Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1997, Page 37

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1997, Page 37
JL>V LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1997 Qaðamennska « ' - talað hefur verið um Fríðu Björnsdóttur sem mnður Blaðamannafélagsins „Ég er nokkuð viss um að blaða- maður verði ekki góður ef hann hef- ur ekki ánægju af því sem hann er að gera. Mitt stærsta vandamál er að ég hef eiginlega of mikinn áhuga. Ég er alltaf að hugsa um vinnuna. Þetta er vissulega baktería. Þú ert kannski ekki með hana til að byrja með en fáirðu hana er erfitt að losna við hana,“ segir Fríða Bjöms- dóttir, starfsmaður Blaðamannafé- lags íslands, þegar DV hitti hana að máli á hundraðasta afmælisdegi fé- lagsins í vikunni. Auk starfa sinna hjá félaginu er Fríða sískrifandi, mest í blöð Fróða. Tilviljun Fríða segist hafa gerst blaðamað- ur fyrir einskæra tilviljun. Hún lauk stúdentsprófi frá MR og fór síð- an i eitt ár til Bandaríkjanna. Henni hafði verið sagt að ef hún sækti um í blaðmennsku væri líklegt að hún fengi styrk, Bandaríkjamenn væm mjcg hrifnir af því að fá slíkt fólk í nám til sín. „Ég setti því blaðamennsku í mn- sóknina og viti menn, ég fékk styrk,“ segir Fríða. Eftir vemna úti tók við eitt ár í Háskólanum hér heima. „Sumarið 1961 hóf ég störf á aðal- pósthúsinu í Reykjavík, hafði verið þar í þrjá daga þegar þangað kom kona sem ég þekkti. Henni fannst ómögulegt að ég væri að vinna við þetta þar sem ég væri búin að „læra“ til blaðamennsku. Hún fór til Jóns Magnússonar, þáverandi fréttastjóra á útvarpinu, og sagði honum að ég yrði bara að fá vinnu, ég kynni örugglega vel til verka. Sem betur fer vantaði fólk og ég var ráðin. Á útvarpinu var ég fram í október, fór í skólann aftur fram í janúar og byrjaði þá á Tímanum. Þar hætti ég siðan i árslok 1981 þeg- ar mig vantaði aðeins mánuð upp á tuttugu árin.“ Varð að velja Aðspurð um ástæðuna fyrir því að hún hætti á Tímanum segir Fríða að hún hafi orðið að velja á milli, annaðhvort að „fóma“ sér fyr- ir félagið eða hætta þar og einbeita sér að skrifum í blaðið. Niðurstaðan varð sú að ég valdi Blaðamannafé- lagið og að skrifa í lausamennsku með. Fríða er af sumum nefnd móðir Blaðamannafélagsins og víst er að fáir hafa starfað lengur að hags- munamálum blaðamanna en hún. Hún var fyrst kosin til vara- mennsku í stjórn félagsins 1973 og tveimur árum síðar tók hún við gjaldkerastarfi af Atla Steinarssyni. Því gegndi hún í nokkur ár en eftir að hún var komin í fast starf fyrir félagið fannst henni ástæða til þess að víkja úr stjóm, „dreifa valdinu" aðeins. Hún segist hafa verið komin í fast hlutastarf í kringum 1982. En hvert hefur starfssvið hennar verið? „Ég held að félagarnir sjái mig að- allega i hlutverki nirfilsins," segir Fríða og hlær. „Ég hef reynt að halda utan um peningana í harðri baráttu. Innheimta félagsgjalda hef- ur verið á minni könnu og í raun hinn daglegi rekstur félagsins, um- sjón sumarhúsanna og annarra eigna og fleira og fleira." Gagnkvæmt traust Áður en Lúðvík Geirsson kom inn sem starfandi formaður vom formennimir ekki í beinu starfi hjá félaginu og þá mæddi meira á Fríðu að svara öOu sem varðar kjara- samninga og þess háttar. Nú eru kjara- og samningamálin meira í höndum formannsins. Fríða segist þó fylgjast vel með og taka þátt í þeim umræðum öUum. Hún segist ánægð með scunstcufið við útgefend- ur. „Ég held að gagnkvæmt traust ríki á miUi okkar og útgefenda. Við höfum kappkostað að vinna að heU- indum gagnvart þeim, ekki siður en félagsmönnunum, og það hefur skil- að sér í góðri samvinnu," segir Fríða og bætir við að þrátt fyrir þetta sé meira um ágreiningsatriði í samningum nú en áður. Samning- amir séu orðnir miklu flóknari og því komi oft upp atriði sem Blaða- mannafélagið þurfi að vinna í. „Áður voru hreinlega engir samn- ingar tU um vinnuskyldu sem dæmi. Blaðamannsstarfið var ekki mjög fjölskylduvænt starf í þá daga en ég held að það hljóti aö vera að breytast." Þekkti flesta Aðspurð hvort þetta hafi verið skemmtUegt starf segir Fríða svo vera. Hún segir félagið aUtaf hafa verið svo lítið og lengi framan af hafl hún þekkt velflesta félagana og jafnvel unnið með þeim. „Af og tU hef ég hugsað að nú væri rétt að hætta en ætli ég geri það nokkuð úr þessu. Ég er í mikiUi vinnu við skrif í dag og ætla að halda því áfram,“ segir Fríða Bjömsdóttir sem hefur í tómstund- um sínum verið í Ferðamálaskólan- um. Hún útskrifast þaðan í vor, „ef guð lofar“ en hefur engin áform um að leggja ferðaiðnaðinn undir sig. F élagsmálaráðuney tið Starfsmenntaráð Félagsmálaráðuneytið auglýsir hér með opinn fund starfsmennta- ráðs sem haldinn verður miðvikudaginn 26. nóvember nk., kl. 16.00, í Borgartúni 6, Reykjavík. A fundinum verður fjallað um úthlutun styrkja úr starfsmenntasjóði vegna starfsmenntunar í at- vinnulífmu skv. lögum nr. 19/1992 og farið yfir starfíð á árinu. Þá verða haldin tvö stutt erindi um starfsmenntun atvinnulífsins. Starfsmenntaráð starfar skv. lögum um starfsmenntun í atvinnulífmu, nr. 19/1992. Mark- mið laganna er að hvetja til aukinnar starfsmenntunnar í atvinnulífinum sbr. 1 gr. lag- anna, m.a. með námskeiðahaldi. f starfsmenntaráði sitja 6 fulltrúar atvinnurekenda og launafólks, auk fulltrúa félagsmálaráðuneytisins. Hlutverk starfsmenntaráðsins er að út- hluta styrkjum til starfsmenntunar og vera stjómvöldum til ráðuneytis um stefnumótun og aðgerðir á sviði starfsmenntunar. Félagsmálaráðuneytið, 19. nóvember 1997.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.