Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1998, Qupperneq 15
LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 1998
15
Þegar haustsólin bregður
löngum geisla yfir Kóngseyju við
Svcilbarða gera þungaðar ísbimur
sér híði sunnarlega á eyjunni.
Kóngseyja er eins konar fæðing-
ardeild fyrir stofn tvö þúsund
ísbjama sem reika um Svalbarða
og ísinn í grennd.
í endalausri nótt heimskauta-
vetrarins fæða þær loks örlitla
húna, gjarnan tvo. Þeir vega
sjaldan meira en hálft kíló. Þegar
húnamir hafa náð um tíu kílóa
þyngd skríða þær loks úr híðinu
og halda á ísinn til selveiða.
Húnarnir sem
ekki fæddust
Norskur vísindamaður, Öystein
Wiig, hefúr rannsakað bimina á
Kóngseyju. Með deyfibyssum gat
Öystein sett á þær mælitæki og
fylgt þeim eftir gegnum gervi-
hnetti. Hann afréð að fylgjast
sérstaklega með nokkrum þung-
uðum birnum. Fræðimaðurinn
átti von á því að tólf þeirra
myndu í lok vetrar birtast við
ísröndina með nýja húna.
Niðurstaðan kom honum
verulega á óvart. Einungis fimm
þeirra ólu húna í nóttinni löngu.
Vísindamaðurinn ákvað að
rannsaka hvað ylli óvæntri
ófrjósemi bimanna. Honum tókst
að ná sýnum úr nokkrum þeirra
og mæla innihald blóðsins.
Niðurstaðan leiddi í ljós fúrðulega
hátt magn lífrænna, þrávirkra
efha. Þar á meðal var PCB,
skordýraeitrið DDT, auk fjölda
annarra.
Magn efnanna var fjórðungi
meira en rannsóknir höfðu sýnt
að leiddu til ófrjósemi í selum.
Norðmennimir komust því að
þeirri niðurstöðu að ófirjósemi
bimanna væm þrávirku eiturefh-
in sem höfðu safnast upp í þykku
forðalagi bimanna.
Görótt birnumjólk
Þegar spendýr ala afkvæmi
ganga mæðumar á fituforðann.
Við það losna eiturefinin, fara inn
í blóðrásina og eiga greiðan
aðgang að fóstrinu. Eftir
fæðinguna berast þau svo með
mjólkinni yfir í afkvæmið.
Menguð móðurmjólk er
sérstaklega alvarleg fyrir bimina,
sökum þess hve lengi þeir em á
efiia er þannig náskyldur mesta
krabbavaldi sem enn hefur
fúndist af manna völdum.
Vistkeðja norðursins
Þegar eiturefnin hafa fallið í
hafið byrja þau að lesa sig upp
fæðukeðjuna. Smágerð krabbadýr
éta mengaða örþöranga og önnur
stærri lifa á smákröbbunum. Þau
verða síðan að gómsæti í
munnum fiska. Milli þrepa
keðjunnar margfaldast magnið.
Efst í keðjunni tróna stóru
rándýrin, selir, hvalir og birnir.
Þau verða því eins konar
eiturbankar. Hvergi hafa mælst
jafn há gildi þrávirkra efna og í
þeim. í ísbiminum er styrkur
PCB orðinn þijú þúsund milljón
sinnum meiri en í hafinu.
Ofar þessum dýrum í fæðu-
keðjunni er aðeins maðurinn.
Nyrst í Kanada era inúítar sem
lifa enn að miklu leyti á fiski,
hvölum og selum. í brjóstamjólk
kvenna í Broughton á Baffins-
iandi hefur mælst langhæsta
magn PCB-efna sem nokkra sinni
hefur fúndist í mönnum. Það er
áttfalt meira en (í öðrum
kanadískum konum.
Islenskar mælingar
Mælingar Rannsóknarstofu
Háskólans í lyfjafræði gefa ærið
tilefni til að íslendingar velti fyrir
sér framtíðinni.
Fálkar reyndust hafa miklu
meira af þrávirkum efnum en
menn bjuggust við. Rjúpan, sem
er jurtaæta, var hins vegar að
mestu leyti laus við þau.
Rannsóknarstofan er um þessar
mundir að athuga aðra fugla.
Þær athuganir gefa til kynna að
til dæmis teista, sem er ofarlega i
keðjunni, sé talsvert menguð.
Merkastar era þó mælingar á
brjóstamjólk 22 íslenskra kvenna.
Samkvæmt þeim er magn PCB
þriðjungi meira í brjóstum
íslenskra kvenna en staÚsystra
þeirra í Noregi, Bretlandi og
Frakklandi. Einu gildin sem em
hærri en þau íslensku era úr
mjólk kvenna hins iðnvædda
Þýsklands og svo inúítakonum í
Kanada.
Á íslandi er nær enginn
iðnaður sem notar PCB efni.
Þrávirku efnin hljóta því að
berast í mannfólkið úr hafinu.
Hér á landi er fiskneysla mun
spena. Húnamir hætta því ekki
fyrr en þeir yfirgefa móðurina
tveggja ára, fast að 200 kílóa
þungir. í tvö ár nærast þeir því á
mjólk sem er ótrúlega rík að
þrávirku eitri.
Tiu árum síðar er líklegt aö
annar húnninn frá Kóngseyju sé í
hópi bimanna sem skríða úr híði
sínu á Kóngseyju - húnalausar.
PCB-fjölskyldan er þekktust í
hópi þrávirku efnanna. Fljótlega
eftir aö fjöldaffamleiðsla hófst á
efnunum árið 1935 spruttu
grunsemdir um að þau yllu
óæskilegum aukaverkunum. Fjöl-
mörg ríki þráuðust þó áratugum
saman við að hætta notkun
þeirra.
Þegar algert bann náðist fyrir
nokkrum áram var búið að ffarn-
leiða 1,2 milijónir tonna. Þriðj-
ungur þeirra er þegar kominn út
í hafið.
Syndir feðranna
Þrávirkni efnanna birtist i að
þau hafa mjög langan helming-
unartíma. Það tekur því afar
langan tíma fyrir þau að brotna
niður og verða óvirk. Þau geta því
eitrað umhverfið öldum saman.
Þessi eiginleiki þeirra getur haft
skelfilegar afleiðingar fyrir lönd
einsog ísland. Húnaleysi bim-
anna á Kóngseyju sýnir það betra
en flest annað.
Þær lifa allt sitt líf á ísilögðum
auðnum norðurhjarans sem menn
töldu lausar við alla mengun.
Hvar í ósköpunum urðu þær sér
þá úti um ailt það magn þrávirkra
efiia sem í þeim mældist?
Kuldagildran
Svarið liggur í eðli eiturefn-
anna. Þau hegða sér líkt og
vinandi. Gufa upp í heitu
umhverfi en þéttast í kulda og
falla þá til jarðar. Þegar efnin
sleppa víðs fjarri hinu kalda
norðri gufa þau því fyrr en síðar
upp í andrúmsloftið.
Þau berast síðan víða vegu með
straumum í háloftunum. Þegar
þau rekur fyrir vindum inn í
kulda heimsskautanna þéttast
þau og falla niður. Efnin lenda þá
ýmist í höfúnum eða á landi, þar
sem þeim skolar um síðir til
sjávar.
Norðurhjarinn er því eins
konar kuldagiidra gagnvart þrá-
virku efnunum. Þau safnast að
heimskautinu og kuldinn sér til
að þau sleppa ekki í burt. Langlífi
þeirra sér til þess aö öldum
saman halda þau áfram að hafa
áhrif á öllu þrepum fæðu-
keðjunnar.
Gssur Skarpháðinsson
rítstjórí
Marktækustu upplýsingarnar
um áhrif þrávirkra efna á
manninn em frá svæðum þar sem
matvara hefúr mengast af PCB
fyrir slysni.
Það gerðist á Taívan þar sem
matarolía blandaðist meðal
annars PCB. Böm mæðra sem
neyttu olíunnar þjáðust af
margskonar sjúkdómum. Hreyfi-
geta þeirra og greind var skert, og
kynþroski drengjanna varð ekki
eðlilegur.
Ófrjósemi
Margar athuganir hafa sýnt að
ófrjóir karlar hafa gjaman hærra
magn þrávirkra efna í blóöi og
sæði en hinir. Ein könnun leiddi í
ljós að hreyfanleiki sæðis, sem
skiptir miklu fyrir getnað,
minnkaði í hlutfalli við styrk
tiltekinna PCB-efna í sæðinu.
Vísindamenn hafa einnig sýnt
fram á að konur sem missa fóstur
em líklegar til að hafa hærra
magn PCB í líkömum sínum en
þær sem hafa eðlilega meögöngu.
Fiskar í Michigan vatni í
Bandaríkjunum mældust með
hátt magn PCB. Konur sem
neyttu fiskmetisins í talsverðum
mæli eignuðust böm, sem vom
léttari en önnur börn, höfðu
skerta hreyfigetu og lægri greind.
Miðað við magn PCB í blóði
Bandaríkjamanna telja vísinda-
menn nú líklegt að um 5%
bandarískra bama búi við skerta
tauga- og heilastarfsemi sem megi
rekja til efnanna.
Þau geta einnig veikt ónæm-
iskerfið verulega og valda líka
krabbameini. Einn hópur PCB
meiri en í Evrópu. Það skýrir
væntanlega hina óvæntu niður-
stöðu sem bendir til að íslensk
brjóstamjólk er jafn mikiö eða
meira menguð en mjólk
evrópskra kvenna.
Framtíðin
Islensku vísindamennimir hafa
þegar hafið umfangsmeiri könnun
á mjólkandi konum. Þar verða
rannsökuð áhrif búsetu og
sjávarfangs á magn þrávirkra
efna í blóði. í grein sem birtist í
Læknablaðinu segja vísinda-
mennirnir að „afar ólíklegt
verður að teljast að þær aðstæður
finnist á íslandi að magn þessara
mengunarefna fari yfir hugsanleg
hættumörk fyrir ungböm.“
Það breytir því ekki að efnin
munu næstu aldir halda áfram að
safnast upp í höfunum norðan
íslands. Þau eru tímasprengja
sem mun ekki springa fyrr en
eftir langan tíma. Löngu áður en
þau munu skaða líf og heilsu
íslendinga geta þau hins vegar
geta haft önnur áhrif á líf
þjóðarinnar. íslendingar lifa
nefnilega af þvi að selja fisk.
Hvaöa áhrif mun það hafa á
markaði okkar, þegar vitneskjan
um tímasprengjuna í höfum
norðurhjarans kemst á vitorð
heimsins?