Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1998, Page 23

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1998, Page 23
LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 1998 23 5TÓRT SKREF “ í UMHVERFISMÁLUM Skolpmengun við strendur Reykjavíkur 1997. Mengunin 1998. Skolpa við Ánanaust kemur í veg fyrir skolpmengun á stórum hluta strandlengjunnar. Hreinar strendur árið 2000 með opnun nýrrar hreinsistöðvar við Héðinsgötu. OPIÐ HÚS UM HELGINA Gangsetning Skolpu, hreinsi- og dælustöðvarinnar við Ánanaust, markar eitt stærsta skref í umhverfis- málum sem stigið hefur verið hér á landi. Skolpa mun skila borgarbúum hreinni strandlengju en hlutverk hennar er að hreinsa skolp frá Reykjavík og nágranna- sveitarfélögunum og dæla því rúma 4 km á haf út. Áður rann skolpið óhreinsað út í sjóinn við fjöruborð ogolli umtalsverðri mengun umhverfis borgina. Með tilkomu Skolpu horfum við því fram á bjarta framtíð í umhverfismálum borgarinnar! Skotpa við Ánanaust er tilkomumikil bygging, búin nútímatækni. Henni erætlað að þjóna stórum hluta höfuðborgarsvæðisins: Selás-, Breiðholts-, Árbæjar- og Fossvogshverfi auk hluta vesturbæjar, en einnig Kópavogi, Garðabæ og Seltjarnarnesi. Borgarbúar eru hvattir til að sækja Skolpu heim um helgina og kynna sér starfsemi hennar. Stöðin verður opin bæði á laugardag og sunnudag milli kl. 13 og 16. Sérfræðingar á vegum borgarverkfræðings og gatnamálastjóra verða á staðnum og svara spurningum gesta. Sækið Skolpu heim, hún vinnur þjóðþrifaverk! skQlpa Reykjavíkurborg

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.