Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1998, Blaðsíða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1998, Blaðsíða 46
54 LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 1998 lil hamingju með afmælið 17. janúar 95 ára Anna Hansen, Kleppsvegi 64, Reykjavík. 85 ára Ingibjörg L. Þorsteinsdóttir, Kleppsvegi, Hrafnistu, Reykja- vík. 75 ára Guðbrandur Loftsson, Hveravík, Drangsnesi. Svavar Pálsson, Árbraut 19, Blönduósi. Valdimar Hjartarson, Gullsmára 11, Kópavogi. 70 ára Axel Guðjónsson, Munaðarhóli 9, Hellissandi. Guðmundur Einar Sveins- son, Furugrund 42, Akranesi. Halldóra Hjálmarsdóttir, Gnoðarvogi 36, Reykjavik. Svandís Jónsdóttir, Selsstöðum, Seyðisfirði. Svanhvít Hannesdóttir, Brávöllum III, Egilsstööum. 60 ára Hjalti Guðmundsson, Bæ, Finnbogastöðum. Louis, V. Pétursson, Þórsmörk 6, Selfossi. Sævar Bjömsson, Engjasmára 9, Kópavogi. 50 ára Borghildur Stefánsdóttir, Klettahrauni 17, Hafnarfirði. Borghildur tekur á móti gest- um í Skútunni að Hólshrauni 3 í Hafnarfirði í dag milli kl. 14 og 17. Dóra S. Bjamadóttir, Berugötu 14, Borgamesi. Guðný Alfreðsdóttir, Blikahjalla 2, Kópavogi. Hjördís Ingólfsdóttir, Skólavörðustíg 17, Reykjavík. Ingibjörg Jóhannsdóttir, Laugalæk 14, Reykjavík. Jóhann Kristján Ragnars- son, Höfðavegi 3, Vestmannaeyjum. Jónína Friðfinnsdóttir, Oddeyrargötu 15, Akureyri. Kristján Þór Jónsson, Karfavogi 31, Reykjavík. Lilja D. Michelsen, Ofanleiti 19, Reykjavík. Magnús Rúnar Dalberg, Nesbala 106, Seltjarnarnesi. Már Jónsson, Birtingakvísl 11, Reykjavík. Ragnar Óskarsson, Hrauntúni 22, Vestmannaeyj- um. Reynir Einarsson, Sunnubraut 10, Garði. Sigurður Högni Hauksson, Vestmannabraut 6, Vest- mannaeyjum. Vilmundur Árnason, Álfaskeiði 104, Hafnarfirði. Þórey Ketilsdóttir, Lönguhlíð 9a, Akureyri. 40 ára Jón Smári Jónsson, Skeiði, Svarfaöardalshreppi. Jón Þórður Andrésson, Suðurengi 24, Selfossi. Kristinn Reynisson, Melabraut 32, Seltjarnamesi. Kristófer Helgi Pálsson, Hólavatni, Austur-Landeyja- hreppi. Sæunn Sigríður Jóhanns- dóttir, Ólafsvegi 30, Ólafsfirði. Davíð Oddsson Davíð Oddsson forsætisráðherra, Lynghaga 5, Reykjavík, er fimmtug- ur í dag. Starfsferil! Davíð fæddist í Reykjavík og ólst upp á Selfossi og í Reykjavík. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1970 og embættisprófi í lögfræði við HÍ1976. Davíð var leikhúsritari LR 1970-72, þingfréttaritari Morgun- blaðsins 1973-74, starfsmaður Al- menna bókafélagsins 1975-76, skrif- stofustjóri Sjúkrasamlags Reykja- víkur 1976-78 og framkvæmdastjóri þess 1978-82. Hann var borgarstjóri í Reykjavík 1982-91 og hefur verið forsætisráðherra frá 1991. Davíð var Inspector scholae í MR 1969-70, sat í stjórn Stúdentafélags HÍ 1970-73 og formaður þess 1973, í stjóm SUS 1973-75, í stjóm Varð- bergs 1973-77, borgarfulltrúi Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavík 1974-91, sat í borgarráði Reykjavíkur 1980-91 og formaður þess 1982-91, sat í umferðarnefnd Reykjavíkur 1974-78, í stjórn Kjarvalsstaða 1974-82 og varaformaður þar 1974-78, í Æskulýðsráði Reykjavik- ur 1974-82, í stjórn Vinnuskóla Reykjavíkur 1974-82, í veiði- og fiskiræktarráði Reykjavíkur 1974-82 og varaformaður þess 1974-78. Davið sat í stjóm Almenna bóka- félagsins 1975-89, í byggingarnefnd Borgarleikhúss 1975-79 og 1982-92 og varaformaður 1975-79 og formað- ur 1982-92. Hann sat í samninga- nefnd Trygginga- stofnunar fréttir ríkisins 1976-81, var for- maður framkvæmda- stjómar Listahátíðar í Reykjavík 1976-78, Framkvæmdaráði Reykjavíkur 1978-80, í flokksráði Sjálfstæðis- flokksins frá 1979, og í miðstjórn flokksins frá 1979, formaður nefndar vegna 200 ára afmælis Reykjavíkur, formaður almannavarnanefndar Reykjavíkur 1982-91, for- maður stjómar Lífeyris- sjóðs starfsmanna Reykjavikurborg- ar 1982-91, í stjórn Landsvirkjunar 1983-91, varaformaður Sjálfstæðis- flokksins 1989-91 og formaður flokksins frá 1991. Eftir Davíð liggja nokkur ritverk. Fyrst er að nefna handrit að út- varpsþáttunum Útvarp Matthildur sem hann samdi ásamt Hrafni Gunnlaugssyni og Þórami Eldjám. Þættirnir voru á dagskrá Ríkisút- varpsins á ámnum 1968-75. Hann hefur samið tvö leikrit. Annars veg- ar Ég vil auðga mitt land, sem hann samdi ásamt þeim Matthildingum og Þjóðleikhúsið sýndi leikárið 1974- 75, og hins vegar íslendinga- spjöll sem hann og Hrafn sömdu og Leikfélag Reykjavíkur sýndi 1975- 76. Þrjú sjónvarpsleikrit liggja eftir hann, þ.e. Róbert Elíasson kemur heim frá útlöndum (1977), Kusk á hvítflibbann (1981) og Allt gott (1991). Svo var það núna í ný- liðnu jólabókaflóði að Davíð sendi frá sér smásagnasafnið Nokkrir góðir dagar án Guðnýjar. Fjölskylda Davíð kvæntist 5.9. 1970 Ástríði Þorsteinsdóttur Thorarensen, f. 20.10. 1951, B.Sc. i hjúkrunarfræði. Hún er dóttir Þorsteins Skúlasonar Thorarensen, f. 12.5. 1917, d. 11.1. 1997, borgarfógeta í Reykjavík, og k.h., Unu Hansdóttur Thorarensen, f. Petersen, f. 11.3. 1921, d. 2.10. 1987, húsfreyju. Sonur Davíðs og Ástríð- ar er Þorsteinn, f. 12.11. 1971, laga- nemi við HÍ. Systkini Davíðs, samfeðra, eru Ólafur, f. 13.5. 1943, menntaskóla- kennari í Reykjavík, kvæntur Hall- dóm Ingvadóttur; Haraldur, f. 15.4. 1951, d. 24.1. 1972; Lillý Valgerður, f. 27.6. 1952, ritari starfsmannastjóra Reykjavíkurborgar, gift Ingimar Jó- hannssyni fískifræðingi; Runólfur, f. 29.6. 1956, verslunarmaður í Reykja- vík; Vala Agnes, f. 24.4. 1965, skrif- stofumaður í Reykjavík. Systkini Davíðs, sammæðra, em Björn Snorrason, f. 26.11.1946, mjólk- urfræðingur í Reykjavík; Logi Gunn- arsson, f. 1.11. 1963, heimspekingur, búsettur í Þýskalandi. Foreldrar Davíðs; Oddur Ólafsson, f. 11.5. 1914, d. 4.1. 1977, læknir i Reykjavík, og Ingibjörg Kristín Lúð- víksdóttir, f. 28.4. 1922, fyrrv. banka- fulltrúi í Reykjavik. í tilefni afmælisins er opið hús í Perlunni í dag á milli kl. 16 og 18. í kvöld býður Davíð til einka- samkvæmis í Perlunni. Davíð Oddsson. Vetrarólympíuleikarnir i Naganó: Átta keppendur frá íslandi Búið er að ákveða hverjir keppa fyrir hönd íslands á vetrarólympíu- leikunum í Naganó í Japan sem hefi- ast í næsta mánuði. Að tillögu Skíða- sambands Islands samþykkti íþrótta- og ólympíusambandið að senda eftir- farandi keppendur á leikana; Arnór Gunnarsson, ísafirði, Brynja Þorsteinsdóttir, Akureyri, Haukur Arnórsson, Reykjavík, Jóhann Hauk- ur Hafstein, Reykjavík, Kristinn Björnsson, Ólafsfirði, Sigríður Þor- láksdóttir, ísafirði, Sveinn Brynjólfs- son, Dalvik og Theodóra Mathiesen, Reykjavík. Á blaðamannafundi sem íþrótta- og ólympíusambandið hélt í gær kom fram að kostnaður við þátttökuna er 17 milljónir króna. Stefán Konráðs- son, framkvæmdastjóri ÍÓ, sagði að vel gengi að safna peningum vegna þátttökunnar sem kæmu meðal ann- ars frá Alþingi, afreksmannasjóði, Al- þjóða ólympiunefndinni og styrktar- aðilum og sagði Stefán að engar skuld- Búningar þeir sem keppendur koma til með að nota. DV-mynd BG ir ættu að hvíla á íþrótta- og ólympíu- sambandinu vegna þátttökunnar. „Þátttaka þessa fólks á fullan rétt á sér. Allt þetta fólk hefur lagt hart að sér og náð lágmörkum fyrir leikana og það ætti að verða þeim enn meiri hvatning að fá að keppa á ólympíu- leikum. Við viljum breyta hugarfar- inu og ekki einblína bara á að þetta fólk eigi að komast á verðlaunapall heldur að leggja upp með það að ís- lendingar sendi frambærilega þátttak- endur sem verði landi og þjóð til sóma,“ sagði Ellert og hann staðfesti að ákveðin stefnubreyting hvað varð- ar val á keppendum á ólympíuleika hefði átt sér stað. „Við viljum gefa þeim íþróttamönn- um sem hafa náð lágmörkum tæki- færi til að keppa á stórmótum sem þessum. Hingað til hefur verið lagt upp með það að ná ákveðnum árangri sem er að lenda í kringum miðjan hóp en nú er tilgangurinn fyrst og fremst sá að gefa krökkunum tækifæri tO að áskotnast reynslu sem nýtast mun þeim í framtíðinni," sagði Ellert. -GH Samgöngunefnd Alþingis: Vissum ekki hverjir borguðu - segir Einar K. Guðfinnsson Boð samgöngunefndar til Brussel kom frá samgönguráðuneyti og sam- gönguráðherra. Einar K. Guðfinns- son, formaður nefndarinnar, segir þingmenn ekki hafa vitað að Lands- síminn og íslandspóstur hefðu greitt fararkostnað fyrr en eftir að heim var komið. Einar tekur þó fram að hann telji ekkert óeðlilegt við það fyrir- komulag. „Þessi ferð var farin á forsendum stjórnsýslunnar. Samgöngunefnd var að kynna sér lög, tilskipanir og gerðir á Evrópska efnahagssvæðinu, og ég sé ekki að það skerði á nokkurn hátt til- gang ferðarinnar hvernig var greitt fyrir hana,“ segir Einar. „Boðið kom frá ráðuneytinu, en ekki frá íslands- pósti. Mér finnst þetta ys og þys út af litlu tilefni." Einar segist þó geta fallist á að Al- þingi gæti , sjálft efnt til ferða sem þessara þar sem löggjafanum veittist tækifæri til að kynna sér þær reglu- gerðir sem settar væru úti í Brussel, og því ferli sem þar ætti sér stað. „Þessi ferð var farin í þeim tilgangi að fræða samgöngunefnd Alþingis og starfsmenn Landssíma og íslands- pósts um það starf sem unnið er í Brussel og þær ákvarðanir sem tekn- ar eru í EES. Það er mjög mikilvægt fyrir okkur að fá að heyra og sjá það nýjasta sem er að gerast á sviði fjar- skipta og póstsamgangna með þessum hætti. Það er ekkert athugavert við það að þessi fyrirtæki, Landssíminn og íslandspóstur hf., greiði-ferðir sem þessar,“ segir Guðmundur Björnsson, forstjóri Landssímans. „Ég tel það ekki óeðlilegt gagnvart hugsanlegum samkeppnisaðilum okkar að við tök- um þátt i kostnaði slíkra ferða, því það er öllum í greininni fyrir bestu að löggjafinn sé vel upplýstur um þessi mál.“ Guðmundur segir að samgöngu- ráðuneytið hafi skipulagt ferðina, og haft samband við fyrirtækin um að styrkja hana með þessum hætti. Ekki náðist í Halldór Blöndal samgöngu- ráðherra út af þessu máli. Hins vegar gerir Póstmannafélag íslands alvar- legar athugasemdir við þátt íslands- pósts í kostnaði Brusselferðar sam- göngunefndar. í yfirlýsingu frá félag- inu segir að mikill niðurskurður hafi verið innan póstþjónustunnar allt sið- astliðið ár og félagsmenn eigi því erfitt með að sýna skilning á slíkum fjárútlátum. Auk þess sé i hæsta máta óeðlilegt að fyrirtækið leggi fjármagn til ferðar nefndar sem á að vera að- halds- og eftirlitsaðili með starfsemi fyrirtækisins. -Sól. Til hamingju með afmælið 18. janúar 80 ára Sigríður’ Amlaugsdóttir, Öldugötu 25, Reykjavík. 75 ára Dóra Magnúsdóttir, Nökkvavogi 12, Reykjavík. Hjálmtýr Jónsson, Kirkjuvegi lb, Keflavík. Hólmsteinn Valdimarsson, Kirkjubraut 25, Akranesi. 70 ára Tryggvi Ámason, Álfabrekku 13, Kópavogi. 60 ára Edda G. Óskarsdóttir, Víðivangi 10, Hafnarfirði. Sigrún Sigurðardóttir, Kambsvegi 32, Reykjavík. 50 ára Anna Björgvinsdóttir, Ásenda 11, Reykjavík. Anna S. Carlsdóttir, Eyjabakka 1, Reykjavík. Eiríkur Helgason, Skarðshlíð 33e, Akureyri. Hera Kristín Hermannsdótt- ir, Árholti 10, Húsavík. Jóna Guðmundsdóttir, Móaflöt 51, Garðabæ. Sigurbjöm R. Helgason, Breiðvangi 12, Hafnarfirði. 40 ára Ásdís Leifsdóttir, Staðarbakka 18, Reykjavík. Ebeneser Aðalsteinn Jóns- son, Nesvegi 11, Súðavík. Hafdís Magnúsdóttir, Túngötu 11, Vestmannaeyjum. Ingi Bjarnar Guðmundsson, Krókabyggð 26, Mosfellsbæ. Magnús Marel Garðarsson, Háaleiti 9, Keflavík. Magnús Rúnar Erlingsson, Hlíðarhjalla 16, Kópavogi. Stefán Steinsson, Hellisbraut 16, Reykhóla- hreppi. Sævar Skaptason, Birkigrund 70, Kópavogi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.