Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1997, Síða 16
16
LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1997 JO"V
sælkerinn
Saddur af smökkuninni
- segir Stefán Hrafn Hagalín sælkeri
„Ég er þokkalegur nautnaseggur
og hef sem slíkur ógurlega gaman
af því að elda og borða góðan mat.
Sérstaklega er ég hrifinn af hvers
konar sjávarfangi. Ég er frekar
mikill prívatmaður þegar kemur að
stússi í eldhúsinu og hef blessunar-
lega fengið að vera að mestu í friði
við þetta bras mitt. Annað slagið
kemur það fyrir að ég gleymi mér
með hráefninu og víninu sem á að
drekka með. Þegar maturinn er
loksins tilbúinn er ég stundum orð-
inn hálfsaddur eftir nart og smökk-
un og i versta falli líka hálfslomp-
aður eftir að hafa sötrað vín í tvo,
þrjá tíma,“ segir Stefán Hrafn
Hagalín, ritstjóri Tölvuheims og
stjórnandi Punktur.is á Stöð 2.
Hann býður upp á „algjörlega brillj-
ant rétt“ sem hann minnir að
Francois Louis Fons beri ábyrgðina
á. Þarna erum viö að tala um skötu-
sel á la Jóhannes Páll páfi annar.
Uppskrift
1 kg þverskorinn skötuselur (3 sm
þykkar sneiðar)
1 dl þurrkaðir, blandaðir sveppir
(sem hafa legið klukkutíma í bleyti)
4 fint saxaðir perlulaukar
2 dl hvítvín
3 dl rjómi
30 g smjör
1 msk. sítrónusafi
salt og pipar
Aðferð
Sjóðið sveppina í vatni blönduðu
sítrónusafa í 3 mínútur. Alls ekki
lengur. Smyrjið eldfast fat með
smjörinu og dreifið fint söxuðum
lauknum yfir botninn. Raðið
skötuselssneiðunum í fatið. Sáldrið
sveppunum yfir og kryddið með
salti og pipar. Sullið víninu yfir.
Þegar búið er að hita ofn í 180 gráð-
ur þá skutlið fatinu inn í og látið
réttinn sjóða í nákvæmlega þrjár
mínútur. Hellið þá rjómanum yfir
og sjóðið í sjö mínútur til viðbótar.
Varla eftirrétt
„Ég er lítið gefinn fyrir eftirrétti.
Maður verður einhvern veginn
óþægilega saddur þannig að ég
myndi bjóða upp á espressokaffi og
eplabrandíið calvados á eftir.
Hugsanlega ís eða súkkulaði. Varla
þó. Þið hafið ekki gott af því. Með
matnum er upplagt að hafa fint,
upphitað baguette eða snittubrauð
með hvítlaukssmjöri og þá kemur
ekki neitt annað til greina en leita í
smiðju Björnsbakarís þar sem
menn þar á bæ baka eina almenni-
lega slika brauðmetið á landinu. Ég
er dálítið hrekkjóttur þegar kemur
að drykkjarföngum með þessari
veislu því ég vil sötra kælt rauðvín
að hætti Katalóníubúa og allra
helst frá nýja heiminum; Ástralíu,
Chile eða Nýja- Sjálandi. Eitthvað
sæmilega ungt og kraftmikið. Það
vegur upp á móti þyngslum matar-
ins og þar fyrir utan flnnst mér gott
rauðvín alltaf betra en gott hvítvín.
Ég sting upp á Shiraz, Bin 50, frá
Lindemans, sem er tryllingslega
bragðgott og á viðráðanlegu verði,“
segir Stefán Hrafn. -sv
y
I
Ostapottur
íslendingar eru famir
að snæða ost af miklum
móð og því meira sem
framboðið eykst. Ostar
eru gjama notaðir með
kexi og grænmeti en þeir
em ekki síðri í sérstökum
réttum með ristuðu
brauði. Hér kemur upp-
skrift að einum slíkum.
Rétturinn er hugsaður fyr-
ir tvo. I hann þarf;
40 g mildan gráðost
25 g mjúkt smjör
50 g rifinn Cheddar ost
2 msk. mjólk
1 lítinn pressaðan hvít-
lauksgeira
1 saxaðan graslauk
salt og pipar
steinselju til skrauts
Aðferð
Setjið gráðostinn og
smjörið í skál og hrærið
þar til búið er að blanda
þessu vel saman. Hræriö
Cheddar-ostinum og mjólk
saman við. Bætið hvít-
lauknum út í og bragöbæt-
ið með graslauk og salti og
pipar. Skiptið blöndunni
jafnt í tvær skálar eða
diska og kælið áöur en
rétturinn er borinn fram.
Skreytið með steinselju og
berið fram með heitu rist-
uðu brauði.
-sv
matgæðingur vikunnar
r
Guðfinna Sigurðardóttir býður upp á tvo rátti:
Arstíðirnar og ýsan
Matgæðingur þessarar viku, Guðfinna Sigimðardóttir, býður
upp á tvo rétti, annar er kénndur við árstíðirnar, í hinn er
notuð gamla, góða ýsan. Byrjum á árstíðarréttinum. í hann
þarf eftirfarandi:
1 poki makkarónur
y2 dl líkjör (eða sætur djús)
2-3 græn epli
2-3 bananar
2-3 appelsínur
100 g súkkulaði
1 poki möndlur
y2 bolli döðlur
y21 þeyttur rjómi
kívi, dökk vínber og súkkulaðispænir til skrauts
Skerið allt niður og hellið líkjörnum (Bailey’s eða Grand marnier)
eða djúsnum yfir makkarónurnar. Allt fryst saman og tekið út 3
tímum fyrir veislu eða annað slíkt. Hálfur lítri þeyttur rjómi er
settur yfir og skreytt með kívíi, dökkum vínberjum og
súkkulaðispæni.
Fyrirtaks ýsa
run
2 ýsuflök
smjör
V2 tsk. salt
Vt tsk. Season all
2 msk. Kikkoman Teriyaki sósa
200 g ferskir sveppir
y, 1 rjómi
200 g kotasæla
2 hvítlauksgeirar
1 bolli hrisgrjón
150 g rifinn óðalsostur
Aðferð
Guöfinna Siguröardóttir býöur upp á ferskan ávaxtaeftirrétt og
góðan ýsurétt. DV-mynd E.ÓI
Roðflettið flökin og setjið í smurt eld-
fast mót. Blandið saman kryddinu og
sósunni, jafnið yfir flökin. Látíð bíða
i tíu mínútur. Hreinsið sveppina, sker-
ið niður og blandið þeim saman við
kotasæluna og rjómann. Pressið hvítl-
aukinn og blandið út í. Hellið nú sveppa-
blöndunni yfir fiskinn i mótinu. Setjiö
mótið í 175° heitan ofn og bakið í 20 mín.
Sjóðið hrísgrjónin á meðan fiskurinn er að
bakast. Setjið þau síðan í eldfasta mótið, í soð-
1, og hrærið aðeins í þeim. Stráið óðalsostinum
r allt saman og látið aftur inn í ofninn, á neðstu
og bakið áfram í um 10 mín.
Guðfinna skorar á Kristbjörgu Ingu Magnúsdóttur
að vera næsti matgæöingur. -sv
Mars-Konditormeistari:
Sælkerauppskriftir
Nú þegar flestir eru a.m.k. famir að
leiða hugann að jólabakstrinum er
ekki úr vegi að sælkerasíðan gefi
nokkur sýnishorn af því sem gott
gæti verið að setja í ofninn. Næstu
| laugardagsmorgna mun Jón Arilíus-
son konditormeistari kynna nokkrar
f meistarauppskriftir á Bylgjunni og
' veita góð ráð við jólabaksturinn.
Helgarblað DV birtir uppskriftir
Jóns hér á síðunni. Fram fer upp-
Ískriftasamkeppni þar sem hlustend-
um Bylgjunnar gefst kostur á að
vinna glæsilegar sælgætiskörfur.
Kökumeistarinn, Miðvangi, Hafnar-
firði, gefur fulla körfu af jólabakk-
elsi. Aðalvinningurinn er jólahlað-
borð fyrir fjölskylduna í Perlunni.
Uppskriftirnar þurfa að innihalda
a.m.k. eina gerð af Mars-sælgæti,
þ.e. Mars, Snickers, Bounty, Twix
I eða Galaxy. Ein vinningsuppskrift
verður valin hverju sinni. Síðasti
skiladagur er 6. desember. Upp-
skriftirnar sendist til:
Mars-konditori uppskriftir,
pósthólf 10093, 130 Reykjavík.
Til að byrja með einblínir Jón á
smákökur og gefúr hér sýnishom,
j tvær gómsætar uppskriftir sem
hann kynnir í morgunþættinum á
Bylgjunni í dag.
Maltesermarensklattar
3 eggjahvítur
100 g strásykur
100 g púðursykur
100 g mulið Malteser
Aðferð
Þeytið hvítur og strásykur þar
til stíft. Bætið púðursykri í og stíf-
þeytið. Blandið Malteser varlega
út í og setjið í litla klatta með
teskeið á plötu. Bakið við 125° C í
um 20-25 mín. eða þar til þið getið
lyft klöttunum af pappírnum án
þess að þeir detti í sundur. Gott er
að dýfa þeim, helmingi, í bráðið
súkkulaði eftir að þeir eru orðnir
kaldir.
Snickers-smákökur
100 g saxað Snickers (ekki of
smátt)
150 g saxað suðusúkkulaði
150 g púðursykur
80 g smjör
I 1 egg
160 g hveiti
V, tsk. natron (matarsóti)
V, tsk. salt
vanilla
Aðferð
ÖEu blandað saman, rúllað í
lengjur og kælt. Skorið niður eins
og smákökm-. Raðað á plötu og
bakað við 175° C í um 8 mín. Tekn-
ar út frekar ljósar og látið kólna á
plötunni.