Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1998, Síða 6
útlönd
LAUGARDAGUR 17. JANUAR 1998
stuttar fréttir
Við borgum ekki
Jonathan Motzfeldt, forraaður
grænlensku heimastjómarinnar,
segir ekki
koma til greina
að Grænlend-
ingar gi-eiði
fyrir að fá aftur
Dundassvæðið
við Thule.
Hann segir það
ekki sann-
gjarnt að Grænlendingar þurfi
i að greiða fyrir að nota eigið
j land. Bandaríkjamenn krefjast
r { þess að Danir og Grænlendingar
I greiði fyrir öryggisgæslu fái
1 ferðamenn að fara á svæðið.
1
Paavo i hnapphelduna
Paavo Lipponen, forsætisráð-
| herra Finnlands, ætlar að ganga
að eiga unnustu sína síðar í
I þessum mánuði. Hún er 31 árs,
1 25 árum yngri en ráðherrann.
Hafnar viðræðum
Ali Kliameini, trúarleiötogi
írana, hafnaði í gær öllum
tengslum og viðræðum við
1 Bandaríkin. Slíkt myndi skaða
sjálfstæði Irans og íslamskar
| hreyfingar um heim aUan.
Svínum slátrað
Yfirvöld í Mecklenburg-Vor-
pommern í norðausturhluta
: Þýskalands hafa fyrirskipað
slátrun um 62 þúsund svina
: j vegna svínapestar.
Ræningi slapp
Grímuklæddur ræningi komst
undan með andvirði um hálfrar
| annarrar miUjónar íslenskra
króna úr banka á Norrebro í
Kaupmannahöfn síðdegis í gær.
§§
íslamsflokkur bannaður
StjórnarskrárdómstóU Tyrk-
: lands bannaði í gær starfsemi ís-
lamska velferðarflokksins,
flokks bókstafstrúarmanna.
I Flokksleiðtoginn, Necmettin Er-
bakan, fyrrum forsætisráðherra,
sagöi að úrskurðinum yrði áfrýj-
að til mannréttindadómstóls
Evrópu.
Hleranir leyfðar
Þýska þingið samþykkti með
naumum meirihluta í gær aö
heimila lögreglu að hlera síma
grunaðra glæpamanna. Mann-
réttindahópar mótmæltu.
Glenn út í geiminn
Bandaríski öldungadeildar-
þingmaðurinn John Glenn, sem
varö fyrstur Bandarikjamanna
tU aö fara út í geiminn árið 1962,
fær þá ósk sína uppfyUta að fara
aftur. I þetta sinn verður Glenn
um borð í geimferjunni Dis-
covery sem veröur skotið á loft í
október. Glenn er 77 ára.
Erfitt verk
Clinton Bandaríkjaforseti á
erfitt verk fyrir höndum aö
koma friðarviðræðum í Mið-
Austurlöndum aftur í gang.
Botninum náð
„Ég er sannfærður um að innan
tveggja tU tveggja og hálfs árs munum
við sjá verulegan hagvöxt á ný í
Indónesíu og TaUandi," sagði Michel
Camdessus, forstjóri Alþjóðabankans,
á fréttamannafundi i Tailandi í gær.
Hann spáir því að núverandi efnahag-
skreppa verði úr sögunni árið 2000.
Bæði löndin hafa þegiö verulega
efnahagsaðstoð frá Alþjóðabankanum
án þess að kreppa undangenginna sex
mánaða hafl nokkuð linast. Cam-
dessus átti í fyrradag fund með
Suharto, einræðisherra Indónesíu, og
náðu þeir samkomulagi um efnahags-
umbætur. í þeim felst meðal annars
það að afnumin verði sérréttindi og
einokun í helstu atvinnuvegum og
hætt við ýmis fyrirhuguð stórverkefni
sem ýmist átti að ráðast í eða sem þeg-
ar voru hafin. Camdessus sagði í gær
að skynsamlegt væri að styðja
Suharto í því að framkvæma þessar
efnahagsumbætur.
Svik Dana í færeyska bankamálinu:
Hausar fjúka
danski íj ármálaráöherrann er í mestri fallhættu
DV, Ósló:
Færeyingar fá bætur fyrir svik
Dana þegar þeir voru plataðir til að
taka við Færeyjabanka árið 1992.
Poul Nyrup Rasmussen, forsætis-
ráðherra Dana, gekkst i gær við
ábyrgð stjórnar sinnar í málinu og
lofar fébótum. Nú er spumingin
hvort hausar verði ekki einnig látn-
ir fjúka á æðstu stöðum í Dan-
mörku.
í færeysku bankaskýrslunni sem
lögð var fram í gær kemur skýrt
fram að Den Danske Bank hélt
leyndum upplýsingum um skuldir
Færeyjabanka. Fullyrt er og að
danski seðlabankastjórinn hafi log-
ið að Maritu Petersen, lögmanni
Færeyja, þegar hún spurði um
stöðu bankans og danski fjármála-
ráðherrann Mogens Lykketoft er
sakaður um að hafa þrýst óeðlilega
á að Den Danske Bank losaði sig við
Færeyjabanka. Danska bankaeftir-
litið fær og falleinkunn í skýrsl-
unni.Niðurstaða skýrslunnar er
mikið áfall fyrir dönsku stjórnina.
Ásakanir Færeyinga eiga sam-
kvæmt henni viö rök að styðjast og
Poul Nyrup vill sem fyrst ræða við
færeysku landstjómina um hvemig
greiðslu bóta verður háttað og
hvernig Den Danske Bank verður
refsað.
Poul Nymp bar sig vel í gær þrátt
fyrir allt. Við Ritzau-fréttastofuna
sagði hann að tilraunir dönsku
stjórnarinnar til að rétta við efna-
hagslíf Færeyja hafi tekist þrátt fyr-
ir mistökin við sölu Færeyjabanka
og sjálfur segist ráðherrann alsak-
laus.
Danska stjómarandstaðan hefur
þegar ráðist af hörku á ríkisstjóm-
ina og krefst afsagnar Pouls Nyr-
ups. Uffe Ellemann Jensen, formað-
ur Venstre, segir að forsætisráð-
herra og ríkisstjóm beri ábyrgð á
hneykslinu og að staðfest sé í
skýrslunni að Poul Nyrup hafi vitað
um málavöxtu þegar árið 1993 en
ekki 1995 eins og hann segir sjálfúr.
Aðrir stjórnarandstæðingar tala
um að æðstu menn í fjármálalífi
Dana hafi svo mjög skaðað álit
Dana í Færeyjum að mörg ár taki að
bæta þar úr. Stólar bankastjóranna
í Den Danske Bank em í hættu en
athyglin beinist þó helst að þætti
Mogens Lykketofts og pólitískri
ábyrgð hans á hneykslinu. Vilja
Færeyingar höfuð hans líka? GK
Poul Nyrup Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, var í Færeyjum á dögunum og fékk heldur kaldar viðtökur.
Grunur Færeyinga um að svindlað hefði verið á þeim var á rökum reistur. Mynd: Jens Kristian Vang
Færeyska þingkonan Helena Dam af Neystabö:
Verðum að gera upp
hvern á að draga til
við okkur
ábyrgðar
Færeyingar þurfa nú að gera það
upp við sig hvern þeir eigi að draga
til ábyrgðar í bankamálinu og fyrir
hvaö.
Þetta sagði Helena Dam af
Neystabö, þingkona Sjálfstýriflokks-
ins og einn sex eftirlitsmanna með
rannsóknamefhdinni i færeyska
bankamálinu, í samtali við DV í
gær.
Bankaskýrslan, sem beðið hefur
verið með mikilli óþreyju í bæði
Færeyjum og Danmörku var loks
gerð opinber í gær. Þar kemur fram
að Færeyingar voru prettaðir þegar
þeir vom taldir á að taka yfir meiri-
hlutann í Færeyjabanka, dótturfyr-
irtæki Den Danske Bank, í skiptum
fyrir hlutabréf í Sjóvinnubankanum
sem var í eigu landstjómarinnar.
Hlutabréfaskiptin kostuðu Færey-
inga milljarða króna.
„Það kemur fram í skýrslunni að
hlutabréfaskiptin fóru ekki fram á
þeim grunni sem menn trúðu,“
sagði Helena Dam.
Hún sagði aö skýrslan sýndi að
Mogens Lykketoft, fiármálaráð-
herra Danmerkur, hefði haft mikil
afskipti af hlutabréfaskiptunum og
að hann hefði þrýst á færeysk
stjórnvöld að taka ákvörðun í mál-
inu áður en þau voru tilbúin til
þess.
„Ef færeysk stjómvöld hefðu haft
þá vitneskju sem hægt var að afla
sér, er ekki víst aö þær ákvarðanir
sem vom teknar hefðu verið teknar.
Það hefur verið gegnumgangandi í
bankamálinu öllu að þrýstingurinn
á færeysk stjórnvöld var mikill og
að þau vora alla jafha verr upplýst
um stöðuna en dönsk stjómvöld,"
sagði Helena.
Þingkonan vildi ekki útiloka að
til málshöfðunar gæti komið af
hálfu Færeyinga.
„Það er mikilvægt að færeyskir
stjómmálamenn verði sammála um
það sem gera eigi,“ sagði Helenda
Dam af Neystabö, þingkona Sjálf-
stýriflokksins, og sagðist þess full-
viss að kollegar hennar mundu
liggja yfir skýrslunni alla helgina.
og vöruverð erlendis
New York
DowJonii
0 N D J
London |
5500 FT-SEIOO -V* i
< 5000
4500 4000* 8168,8
i 3 N D J
Frankfurt f
crywj DAX-10
DUlAAi 40000 20000
0 N D J
Bensín 95 okt. IHj Bensín 98 okt.
Hong Kong
HangSon*
20000
15000
10000 ’
50000.
8678,98
n 5 j
Hráolía
301,90
vt 0 N D J
$/t o N
$/t 0
HHH
$/t 0 N D J
Fulltrúi Islands!
Indverska prinsessan Leoncie
er löngu oröin heimsfræg á ís-
landi enda hefur
hún dansað og
sungið af miklum
móð fyrir lysthaf-
endur um nokk-
urra ára skeið.
Að undanfórnu
hefur hún verið
önnum kafin i
Danaveldi þar
sem hún tók þátt í nektar-
danskeppni í Forum og gerði það
auðvitað sem „fulltrúi íslands."
Nú er það svo að þessar þokka-
legu „frændþjóðir“ okkar, Danir
og Norðmenn, hafa reynt að stela
öllu steini léttara af okkur. Danir
nöppuðu handritunum, Norð-
menn reyndu að eigna sér Leif
heppna og hafa þar að auki verið
að amast við íslenskum fiski-
mönnum í okkar eigin Smugu.
En svo undarlegt sem það er hef-
ur enginn reynt að stela Leoncie.
Ekstrablaðið var með viðtal við
hana á dögunum og þar var ræki-
lega undirstrikað að hún væri ís-
lensk. Og samt er hún flutt til
Danmerkur...
Endurreisn
Það hefur kvisast að Einar
Oddur Kristjánsson, alþingis-
maður og fyrrver-
andi framkvæmda-
stjóri, leiti nú leiða
til að endurreisa
sitt gamla fyrir-
tæki, Hjálm hf.
Einar Oddur, sem
um áratugi var
vinsæll fram-
kvæmdastjóri
Hjálms, mun hafa leitað hófanna
við aðra hluthafa í fyrirtækinu
um kaup á hlut þeirra. Talað er
um að vilji Einars og félaga
standi til þess að hefia útgerð frá
Flateyri undir merkjum gamla fé-
lagsins. Meðal hluthafa í Hjálmi
er Lárus Þorvaldur Guðmunds-
son, prestur í Kaupmannahöfn,
en sonur hans, Georg Lárusson,
sýslumaður í Vestmannaeyjum,
hefur farið með hlut föður síns á
aðalfundum félagsins...
Eistneskur víkingur
Einn ffemsti teiknimynda-
smiöur íslendinga er Sigurður
Örn Brynjólfsson
sem á sínum tíma
yljaði lesendum
Dagblaðsins með
teikningum af
figúrunum Bísa
og Krimma.
Hann er nú
fluttur td Eist-
lands þar sem
hann hefur búið í Tallinn
síðastliðin fiögur ár. Þar í landi
er mikd hefð fyrir teiknikvik-
myndum og kappinn hefur því
nóg að gera. Sigurðm- er þraut-
reyndur á sviði skoplegra teikni-
mynda fyrir blöð og þess er því
tæpast langt að bíða að eistnesk
blöð reyni að nýta krafta hans td
þess...
Vinsælir prestar
Séra Vigfúsi Þór Ámasyni
þykir hafa tekist sérlega vel að
byggja upp öflugt
kirkjustarf í Graf-
arvogi sem nú er
orðin ein stærsta
sókn borgarinnar,
með á annan tug
sóknarbama.
Hann hefur tvo
aðstoðarpresta, ___
þau Önnu Pálsdóttur, sem ný-
lega var ráðin að kirkjunni, og
Sigurð Árnason sem er tengda-
sonur nýkjörins biskups. Grafar-
vogur er sá hluti borgarinnar
sem er landfræödega mest að-
greindur frá stórborginni og þar
hefur mönnum tekist vel að
byggja upp eins konar þorps-
stemningu. Prestunum er ekki
síst talið það td tekna því þeir
vaka yfir velferð byggðarlagsins
og íbúarnir eru sérstaklega
ánægðir með að í hvert skipti
sem eitthvaö gerist í „þorpinu",
fundur er um málefni borgarhlut-
ans eða ný bygging vígð, þá mæta
prestarnir allir þrír...
Umsjón: Reynir Traustason
-Reuter