Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1998, Qupperneq 4
4 fréttir
LAUGARDAGUR. 17 JANÚAR 1998 J lV
Sjómenn og útgeröarmenn á sáttafundum:
„Hvar eigum við að vera?“
- spurði Helgi Laxdal - Boðunar verkbanns á vélstjóra beðið
V
Kristján
Ragnarsson,
LÍÚ
Þórir
Einarsson,
sáttasemjari
ríkislns
Sævar
Gunnarsson,
Sjómannas.
isiands
Klofnir í
Karphúsinu
- staðsetnlng aöila að sjómannadeilunni
Guðjón A.
Kristjánsson,
Farmanna- og
fiskimannas.
Pétur
Sigurösson,
Alþýöusamb.
Vestfjaröa
Helgi Laxdal,
Vélstjórafél.
íslands
Það var undarlegt og lævi blandið
loft í Karphúsinu í gær þegar leiðtog-
ar útgerðarmanna og sjómanna
mættu á sama tíma til fundar í gær-
morgun. Greinilega mátti merkja
þann klofning sem er í forystusveit
sjómanna. Það voru misjafnar móttök-
ur sem formaður vélstjóra, Helgi Lax-
dal, fékk þegar hann mætti til fundar.
Fyrsta spurning hans var: „Hvar eig-
um við að vera?“ og þótti nokkuð
lýsandi fyrir stöðu félags hans i deil-
unni. Sáttasemjari úthlutaði vélstjór-
unum herbergi í vesturenda Karp-
hússins eöa lengst frá útgerðarmönn-
um. Einhverjum varð að orði að stað-
setningin væri lýsandi fyrir það bil
sem væri milii vélstjóra og útgerðar-
manna hvað varðar aðaikröfu Vél-
stjórafélagsins; þeir væru úti í homi í
orðsins fyllstu merkingu. Helgi sagði
við DV að staða vélstjóranna í deil-
unni væri sterk þrátt fyrir ytri merki
um annað. „Hér heilsast menn og ég
hef engar áhyggjur af stöðu mála okk-
ar vélstjóra," sagði Helgi.
í höröum hnút
Sjómannadeilan er bersýnilega í
hörðum hnút og sér ekki fyrir end-
ann á deilumálum útgerðarmanna
og sjómanna. Öll samtök sjómanna
mættu til fundar í Karphúsinu í
gærmorgun klukkan 10 ásamt út-
gerðarmönnum. Ekki var þó fundað
með öllum í senn þar sem vélstjórar
eru einir á báti með kröfu um hærri
skiptahlut á 79 stærstu fiskiskipun-
um. Því var boðað til tveggja sátta-
funda á sama tíma. Annars vegar
voru þaö Sjómannasamband ís-
lands, Farmanna- og fiskimanna-
sambandið og Alþýðusamband Vest-
fjarða og hins vegar Vélstjórafélag
íslands.
Ekkert miöaði í samkomulagsátt
á fundinum í gær sem lauk um há-
degi. Kristján Ragnarsson, fram-
kvæmdastjóri LÍÚ, sagði útgerðar-
menn hafa ítrekað við forystumenn
Farmannasambandsins og Sjó-
mannasambandsins að vélstjórar
kæmu að samningaborðinu en því
veriö hafnað.
„Það liggur fyrir að þeir hafa end-
anlega afneitað formanni Vélstjóra-
félagsins," segir Kristján.
Deilan þykir vera ein sú erfiðasta
og flóknasta frá upphafi. öll sjó-
mannasamtökin hafa boðað verkfall
á miðnætti 2. febrúar semjist ekki
fyrir þann tíma. Vélstjórar höfðu
áður boðað verkfall á flotanum frá
og með 2. janúar en frestuðu síðan í
tvígang og eru nú komnir inn á
sama verkfallstíma og hin samtök-
in. Þrátt fyrir það hafa forystumenn
undirmanna og yfirmanna þvertek-
ið fyrir að sitja sameiginlega sátta-
fúndi með vélstjórum. Þessari höfn-
un þeirra ræður það viöhorf að vél-
stjórarnir séu meö aðalkröfu sem
lúti að því að þeir fái hærri skipta-
hlut á þeim 79 skipum sem verk-
fallsboöun þeirra nær til en aöal-
kröfur hinna samtakanna snúi að
verðmyndum á fiski og að koma
böndum á kvótabraskið. Þá er vísað
til þess að ekki hafi verið boðað
verkfall fyrir hönd annarra vél-
stjóra.
Verkbann
Svar útgerðarmanna viö verk-
fallsboðun vélstjóra var að boða
verkbann á aðra sjómenn frá sama
tíma. Verkbanninu var frestaö á
sama tíma og vélstjórar frestuðu
verkfalli sínu. Sjómannasambandiö
kæröi verkbannsboöun útgeröar-
manna til félagsdóms og er niður-
stöðu þar um að vænta á mánudag.
Sú niðurstaöa skiptir þó varla máli
þar sem þeir sem verkbannið átti að
ná til fara í verkfall á sama tíma og
vélstjórar. Það sem stendur þó út af
er að stærstur hluti sjóvélstjóra
stendur utan verkfaUsaðgerða og
því er búist við að útgerðarmenn
boði verkbann á vélstjórana eftir
helgi.
Það er vægt til oröa tekið snúið
að spá fyrir um hvemig deilunni
muni lykta. Það er ljóst að laga-
breytingar þurfa að koma til við
lausn deilunnar en spumingin er
aðeins sú hvort sjómenn og útgerð-
armenn semji um þau lög eða hvort
sett verði lög á deiluna undir þeim
formerkjum einum að forða þjóðar-
skútunni frá þeim áfóllum sem
verða munu komi til langvarandi
verkfalls. Hluti útgerðarmanna vill
að til komi lagasetning án þess að
samið verði um slíkt og þær raddir
heyrast einnig innan raða sjómanna
og þá sérstaklega af loðnuflotanum
þar sem menn óttast mjög um af-
komu sína. Kvótabrask og áhrif
þess á fiskverð og þar með laun sjó-
manna er orðið stórvandamál í dag-
legum samskiptum sjómanna og út-
gerðarmanna um allt land. Þessum
stéttum er nauðsynlegt að lifa sam-
an í sátt enda vinna þær að sömu
markmiðum, sem sé að draga fisk
úr sjó og selja. Veröi deilan um
verðmyndunina ekki leyst í sátt
hrýs mörgum hugur við þeim sam-
starfsörðugleikum sem leiða af því
aö samstarfsmenn takast á í návígi.
Sú sátt sem spratt af síðasta sjó-
mannaverkfalli um svokallaða Úr-
skurðarnefnd hefur ekki skilað
þeim árangri sem vænst var. Nefnd-
in hefur það með höndum að fyrir-
byggja návígi milli sjómanna og út-
gerðarmanna og úrskurða um fisk-
verð einstakra skipa. Reynslan er
sú að þeir sem ekki vfrja una úr-
skurði nefndarinnar komast upp
með að hundsa niðurstöður hennar.
Þó þar sé um að ræða örfáar útgerð-
ir hefur það leitt til þess að nefndin
er nánast óvirk. Því blasa enn við
átök sem eru í beinu framhaldi af
síðasta verkfalli. Vandinn er bara
sá að himinn og haf skilur að sjón-
armið útgerðarmanna og sjómanna.
-rt
Hollir skyndibitar
Skyndibitar, eða svokallað
„ruslfæði", þurfa ekki endilega
að vera óhollir. Einföld
leið til að minnka veru-
lega fituinnihald
skyndibita eins og
hamborgara eða pítu
er að sleppa kokk-
teilsósunni eða
majónesinu. Þannig er
hægt að minnka fituinni-
hald máltíðarinnar um allt
að helming. Hitaeiningar í dæmi-
gerðum hamborgara með frönsk-
um og gosdrykk eru um 1000 en
þar af eru hitaeiningamar sem
fást úr sósunni einni saman um
300. Því er hægt að minnka
hlutfall fitunnar í máltíð-
inni um 30% ef sósunni
er sleppt.
Pitsur eru mtm fitu-
minni en aðrir skyndi-
bitar þar sem þær inni-
halda ekki feita sósu.
Segja má því að þær séu
hvað hollastar skyndibita sem
finnast, þ.e. ef menn sætta sig
ekki við að sleppa sósunni þegar
þeir fá sér hamborgara eða pítu.
Helga Laxdal, formanni vélstjóra, vísaft til herbergis í Karphúsinu. Maggý
Matthfasdóttir, starfsmaöur sáttasemjara, fékk þaö hlutverk aö finna
vélstjórunum samastaö. DV-mynd Pjetur
Sátt sem brást
LOKADAGUR ÚTSÖLUNNAR
OpiðtiíW. 16:00 ídag
tSSS£~«~
endast.
afsláttur
Faxafeni 5
Sími 533 2323
tolvukjor@ifn.is