk þess verðlagt of hátt en sam- kvæmt óstaðfestum fregnum er kaupverð húsnæðisins um 95 millj- ónir króna. Að sögn Páls Gíslasonar er ætlunin að láta húsnæði félags- ins í Risinu við Hverfisgötu ganga upp í kaupin. Almennur félagsfundur verður í Félagi eldri borgara um helgina og hyggjast andstæðingar þessara fyr- irhuguðu kaupa láta þar til sín taka. Andstaða þeirra er bundin við þetta tiltekna húsnæði en ekki við það að félagið afli sér heppilegs framtlðar- húsnæðis þar sem skrifstofu- og fé- lagsaðstaða Félags eldri borgara verði sameinuð á einum stað. Hún er nú bæði í Risinu og Sóltúni 3. Auk Danshússins og Ölvers fylgir með í kaupunum stórt mötuneytis- eldhús sem framleitt hefur mat fyr- ir nokkra vinnustaði á Reykjavíkur- svæðinu. Reksturinn hefur gengið misjafnlega og sl. miðvikudag átti að fara fram nauðungaruppboð á eigninni að kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík, Leikfélags Reykjavíkur og minningarsjóðs Helgu og Sigur- liða Kristjánssonar. Samkvæmt upplýsingum sýslumannsembættis- ins í Reykjavík var uppboðinu frestað. -SÁ Tölvunefnd með tvo til- sjónarmenn Tveir tilsjónarmenn starfa nú við eftirlit fyrir tölvunefnd. Sigrún Jó- hannesdóttir, starfsmaður Tölvu- nefndar, segir tilsjónarmennina fara reglulega á 4-5 staði sem krefj- ist viðvarandi eftirlits og þörf sé á sérstakri sérfræðikunnáttu. Þeir eru þó ekki í fostu starfi hjá nefnd- inni. Viðkomandi fyrirtæki eða stofh- anir greiða eftirlitsmönnum þókn- un fyrir heimsóknimar, en Sigrún segir að í flestum tilfellum sé nóg að taka staöi, sem geymi persónuupp- lýsingar, aöeins einu sinni út. Hins vegar er oftar farið á þá staði sem geyma mjög viðkvæmar persónu- upplýsingar eins og sjúkraskýrslur. Tilsjónarmennimir hafa því mest afskipti af fyrirtækjum og stofnun- um innan heilbrigðiskerfisins, s.s. Krabbameinsfélaginu, Hjartavemd, Tryggingastofnun, íslenskri erfða- greiningu auk hinnar ýmsu þjón- ustu við aldraða og sjúka sem veitt er á sjúkrastofnunum. -Sól. Steindór Hjörleifsson leikari átti 50 ára leikafmæli i gær. Þórhallur Gunnarsson, varaformaður Leikfélags Reykjavíkur, afhenti Steindóri blóm og koníaksflösku með kveðju frá samstarfsfólki. Steindóri var afhent viðurkenningin á sýningu í kjallara leikhússins þar sem stendur yfir sýningin Krókar og kimar og þar sem eru tii sýnis gamlír munir úr sögu leikféiagsins. Haft var á orði að leikfélagið væri orðið 100 ára og Steindór heföi starfað f 50 ár hjá félaginu og því ætti hann eiginlega sess hjá safngripunum. DV-mynd ÞÖK Endurskoðun ríkisreiknings 1996 Arðgreiðslur til ríkissjóðs: Póstur og sími skilaði mestu Póstur og sími skilaði mestum arði til ríkissjóðs árið 1996 sam- kvæmt skýrslu Ríkisendurskoðun- ar, eða 860 miiijónum króna. Þessi upphæð er sú sama og gert var ráð fyrir á fjárlögum. Næstmestu arð- greiðslur til ríkissjóðs eru hluti af hagnaði Seðlabankans sem nema 805 milljónum króna en á fjárlögum ársins var gert ráð fyrir 800 milljón- um króna. Þá skilar Fríhöfnin á Keflavíkurflugvelli 502 milijónum króna en gert hafði verið ráð fyrir 470 milljónum á fjárlögum ársins. Alls námu arðgreiðslur til ríkis- ins 2.506 milijónum króna en gert var ráð fyrir á fjárlögum að þær skiluðu 2.280 milijónum. Arðgreiðsl- ur minnkuðu frá árinu 1995 um þriðjung, eða 357 milljónir og mun- Raunvísindastofnun Háskólans: Skuld varð hlutafé án heimildar Ríkisendurskoðun gerir í skýrslu sinni fyrir árið 1996 athugasemd við að Raunvísindastofnun Háskóla ís- lands hafi breytt skuldakröfum á hendur Fjölnemum hf. að upphæð 2,3 milijónum króna í hlutafé. Þetta hafi verið gert án formlegrar heimildar háskólaráðs og menntamálaráðherra sem Ríkisendurskoðun segir að eigi að liggja fyrir svo Raunvísindastofn- un megi eiga hlutaféð. Gerð er athugasemd við framúr- akstur stofnunarinnar á árinu um- fram heimildir fjárlaga sem nemur 6,8 milljónum króna. Loks gerir Ríkisendurskoðun athugasemd við að aðeins hluti starfsmanna noti stimpilklukku og eftirliti með við- veru starfsmanna sé því ábóta- vant. ítrekað er að stimpilklukka verði notuð af öllum starfsmönn- um. -rt ar þar mestu lægri arðgreiðsla frá Seðlabankanum. Ríkisendurskoðun átelur aö arö- greiðslur frá íslenska jámblendifé- laginu skuli að hluta innihalda 5 prósenta tekjuskatt af arðgreiðslum félagsins til erlendra eignaraðila sem hefðu átt að bókast sem tekju- skattur á árinu 1996. -rt Kvikmyndasj óður: Vanáætlun Útgjöld Kvikmyndasjóðs fóru 29,2 milljónir króna fram úr ijár- heimiidum eða sem nemur 26,6 prósent, samkvæmt skýrslu Ríkis- endurskoðunar. Bæði tekjur og gjöld fóru fram úr íjárheimildum. Orsökin fyrir því að tekjur fóru fram úr er í skýrslunni sögð van- áætlun við fjárlagagerð. Skýring þess að gjöldin fóru fram úr er sú aö ráðist var í verkefni sem ekki var gert ráð fyrir í fjárlögum. Þá var gjaldfærður kostnaður að fjár- hæð 10 miiijónir króna sem staðið hafði um árabil á viðskiptareikn- ingi fjármálaráðuneytisins. -rt Stimpilklukkan óvinsæl Ríkisendurskoðun gerir í skýrslu sinni fjölda athugasemda vegna ríkis- fyrirtækja þar sem stimpilklukka er annaðhvort ekki til staðar eða snið- gengin af starfsfólki. Þannig átelur Ríkisendurskoðun fjölda stofnana fyr- ir að hafa ekki eftirlit með viðveru starfsmanna og tilgreind eru dæmi um að þrátt fyrir stimpilklukku hand- skrifi starfsmenn sig inn og út. Þar er embætti ríkislögmanns sérstaklega tiigreint sem dæmi þar sem blýantur- inn er tekinn fram yfir klukkuna. Hvatt er til þess að stofnanir geri úr- bætur hið bráðasta. -rt Norræna eldfjallastöðin: Laun greidd af styrkjum Ríkisendurskoðun gerir athuga- semdir við að árið 1996 hafi tveimur lausráðnum starfsmönnum verið greidd laun af styrkjum Vísinda- sjóðs. Styrkimir hafi ekki dugaö fyrir launum og kostnaöi og munur- inn, 1,4 milljónir króna, því tekinn af almennum fjárveitingum stofnun- arinnar. Bent er á að hvorki norræn né íslensk fjáriög geri ráð fyrir launum til lausráðinna starfs- manna. Ríkisendurskoðun mælist því tii þess að fylgst sé með að rann- sóknarstyrkir nægi fyrir þeim út- gjöldum sem þeim er ætlað að standa undir. Athugasemdir eru gerðar við að eftirlit vanti með viðveru starfs- manna þar sem stimpilklukka eða annað sé ekki til staðar. Þá er vak- in athygli á því að innra eftirliti stofnunarinnar sé ábótavant þar sem sami starfsmaður annist bók- hald og smni gjaldkerastörfum. Þá segir Ríkisendurskoðun vanta skrif- legar reglur um það hveijir megi annast innkaup og fyrir hvaða há- marksupphæðir. -rt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.