Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1998, Page 14
14
LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 1998 T>V
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON OG ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON
Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON OG ELÍN HIRST
Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLT111,105
RVlK, SIMI: 550 5000
FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimaslða: http://www.skyrr.is/dv/
Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is
AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605
Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Filmu- og plötugerð: ISAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF.
Áskriftarverð á mánuði 1800 kr. m. vsk. Lausasöluverö 160 kr. m. vsk., Helgarblað 220 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til aö birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og I gagnabönkum án endurgjalds.
Innsetning í hversdagslegt sæti
Merkilegt rannsóknarefni felst í aðdragandanum að
innsetningu Guðrúnar Pétursdóttur, fyrrum forseta-
frambjóðanda, í níunda sæti á lista Sjálfstæðisflokksins
fyrir borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík í vor. Mál-
ið hefur tæpast enn verið upplýst í íjölmiðlum.
Spásagnir um innsetninguna hófust á umræðu um átt-
unda sæti listans, sem hlýtur eðli málsins samkvæmt að
vera baráttusæti hans. Það skilur á milli feigs og ófeigs.
Annar hvor framboðslistinn nær áttunda sætinu inn og
verður þar með í meirihluta á næsta tímabili.
Eðlilegt hefði verið, að borgarstjóraefni flokksins,
Árni Sigfússon færi í áttimda sætið. Þar með hefði hann
brotið brýr að baki sér á sama hátt og Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, sem skipar það sæti á Reykjavíkurlistanum.
Hann hefði barizt við hana á jafnréttisgrundvelli.
Hins vegar er síður en svo nokkuð við það að athuga,
að borgarstjóraefni sé í efsta sæti listans og leiði hann
þannig í bókstaflegri merkingu. Það getur hins vegar
verið vandamál fyrir borgarstjóraefnið, ef sá, sem skip-
ar áttunda sætið er talinn hafa unnið kosninguna.
Ef Guðrún hefði farið í áttimda sætið og Sjálfstæðis-
flokkurinn mundi vinna sætið, teldist Guðrún vera sig-
urvegari kosninganna og eðlilegt borgarstjóraefni um-
fram Árna. En nú er hún komin í hversdagslegt níunda
sæti listans og segist styðja Árna sem borgarstjóra.
Þar með fellur í bili söguskýringin um, að ráðandi öfl
í flokknum séu búin að afskrifa möguleika Áma og telji
líklegra að Guðrún geti keppt við ljómann af Ingibjörgu
Sólrúnu. Svo er að sjá, sem það verði áfram hlutverk
Árna að vera borinn saman við Ingibjörgu Sólrúnu.
Spurningin er þá sú, hvort einhver í efstu átta sætun-
um verði á næstu mánuðum fenginn til að veikjast eða
hljóti einhvern þann starfa, sem geri honum ókleift að
skipa sætið. Með slíkum hætti gæti Guðrún „óvart“
komizt i áttunda sætið og söguskýringin endurvakizt.
Kremlólógía af slíku tagi hentar vel Sjálfstæðisflokkn-
um, sem minnir að ýmsu leyti á kommúnistaflokk Sov-
étríkjanna sálugu. Mönnum er það minnisstætt, að Guð-
rún og Davíð Oddsson voru talin þurfa að hittast út af
ráðgerðri innsetningu Guðrúnar á framboðslistann.
Guðrún og Davíð höfðu fyrir manna minni verið
ósammála um ráðhúsið í Tjörninni. Svo virðist sem
langrækni sé talin svo eðlileg í Sjálfstæðisflokknum, að
frambjóðandi í áttunda eða níimda sæti þurfi sérstaka
syndaaflausn og handayfirlagningu formannsins.
Brandaraferli af slíku tagi þekkist tæplega í venjuleg-
um stjórnmálaflokkum. Það getur varla talizt heppilegt
nesti inn í stjómmál í borgaralegu fjölveldisþjóðfélagi,
þar sem vald landsfóðurins er ekki lengur talið vera
runnið frá Guði, heldur frá almenningi.
Niðurstaða syndaaflausnarinnar var sú, að flokksfor-
maðurinn lét það boð út ganga, að hann styddi framboð
Guðrúnar. í ljós kom hins vegar, að erfitt var að hrófla
við frambjóðendum, sem höfðu fengið góðan stuðning í
átta efstu sæti listans, einu sætin, sem máli skiptu.
Það hlýtur að teljast mikið haft fyrir litlu sæti að
ganga á fund flokkspáfans til að fá syndaaflausn. Þar
með tapast heiðursmerkið, sem felst í að vera verður
langrækni af hálfu valdamanns. Og seint verður níunda
sætið talið bæta stöðu kvenna á framboðslistanum.
Niðurstaðan er, að enn hefur ekki fundizt frambærileg
skýring á fyrirferðarmiklu ferli, sem leiddi til innsetn-
ingar Guðrúnar í hversdagslegt níunda sæti listans.
Jónas Kristjánsson
„Líka er það, að ef krakkarnir og mamman eru með óráðsíu og brask, veit afi gamli ekki hverjum hann eigi að
afhenda sparifé sitt öllum til bjargar. Þetta hefur gerst í Kóreu og auövaldslöndunum í Asíu,“ segir Guöbergur
m.a. í pistli sínum. Símamynd Reuter
Hagfiæðin
gerð auðskilin
Það má til sanns vegar færa að heimurinn sé í sál-
inni og lögmál hagfræðinnar sýnileg á hverju heim-
ili. Með þetta að leiðarljósi ætla ég að reyna að lýsa
með dæmi megindráttum í sál og hagkerfi ævintýra-
rikjanna í Austurlöndum:
Ef faðir stjórnar og situr að
mestu einn við völd á heimili, þá
ber hann ábyrgð á hagsæld þess.
Svipað gerist þegar ríkisrekstur
ræður miklu um hag þjóðar. Um
einkaframtakiö gilda önnur lögmál.
í því ræður ekki bara pabbinn hag
heimilisins heldur líka mamman og
allir krakkarnir. Þetta hljómar fal-
lega, en um leið er í raun og veru
enginn ábyrgur. Vegna þess að þeg-
ar til kastanna kemur og eitthvað
bjátar á, kennir hver öðrum um
ófarimar. Aftur á móti þakkar hver
sjálfum sér góðærið. Líka er það, að
ef krakkamir og mamman era með
óráðsíu og brask, veit afi gamli ekki
hverjum hann eigi að afhenda
sparifé sitt öllum til bjargar. Þetta
hefur gerst í Kóreu og auðvalds-
löndunum í Asíu. Allt var þar gefið
frjálst, svo öll fjölskyldan fór að
braska og ábyrgð og fjármagni
drepið á dreif uns heimilið varð öngþveitið eitt. Því
gerist það að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, í hlutverki
afans, veit ekki lengur hverjum hann skuli veita
bjargráð, eftir að ríkið eða pabbinn, með sína alhliða
ábyrgð gagnvart heimilisfólkinu, er varla lengur til.
í hmninu í Mexíkó, fyrir nokkrum árum, tókst að
rétta landið við með sæmiiegu móti, því sjóðurinn gat
lánað ríkinu sem var enn við lýði og ábyrgt. En það
átti að leggja niður, samkvæmt hugmynd frjálshyggj-
unnar og afans reyndar líka.
Ber að lána braskara í
Kóreu?
Flestir muna að ein af kennisetning-
unum um forsendurnar fyrir einka-
væðingu er að meiri sveigjanleiki á
markaði fáist með afnámi ríkis-
rekstrar, ríkið sé of svifaseint. Nú
kemur aftur á móti það í ljós að
nefndum sjóði gengur betur að rétta
við ríkið, sem er eitt í hverju landi,
en ótal einkaaðila. Ber alþjóðlegum
sjóði að lána einni milljón braskara í
Kóreu? Nei. Slíkt vekur ófarnað.
Bæði frjálshyggjan og afbakaði
kommúnisminn ráða prýðilega við
kennisetningar en ekki vandann
sem þær valda i framkvæmd.
Sjálfsagt verður málum bjargað nú
um stundcirsakir á sama hátt og
venjulega, almenningur er látinn
finna sárast fyrir ófamaði í hugsun
æðstu manna. En ef brjálæðið mis-
tekst sem Kína anar út í, það að reyna að sameina
kommúnisma og kapítalisma í fullkominni mynd af
eilífu góðæri, þá er voðinn vís. Vegna þess að þeir
sem hugsa um stjómmál vita ekki lengur hver er fað-
ir, móðir, börnin, afinn eða amman í hagkerfi fjöl-
skyldunnar.
Erlend tíðindi
Guðbergur Bergsson
skoðanir annarra
'$S'
'X
Ný kjarnorkuvá
„Endalok kalda striðsins hafa getið af sér ógn-
vænlega og kaldhæðnislega stöðu í kjamorkumál-
í um. Rússland er nú háðara kjamorkuvopnum sín-
: um en nokkru sinni fyrr og á sama tíma em vopn
þessi berskjaldaðri. Það eykur likumar á þvi að
í Rússar íhugi að beita þeim komi upp alvarleg staða.
j Það er því mjög mikilvægt að stjómvöld í Was-
; hington leggi sitt af mörkum til að snúa þeirri þró-
! un við. Bill Clinton hefur tækin til þess, ef hann
i fæst til að beita þeim.“
Úr forystugrein New York Times 13. janúar.
Valdboðsstefna
„í Zambíu, einu af fyrstu Afríkulöndunum sem
í héldu fjölflokkakosningar snemma á þessum ára-
! tug, virðist valdboðsstefna vera að ná yfirhöndinni
; á ný. Það var sérstaklega áhyggjufull þróun er fyrr-
um forseti landsins, Kenneth Kaunda, maðurinn
sem leiddi Zambíu til sjálfstæðis, var handtekinn á
jóladag. Yfirvöld vonast til að geta tengt Kaunda við
misheppnaða valdaránstilraun í október síðastliðn-
um þegar hann var ekki í landinu. Vera kann að
Kaunda hafi átt einhverja aðild að valdaránstil-
rauninni en ekki er hægt að komast að niðurstöðu
í því nema með réttlátum réttarhöldum.“
Úr forystugrein New York Times 29. desember.
Síðustu kosningarnar
„Forsætisráðherraframbjóðendurnir tveir vita að
hver einasti pólítíski sigur eða pólítísku mistök
skipta máli nú þegar aðeins nokkrir mánuðir eru
til kosninga. Eitt mest spennandi og afgerandi ár
stjómmálanna á þessum áratug hefst á morgun.
í>ingkosningarnar 1998 verða sennilega síðustu
kosningamar á þessari öld. Sá flokksleiötogi, Nyr-
up eöa Ellemann, sem fær stjómartaumana á nýju
ári getur þar með orðið sá forsætisráðherra sem
verður að móta stefnuna þegar gengið er til móts
við nýtt árþúsund."
Úr forystugrein Aktuelt 31. desember.