Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1998, Blaðsíða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1998, Blaðsíða 43
DV LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 1998 tilkynningar « Björk meðal 100 bestu: Debut selst í 3 milljónum DV, Akranesi:_________________________ í nýjasta hefti hins virta breska tónlistartímarits, Q, er greint frá niðurstöðum skoðunarkönnunar tímaritsins sem staðið hefur yfir í nokkurn tíma á 100 bestu geisla- diskum allra tima. Þar kemur í ljós að Debut, fyrsti sólódiskur Bjarkar eftir Sykurmol- ana, er í 74. sæti af þeim 100 geisla- diskum sem lesendur tímaritsins völdu sem 100 bestu allra tíma. Nýj- asta plata hljómsveitarinnar Radio- head, OK Computer, lenti í fyrsta sæti. Elsti diskurinn er frá 1965 en sá nýjasti frá síðasta ári. Nýleg verk eru í meirihluta á listanum. Þar eru öll stærstu nöfn rokksögunnar, svo sem Elvis, Bob Dylan, David Bowie, Led Zeppelin, Bítlamir og Rolling Stones. Debut komst i þriðja sæti á breska topp 20-listanum og hefur samkvæmt blaöinu selst í 624.000 eintökum í Bretlandi og í 3 milljón- um um allan heim. Blaðið segir í umsögn sinni um Debut að þetta sé ekki fyrsta sólóverk Bjarkar en sá diskur sem varð til þess að hún varð fræg um allan heim. Á honum kemur í ljós að hún er miklu meira en bara heillandi og sérvitur. Söngkona sem kom með nýjungar í poppinu, hljóð og form sem ekki sé hægt að gagnrýna, tón- list sem heillaði heiminn. -DVÓ Mikil ólga er meðal starfsmanna Fjórðungssjúkrahússins á ísafirði vegna einhliða ákvörðunar framkvæmdastjórnar um breytt vinnufyrirkomulag. Starfsmenn sjúkrahússins á ísafirði hættir eða á förum: Sparnaður nær ekki upp fyrir gólflista - segir Pátur Sigurðsson, forseti ASV „Við höfum skrifað samninga- nefnd ríkisins bréf þar sem við heimtum skýringar hjá þeim. Við teljum þetta vera algjört brot á þeim samningi sem við erum búnir að gera og þeim væntingum sem menn töldu sig undirrita. Með því að sætta sig við lág laun þá gerðu menn ekki ráð fyrir að það yrði ffamhaldið að fólk yrði pínt til að taka á sig tvöfóld störf,“ segir Pétur Sigurðsson, forseti Alþýðusam- bands Vestfjarða, um þær deilur sem eru milli starfsfólks og yflr- stjórnar Fjórðungssjúkrahússins á fsafirði vegna breytinga sem sjúkra- hússtjórnin gerði á vinnufyrir- komulagi. Deilumar hafa leitt til þess að starfsfólk í ræstingum er þegar hætt störfum og starfsmenn í eldhúsi ætla að ganga út við fyrsta tækifæri. „Þessi spamaður nær ekki upp fyrir gólflista því að þama er byrjaö á ræstingarfólkinu. Helmingurinn af þeim sparnaði sem áætlað er að ná í ár er tekinn af átta mönnum. Við fömm með þetta mál eins langt og hægt er. Við vitum auðvitað að það er ekki ákvæði í samningum um hvaö má leggja á fólk en það vinnuálag sem starfsmenn hafa búið við undanfarin ár er það sem skrifað var undir í nýja kjarasamn- ingnum í júlí,“ segir Pétur. Hann segir að málið einkennist af ómannúðlegri meðferð á starfsfólki sem í áratugi hefur starfað við góð- an orðstír á sjúkrahúsinu. „Síðan er aðferðin sú að leggja ffam nýtt vinnuplan þar sem fækk- að er um 2,5 stöðugildi. Starfsfólki sem ekki vill una þessu er bara sagt upp og bent á að það geti sótt um þessi nýju störf. Sá framburður framkvæmdastjórans að rætt hafi verið við starfsfólk um þetta er bara haugalygi. Þetta mál einkennist af siðleysi miðað við gerða kjarasamn- inga,“ segir Pétur. -rt Mótorhjóli stolið Mótorhjóli af gerðinni Honda CR 250 árgerð 1996. Þeir sem geta gefið upplýs- var stolið úr kjallara í húsi við Berg- ingar um hjólið eru vinsamlegast beðn- þórugötu aðfaranótt sunnudags sl. ir að láta lögregluna í Reykjavík vita. Hjólið er hvítt með rauðum brettum, ÍMARK Félag íslensks markaðsfólks ÍMARK, í samráði við Samband ís- lenskra auglýsingastofa, efnir nú í tólfta sinn til samkeppni um athygl- isverðustu auglýsingu ársins. Sam- keppnin er öllum opin er stunda gerð og/eða dreifingu auglýsinga. Tekið verður á móti innsendingum á skrifstofu ÍMARK í Skeifunni lla dagana 15.-16. janúar og 19.-20. jan- úar kl. 13-16. Fálag eldri borgara Félagsvist verður í Risinu kl. 14 sunnudag, allir velkomnir. Dansað verður svo í Goðheimum, Sóltúni 3, kl. 20 sama kvöld. Námskeið í fram- sögn hefst í Risinu 2. febrúar nk. Leiðbeinandi er Bjarni Ingvarsson. Skrásetning á skrifstofu félagsins s. 552 8812. Félagsvist í Gerðubergi Mánudaginn 19. janúar eru vinnustofur opnar frá kl. 9-16.30, frá hádegi verður spilasalur opinn og þar verða spiluð vist og bridge. Há- degishressing og veitingar í teríu. Rússnesk kvikmynd Sunnudaginn 18. janúar kl. 15 verður rússneska kvikmyndin „Mexíkaninn" sýnd í bíósal MÍR, Vatnsstíg 10. Mynd þessi var gerð í Moskvu árið 1955 og er byggð á einni af skáldsögum bandaríska rit- höfundarins Jacks London. Aðgang- ur er ókeypis og öllum heimill. Breiðfirðingafélagið Félagsvist verður spiluð sunnu- daginn 18. janúar kl. 14 í Breiðfirð- ingabúð, Faxafeni 14. Kaffiveiting- ar. Allir velkomnir. Viltu styrkja stöðu þína ? Námið er 260 kennslustunda skipulagt starfsnám og er sérhannað með þarfir atvinnulífsins í huga. Nemendur útskrifast sem tölvu- og rekstrartæknar að námi loknu. Markmið námsins er að útskrifa nemendur með hagnýta þekkingu á tölvunotkun, bókhaldi, tölvubókhaldi og rekstri. Námið hentar þeim sem vilja : Q Styrkja stöðu sína á vinnumarkaðinum 0 Annast bókhald fyrirtækja 0 Öðiast hagnýta tölvuþekkingu Q Auka sérþekkingu sína 0 Starfa sjálfstætt Umsagnir nemenda um namio: Var byrjandi á tölvur, vinn nú í tölvuumhverfi“ Frábært nám og frábær kennsla“ Tölvu- og rekstrarnámið gerði mérkleift að skipta um starf Ég sýndi lokaverkefnið mitt í viðtalinu og fékk vinnuna“ Sé um bókhald í fyrirtækinu, gat það ekki áður“ HH Boðið er upp á morgun- og kvöldtíma. Sveigjanleg greiðslukjör. * RAFIÐNAÐARSKOLINN Skeifan 11 b • Sími 568 5010
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.