Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1997, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1997, Síða 18
18 LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1997 DV dagur í lífi Viðburðaríkur afmælisdagur Lúðvík Geirsson, formaður Blaðamannafálags Islands: Lúövík Geirsson á góöri stund á Sóloni íslandusi á afmælisdaginn. Bjarni Eiríksson lögfræöingur og Einar Faiur Ingólfsson Ijósmyndari spjalla viö formanninn. DV-mynd Pjetur „Þetta verður langur og strangur dagur, en örugglega viðburðaríkur og skemmtilegur var það fyrsta sem flaug í huga mér þegar ég fór á fætur árla á 100 ára afmælisdegi Blaðamannafélagsins. Ég renndi í huganum yfir dagskrá dagsins og vissi ekki alveg hvemig þetta átti allt að ganga upp. Þaö varð bara að koma í ljós. Það var foreldradagur í Víði- staðaskóla og eldri strákamir tveir fengu að sofa áfram, sælir og glað- ir, en sá yngsti, liðlega ársgamall, var kominn á fætur þegar ég kom úr sturtu, þrátt fyrir að hafa verið á fótum fram undir miðnætti kvöldið áður. Eftir morgunskatt og blaðalestur var kastað kveðju á konuna og þann yngsta og stefnan tekin á útvarpshúsið í fyrsta viðtal dagsins. Stórt hagsmunamál Næst lá leiðin á skrifstofu BÍ í Síðumúlanum þar sem ég byrjaði á því að senda fax á ritstjómir og fréttastofur um afmælisfundinn þá um kvöldið. Stoppið á skrifstofunni var stutt því næst á dagskrá kl. 9.30 var fundur hjá Fjölís, sem eru höf- undarréttarsamtök sem gæta m.a. hagsmuna blaðamanna, rithöf- unda, tónlistar- og myndlistar- manna. Til umræðu vom m.a. nýj- ustu niðurstöður úr könnun sem Hagvangur er að vinna fyrir Fjölís og stjómarráðið um ljósritun hjá hinum ýmsu stofnunum og emb- ættum ríkisins, en þessi könnun er ákveðinn grundvöllur fyrir endan- legum samningum aðila um höf- undargreiðslur frá ríkinu vegna ljósritunar á höfundarréttarvörðu efhi. Hér er um stórt hagsmunamál að ræða, ekki síst fyrir blaðamenn. Frá höfuðstöðvum Fjölíss í Borg- artúni lá leiðin upp á Hótel ísland þar sem við Fríða Bjömsdóttir, framkvæmdastjóri BÍ, Sigmundur Emir, aðstoðarfréttastjóri á Stöð 2, Guðrún Björk veitingastjóri og Ólafur Laufdal höfðum mælt okkur mót til að fara yfír skipulag afmæl- ishátíðarinnar og pressuballsins á laugardag. Það var létt yfir fólki enda búið að ganga frá flestum at- riðum, stómm sem smáum, svo að hátíðin verði sem glæsilegust. Við Fríða fórum frá Hótel íslandi beinustu leið upp á skrifstofu þar sem Svanhildur bókari stóð vakt- ina og það fyrsta sem blasti við augum okkar er við komum inn var glæsileg blómaskreyting frá sambýlingum okkar í Securitas og stór afmælispakki frá okkar helstu viðsemjendum í Samtökum iðnað- arins. Það var í nógu að snúast, afmæl- isrit BÍ var að koma úr prentun. Ég leyfði mér að skjótast úr miðju kafi suður í Fiörð til að sitja fund í hafnarstjórn. Þessum fundi gat ég ekki sleppt, því það var verið að ganga frá tillögum að fjárhagsáætl- un hafnarinnar fyrir næsta ár og önnur áhugaverð mál voru einnig til umfjöllunar. Aftur inn í Síðumúla til að ganga frá ýmsum lausum endum og síðan var ég staðráðinn í að komast heim og heilsa upp á heimilisfólkið og ná smáhvíld fyrir kvöldfundinn á Sól- on, en áður leit ég við á Ríkisút- varpinu í stutt viðtal við Hjördisi Árnadóttur fyrir kvöldfréttirnar. Hún eins og fleiri fréttamenn höfðu áhuga á að heyra meira af þeim hugmyndum og tillögum sem hafa verið uppi á borðinu að undan- fórnu um hugsanlegt samstarf hinna ýmsu félaga og starfshópa sem koma að fjölmiðlun með ein- um og öðrum hætti, nokkurs konar Fjölmiðlasamband íslands. Mikið ritverk Afmælisdagskráin á Sólon hófst upp úr hálfníu um kvöldið. Þá voru nákvæmlega 100 ár liðin frá stofn- un félagsins okkar, en stofnfundur- inn var haldinn í salarkynnum gamla Hótel íslands sem stóð þar sem nú er Ingólfstorg. Það var gam- an að sjá eldri félaga bera saman bækur sínar og riija upp gamla og góða tíma úr faginu og ekki síður var fróðlegur upplestur úr væntan- legri Fíölmiðlasögu íslands sem Guðjón Friðriksson, sagnfræðingur og fyrrum blaðamaður, hefur tekið saman fyrir Blaðamannafélagið. Þetta mikla ritverk, sem verður hátt í 700 blaðsíður í stóru broti og ríkulega myndskreytt, mun koma út nú fljótlega eftir áramótin. Á hátíðarfundinum voru þrír fé- lagsmenn heiðraðir en þeir hafa allir náð 40 ára starfsaldri við fjöl- miðlun. Það eru þeir Atli Steinars- son, Bjöm Jóhannsson og Gisli Sig- urðsson, allir enn á fullu í faginu. Það var góð stemning á Sólon þetta kvöld, góðar gjafir og kveðjur bár- ust frá samstarfsmönnum okkar í Félagi bókagerðarmanna og VÍB sem heldur utan um rekstur Lífeyr- issjóðs blaðamanna. Bfllinn skrautlegur Klukkan var langt gengin í eitt þegar við tókum saman blóm og gjafir og bárum út í bílinn minn. Ég skilaði Fríðu heim í Heiðar- gerði og við vorum sammála um að best væri að geyma blómin í bíln- um yfir nóttina. Það var óneitan- lega skrautlegt að líta inn í bílinn þegar ég var búinn að leggja fyrir utan heima á Miðvanginum og ég velti því fyrir mér hvað nágrann- amir myndu hugsa þegar þeir færu út á bílastæði um morguninn. Konan færði mér þau gleðitíð- indi að HaukarniF mínir hefðu unnið glæstan sigur í handboltan- um fyrr um kvöldið svo ég gat ekki annað en verið hæstánægður með langan og strangan en umfram allt skemmtilegan afmælisdag." Finnur þú fimm breytingar? 438 Nafn: _ Heimili: Vinningshafar fyrír getraun nr. 436 eru: 1. verölaun: 2. verðlaun: Sveinbjorn Pétursson Rögnvaldur Krístbjömsson. Fagraholti 5, Gaukshólum 2 400 Isafjörður. 111 Reykjavík. Myndimar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kem- ur í ljós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á myndinni til hægri og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimilisfangi. Að tveimur vikum liðnum birtum við nöfn sigurvegar- anna. 1. verðlaun: Hitachi-útvarpsverkjari frá Sjón- varpsmiðstöðinni, Síðumúla 2, að verðmæti kr. 3.490,- 2. verðlaun: Tvær Úrvalsbækur að verðmæti kr. 1570, Sekur eftir Scott Turow og Kóli- brísúpan eftir David Parry og Patrick Withrow. Vinningarnir verða sendir heim. Merkið umslagiö með lausninni: Finnur þú fimm breytingar? 438 c/o DV, pósthólf 5380 125 Reykjavik

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.