Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1998, Page 26
kbglingar
LAUGARDAGUR 17. JANUAR 1998
Eldri bekkir grunnskóla og framhaldsskólanemar sækja Kjarvalsstaði heim:
Gott framtak
- segja Bergdís og Monika Hrönn, nemar á myndlistabraut í FG
„Flest okkar eru á myndlista-
braut og við komum þess vegna til
þess að skoða þessa sýningu. Við
komum nokkrar ferðir með skólan-
um og síðan vitaskuld oft á eigin
vegum,“ segja Bergdís Örlygsdóttir
og Monika Hrönn Ingólfsdóttir,
nemar í Fjölbraut í Garðabæ. Und-
irritaður fékk að fylgja hópnum
Rétt er að mæla með því við fólk að það drífi sig og skoði og taki þátt í þess-
ari skemmtilegu sýningu á Kjarvalsstöðum. Iben Dalgaard ræðir við nem-
endur í Fjölbraut í Garðabæ. DV-myndir Pjetur
hópa um sýninguna, þeir fá leið-
sögn, hitta listamenn eða sjá gjörn-
inga. Allir hóparnir taka þátt og
ræða við lista- eða fræðimenn.
virkilega þátt. Þar bjóðist tækifæri
til þess að losna undan formlegheit-
um hinnar hefðbundnu sýningar
þar sem fólk megi bara horfa.
Opnar augu fólks
Auðvitað list
Bergdís Örlygsdóttir skoðar hér
sýningu dönsku listakonunnar Iben
Dalgaard.
þeirra eftir þar sem hann fékk leið-
sögn um sýninguna Líkamsnánd
sem er haldin á Kjarvalsstöðum
þessa dagana.
Mikilvægur hluti þessarar sýn-
ingar er fræðslustarf fyrir nemend-
ur I eldri bekkjum grunnskóla og
framhaldsskólum. Farið er með
Stelpurnar eru sammála um
ágæti þess að nemendur skuli fá
tækifæri til þess að kynna sér list
með þessum hætti.
„Þetta er mjög gott framtak. List-
in er orðin svo stór þáttur í okkar
daglega lífi. Hún er notuð á svo fjöl-
breyttan hátt og getur gagnast ein-
staklingum á marga vegu. Stutt leið-
sögn um svona sýningu getur orðið
til þess að opna augu fólks upp á
gátt fyrir listinni," segir Bergdís og
Monika Hrönn bætir við að mjög
gaman hafi t.d. verið að fá að hlýða
á og ræða við dönsku listakonuna
Iben Dalsgaard um list hennar. Þar
fái fólk að opna og loka skápum,
skoða það sem í þeim er og taka
„Auðvitað er þetta list,“ segja þær
við efasemdartóni blaðamanns.
„Annars er það það besta við listina
að hver og einn verður að eiga það
við sjálfan sig hvað honum finnst
vera list og hvað ekki,“ segja þær
stöllur sannfærandi.
Bergdís segist vera tólf tíma á
viku í myndlist og teikningu. Hún
hefur lokið námi á hönnunarbraut
Iðnskólans, segist hafa ætlað að
verða iðnhönnuður en frestað því.
Hún segist stefna á framhaldsnám í
einhverju listtengdu.
Monika er í teikningu og málun,
fatsaum, smíði og hönnun. Hún
stefnir að því að klára stúdentspróf
og reyna svo við Myndlista- og
Monika Hrönn Ingólfsdóttir Iftur inn í skápinn og bregður í brún.
handíðaskólann.
„Listimar eru greinilega vinsæl-
ar í dag. Myndlista- og handíða-
brautin í skólanum hjá okkur var
mjög lítil fyrir nokkrum árum.
Áður fóru allir í viðskiptafræði en
það er að breytast. Nú vilja allir
verða tónlistar- eða myndlistar-
menn,“ segir Monika og Bergdís
bætir við að gríðarleg aðsókn sé nú
í Myndlista- og handíðaskólann og
fáir komist inn. Skelfilegt sé að að-
eins sé einn skóli fyrir nemdendur
eins og þær á landinu því þeir sem
ekki komist inn í MHÍ verði bara að
hætta við þetta nám.
Fjallað er um sýninguna Lík-
amsnánd á bls. 13. -sv
í
I
i
'n hliðin
Sölvi Blöndal í hljómsveitinni Quarashi:
Leiðinlegast að róta
„Ég veit ekki eiginlega alveg kom fyrir. Við virðumst hafa hitt á réttan
stað í tónlistarsál íslendinga," segir Sölvi Blöndal, einn meðlima „heitu“
hljómsveitarinnar Quarashi sem gerði sér lítið fyrir og seldi um 6 þúsund
eintök af fyrstu breiðskífunni sem kom út fyrir síðustu jól. Verður það að
teljast mjög góður árangur þar sem unnendur rapptónlistar á íslandi geta
vart talist fleiri en 1-2 þúsund. Áður hafði sveitin gefið út smáskífú auk
þess sem hún er meðal flytjenda á plötunni Megasarlög.
Sölvi er sá sem framleiöir tónlist sveitarinnar úr þar til gerðu „galdra-
tæki“ en sá sem þeytir skifurnar er Richard DJ Hauksson. Steinar Orri
Fjeldsted er rapparinn ásamt Höskuldi Ólafssyni sem einnig syngur. Þess-
ir fjórir hafa verið í sveitinni frá þvi hún var stofnuð á vormánuðum 1996.
Sölvi segir erfitt að skilgreina tónlistarstefnu þeirra. Hún sé sambland af
rappi, rokki og fönki og ætti bara að kallast Quarashi. Og hver veit nema
að heimsfrægð bíði handan við hornið...
-bjb
sölustað-
ur/veit-
ingahús:
Thaílandi.
Hvaða
bók lang-
ar þig
mest að
lesa? Catch
22 eftir Jos-
eph Hell-
er.
Fullt nafn: Sölvi Blöndal.
Fæðingardagur og ár: 3. janúar
1975.
Maki: Enginn.
Böm: Engin.
Bifreið: Engin.
Starf: Tónlistarmaður.
Laun: Lítil sem engin en tóri þó.
Hefur þú unniö f happdrætti
eða lottói? Einu sinni fékk ég þrjá
rétta í lottói en það var ekki til að
byggja tónlistarferil á!
Hvað finnst þér skemmtileg-
ast að gera? Vinna við mína tón-
list og vera í hljóðveri.
Hvað finnst þér leiðinlegast
að gera? Róta eftir tónleika. Ára-
mótaheitið var að ráða rótara tO
okkar.
Uppáhaldsmatur: Pasta sem ég
malla heima hjá mér.
Uppáhaldsdrykkur: Minute
Maid appelsínusafi.
Hvaða íþróttamaður stendur
fremstur í dag? Geir Sveinsson,
ekki spuming þótt ég sé KR-ingur.
Uppáhaldstímarit: Úrval.
Hver er fallegasta kona sem
-
þú hefur séð? Ciccolina, þingkon-
an barmgóða á Ítalíu.
Ertu hlynntur eða andvígur
ríkisstjóminni? Andvígur.
Hvaða persónu langar þig
mest til að hitta? Mario Caldato jr.
Uppáhaldsleikari: Harry Dean
Stanton.
Uppáhaldsleikkona: Drew
Barrymore.
Uppáhaldssöngvari: Páll Óskar.
Uppáhaldssj órnmálamaður:
Hjörleifur Guttormsson og
Vladimir Zhírínovskí.
Uppáhaldsteikni-
myndapersóna: Ren
og Stimpy.
Uppáhalds-
sjónvarps-
efni: X-files.
Uppá-
halds-
mat-
Hver útvarpsrásanna
finnst þér best? X-ið.
Uppáhaldsútvarps-
maður? Þossi og Simmi.
Hverja sjónvarps-
stöðina horfir þú mest
á? Ríkissjónvarpið.
Uppáhaldssjónvarps-
maður: Jón Gnarr.
Uppáhaldsskemmtistað-
ur/krá: Keisarinn.
Uppáhaldsfélag í íþróttum? KR.
Stefnir þú að einhverju sér-
stöku í framtíðinni? Láta sjálf-
um mér og öðrum í kring-
um mig líða vel.
Hvað gerðir þú í
sumarfríinu?
Tókum upp
plötu Quaras-
hi, gerðum
ekkert ann-
að.
Sölvi Biöndal er heilinn á bak við tónlist Quarashi ef svo má að orði komast.
DV-mynd S
MMMM WmM