Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1997, Blaðsíða 26
LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1997 DV
26 unglingar
Nemendafélag Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi:
Spútnikvika
Sigursveitin Fresh var skipuö Dúddu, Óla Árna, Ingþóri og ísólfi.
Myndir Helgi Magnús (Mángi)
Nýlega stóð Nemendafélag Fjöl-
brautaskóla Vesturlands á Akra-
nesi, NFVA, fyrir svokallaðri
„spútnikviku". Á hverju kvöldi var
eitthvað um að vera í skólanum, s.s.
listakvöld og heimspekikvöld.
Einnig var rekin útvarpsstöðin
Blómið þar sem nemendur sáu bæði
um tæknimál og dagskrárgerð.
Spútnikvikunni lauk með tónlist-
arkeppni NFVA sem orðin er fastur
liöur í félagsstarfmu. Þar komu
fram 7 hljómsveitir úr skólanum og
börðust um sigurinn í afar full-
komnu ljós- og hljóðkerfi. Keppnin
bar að þessu sinni nafnið Frostrokk
og var haldin í tólfta sinn í Bíóhöll
Akraness. Margir þekktir tónlistar-
menn í dag hafa stigið þarna á
stokk, s.s. Andrea Gylfa, Orri Harð-
ar og Halli Melló.
Stemningin var að sögn við-
staddra gífurleg og höllinn troðfyllt-
ist. Að Frostrokki loknu streymdu
nemendur niður í Qölbrautaskólann
þar sem haldinn var stórdansleikur
með Greifunum. Á ballið mættu ríf-
lega 600 manns. Þar voru tilkynnt
úrslitin í Frostrokki. í fyrsta sæti
varð hljómsveitin Fresh, í öðru sæti
kvennabandið Pækumar og sveitin
Fleyjasér hafnaði í þriðja sæti.
Dómnefndina skipuðu Kristján Við-
ar, söngvari Greifanna, Óli Palli,
umsjónarmaður Rokklands á Rás 2,
Halli Melló, Kidda Rokk, meðlimur
Ótuktar og fyrrum Kolrassa, og loks
Guðrún Bergmann, nemandi FVA
og dóttir Steina Dúmbó. Sem sagt;
engir tónlistaraukvisar í nefndinni.
ívar Benediktsson, formaður
NFVA, sagði í stuttu spjalli við helg-
arblaðið að tónlistarkeppnin hefði
heppnast einstaklega vel. Þetta væri
orðinn aðalmenningarviðburður
skólans á haustönn og mikið í lagt.
Til að gera keppnina sem veglegasta
legði nemendafélagið fram hundruð
þúsunda króna. -bjb
Snæbjörn og Palli voru upp á sitt besta, þó ekki keppendur í Frostrokki held-
ur fyrst og fremst skemmtikraftar.
\...
Spartakus rokkaði rækilega þar sem Rúnar Magni söng. Villi (Dýri) flengdi
húöir, Bjarki gældi við gítarinn, Óli Örn kitlaði bassann og söng bakraddir og
Snæbjörn barði hljómborðiö.
hin hliðin
jr,Jt
þú mest á? Stöð 2.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Jón
Ársæll í íslandi í dag.
Uppáhaldsskemmtistaður/krá:
Astró í Reykjavík og Strikið í
Keflavík.
Uppáhaldsfélag í íþrótt-
um? Keflavík.
Stefnir þú að einhverju sérstöku
í framtiðinni? Að útskrifast úr
Háskóla íslands og vinna eins
marga titla og ég get.
Hvað gerðir þú í sumarfríinu?
Ég starfaði í blikk-
smiðju hjá ís-
lenskum aðal-
verktökum.
Kristján með bikarana sem Keflvíkingar fengu í Eggjabikarnum. Hann
hefur svo sannarlega ástæðu til að brosa.
DV-mynd ÆMK
Kristján Guðlaugsson, körfuboltakappi í Keflavík:
er sætust
„Ég fann mig vel og ákvað að
láta eitthvað gerast en ég fékk ekki
skottilraun í fyrri hálfleik. Fyrstu
2 skotin mín fóru ofan í þannig að
þá var ekki aftur snúið,“ sagði
Kristján Elvar Guðlaugsson, hinn
skemmtilegi bakvörður Keflvík-
inga í körfuknattleik, sem fór
hreinlega á kostum í síðari hálf-
leik í úrslitaleiknum gegn Tinda-
stóli í Eggjabikamum sem fram
fór í Laugardalshöll um síðustu
helgi. Kristján skoraði öll stigin 22
í síðari hálfleik, þar af fjórar 3ja
stiga körfur, og var hrein unun að
horfa á piltinn leika listir sínar.
Kristján er á fyrsta ári í viðskipta-
fræði í Háskóla íslands. Hann
keyrir á milli Keflavíkur og
Reykjavíkur ásamt fjórum skóla-
systkinum sínum og skiptast þau á
að keyra.
Kristján er fæddur á ísafirði en
bjó á Suðureyri við Súgandafjörð
tÍL 8 ára aldurs en þá fluttist fjöl-
skyldan til Keflavíkur. Kristján
hefur spilað allan sinn feril með
Keflavík nema eitt ár þegar hann
lék með Þór á Akureyri. Kristján
er sonur Karlottu Björgu Krist-
jánsdóttur og Guðlaugs B. Arnalds-
sonar og á tvö eldri systkini, Guð-
björgu og Angantý. -ÆMK
Fullt nafn: Kristján Elvar Guð-
laugsson.
Fæðingardagur og ár: 10. ágúst
1974.
Maki: Enginn eins og er.
Böm: Engin.
Bifreið: Toyota Corolla, árg. 1992.
Starf: Nemi.
Laun: Engin.
Hefur þú unnið í happdrætti eða
lottói? Tvisvar fengiö þrjá rétta í
lottóinu á einn og sama miðann.
Hvað finnst þér skemmtilegast
að gera? Vinna titla í körfubolta.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Tapa leik og vakna snemma.
Uppáhaldsmatur: Svínakjötsrétt-
ir að hætti mömmu.
Uppáhaldsdrykkur: Appelsinu-
safi.
Hvaða íþróttamaður stendur
fremstur í dag? Hermann Hreið-
arsson hjá Crystal Palace.
Uppáhaldstímarit: íþróttablaðið.
Hver er fallegasta konan sem þú
hefur séð? Sólveig Guðmundsdótt-
ir, fegurðardrottning íslands 1996.
Ertu hlynntur
eða andvígur
ríkisstjórninni?
Hlutlaus.
Hvaða persónu
langar þig mest til
að hitta? Michael
Jordan.
Uppáhaldslei
er Sellers.
Uppáhaldsleikkona:
Elizabeth Hurley.
Uppáhaldssöngvari:
Rapparinn Tupac Shak-
ur.
Uppáhaldsstjórnmála-
maður: Marteinn Mosdal.
U ppáhaldsteiknimyndaper-
sóna: Grettir.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Vinir.
Uppáhaldsmatsölustaður/veit-
ingahús: Olsen Olsen og
Subway, báðir i Keflavík.
Hvaða bók langar þig mest að
lesa? Á hverfanda hveli.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? FM og Bylgjan.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Rúnar
Róbertsson á FM.
Hverja sjónvarpsstöðina horfir