Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1998, Síða 50
58
iÉyndbönd
LAUGARDAGUR 17. JANUAR 1998
Grosse Pointe Blank:
heiðardalinn
Martin Q. Blank er leigumorðingi
og einn af þeim bestu í faginu. Þrátt
fyrir velgengnina fmnst honum eitt-
hvað vanta í líf sitt. Að eggjan sál-
træðingsins síns ákveður hann því að
snúa heim til Grosse Pointe i Michig-
an, í tilefhi af tíu ára útskriftarafmæli
1986-árgangsins. Þar ætlar hann að
klára sitt síðasta „verkefni", og að
auki að endumýja kynni sín við Debi,
stúlkuna sem hann skildi eftir á út-
skriftarballinu tíu árum áður. Enn
flækjast málin þegar erkióvinur hans,
Grocer, mætir til leiks í þeim tilgangi
að myrða hann.
Leigumorðingi í sálarkreppu
Hugmyndin um sálarkreppta leigu-
morðingjann sem snýr aftur á heima-
slóðir kviknaði í huga handritshöf-
undarins Tom Jankiewics þegar hann
fékk boð um að mæta á útskriftaraf-
mæli í Michigan. í stað þess að mæta
skrifaði hann handritið og lét Martin
Q. Blank mæta fyrir sig. John Cusack
og félagar hans i New Crime Product-
ions komust á snoðir um handritiö og
keyptu kvikmyndaréttinn að því, og
hófust handa rnn að sníða það að þörf-
um John Cusack. Hann og félagar
hans, meðframleiðandi og meðhand-
ritshöfundur Steve Pink, meðhand-
ritshöfundur D.V. DeVincentis, og
leikaramir Jermemy Piven og Greg
Sporleder lærðu allir leiklist viö Pi-
ven Theatre Workshop í Chicago og
voru meðlimir New Crime Theatre
Company, sem var stofnað af Cusack,
Pink og DeVincentis. Cusack gerði
myndina að sannkölluðu fjölskyldu-
verkefni með því að fá systur sínar
Joan og Ann, og bróður sinn Bill til að
leika aukahlutverk í henni.
Þegar John Cusack og félagar höfðu
lokið við að snurfúsa handritið báðu
þeir tvíeykið Susan Amold og Donna
Roth að framleiða myndina. Sam-
vinna þeirra hafði m.a. gefið af sér
Benny & Joon og Unstrung Heroes.
Þær vom að leita að einhverju fersku
og frumlegu í öðram stíl en þær höfðu
fengist við áður og fannst Grosse
Pointe Blank vera kjörið tækifæri.
George Armitage var einróma valinn
til að leikstýra myndinni, en hann
hafði áður sýnt hæfileika sína til að
blanda svörtum húmor, spennu og
hasar i Miami Blues.
John Cusack
John Cusack sást síðast með
Nicolas Cage og John Malkovich í
hasarmyndinni Con Air og hefúr hin
síðustu ár leikið I myndum eins og
Road to Wellville, Bullets Over Broad-
way og City Hall. Hann hafði áður
hlotið mikið lof fyrir leik sinn í mynd-
Roberts og Postcards from the Edge.
í hlutverki Debi er Minnie Driver,
sem er orðin ein af eftirsóttustu rmgu
leikkonunum i Hollywood eftir
frammistöðu sína í Circle of Friends,
en hún hefur nýverið sést í myndum
eins og Goldeneye, Sleepers og Big
Night. Skúrkurinn Grocer er leikinn
af Dan Akroyd, sem ekki hefur áður
leikið jafn skuggalega persónu.
Mikill grínleikari
Dan Akroyd hefur leikið í hverri
Meðal helstu
aukaleikara era
Alan Arkin og
Joan Cusack.
Alan Arkin
hefur leikið í
fjölda mynda,
þ. á m. Havana,
Edward Scissor
hands, The
Rocketeer, Gleng-
arry Glen Ross og
So I Married an Axe
Murderer.
óskarsverðlauna fyrir fyrstu
mynd sína, The Russians Are
Coming, The Russians Are
Coming, og aftur fyrir The
Heart Is a Lonely Hunter.
Joan Cusack hlaut ósk-
arsverðlaun fyrir leik sinn í
Working Girl, en hún hefur
m.a. átt hlutverk í Two Much,
Class, Sixteen Candles,
Married to the Mob, Say Anyt-
hing, Broadcast News, Addams
Family Values og Nine
Months. -PJ
John Cusack leikur leigumorðingjann Martin Q. Blank sem finnst eitthvað vanta í líf sitt.
hittir
Minnie Driver leikur fyrrum kærustu leigumoröingjans sem hann I
aftur.
um eins og The Grifters, Eight Men
Out, Say Anything, The Sure Thing
og Stand By Me. Hann kom fyrst fram
á sjónarsviðið í Class með Jacqueline
Bisset og lék í kjölfarið i hverri grín-
myndinni á fæhir annarri, svo sem
Sixteen Candles, Better off Dead, One
Crazy Summer og Tapeheads. Hann
fékk slðan sitt fýrsta dramatíska hlut-
verk í mynd John Sayles, Eight Men
out. Meðal annarra mynda hans era
Shadows and Fog, The Player, Bob
gamanmyndinni á fætur annarri a
rúmlega tveggja áratuga löngum
ferli sínum, þ. á m. The Blues
Brothers, 1941, Trading Places,
Ghostbusters, My Girl, Dragnet,
Coneheads, My Stepmother Is an
Alien, Loose Cannons, Tommy Boy
og Sgt. Bilko. Hann hefur einnig
leikið í alvarlegri myndum, svo sem
Feeling Minnesota og Driving Miss
Daisy sem aflaði honum óskarsverð-
launatilnefningar.
UPPÁHALDS MYNDBANDIÐ MITT
„Þegar ég var bam sá ég
Sound of Music eða Tóna-
flóð átta sinnum. Áður en ég fór á
hana í síðasta skipti vora
mamma og pabbi alveg
búin að fá nóg af
mér og þá héldum
við vinkonumar
tombólu til að
fjármagna
ferðina.
Ég var
átta eða
níu ára
þegar ég sá
þessa
mynd. Það
var söng-
urinn sem
heillaði mig
mest við
þessa mynd.
Ég féll alveg
fyrir henni.
Ég er nýbúin að
sjá Titanic. Það er
svona mynd sem ég
gæti hugsað mér að sjá níu
sinnum. Mér fannst hún alveg frá-
bær. Hún er rosalega flott og vel
gerð. Það var líka gaman að sjá
hana því í henni er
allt mjög líkt eða næstum því
eins og það var í raunveraleikan-
um.
Svo get ég nefnt eina
evrópska mynd sem
heitir Cinimo
Paradiso. Hún
var mjög góð
og söguþráð-
urinn
skemmtileg-
ur. Einnig
var hún vel
leikin og
umhverfið
fallegt.
Þessi mynd
er svona
skemmtileg
andstæða við
margar amer-
skar bíómynd-
r.
Ég fer talsvert
mikið í bíó og finnst
ofsalega gaman. Ég
tamir í þvi að fara í bíó
en horfi svona jafnt og þétt á
myndböndin." -glm
' . jj
Murder at 1600
Það er vinsælt þessa stundina að gera
sakamálamyndir í Bandarikjunum þar
sem forsetinn
kemur við sögu.
Ein þeirra
mynda sem falla
i þennan flokk er
Murder at 1600.
Og fyrir þá sem
ekki vita þá
stendur Hvíta
húsið einmitt við
Pensylvaniu-
stræti númer
1600. í Murder at
1600 er framið *
morð í Hvíta húsinu, aðeins nokkrum
metrum frá skrifstofu forsetans. Sá sem
fær málið til rannsóknar er Harlan Reg-
is, gamalreyndur lögreglumaður sem
vanur er að ná árangri í starfi. Fóm-
arlambið var ein af starfsstúlkum for-
setans. Regis verður að fara varlega í
rannsókn málsins enda er hann með líf-
varðarforingja forsetans yfir sér. Málið
verður samt fyrst erfitt þegar grunur
beinist að syni forsetans og ekki batnar
ástandið þegar sönnunargögn hverfa.
Regis verður því ljóst að eigi hann að
eiga möguleika á að leysa málið þá verð-
ur hann að vinna einn með aðstoðar-
manni sem hann getur treyst...
Með hlutverk Regis fer Wesley Sni-
pes, Diane Lane leikur alrikislögreglu
sem stendur með Regis. Meðal annarra
leikara má nefha Daniel Benzali, Alan
Alda, Ronny Cox og Dennis Miller.
Warner-myndir gefur Murder at 1600
út og er hún bönnuð börnum innan 16
ára. Útgáfudagur er 19. janúar.
Carlas Song
Ken Loach hefur lengi verið í
fremstu röð breskra leikstjóra.
Hans fyrri
myndir fialla
mikið um fólk í
verkamannastétt
og gerast í borg-
um og bæjum á
Bretlandseyjum.
I siðustu mynd-
um er sjónarsvið
hans orðið víð-
ara og Carla’s Carla’s # Song
Song gerist bæði
í Skotlandi og B
Nigaragua. Fjall-
ar myndin um strætisvagnabílstjó-
rann George, sem verður ástfanginn
af flóttastúlku frá Niagargua, Cörlu.
Hún hafði orðið að flýja land en þrá-
ir ekkert heitara en að komast heim
aftur. Eftir að hún hefur reynt
sjálfsmorð ákveður George að fara
með henni til síns heima. Þar ríkja
sandinistar og beita fólkið hörðu. Á
ferð sinni yfir landið upplifir hann
atvik sem hann hafði ekki órað fyr-
ir að ættu eftir að henda hann.
Með hlutverk George fer Robert
Carlyle, einn athyglisverðasti leik-
arinn af yngri kynslóðinni í Bret-
landi, meðal mynda sem hann hefur
leikið í má nefna Trainspotting og A
Full Monty. Auk hans leika í mynd-
inni Scott Glenn og Oyinka
Cabezas, sem leikur Cörlu.
Háskólabíó gefur Carla's Song út
og er hún bönnuð börnum innan
12 ára. Útgáfudagur er 20. janúar.
The End of Violence
The End of Violence er nýjasta
kvikmynd Wim Wenders, metnaðar-
full kvikmynd
sem segja má að
sé uppgjör hans
við Hollywood.
Myndin hefur
fengið misgóða
dóma, sumir
hrifast, aðrir
ekki. í The End
of Violence er
sagt frá kvik-
myndaframleið-
andanum Mike
Max sem dag
einn er rænt af tveimur bófum.
Honum tekst að sleppa áður en þeir
drepa hann og um tíma leitar hann
skjóls hjá mexíkóskri fiölskyldu og
fylgist með lífi fiölskyldu sinnar,
vinum og kunningjum úr fiarlægð.
Einn maður hefur orðið vitni að
ráninu á Mike, vísindamaðurinn
Ray Bering, sem er að hanna nýja
tækni sem samanstendur af öflugu
kerfi myndbandstökuvéla á hverju
homi í borginni. Við sögu koma
einnig margar fleiri persónur, með-
al annars eiginkona Max, lögreglu-
maðurinn sem rannsakar hvarf
hans og leikkona sem starfaði hjá
honum.
1 helstu hlutverkum era Bill Pull-
man, Andie MacDowell og Gabriel
Byme.
Myndform gefur The End of
Violence út og er hún bönnuð
börnum innan 12 ára. Útgáfudag-
ur er 20. janúar.