Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1997, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1997, Qupperneq 12
12 LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1997 iðtal - Helgi Björnsson breytir til, ætlar að hvíla rokkarann og langar á leiksvið á ný „Þegar ég var búinn að gera fimm, sex lög á plötuna áttaði ég mig á því að þau væru afar ólík því sem ég hafði áður gert, rólegri og persónulegri. Ég staldraði við og spurði mig hvort þetta væri raun- verulega það sem ég ætlaði að gera. Ég var viss um að þetta félli ekki alveg inn í þá ímynd sem ég veit að fólk hefur haft af rokkaran- um Helga Björnssyni og velti þvi fyrir mér hvernig þessu yrði tekið en sagði svo við sjálfan mig að þetta væri það sem væri að gerast í mínu lífi. Þetta er satt. Því þá að vera að búa eitthvað til, bara svo maður falli inn í einhverja gamla ímynd?“ segir Helgi Björnsson, tónlistarmaður og leikari, í samtali við DV. Helgi hefur nýverið sent frá sér sólóplötu þar sem kveður heldur betur við nýjan tón. Hann samdi bæði lög og texta á plötunni jafnhliða því að sinna búi og börn- um þegar fjölskyldan bjó í Flórens á Ítalíu á liðnu ári. Hann segir þann tíma hafa verið afar góðan og platan beri algerlega keim af þeim aðstæðum sem hún sé samin við, börnin að leik í kringum hann, huggulegheit með fjölskyldunni, stresslaust og afslappað líf. Er það þá satt sem sagt er, að Helgi Björnsson sé nýr og breyttur? Eins og á togara „Mér dettur ekki í hug að fara að gefa út einhverjar yfirlýsingar um að ég sé nýr og breyttur, innan sem utan. Það getur verið erfitt að standa við það. Hins vegar neita ég því ekki að ég hef tekið ákvörðun um að skipta um áherslur. Ég ætla að leggja rokkaranum aðeins og langar að helga mig meira leiklist- inni á ný.“ Helgi segir þá félaga i SSSól hafa ákveðið að taka sér hlé en útilokar ekki að hann muni klæðast rokk- buxunum við og við og rifja upp taktana. Meginstefnan sé þó að skipta um gír. „Við erum búnir að vera stans- laust að í fimm ár, höfum verið að troða upp um hverja einustu helgi. Þetta er eins og vera á togara í brjál- uðu fiskiríi og alltaf á vakt. Menn þurfa vitanlega að undirbúa spilirí- ið og síðan er það ballið, frágangur og keyrsla á svefnstaðinn. Á kodd- ann kemst maður kannski ekki fyrr en undir sjö að morgni, sefur þrjá, Qóra tíma og þá það sama á ný. Fjarvistirnar hafa verið miklar frá fjölskyldunni og mér finnst vera kominn tími til aö hægja á. Ég er búinn að fá nóg af hasarnum í bili og ætla að breyta til,“ segir Helgi, yfirvegaður og ánægður með ákvörðunina. Dálítið geggjað Helgi útskrifaðist úr Leiklistar- skólanum 1983 og lék þá samfleytt í níu ár, tvö til þrjú stór hlutverk á sviði á hverjum vetri, auk þess að taka þátt í einhverjum kvikmynd- um. Árið 1992 tók hann ákvörðun um að helga sig Sólinni. Þá hafði hann veriö á fullu að leika og spilað að auki í nokkurn tíma. Það segir hann hafa verið orðið dálitið geggj- að. Vinnan hafi verið rosalega mik- il. Bandið var heitt, bæði hér heima og víðar, og Helga fannst skynsam- legra að taka tónlistina fram yfir. Þar voru möguleikarnir meiri á þeim tíma, hann gæti frekar snúið aftur í leiklistina heldur en að dusta rykið cif popphljómsveit eftir nokk- urra ára hlé. Ég er mjög sáttur við að hafa tek- ið þessa ákvörðun á þeim tíma. Ég hef verið þeirrar gæfu aðnjótandi að geta sinnt þessum tveimur ástríðum í lifi mínu, leiklistinni og tónlist- inni, og það er merkilegt að sú ástríðan sem ég er ekki að sinna i það og það skiptið freistar alltaf meira. Nú finn ég að leiklistar- ástríðan togar verulega og mig er virkilega farið að langa á leiksvið á ný.“ Helgi segir að það sem leikarar þurfl til þess að geta staðið sig í stykkinu sé ekki síst góður reynslu- heimur. Að eiga góða skjóðu til að leita í og draga upp úr ýmsa hluti sem nýtist þeim við að túlka hinar og þessar persónur. Á sviðið á ný í þeim efnum hefur vinnan í tón- listinni verið sannkölluð fjársjóðs- leit, flakkið um landið við alls kon- ar kringumstæður, hitta fjölda skemmtilegra persóna og upplifa ótrúlegustu hluti. Ég á orðið stóra og mikla skjóðu til að kafa ofan í og hún á eftir að nýtast mér á svið- inu.“ Eins og áður segir er sólóplatan hans Helga nýkomin út. Valgeir Sigurðsson sá um upptökur og upp- tökustjórn og meðal annarra sem við sögu koma má nefna Jakob S. Magnússon Atla Örvarsson, Eyþór Gunnarsson, Lárus Sigurðsson, Gunnlaug Briem, KK og Ellen Kristjánsdóttur. Helgi segist ekki ætla að fylgja plötunni eftir með tónleikaferð um landið, slíkt sé of kostnaðarsamt. Hann segist frekar ætla á næstu vikum að fara í „heimsóknarferðir", einn með kassagítarinn, í skólana, plötu- verslanir og slíkt. Og síðan er það vitaskuld leiklistin. Eftir flmm ára fjarvistir af leiksviðinu hefur hann m.a. verið ráðinn til þess að leika í kvikmynd, söngleik í Þjóöleikhús- inu og rokkóperu í íslensku óper- unni. „í desember byrja í Þjóðleikhús- inu æfingar á nýjum Gauragangi eftir Ólaf Hauk Símonarson. Þar fara aðalgaurarnir til Kaupmanna- hafnar og ég er einn þeira ævintýra- manna sem þeir hitta á ferðalagi sínu. Líkt og í fyrra verkinu skipar tónlistin stóran sess. Jón Ólafsson semur hana,“ segir Helgi og bætir við að stefnt sé að frumsýningu í byrjun febrúar. Annað spennandi verkefni sem Helgi hefur gert samning um að syngja er eitt af fjórum stærstu hlut- verkunum í rokkóperunni Carmen Negra. það verk er skrifað upp úr Carmen, óperunni sivinsælu, og efniviðurinn færður fram til dags- ins í dag. Sagan gerist í fasistaríki i Suður-Ameríku og sem dæmi um hvernig hlutum er snúið við er nautabaninn í Carmen fótbolta- stjarna í Carmen Negra. Rokkóper- an verður sýnd í íslensku óperunni á vori komanda. r I kvikmynd líka „Ég vissi svo sem ekkert af þessu fyrr en hringt var í mig og ég beð- inn að koma og syngja fyrir. Leik- stjórinn og handritshöfundurinn voru hér á landi og höfðu samband við mig skömmu áður en þeir fóru utan. Ég var beðinn að syngja eitt lag úr verkinu, söng það fyrir þá og þeir réðu mig. Mér finnst þetta mjög spennandi því það er alltaf lær- dómsríkt að vinna með góðu fólki sem kemur annars staðar frá,“ seg- ir Helgi. Leikarinn segist hafa tekið ákvörðun um að fara á svið á ný eft- ir að ráðið var í hlutverk í leikhús- in fyrir veturinn og því sé engin furða að hann verði ekki þar á fjöl- um í vetur. Hann vonast þó til að fá tækifæri til þess að leika í öðru en söngleikjum, t.d. dramatískum verkum. Sjálfur segist hann bæði treysta sér í gaman- og alvöruhlut- verk. „Ég byrja líka á spennandi verk- efni nú í desember. Þá hefjast tökur á nýrri kvikmynd sem Einar Gunn- laugsson er að fara að gera og heit- ir Sweet Bananas, mynd sem unnin er í samvinnu við breska aðila. Ég verð þarna í góðum hópi leikara, meðal annarra mjög þekktum breskum leikara, Michael Gambon, sem leikið hefur í þekktum bíó- myndum og fjölda breskra sjón- varpsmynda." Langar að leikstýra Helgi ætlar ekki að leggjast með tærnar upp í loft, síður en svo. Hann segist vel geta hugsað sér aðra sólóplötu. Hann sé ofsalega montinn með viðtökur plötunnar nú og það sé honum mikil hvatning til að halda áfram. Aldrei sé að vita nema önnur komi út að ári. Hann eigi þegar nokkuð af efni. En Helgi á sér fleiri framtíðardrauma. „Mig langar að stjórna uppfærsl- um á sviði, annaðhvort að leikstýra eða framleiða. í mér býr leikstjóri sem mig langar að reyna á og ég er þegar með nokkrar hugmyndir að verkum. Síðan lagði ég grunninn að kvikmyndahandriti í Flórens. Mig langar að gera a.m.k. eina kvik- mynd og vonast til þess að geta haf- ið tökur á henni fyrir aldamót. Nei, ég er ekkert að leggjast í einhver ró- legheit. Ég er mikill skorpumaður og vil láta að mér kveða,“ segir Helgi Björnsson í samtali við DV. Stoltur af nýju plötunni stefnir hann að útgáfutónleikum i Islensku óperunni 3. desember. -sv
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.