Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1998, Page 10
10
enning
LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 1998 1E3~%F
Heilagir syndarar, nýtt leikrit eftir Guðrúnu Ásmundsdóttur, á svið í Grafarvogskirkju:
Með Guðs blessun
- segja Guðrún og Magnús Geir Þórðarson leikstjóri í viðtali um verkið og undirbúning þess
í lok þessa mánaðar verður frum-
sýnt nýtt íslenskt leikrit eftir Guð-
rúnu Ásmundsdóttur sem nefnist
Heilagir syndarar. Leikritið verður
sett upp á óvenjulegum stað, nánar
tiltekið í hálfkláraðri Grafarvogs-
kirkju. Þar er verið að búa til leik-
hús inni í kirkjunni; koma fyrir
ljósum, byggja padla undir áhorfend-
ur, reisa leiksvið og koma fyrir leik-
mynd.
Magnús Geir Þórðarson leikstýrir
og Axel Hallkell Jóhannsson og
Helga Rún Pálsdóttir sjá um leik-
mynd og búninga. Þórður Orri Pét-
ursson sér um lýsingu. Fram-
kvæmdastjórn er í höndum fyrir-
tækisins Alvöru lifsins sem þeir
Ámi Þór Vigfússon og Kristján R.A.
Kristjánsson reka.
Leikarar eru Sjö, þau Þröstur Leó
Gunnarsson, Margrét Ákadóttir,
Karl Guðmundsson, Guðrún Ás-
mundsdóttir, Edda Þórarinsdóttir,
Ólafur Guðmundsson og Marta Nor-
dal. Eins og sjá má samanstendur
hópurinn af reyndum leikhúslista-
mönnum í bland við fulltrúa yngri
kynslóðarinnar í íslensku leikhús-
lífi, eins og Ólaf og Mörtu. Að auki
er nokkurra mánaða gamalt bam
með í einu atriðanna.
Prestur með alnæmi
Við hittum að máli þau Guð-
rúnu Ásmundsdóttur og Magnús
Geir einn morguninn í vikunni,
skömmu fyrir æfingu í kirkj-
unni. Guðrún byrjaði á því að
upplýsa okkur hvernig þetta
leikrit varð til en það hefur ver-
ið í vinnslu um nokkurt skeið.
„Upphafið má rekja til þess
þegar ég var í Sviþjóð fyrir níu
árum. Ég hitti þar fyrir vinkonu
mína sem fór að segja mér frá
sænskum presti sem hún
þekkti. Þessi prestur réð sig til
Sviss þar sem margir Svíar búa til
að forðast skatta og skuldir. Eftir að
hafa verið þar prestur i nokkur ár
tilkynnti hann aö hann ætlaði að
hætta og flytja aftur til Svíþjóðar. í
kveðjuhófinu stóð hann upp og
sagði vinum og kunningjum að
hann væri ekki að fara heim til að
þjóna áfram sem prestur. Hann
væri að fara heim til að deyja. Hann
sagðist vera með alnæmi eftir sam-
band við ungan mann. Hann sagðist
ekki hafa getað upplýst þetta fyrr og
það varð auövitað uppi fótur og fit í
söfnuðinum," sagði Guðrún en leik-
ritið byggir hún að nokkru leyti á
sögu þessa prests og þeim mannlegu
samskiptum sem sköpuðust í dauða-
stríði hans. Það er Þröstur Leó sem
leikur prestinn, séra Jardin, og
Guðrún leikur móður hans.
„Þegar presturinn
kom til Svíþjóðar fór
hann beint af flug-
veUinum til þessar-
ar vinkonu minnar
og var gjörsamlega
niðurbrotinn.
Hún sagði hon-
um að hann
myndi
ekki
missa
færi af stað,“ sagði Guðrún en þetta
fannst henni það áhugaverð saga að
hún settist niður og fór að setja
saman leikrit.
Saga þessa prests er grunn-
urinn í leikritinu en inn í það
fléttar Guðrún persónulegri
reynslu sinni. Hún sagði það
óhjákvæmilegt þegar væri
smíðum en þegar hún komst í kynni
við Magnús Geir fóru hlutirnir í
gang. Hún sá handverk hans fyrst í
leikstjórn hjá Herranótt
í MR þegar Sjálfs-
morðinginn var
settur upp. Hún
kynntist Magnúsi
Geir einnig i gegn-
um son sinn,
Ragnar Kjartans-
son, sem lék m.a. í
umræddu leikriti.
Höfundur Heilagra syndara, Guörún Ásmundsdóttir, og Magnús Geir Þóröarson, leikstjóri verksins, hafa náö vel saman.
DV-myndir Pjetur
einn einasta vin. Það gekk eftir og
ekki bara það. Heldur gerðist eitt-
hvað heilagt í það tæpa ár sem tók
hann að deyja. Fólk streymdi að
dánarbeði hans, líka frá Sviss, þó
það ætti í hættu að lenda i skulda-
fangelsi. í kjölfarið tóku skrítnir
hlutir að gerast í Sviss. Upp komst
um fjármálahneyksli og það var
eins og bylgja undarlegra afhjúpana
skipti. Þegar upp úr stæði fjallaði
leikritið fyrst og fremst um ást,
hvemig hún birtist í ólíkum mynd-
um og hvernig fólk meðhöndlaði
hana. Eða eins og segði í leikritinu:
Ástin er gjöf frá Guði.
Átti ég að leikstýra?
Guðrún var með leikritið lengi í
Hópurinn er góö blanda af yngri og eldri leikurum. Hér eru þau viö æfingu í Grafarvogskirkju, frá vinstri eru Margrét
Ákadóttir, Guörún, Edda Pórarinsdóttir, Karl Guömundsson, Ólafur Guömundsson, Marta Nordal og Þröstur Leó
Gunnarsson, sem leikur aöalhlutverkiö.
„Upp kom þessi stóra spuming.
Átti ég að leikstýra sjálf eða fá ann-
an til verksins? Ég leikstýrði sjálf
leikriti mínu um Kaj Munk í Hall-
grímskirkju fyrir 11 árum. Það var
mikið átak og ég fann að ég treysti
mér varla í leikstjómina aftur. Það
var bara ekki auðvelt að finna leik-
stjóra sem skildi hvað ég var að
fara. Eftir að hafa séð Sjálfsmorð-
ingjann sá ég að Magnús Geir var
ekki bara ungur og duglegur heldur
þrusugóður leikstjóri. Ég tel að
þetta hafi verið einhver besta sýn-
ingin í leikhúsunum það árið,“
sagði Guðrún og ekki laust við að
ummælin framkölluðu roða í kinn-
um leikstjórans unga!
Magnús Geir fékk leikrit Guðrún-
ar til lestrar og fleiri af hans kyn-
slóð fengu að sjá handritið. Hún
sagði það hafa verið magnaða til-
finningu að sjá hvað verkið fór vel í
unga fólkið.
Dolfallinn við lesturinn
Magnús Geir sagði leikritið vera
kraftmikiö og safarikt. Auðvelt
befði verið að manna sýninguna
sökum þess hve verkið væri sterkt.
„Ég sat dolfallinn þegar ég las
leikritið í fyrsta skiptið. Þegar
Guðrún bauð mér í framhaldinu að
leikstýra því sagði ég við sjálfan
mig að þetta væri tækifæri sem ég
mætti ekki sleppa. Þetta er eitt
besta íslenska leikritið sem ég hef
lesið í mörg ár. Það hefur burði til
að verða dúndursýning. Síðan hef-
ur vinnan við þetta verið svo gef-
andi. Það er virkilega gaman að
vinna með Guðrúnu. Hún hefur
verið svo opin fyrir að breyta og
bæta,“ sagöi Magnús Geir en und-
irbúningur hófst af krafti sl. vor.
Leikarahópurinn kom þá saman og
ýmsu var breytt í leikritinu. Guð-
rún gaf sér tíma til að endurskrifa
búta hér og þar.
Þjörmuðu að már
„Ég verð að viðurkenna að ég
gekk í gegnum mikla sálarkreppu
í vor. Magnús og þau þjörmuðu að
mér og mér fannst þau vera reglu-
lega vond við mig. Ég kom heim í
miklu uppnámi og mig langaði til
að henda handritinu í þau: Leikiði
þetta eða leikiði það ekki! En síð-
an hef ég uppgötvað að þetta var
nauðsynlegt - þó það var erfltt,"
sagði Guðrún og kom Magnúsi
Geir í opna skjöldu á þessum
timapunkti í viðtalinu. „Já, ég
óð.um heima hjá mér og mig
langaði til að ganga frá ykkur
öllum,“ bætti Guðrún við og
hló. Magnús Geir reyndi að
bera sig vel!
Hann sagði mörg eldfim mál
vera til umfjöllunar í leikritinu.
„í okkar vinnu hefur þetta
vakið upp margar spurningar
innan hópsins og valdið oft á
tíðum mjög skiptum skoðun-
um á þessum málefnum. Það
er ekki annað hægt en að
reyna að taka á þeim og
reyna að svara. Ég tel að leik-
ritið skilji heilmargt eftir til
að hugsa um,“ sagði Magnús
Geir og Guðrún bætti við að
mikilvægustu spurningunum í
leikritinu væri vart hægt að
svara. Það yrði að skilja eitt-
hvað eftir opið.
I gegnum nálarauga
I upphafi stóð til að setja leik-
ritið upp í hefðbundnu leikhúsi.
Það 'var ekki ákveðið fyrr en í
haust að setja það upp í kirkju.
„Við vorum ákaflega heppin að
hafa fundið Grafarvogskirkju. Flest-
ar kirkjur eru svo fmar og flottar,
henta til síns brúks en ekki mjög
vel til leikhúss. En héma er það
hráleikinn í fokheldri kirkjunni
sem er svo heillandi. Kirkjan hæfir
verkinu þvi það er beitt og kalt um
leið og það er hlýtt og mjúkt. Þetta
er stór kirkja og við nýtum rýmið
mjög vel. Síðan styrkir það auðvitað
staðsetninguna að leikritið fjallar
um prest,“ sagði Magnús Geir.
Guðrún afhenti prestum Grafar-
vogskirkju handrit leikritsins til yf-
irlestrar. Þeir voru ánægðir með
verkið en treystu sér ekki til að
taka ákvörðun um að leyfa upp-
færsluna í kirkjunni nema að fá
samþykki sóknamefndar. Ástæðan
var m.a. viðfangsefnið sem glímt
væri við í leikritinu, einkum sam-
kynhneigðin. Sóknarnefndin gaf
síðan blessun sína.
„Það er mjög djarft og virðingar-
vert af þeim að gera þetta. Afskap-
lega skifjanlegt að vaða ekki af stað
án þess að skoða málið vel og vand-
lega. Fyrir þetta erum við þakklát
og þá vinsemd sem starfsfólk kirkj-
unnar hefur sýnt okkur,“ sögðu þau
einum rómi.
En skyldu þau hafa blessun
Guðs? Guðrún sagði engan vafa
leika á því. Hún væri á æfingatim-
anum, klædd kraftgalla í óupphit-
aðri kirkjunni, oft búin að kinka
kolli upp til hans og þakka fyrir sig.
Rétt er þó að taka fram að kirkjan
verður orðin upphituð þegar frum-
sýnt verður.
„Allt þetta unga og kraftmikla
fólk hefur þennan aldna Guð sem
framkvæmdastjóra," sagði Guðrún
og spurning við hvem hún átti ná-
kvæmlega! -bjb
(
<
<
(
<
<
(
<
I
<
<
<
<
<
<
I
<
<
<
<
<
<
<
<