Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1998, Síða 4
4
MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 1998
Fréttir
Helgi Laxdal, formaðnr Vélstjðrafélags Islands:
Málflutningur Krist-
jáns ruglar almenning
- hefur fengiö aðra sjómenn á móti vélstjórum
„Þaö væri lítið mál að leysa
þessa deilu ef Kristján Ragnarsson
væri ekki af sinni snilld búinn að
tefla þessu í þennan farveg. Hann
opnar ekki kjaftinn án þess að
halda því fram að okkar barátta sé
í andstöðu við aðra í áhöfn. Hann
er með þessu búinn að rugla al-
menning i ríminu," segir Helgi
Laxdal, formaður Vélstjórafélags
íslands, um stöðuna í kjaradeilu
félagsins við útgerðarmenn. Sátta-
fundir hafa reynst árangurslausir
með öllu og sl. þriðjudag stóð fund-
ur aðeins í hálftíma. Verkfall vél-
stjóra skellur að óbreyttu á þann
17. janúar nk. þegar 80 stærstu
fiskiskipin stöðvast vegna deil-
unnar. Helgi segir málflutning
Kristjáns Ragnarssonar, formanns
LÍÚ, aUan vera á þeim nótum að
hækkun á hlutaskiptum vélstjóra
komi niður á kjörum annarra sjó-
manna. Helgi segir þetta vera al-
rangt en eigi að síður hafi þessi
máiflutningur náð eyrum annarra
sjómanna.
„Honum hefur tekist að fá aðra
sjómenn á skipunum upp á móti
okkur þó það sé ekkert verið að
taka frá þeim. Þá er hann einnig
búinn að fá Sævar Gunnarsson og
Guðjón A. Kristjánsson í þann hóp
að vinna með sér í því verkefni að
fá alla sjómenn upp á móti vél-
stjórum," segir hann. -rt
Millifærslumálið:
Lögreglu-
rannsókn
lokið
Lögreglurannsókn er lokið á
miklu Qármunastreymi út úr dánar-
búi Arons heitins Guðbrandssonar
inn á bankareikninga manns sem er
óvandabundinn því og ekkju Arons
heitíns, sem situr í óskiptu búi
þeirra hjóna.
Að sögn Amars Jenssonar, sem
stjómaði rannsókninni, em máls-
gögn nú til athugunar hjá embætti
ríkissaksóknara sem ákveður hvort
höfðað verður opinbert sakamál.
Eins og DV hefúr sagt frá er um
mjög mikla fjármuni að ræða sem
runnið hafa út úr búinu, eða tugi
milljóna króna. Þegar venslafólk
ekkjunnar komst að því hvemig
hag búsins var komið kærði það
málið og hefúr RLR og síðar eftia-
hagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra
rannsakaö það undanfama mánuöi.
Á meðan rannsókn málsins stóð var
m.a. gjaldkera í Melaútibúi Búnað-
arbankans vikið úr starfi. -SÁ
Það gustar um Helga Laxdal, formann Vélstjórafélags íslands, þessa dag-
ana. Eftir 10 daga stöðvast 80 stærstu fiskiskipin takist ekki samningar við
útgerðarmenn. DV-mynd Hilmar Þór
Akureyri:
Gísli Bragi Hjart-
arson ætlar ekki
í framboð
DV, Akureyri:
„Ég hef tilkynnt flokksfélögum
mínum að ég muni ekki gefa kost
á mér til framboðs við kosning-
arnar í vor,“ segir Gísli Bragi
Hjartarson, bæjarfulltrúi Alþýðu-
flokksins á Akureyri.
Gísli Bragi hefur verið eini bæj-
arfulltrúi Alþýðuflokksins undan-
farið og hafa nú allir þrír bæjar-
fulltrúar A-flokkanna tilkynnt að
þeir hætti afskiptum af bæjarmál-
um þegar kjörtímabilinu lýkur i
vor, Sigríður Stefánsdóttir og
Heimir Ingimarsson höfðu áður
gefiö yfirlýsingar þar áð lútandi.
Enn er unnið að sameiginlegu
framboði A-flokkanna og Kvenna-
listans fyrir kosningarnar í vor.
Alþýðuflokksmenn munu innan
skamms greiða atkvæði um hverj-
ir úr þeirra röðum muni taka
sæti á þeim sameiginlega lista.
Alþýðubandalagiö mun þar fá 1.
sætið en þó þurfa hinir flokkam-
ir að gefa samþykki sitt varðandi
hver leiði listann. Þau nöfn sem
aðallega hafa verið nefnd varð-
andi efsta sætið eru Sigrún Svein-
björnsdóttir, Ásgeir Magnússon
og Þröstur Ásmundsson. -gk
Verðtryggð lán:
Binditíminn
lengdur
Lágmarksbinditími verðtryggðra
lána verður frá áramótunum fimm ár
í staö þriggja ára áður. Þá lengist
einnig lágmarksbinditími verð-
tryggðra innlána úr einu ári i þijú.
Reglur um þetta voru settar sl. sum-
ar en tóku gildi nú um áramótin. I frétt
frá Seðlabankanum segir aö breyting-
amar séu annar áfangi aö því marki
að draga úr notkun verðtryggingar á
skuldbindingum tíl skamms tfma.
Pyrsti áfanginn var í ársbyijun 1996
þegar lágmarksbinditími verðtryggðra
innlána var lengdur i eitt ár og bindi-
tími verðtryggðra útlána og skulda-
bréfa í þijú ár.
Seðlabankinn stefnir að þvi að lokaá-
fangi breytinga á verðtryggingareglun-
um verði árið 2000. Þá verði heimild til
aö verötryggja innlán felld niður og lág-
markstími verötryggöra útlána verði
sjö ár. Endanleg ákvörðun um þetta síð-
astnefhda hefúr þó ekki verið tekin.-SÁ
Sjálfstæöismenn í ísafjaröarbæ íhuga frestun prófkjörs:
Jónas Ólafsson
hættir í pólitík
Jónas Ólafsson, annar tveggja
bæjarstjóra í ísafjarðarbæ, mun
ekki gefa kost á sér í
prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins sem fram fer
á næstunni. Jónas stað-
festi þetta í samtali við
DV og sagðist ekki
hætta vegna uppnáms-
ins í bæjarstjórninni
heldur hafi hann verið
búinn að ákveða þetta
Jyrir löngu. Brotthvarf
Jónasar úr sveitar-
stjómarpólitíkinni gef-
ur sjálfstæðismönnum
vonir um að hægt verði
að beija í þá bresti sem
urðu þegar meirihlutinnn sprakk í
haust og tveir fulltrúar sjálfstæðis-
manna, Jónas og Kolbrún Halldórs-
dóttir, gengu til liðs við nýjan
meirihluta.
DV hefur heimildir fyrir þvi að
sérframboð hafi borið á góma meðal
óánægðra sjálfstæðismanna í ísa-
I
í \■ 1
Jónas Ólafsson.
fjarðarbæ en talið er að slíkt sé
meira í orði en að það verði ofan á.
Sú staðreynd að Jónas
Ólafsson ætlar að hætta
gerir óánægjuöflunum
erfitt fyrir þar sem ekki
er sjáanlegt leiðtogaefni
í hans stað.
Áformað var að Sjálf-
stæðisflokkurinn héldi
prófkjör meðal flokks-
manna þann 31. janúar
nk. en nú em hugmynd-
ir um að því verði fre-
stað um óákveðinn
tíma. Guðmundur Mar-
inósson, formaður kjör-
dæmisráðs SjáÖstæðis-
flokksins, segir að verði af frestun
prófkjörsins sé það vegna þeirra
hugmynda sem uppi em innan bæj-
arstjórnar um að fækka bæjarfull-
trúum úr 11 í 9. Ákvörðun um frest-
un verður tekin á fundi fulltrúa-
ráðsins í kvöld.
-rt
Dagfari
Fimmtíu manna atvinnubótavinna
Alltaf em þeir að koma manni á
óvart í stjómkerfmu. Og þó. Maður
hefur svo sem alltaf haft gmn um
aö skrifstofur hins opinbera væra
yfirfylltar af fólki sem þar hefði að-
allega atvinnu af því að mæta til
vinnu, án þess endilega að þurfa að
vinna. Né heldur þurfi aö mæta.
Nema þá til að stimpla sig út og
inn til að sækja launin sín.
En nú hefur það gerst aö sér-
stakt ráðgjafarfyrirtæki hefur tek-
ið saman skýrslu um hagræðing-
una við það að sameina Hitaveitu
Reykjavíkur og Rafmagnsveitu
Reykjavíkur. Og þá kemur í Ijós að
fimmtíu störf hjá þessum stofnun-
um eru óþörf! Einhver hefði nú
kannske getað sagt borgaryfirvöld-
um frá þessum mannskap öllum og
kannski hefði verið hugsanlegt að
yfirmenn þessara stofnana hefðu
verið búnir að koma auga á allt
þetta fólk, sem ráfar þar um ganga
og skrifstofur, án þess að hafa mik-
ið fyrir stafni. Hvað þá, þegar búið
verður að sameina þessa starfsemi.
Borgarstjóm Reykjavíkur og
veitustjóm borgarinnar þurftu
hins vegar ráðgjafafyrirtæki úti í
bæ til aö láta segja sér þetta, enda
á bæði borgarstjómin og veitu-
stjómin fullt í fangi með að stjóma
þessum stofnunum, þó þeir séu
ekki líka að velta því fyrir sér
hvort of margt fólk sér þar að störf-
um. Enda skiptir það ekki svo
miklu máli hvort spara megi á ann-
að hundrað milljónir króna í
mannahaldi, þegar auðveldast er
og einfaldast að hækka afnotagjöld-
in til að mæta svona útgjöldum.
Nema hvaö. Borgaryfirvöld em
búin að fá þessa skýrslu ráðgjafar-
fyrirtækisins í hendur og maður
hefði haldið að það væri næsta
skref að vinda sér í sameininguna
til að losa sig viö fimmtíu starfs-
menn sem hafa þar laun við að
gera ekki neitt.
Viðbrögð forystumanna meiri-
hluta og minnihluta em aftur á
móti afar athyglisverö í þessu
sambandi. Bæði Ingibjörg Sólrún
og Árni Sigfússon em sammála
um að ekki komi til greina að
segja upp þessu starfsfólki, á
þeirri forsendu að borgaryfirvöld
hafi skyldum að gegna gagnvart
starfsfólkinu. Skítt veri með neyt-
endur og viðskiptavini Hitaveit-
unnar og Rafmagnsveitunnar,
sem þurfa að borga hvort sem er.
Og eiga að borga áfram, vegna
þess að borgaryfiröld geta ekki
sagt upp fólki, sem vinnur hjá
borginni og missir störf sín hjá
borginni, ef því er sagt upp af því
að það hefur ekkert að gera í
starfinu.
Jú, jú, það getur vel verið að
Reykavíkurborg láti sameina
veitustofhanimar, en það má ekki
segja fólki upp af þeim sökum.
Fólkið verður að halda vinnunni
hvaö sem öðra líður og hvað sem
allri sameiningu líður. Fólkið
gengur fyrir sem þama vinnur og
það hefur enginn rétt til að spara á
þess kostnað, vegna þess aö borgin
hefur skyldum að gegna gagnvart
fólki sem að öðru leyti hefur ekkert
að gera og missir vinnuna og fær
ekkert annað að gera ef því er sagt
upp.
Við verðum að standa vörð um
starfsfólkið, segja frambjóðendum-
ir til næstu borgarstjómar enda
hefur þetta fólk kosningarétt, þótt
þaö hafi ekkert að gera og atkvæð-
in eru meira virði heldur en sparn-
aðurinn sem fæst fram við að segja
því upp.
Alla vega em menn sammála um
að segja því ekki upp fýrir kosning-
ar án þess að segja til um það hvað
veröi gert eftir kosningar.
Dagfari