Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1998, Síða 12
12
MÁNUDAGUR. 5 JANÚAR 1998
Lesendur
Hin hliöin á
„lakkrísmálinu"
Rúnar Már Sverrisson
skrifar:
í Dagblaðinu þann 18.
október sl. var innlend-
ur fréttaannáll eftir
Gyifa Kristjánson um
lakkrísverksmiðjuna í
Kína og hvernig vamar-
lausir íslenskir fjárfest-
ar urðu fómarlömb kín-
verskrar „villi-
mennsku“ og óheiðar-
leika.
Ekki vakir fyrir und-
irrituðum að reifa þessa
sorgarsögu í neinum
smátriðum heldur varpa
nýju og e.t.v. sannara
ljósi á málið.
I febrúar ’94 var kom-
ið að máli við mig um að
taka við framkvæmda-
stjórn Scandinavian Gu-
angzhou Candy Factory
Co Ldt. Á þeim tíma lágu
Frá opnun lakkrísverksmiöjunnar í Kfna.
Spurningin
Hvernig fannst þér
áramótaskaupiö?
Inga Bjarnadóttir, nemi í Hlíða-
skóla: Mér fannst það ömurlegt í
alla staði. Kryddpían sem Halldóra
Geirharðsdóttir lék var ekki góð og
eins náði Jóhann Sigurðarson eng-
um tökum á Davíð Oddssyni.
Ágústa Margrét Jóhannsdóttir,
nemi í Hliðaskóla: Ég get ekki sagt
að ég sé ánægð með þetta skaup. Mér
fannst leikurinn almennt lélegur og
þetta var bara ekki nógu fyndið.
Gerhard Grillitsch og Daníel: Mér
fannst það alveg ágætt og betra en
síðustu ár.
Auðunn Björnsson blaðasali: Ég
hafði mjög gaman af skaupinu og
fannst það mjög hlægilegt.
Ásgeir Ágústsson: Mér fannst
skaupið í ár óvenjugott og miklu
betra en síðustu áramótaskaup.
Kristján Friðjónsson „altmulig-
mand“: Mér fannst áramótaskaupið
frekar klént og langt frá því að vera
nógu fyndiö. Það hefðu mátt vera
skemmtilegri karakterar.
á lager verulegar birgðir af lakkrís
sem gekk illa að selja, sýnishorn
höfðu verið send á markaði i Svíþjóð
og Danmörku auk þess sem lakkrís
haföi verið fluttur til íslands til
kynningar. Enda þótti rekstur verk-
smiðjunnar hefði staðiö yfír í tæpt
ár var varla hægt að segja að varan
væri komin á markað.
Allt frá byrjun gekk erfiðlega að
fá menn til að reka fyrirtækið. Varð
það þrautalending að einn hluthaf-
anna tók það að sér. í stað þess að
stjóma fyrirtækinu, sem á upphafs-
dögum þess krafðist röggsamrar for-
ystu, taldi framkvæmdastjórinn
tíma sínum best varið á Norður-
Gunnar skrifar:
Hálendi íslands hefur mikið að-
dráttarafl, ekki bara fyrir innlenda
ferðalanga heldur einnig útlend-
inga. Umferð um þetta viðkvæma
svæði fer sívaxandi með ári hverju.
Flotar ferðamanna leggja leið sína
yfir Kjöl og um Sprengisand á sumr-
in þegar þessar leiðir eru færar.
Náttúruperlur eins og Þórsmörk og
Landmannalaugar, Hveravellir og
Herðubreiðarlindir fá fjölmargar
Auðunn Jónsson skrifar:
Það er hreinasta skömm aö því
hvemig farið er með starfandi
lækna á sjúkrahúsum og heilsu-
gæslustöðvum hér á landi. Engu lík-
ara er en stjómvöld hafi staðfast-
lega einsett sér að ganga svo ræki-
lega milli bols og höfuðs á heil-
brigðiskerfmu að eftir standi ekkert
nema rjúkandi rústirnar.
Unglæknar létu loks til skarar
skríöa og hættu störfum, eftir að
hafa þrælað sér út á stóru sjúkra-
húsunum, á lágum launum og við
bága aðstöðu (a.m.k. á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur). Þá var ekki um ann-
að að gera en munstra sérfræðing-
ana í störf þeirra.
Á það skal bent að unglæknamir
eru sá hópur sem tekið hefur erfið-
ustu og lengstu vaktirnar á sjúkra-
löndum við öflun aukins rekstrar-
fjár og markaðssetningu. Að sjálf-
sögðu kom þetta Kínverjum á óvart
sem höföu átt von á greiðum að-
gangi að „markaðstengslum" íslend-
inganna og faglegri stjórnun. Hvort
tveggja var metið til hlutafjár, auk
„patents" á lakkrísformúlu, sem þó
var aldrei lögð fram, enda lakkrís-
inn ósköp venjulegur og ekki einka-
leyfishæfur.
í áðumefndri grein er farið ómak-
legum orðmn um þjónustu opinberra
íslenskra embættismanna, þ.m.t.
sendiráðsins í Peking. Það verður þó
að viðurkenna að meðan á mestu
rimmunni við Kínverjana stóð út af
heimsóknir á ári hverju.
Ekki er þó þar meö sagt að svo
verði það tU framtíðar. í könnunum
hefur komið fram að erlendir ferða-
menn hrífast flestir af íslenskri nátt-
úru. Næststærsti hópurinn hefur
mestan áhuga á óbyggðum landsins.
Þá nefna margir kyrrö og ró svo og
hreint vatn og loft. Öllum þessum
kostum er Island ríkulega búiö, enda
berst hróður þess sem ferðamanna-
lands æ víðar með hverju árinu.
húsunum. Það má því nærri geta
hver áhrif það hefur á þjónustuna á
hinum ýmsu deildum þegar sér-
fræðingarnir þurfa að bæta störfum
þeirra ofan á sín eigin störf.
Málefni heimilislæknanna á
heilsugæslustöðvum eru kapítuli út
af fyrir sig. Um það bil ár er nú lið-
ið síðan kjaranefnd fékk kjaramál
þeirra til úrskurðar. Einhver hefði
haldið að það færi að losna um hjá
bótum voru ákveðnar væntingar um
að íslenskum stjómvöldum tækist að
knýja kínversk stjórnvöld til „sann-
gimi“ og stuðla að hækkun bótanna.
Eftir á að hyggja er mér ljóst að
möguleikar sendiráða í þeim efnum
era mjög takmörkum háðir. Ábyrgð-
in er og hlýtur alltaf að vera við-
skiptalifsins.
Að lokum vil ég geta þess að Kín-
verjar eru okkur íslendingum
fremri á mörgum sviðum og þá ekki
síst í umburðarlyndi og þolinmæði.
Aldrei á 3ja ára tímabili, sem ég hef
gist Kína, hefur orðið vart áreitni af
neinu tagi, öryggi almennings er
meira þar en jafnvel í Reykjavik.
Þess vegna hlýtur að líða að því
að menn fari aö huga að skipulagi
fyrir hálendið. Viðkvæmar nátt-
úruperlur taka ekki endalaust við
umferð, hvort sem um er að ræða
hjólreiðamenn, hestamenn eða
göngugarpa. Æskilegt er að sem
flestir geti notið þeirrar náttúrufeg-
urðar sem ísland hefúr upp á að
bjóða en það verður að vera á þann
veg að ekki hljótist skaði af.
nefndinni þegar kjarasamningur
sjúkrahúslækna lægi fyrir. En það
virðist öðru nær. Ekkert bólar á úr-
skurðinum þegar þetta er skrifað.
Sá bautasteinn sem stjórnvöld
era nú að reisa sér með aðgerðum
sínum gegn heilbrigðiskerfinu á eft-
ir að verða þeim til ævarandi
minnkunar ef þau snúa ekki þegar
við á þessari háskalegu braut. Og
kannski er það orðið of seint.
DV
Hvað segja
lögin?
Herdís hringdi:
Mér blöskrar hve áfengissalar
hafa fært sig upp á skaftið hvað
varðar auglýsingar að undan-
förnu. Hollenskur bjór er aug-
lýstur í sjónvarpi hvað eftir ann-
að og á hælana fylgja íslenskir
bjórbraggarar.
Ég las í DV að þetta athæfi
hefði verið margkært til lög-
reglustjóra. Hann þóttist síðan
ætla að finna auglýsingu sem
væri skýrt lagabrot. Og nú spyr
ég: Hvað er að gerast í málinu?
Það fer ekki milli mála að
þessar auglýsingar era lagabrot
þvi skv. íslenskum lögum er
bannað að auglýsa áfengi. Ég
veit með vissu að þessi bíræfni
áfengissalanna fer i taugamar á
mjög mörgum. Fólk vill láta
stöðva þetta eða breyta landslög-
um. Þaö er óþolandi að horfa á
einhverja brjóta þau af ásetningi
hvað eftir annað.
Rétt hjá
Davíð
Þorvaldur Þorsteinsson
hringdi:
Þegar Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra opnaði þann möguleika
i sjónvarpi á dögunum að ein-
hver stólaskipti yrðu í ríkis-
stjóminni setti að mér efa um
hvort rétt væri að tilkynna þaö
fyrirfram. Hættan var sú að
miklu moldviðri yrði þyrlað upp
í kringum þessa hugmynd
þannig að hún yrði erfíðari i
ffamkvæmd en hefði þurft að
vera. Auk þess er framsóknar-
maddaman ekki alltaf lipur í
taumi.
En þessi ótti reyndist ástæðu-
laus. Það er auðséð að Davið
heldur styrkri hendi um stjórn-
artaumana eins og fyrr. Þetta er
maður sem stjórnar landinu.
Þakkir til
Dagsljóss
Þuríður hringdi:
Ég vil þakka Dagsljóss-fólki
Sjónvarpsins fyrir efnisríka og
skemmtilega þætti. Það er nota-
legt að geta sest fyrir framan
sjónvarpið eftir kvöldmatinn og
átt von á ýmsu fræðandi og upp-
lífgandi efni í skammdeginu.
Umsjónarfólkið finnst mér
standa sig með miklum ágæt-
mn. Það er aldrei með neinn
vandræöagang, þagnir eða fum
og fát.
Hins vegar finnst mér frétta-
stofan of þunglamaleg. Það er
eins og fólkið á þeim bæ sé
alltaf að berjast við eitthvað
sem er því ekki eðlilegt. Von-
andi lagast það.
Ótti viö
fugla-
flensu
Guðrún Jónsdótttir skrifar:
Mig óar við því ef hingað berst
sú skæða fuglaflensa sem Hong
Kong-búar þurfa nú að kljást við.
Margir hafa lesið sér til um þann
ógnartíma þegar spænska veikin
geisaði hér á landi. Þessi veiki
hegðar sér ekki ósvipað, a.m.k.
er talið að hún hafi verið sprott-
in frá dýrum, fuglum eða jafnvel
svínum, ef ég man rétt.
Nú berast fregnir af hörðum
viðbrögðum hið ytra gegn
fúglaflensunni. Puglum er slátr-
að í stórum stíl. Er það liður í að
útrýma þessari veiki. En það er
bara ekki nóg. Allur hejmurinn
þarf að vera á verði. Annars
gæti illa farið.
Viðkvæmar náttúruperlur
Niðurrifsstarf stjórnvalda
Það hlýtur að hafa áhrif á gæöi þjónustu sjúkrahúsanna þegar sérfræðingar
verða að bæta störfum unglækna ofan á eigin störf.