Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1998, Síða 31
LAUGARDAGUR 17. JANUAR 1998
í verkfalli um helgina
Áhafnir í fraktflugi franska
flugfélagsins Air France boð-
uðu til verkfalls í vikunni sem
leið. Verkfallið hðfst svo i gær
og mun standa alla helgina.
Ástæðan fyrir því er óánægja
áhafnanna vegna mikils vinnu-
álags. Stundum standa vaktim-
ar í rúmlega hálfan sólarhring
án þess að áhöfnin fái hvUd.
Betri matur
Farþegum franskra lesta hef-
ur verið lofað breyttum og bætt-
um matseðli. Fyrirtækið
Compagnie des Wagons-lits er
nefhUega að taka yfir veitinga-
þjónustu í lestunum en hingað
tU hefur Servair séð um þau
mál. Wagons-lits mun leggja
skoðanakönnun fyrir farþegana
áður en nýi matseðUlinn verður
kynntur í vor. „Það verða
áhrifamiklar verðlækkanir,
aukin gæði og meira úrval,“
segir Andre Martinez, fram-
kvæmdastjóri Wagons-lits.
Edrú Kanar
Þeir eru sárafáir sem vinna
aö Uugmálum í Bandaríkjunum
sem greinast jákvæðir á áfeng-
isprófum. Svo fáir að stjómvöld
hafa ákveðið að draga verulega
úr umfangi þessara prófa. Nú
munu aðeins tíu prósent þeirra,
sem hafa starfa tengdan Uugör-
yggismálum, verða valin af
handahófi í áfengispróf.
Minnismerki í andlitslyftingu
Siðastliðinn sunnudag var
minnismerki Washington lok-
að. ÆUunin er að opna aftur að
fjórum mánuðum liðnum. Lok-
un þessi er hluti af endurnýjun-
arverkefni sem taka mun tvö
ár. Fyrsti áfanginn felst i að
taka loftræstikerfi byggingar-
innar í gegn sem og hitakerUð
og hina 40 ára gömlu lyftu sem
gerir gestum kleift að njóta út-
sýnisins. Byggingin nær eina
170 metra upp í loft og er sú
hæsta í borginni. Útsýnið þaðan
lokkar að um milljón ferða-
menn á ári.
Vinnupallarnir huldir
Þegar byggingin háa í Was-
hington verður sem ný að inn-
an verður hún opnuð gestum á
ný. Þá mun hefjast annar áfangi
í þessari endumýjunaráætlun
en það er vinna utan á húsinu.
Utan um ljóta stálvinnupalla
verður sveipað sérstökum
blágegnsæjum dúk með mynstri
sem líkist múrhleðslu. TUgang-
urinn er að skemma ekki útlit
þessarar óbelísku-byggingar á
meðan á framkvæmdum stend-
ur.
39
Farðu að
heiman
Tékkaöu á rauöu
bókinni þinni og
gáöu hvort
númerið 16074
er prentað innan
á baksíðuna.
Ef svo er.
Idre-skíðasvæðið í Svíþjóð:
Barnvænsta
skíðasvæði
Evrópu
Idre býöur upp á mikiö úrval
skíöabrauta fyrir fólk á öllum
aldri og öllum getustigum. Þó
aðaláherslan sé lögö á byrjend-
ur og börn var þar nýlega opn-
uö ein brattasta manngeröa
skíöabraut Noröurlanda.
...hefur þú unniö
tveggja vikna
ævintýraferð til
Afríku meö
Encounter Overland
og ert beðin(n) um
aö vitja vinningsins
á Ferðaskrifstofu
stúdenta fyrir
næstu áramót.
V
FerðaskriFstoFa
stúdenta
Stærsta ferðamannamiðstöð
Norðurlanda er við fjallið Idre í Sví-
þjóð. Þar fær fólk allt sem það
þarfnast til skíðaiðkunar, en þó er
lögð sérstök áhersla á að börn geti
unað sér vel á staðnum. M.a. hefur
hann verið valinn „barnvænsta
skíðasvæði Evrópu" af bæði lesend-
um og sérfræðingum hins danska
Jyllands Posten. Þar er gistirými
fyrir 5000 manns og gistinætur á ári
eru rúmar 400.000. í allt eru 34
skíðabrautir, sem samtals eru 27
km að lengd, og 33 skíðalyftur á
svæðinu og ættu allir að finna eitt-
hvað við sitt hæfi.
En þetta hefur ekki alltaf verið
svona gott við Idre. Fyrir um 30
árum var meginatvinnuvegur svæð-
isins iðnvæddur sem þýddi að stór
hluti íbúanna missti vinnuna og
mikill fólksflótti varð frá svæðinu. I
örvæntingarfullri tilraun til að
bjarga atvinnulífinu á staðnum datt
einhverjum í hug að fara út i þjón-
ustu við ferðamenn. Byggðir voru
20 kofar og tvær skíðalyftur og látið
reyna á hvort þetta gæti orðið arð-
bært. Sú varð aldeilis raunin því að
síðustu 30 árin hafa verið reistar
byggingar, skíðalyftur og ýmislegt
þessu tilheyrandi fyrir um hálfan
milljarð sænskra króna (rúmlega
fjórir milljarðar íslenskra króna). í
kjölfarið hafa 400-500 ný störf orðið
til á staðnum, atvinnuleysið er að
mestu leyti úr sögunni og fólk byrj-
að að flytja til Idre á nýjan leik.
En það er ekki bara hægt að fara
á skíði í Idre. Forráðamenn ferða-
mannaþjónustu staðarins gera sér
grein fyrir að fleira þurfi að koma
til eigi staðurinn að halda sessi sín-
um í framtíðinni. Þar er til dæmis
hægt að finna stóra sundhöll með
rennibrautum og öllu tilheyrandi.
Einnig er íþróttahöll á svæðinu þar
sem gestir geta farið í keilu, billj-
arð, körfubolta, badminton og tenn-
is svo eitthvað sé nefnt. Til þess að
laða að ferðamenn á sumrin hefur
verið byggður golfvöllur sem gerir
það að verkum að hinn snjólausi
tími ársins er ekki alveg dauður
tími fyrir atvinnulífið i Idre.
Nafnbótin . sem Idre fékk í
Jyllands Posten segir umtalsvert
mikið um þann sess sem Idre hefur
verið að skapa sér í evrópskri skíða-
flóru á síðustu árum. Sú staðreynd
að 70% gesta staðarins hverju sinni
hafa komið þangað a.m.k. einu
sinni áður segir okkur þá sögu að á
Idre sé rétt haldið á spöðunum.
Þangað kemur fólk aftur og aftur og
ánægðir viðskiptavinir eru að sjálf-
sögðu besta auglýsingin.
Byggt á Jyllands Posten
Kynningarfundur
í Sálarrannsóknarskólanum
Langar þig að lyfta þér upp eitt
kvöld í viku eða eitt laugardags-
síðdegi í viku í svo sannarlega
fróðlegum og skemmtilegum skóla?
Ef svo er þá er ekkert annað en að hringja og fá
allar upplýsingar um mest spennandi skólann í
bænum í dag.
Hringdu og fáðu allar upplýsingar sem þig lang-
ar að vita um þetta vinsæla og ódýra nám.
Við svörum í símann
alla daga vikunnar kl. 14 til 19.
Kynningarfundur í dag og á morgun
sunnudag kl. 14. og á mánudags- og þriðju-
dagskvöld, kl. 20.30.
- Skemmtilegasti skólinn í bænum -
Vegmúla 2
s. 561 9015 & 588 6050
neousinun
Komvvoes#
Snælandsskóli - 200 Kópavogur ~
TUNGUMALANAMSKEIÐ
Kennt er í byrjenda-, framhalds- og talæfingaflokkum.
ENSKA - DANSKA - NORSKA - SÆNSKA -
FRANSKA - ÍTALSKA - SPÆNSKA - PÝSKA -
KATALÓNSKA - JAPANSKA -
ISLENSKA fyrir útlendinga
og fjöldi annarra námskeiða.
Innritun í símum:
564-1527,564-1507 og 554-4391 kl. 17-21