Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1998, Qupperneq 13
LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 1998
13
Hluti Líkamsnándar á Kjarvalsstöðum er fræðslustarf fyrir nemendur:
Nemar verði
virkir neytendur
- segir Ólöf K. Sigurðardóttir, umsjónarmaður fræðsludeildar Kjarvalsstaða
listir
Finninn llkka Sariola fer mjög óvenjulega leiö til þess aö vekja unglingana til
umhugsunar um umhverfi sitt. Hann býöur þeim aö setjast hjá sér eftir aö
hafa farið úr öllum fötunum. Bróöir Sariola er fatlaður og hann vill að fólk
hugsi um umhverfi sitt, taki tillit hvaö til annars en strunsi ekki
hugsunarlaust hvaö fram hjá ööru.
„Markmiðið með þessari fræðslu
yfirleitt er að ala upp safnagesti
framtíðarinnar. Við vújum þróa hjá
nemendum mat og gagnrýni á
myndlist, efla sjáifstætt gildismat,
vekja áhuga og auka þekkingu á list
og menningu ásamt þvi að efla vit-
und þeirra um menningararfleifð og
menningarsögu," segir Ólöf K. Sig-
urðardóttir, umsjóncirmaður
fræðsludeildar Kjarvalsstaða, um
markmið fræðslustarfs fyrir skóla
sem unnið hefur verið á Kjarvals-
stöðum undanfarin ár.
Um liðna helgi var sýningin Lik-
amsnánd opnuð á Kjarvalsstöðum.
Um er að ræða norræna samtíma-
list og taka fimm söfn á Norðurlönd-
um þátt. Listamennimir eiga það
sameiginlegt að hafa ailir fengist
við mannslíkamann í verkum sín-
um. Á meðal þeirra sem eiga verk á
sýningunni eru Iben Dalgaard, Pet-
er Bonde og Cristian Lemmerz frá
Danmörku, Elin Wikström og Lars
Hammarström frá Svíðþjóð, Ilkka
Sariola, Satu Kiljunen, Olli
Summanen og Philip von Knorring
frá Finnlandi og Marianne Heske
frá Noregi. íslensku þátttakendum-
ir era Þorvaldur Þorsteinsson,
Helgi Þorgils Friðjónsson, Hulda
Hákon, Daði Guðbjömsson og Birg-
ir Snæbjöm Birgisson.
Nemendurnir taka þátt
Ólöf segir að mikilvægur hluti
Líkamsnándar sé fræðslustarf fyrir
nemendur í eldri bekkjum grann-
skóla og framhaldsskólum. Farið sé
með hópa nemenda um sýninguna
og auk fræðslunnar fái þeir að taka
þátt í umræðum.við lista- eða fræði-
menn. Markmiðið nú sé að auka
tengsl skóla og safna með sérstaka
áherslu á unglinga sem safnagesti.
„Ég held að það hafi verið hárrétt
ákvörðun í upphafi að velja sýning-
unni þema sem tengist samtíma
ungmennanna. Mér virðist sýningin
höfða vel til þessa unga fólks sem
hingað kemur. Hún hefur greinileg
áhrif á það og vekur það til umhugs-
unar um stöðu sina og samfélagið.
Ég vona svo sannarlega að þetta
skili sér í því að þetta fólk komi aft-
ur.“
Lítil kennsla
Ólöf segir að í safnfræðslunni sé
lögð áhersla á að nemendumir séu
virkir áhorfendur. Meiningin sé
ekki að örfa þá sem skapendur held-
ur sem neytendur myndlistar,
hvetja þá til þess að skoða og gagn-
rýna.
„Listasögukennsla á íslandi er
ekki mikil og sem ágætt dæmi um
það má nefna spumingar í spurn-
ingakeppni framhaldsskólanna um
myndlist. Þar flaska sénfin nánast
undantekningarlaust þótt þau geti
svarað ótrúlegustu spumingum úr
öðrum greinum. í grunnskólunum
hefur kennslan aðallega verið bund-
in við sköpunina en síður við lista-
sögu og fræðilega þáttinn," segir Ól-
öf.
Aðspurð hvað veki helst athygli
ungmennanna á sýningunni segir
Ólöf það vera þau verk sem þau séu
virkir þátttakendur í, þar sem þau
leggi til sinn eigin líkama. Kannski
sé ekki sanngjarnt að gera upp á
milli verkanna en þetta sé hennar
tilfmning. Ólöf segir mjög gott að
krakkamir fái að hitta og spjalla
við listamenn eins og þeim standi
til boða á þessari sýningu.
Hitta listamanninn
„Við höfúm upplifað það að þegar
krakkar eru að skoða verk, sérstak-
lega verk sem ganga nálægt manns-
líkamanum og brjóta ákveðin tabú,
þá gera þeir sér ákveðnar hugmynd-
ir um listamanninn. Hann hljóti að
vera kona, karl, ungur, gamall, hafi
einhverjar kenndir sem þeir geta
Nemendur FG fengu aö setjast inn í
litla skúra og leita aö eigin organi.
Þessi var ekki alveg viss um aö hafa
fundiö þaö en reyndi þó.
samt ekki alveg skilgreint og því
held ég að það sé mjög gott að fá síð-
an að hitta þennan einstakling og
spjalla við hann.“
Þótt Líkamsnánd sé notuð til
fræðslu fyrir ungt fólk segir Ólöf
hana alls ekki vera eingöngu fyrir
ungt fólk. Þarna séu viðurkenndir
norrænir listamenn að sýna. Auk
fræðslunnar til unga fólksins nú
segir Ólöf að alla sunnudaga sé boð-
ið upp á leiðsögn um safnið og æ
fleiri gestir nýti sér það.
„Við erum mjög ánægð með þann
áhuga sem skólarnir og unga fólkið
hafa sýnt sýningunni. Okkur hefur
fundist vanta að krakkar úr 8., 9. og
10. bekk komi til okkar. Nú náum við
til þeirra og vonandi verður þetta til
þess að vekja almennan áhuga
þeirra," segir Ólöf. Sýningin Lík-
amsnánd stendur til 1. mars. -sv
Tilboð baðherbergissett!
Kr. 23.000,- stgr.
Ath. Öll hreinlætistæki hjá okkur eru framleidd hjá
sama aðila sem tryggir sama litatón á salerni,
salernissetu, handlaug og baðkari.
Salerni með stút í vegg
eða gólf. Hörð seta og
festingar fylgja.
Baðkar.
170 x 70 cm.
/t,gm - m-.
ViS Fellsmúla
Sími 588 7332
OPK»:
Mánud. - föstud. kl. 9-18, laugard. kl. 10-14
Ólöf K. Sigurðardóttir, umsjónarmaöur fræösludeildar Kjarvalsstaöa, stend-
ur hér við tvö málverk sem eru hiuti af sýningunni Líkamsnánd. Verkin eru
eftir finnska málarann Olli Summanen. DV-myndir Pjetur
15 - 40% afsláttur
14“ - 33“ r|i»iiwtiM, qritaMN, rtfcnnifnfaÉa;
TillnmMtliisjmBteíltiT, WOtecgKífeM, flHTijiitiafelnsTHliiTnr, íii'bi/ljijnnniiiT,
fwkHUHE, IhTíniiiiiiiTiim^álnT-, ^HTiimTi^lrrú liTTiiiTiiinilmniiiih fenllPzMlíiTi lirnnllimjlTiTTiT-.
kmii ?sfija7, ttvgmttm, fqnacðdpv asi matt, taags flam l