Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1997, Blaðsíða 41

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1997, Blaðsíða 41
LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1997 49 L 150 þúsund titiar í Glasgow var nýlega opnuð ein { glæsilegasta bókaverslun Bret- landseyja. Búðin er rekin á vegum | hins virta Waterstone-fyrirtækis sem rekur hvorki fLeiri né færri en : 108 bókabúðir á Bretlandi og í | Bandaríkjunum. Nýja bókabúðin í Glasgow er sú stærsta á gjörvöllu Bretlandi og hefur um 150 þúsund titla til sölu. Gestkvæmt í Windsor Windsor-kastali fór iila í eldi árið 1992 eins og margir muna ef- j laust. Síðan hefúr staðið yfir mikil vinna við að færa hin 115 herbergi sem urðu. fyrir skemmdum í fyrrahorf. í vikunni var kastalinn form- lega opnaður og af því tilefhi bauð Englands- j> drottning þeim 1500 aðilum sem komu að verkinu til veislu. Þá hyggst drottningin fagna gullbrúðkaupi sínu í = Windsor-kastala á næstunni. Ferðamenn eru sumsé velkomn- p ir tO Windsor og nú munu talsvert fleiri salarkynni til sýnis en voru fyrir brunann mikla. 100 daga hátíð í Portúgal er undirbúningur fyr- ir Expo-hátíðina í fullum gangi. Hér er á ferðinni menningarhátið ; sem haldin verðm' i höfuðborg I Portúgals, Lissabon. í hundrað daga, frá maí til sept- ember á næsta ári, verður öflug { menningardagskrá í borginni. Þema hátíðarinnar verður saga 20. I aldarinnar. Margt frægra lista- : manna munu koma fram á hátíð- inni. Þeir sem hyggja á ferð til I Portúgals næsta sumar geta skoðað f ijölbreytta dagskrá hátíðarinnar á vefnum http: //www.expo98.pt {Aftur á Gatwick Pólska flugfé- I lagið LOT til- kynnti nýlega að það hygðist taka aftur upp flug á mOli pólsku borgarinnar Gdansk og Gatwick-flugvaU- ar í London. Síð- an Gatwick-flugvöUur sagði upp I samningi við LOT hefúr félagið æ | síðan reynt að fá hann endumýjað- | an. Pólsk ferðamannaj’firvöld eru í I skýjunum vegna málsins enda segja | þau Gdansk annan mUíOvægasta áfangastaðint Kraká. Hlábarðaklettur IÞeir sem eiga leið um Korsíku ættu ekki að láta hjá líða að heim- sækja smábæinn Sainte-Lucie de TaUano nálægt Sarténe. Þar þykir | ekki eniasta vera einstök náttúru- ; fegurð heldur er þar Uettur sem er ' eins og klæddur hlébarðaskinni og | á engan sinn líka í veröldinni. Varíst eftirlíkingar Sá iðnaður sem fæst við að líkja eftir heimsþekktum tískuvörum S hefur verið á hraðri uppleið und- anfarin ár. Eftirlíkingar eru helst Iætlaðar ferðamönnum sem iáta glepjast af merkjavöru á lágu verði. TU margra ára hafa Taívan og Suður-Kórea verið langstærst í slikri framleiðslu en þar á eftir kemur Ítalía. Þar áætla menn að eftirlíkingaframleiðsla hafi aukist um heO 1200% á síðasta áratug og lítið lát virðist á. Nýjar búðir í Leifsstöð Um áramótin verða opnaðar þijár nýjar verslanir í Leifsstöð. : Það er Sævar Jónsson sem hyggst ; hasla sér vöU í flugstöðnmi en hann hefúr undanfarið rekið versl- animar Leonard og Kosta Boda. Úr og skartgripir verða seld í ‘ tveimur verslununum en hvort í ; sinu lagi. Þriðja verslunin verður með almenna gjafavöru. Þaö er oft margt gesta í hádeginu í Staöarskála. Staðarskáli heldur sínu - en aðsókn að Staðarflöt vex ár frá ári „Við erum nokkuð ánægð með sumarið og okkur sýnist að árið í heUd verði alveg þokkalegt. Það var ekki minni ferðamannastraumur að ráði í sumar þótt margir hafi haldið því fram að ferðamönnum hafi fækkað á miUi ára. Aukningin hjá okkur var fyrst og fremst varðandi gistiheimilið Staðarflöt," sagði Kristinn Guðmundsson, einn af rekstraraðilum Staðarskála í Hrúta- firði, í samtali við DV. Húsið að Staðarflöt sem stendur örskammt frá Staðarskála var tekið í notkun sumarið 1994. Þar er annars vegar ráðstefnu- og fundaraðstaða og hins vegar fyrsta flokks gistirými fyrir tæplega 40 manns. Kristinn sagðist telja að það væri kostur að Staðarflöt væri miðja vegu miUi Akureyrar og Reykiavík- ur og það auðveldaði markaðssetn- inguna. Þá mælti fólk sér oft mót við fólk frá Vestfjörðum tU veislu- eða ráðstefnuhalds. Þá væri auð- heyrt á mörgum stjómendum fyrir- tækja að þeir sæktust eftir að kom- ast með sitt fólk úr þéttbýlinu því þá héldi fólk sig á staðnum og væri ekki að reka ýmis erindi úti í bæ eins og oft vfidi brenna við i höfúð- borginni. Hvað varðar ferðafólk þá sagði Kristinn að 1-3 daga dvöl væri al- geng yfir sumarið. Þá væri hægt um vik að fara í skoðunarferðir um Vestur-Húnavatnssýslu og Strandir og koma í mat og gistingu að kvöldi. Það hefur alltaf verið mikiU straumur fólks sem fer hjá Staðar- skála. Kristinn sagði áberandi að ferðalög á einkabUum væra í sókn en farþegum í áætlunarbílum virð- ist fara fækkandi. Þá telur Kristinn skipulagðar hópferðir fara vaxandi og eins nefndi hann að umferð stórra flutningabUa verði meiri með hverju árinu sem líður. „Við veitum 30 manns vinnu yfir sumarið og þurfum jafnvel að fá fólk langt að. Starfsemi Staðarskála veitir mikiUi vinnu inn í byggðar- lagið og á meðan umfangið vex jafnt og þétt erum við bjartsýn á framtíö í ferðaþjónustu," sagði Kristinn að lokum. -öþ Skáli Útivistar í Básum skartar vetrarskrúöa. Feröafélag íslands og Útivist: Áramót í Þórsmörk á tilboðsverði Sérfræðingur frá Jensen dýnuverksmiðjunum í Noregi verður í verslun okkar dagana 20. - 22. nóvember. Af því tilefni veitum við 15% afslátt af Jensen dýnum. Einnig bjóðum við rúm og höfðagafla á sérstöku tilboði. Nú er kjörið tækifæri til að eignast gæðadýnu og rúm á góðu verði. Jensen dýnurnar fást í fjölmörgum gerðum og útfœrslum Nú er ferðum Ferðafélags íslands og Útivistar farið að fækka enda langt liðið á árið. Bæði félögin hafa boðið upp á fjölda ferða það sem af er árinu. Mörður Finnbogason hjá Útivist sagði fyrirhugaðar tvær helgarferð- ir á árinu: „Við ætlum i árlega að- ventuferð í Þórsmörk um næstu helgi og siðan er það auðvitað ára- mótaferðin okkar sem er einnig í Þórsmörk. Áramótaferðin nýtur alltaf vinsælda og við reiknum með að um 80 manns fari í ár,“ segir Mörður. í áramótaferðina er lagt upp snemma morguns þann 30. des- ember og komið heim 2. janúar. Á dagskránni era kvöldvökur og auð- vitað flugeldasýning á gamlárs- kvöld. Fólk þarf sjálft að koma með nesti en aðstaða til að grilla og hita upp mat er til staðar. Gist er í húsi Útivistar í Básum. Hjá Ferðafélagi íslands er svipaður háttur á ára- mótaferð í Þórsmörk nema hvað ferðin er deginum styttri. Að sögn Ingunnar Sigurðardóttur hjá Ferða- félaginu hefst áramótaferðin snemma gamlársdagsmorguns og komið er heim þann 2. janúar. „Við reiknum með að um 80 manns verði í þessari ferð. Það er góður fjöldi og undanfarin ár hefur verið gríðar- lega góð stemning í þessari ferð. Það er talsvert um að sama fólkið komi aftur og aftur í ferðina. Ára- mót í Þórsmörk eru einstök upplif- un,“ segir Ingunn. Dagsferöir til áramóta Fyrir þá sem vilja fara í dagsferð- ir era nokkrar í boði hjá báðum fé- lögum. Á morgun ætla Útivistar- menn að ganga svokallaða Lága- skarðsleið og á sunnudaginn eftir viku verður létt ganga um Bessa- staðanes. Á morgun stendur Ferðafélagið fyrir dagsferð í Lækjarbotna. Eftir viku, eða þann 30. nóvember, verður aðventuganga félagsins. í desember verða fjórar dagsferðir. Vert er að minna á gönguna 21. desember en þá verður vetrarsólstöðuganga á Esjuna og síðan er árið kvatt formlega með blysför þann 28. -aþ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.