Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1998, Síða 9
MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 1998
9
r
Vargöldin í Alsír ætlar engan enda aö taka:
Sonny Bono
Þorpsbúar á f lótta
frá morðsvæðunum
Hundruð þorpsbúa hafa lagt á
flótta frá afskekktum fjallahéruðum
í vesturhluta Alsírs í kjölfar morða
á að minnsta kosti sex hundruð
körlum, konum og börnum þar í síð-
ustu viku.
Fréttir sem bárust til Algeirs-
borgar, höfuðborgar Alsírs, í gær-
kvöld hermdu að íbúar í Relizane-
héraði væru að flýja til bæja þar
sem er meiri öryggisgæsla. Þeir fáu
sem urðu eftir hafa fengið vopn frá
öryggissveitunum til að verja hend-
ur sínar.
Fólksflóttinn hófst eftir
fjöldamorð fyrir viku þar sem rúm-
lega fjögur hundruð manns týndu
lífi. Enn fleiri eru á faraldsfæti nú
vegna morða á rúmlega tvö hundr-
uð manns aðfaranótt siðastliðins
mánudags.
Alsírska dagblaðið La Tribune
skýrði frá því í gær að hundruð
manna hefðu verið brennd lifandi
og að 117 hefði verið slátrað í tveim-
ur árásum um helgina. Blaðið
kenndi skæruliðum bókstafstrúaðra
múslíma um verknaðinn.
Alsírsk yfirvöld hafa ekkert tjáð
sig um þessi síðustu fjöldamorð.
Þau hafa þó sagt að 78 manns hafi
fallið í fyrri árásinni.
Enginn hefur lýst ábyrgð á voða-
verkunum á hendur sér. Tugir þús-
unda óbreyttra borgara hafa fallið
fyrir morðingja hendi á undanföm-
um ánnn. Skæruliðum múslíma,
sem vilja steypa stjóm landsins, er
Þetta smábarn slapp lifandi undan
morövörgunum í Alsír.
kennt um. Upphaf vargaldarinnar
má rekja til ársins 1992 þegar stjóm-
völd aflýstu kosningum sem næsta
víst var að bókstafstrúarmenn
hefðu unnið.
Sendiherra Bandaríkjanna i Al-
sír, Cameron Hume, var kallaður í
utanrikisráðuneytið i Algeirsborg
þar sem því var mótmælt að banda-
risk stjómvöld skyldu hvetja til
þess að alþjóðleg nefnd fengi leyfi til
að rannsaka fjöldamoröin.
Vesturlönd og ýmsar alþjóða-
stofnanir hafa vaxandi áhyggjur af
ástandinu í Alsír og hafa hvatt
stjómvöld til að veita borgurunum
meiri vemd. Á fyrstu sex dögum
ársins hafa meira en eitt þúsund
manns verið myrt í Alsír. Reuter
beið bana á
skíðum
Bandaríski þingmaðurinn
Sonny Bono, sem var heims-
frægur söngvari á sjöunda ára-
tugnum ásamt þáverandi eigin-
konu sinni Cher, lést í gær eftir
að hafa skíöað á tré við Tahoe-
vatn i Nevada. Bono hafði farið
út af merktri braut og skíðaði í
skóglendi er slysið varð.
Chastity Bono, dóttir Sonnys
og Cher, sagði í gær að þótt þau
feðgin hefðu ekki haft sömu
stjórnmálaskoðanir hefði hann
alltaf stutt hana og verið ástrík-
ur faðir. Cher var harmi slegin
við fregnina um andlát Sonnys
og hélt frá London heim til
Bandaríkjanna.
Sonny lét eftir sig eiginkonu
og gögmr börn sem hann eignað-
ist með þremur konum.
Við
svörum í símann
Danska lögreglan veit enn ekki hverjir söguöu af höfuö Litlu hafmeyjunnar
á Löngulínu í Kaupmannahöfn í fyrrinótt. Tveir ungir menn, sem Ijósmynd-
ari sjónvarpsstöövar sá renna sér á hjólaskautum viö Löngulínu, liggja und-
ir grun. Hringt haföi veriö í Ijósmyndarann um nóttina og hann hvattur til aö
skoða styttuna. Símamynd Reuter
Bandarískur vísindamaöur:
Ætlar að klóna börn
fyrir barnlaus hjón
Læknir í Chicago er tilbúinn að
hefja tilraunir á því að klóna mann-
verur til að búa þannig til böm fyr-
ir ófrjósöm hjón.
Richard Seed, sem hefur stundað
frjósemisrannsóknir undanfarin ár,
sagði í viðtali við bandarísku út-
varpsstöðina NPR að hann væri að
búa sig undir að setja á laggimar
miðstöðvar þar sem böm yrðu klón-
um fyrir væntanlega foreldra.
„Það er ætlun mín að stofna
stofnun til að klóna mannverur á
Chicago-svæðinu og gera úr henni
arðvænlegt fyrirtæki. Þegar það
gerist ætla ég að opna 10 til 20 aðr-
ar eins víðs vegar um Bandaríkin
og kannski fimm eða sex erlendis,"
sagði Seed í viðtalinu við NPR.
Útvarpsstöðin sagði að Seed hefði
átt í samningaviðræðum við sjúkra-
stofnun á Chicago-svæðinu sem ætti
allan nauðsynlegan tækjabúnað fyr-
ir tilraunimar. Ekki var skýrt frá
því hvaða stofnun það væri.
Seed starfar með lækni, sem ekki
vill láta nafns síns getið en sagðist
ekki mundu taka þátt í þessu nema
samtök frjósemislækna gæfu grænt
Ijós. Samtökin hafa til þessa lýst sig
andvíg klónun manna. Clinton for-
seti hefúr lagt til að slíkar rann-
sóknir verði bannaðar í fimm ár.
Reuter
Hvalavinafélag Pauls Watsons:
Sonur Bastesens
heiðursfélagi
DV, Ósló:
Hvalavinurinn Paul Watson hef-
ur gert Stein-Erik Bastesen að heið-
ursfélaga í samtökum sínum, Sea
Shepherd. Stein-Erik er sonur
norska hvalfangarans og þing-
mannsins Steinars Bastesens og
hlotnast heiðurinn fyrir að hafa
sökkt hvalbáti þeirra feðga í haust.
Þeir Bastesen-feðgar eru lítið
hrifnir af nafnbótinni en norska lög-
reglan telur það sannað að Stein-
Erik hafi sökkt bátnum fyrir vangá.
Watson er reyndar ekki sannfærður
um að niðurstaða lögreglunnar sé
rétt og segir að félagar í norsku
hvalavinasamtökunum Agenda 21
fullyrði enn að þeir hafi sökkt bátn-
um.
„Ég held að það sé ekki hægt að
sökkva svona bát fyrir einskæran
klaufaskap," segir Watson.
„Ef Stein-Erik ber ábyrgð á að
báturinn sökk þá gerði hann það
með viija. Mér fmnst því rétt að
hann fái heiðurssess í samtökum
okkar." -GK
rukkum, hringjum, tökum
pantanir og tímapantanir
fýrir þig!
Viö erum
einkaritararnír
þínir þegar
þér hentar
SimaÞlónusian
52C 6123
Hjálpar
þér að:
Verða hæfari
í starfi.
i/ Öðl ast meiri
eldmóð.
Verða betri í
mannlegum
samskiptum.
SLosna við
áhyggjur og
kvíða.
V Setja þér
markmið.
Dale Carnegie®
ÞJÁLFUN
s
Fólk- Arangur- Hagnaður
Dale Carnegie® námskeiöiö gaf mér aukiö sjálfstraust
og opnaöi nýjar víddir. Ég lít bjartari augum á lífið og
er tilbúin til aö takast á viö dagleg vandamál meö
jákvæöu hugarfari.
Anna Steinsen
Líf mitt hefur tekiö miklum breytingum til hins betra, ég
lít björtum augum á framtíðina og er hætt aö velta mér
uppúr fortíöinni. Sjálfstraustiö hefur aukist til muna og
ég á betur meö aö koma skoðunum mínum á
framfæri. Dale Carnegie® var svariö.
Björg Ólöf Bjarnadóttir
Ég mæli eindregið meö Dale Carnegie® námskeiöinu.
Þaö hefur aukiö sjálfstraust mitt og einnig kennt mér
aö lifa í „dagþéttri veröld". Ég er óhræddari viö aö
standa upp og tjá mig og halda tölu í áheyrn fjölda
manna.
Elín Þorbergsdóttir
Samskipti mín viö yfirmenn mína hafa gjörbreyst auk
þess sem áhyggjur mínar af bókstaflega öllu hafa
minnkaö verulega.
Trausti Jónsson
KYNNINGARFUNDUR
fimmtudaginn 8. janúar kl. 20.30
aö Sogavegi 69, 108 Reykjavík
STJORNUNARSKOLINN
Konráð Adolphson - Einkaumboð á íslandi
581-2411
FJARFESTING I MENNTUN SKILAR ÞÉR ARÐI ÆVILANGT