Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1998, Blaðsíða 4
4
•0éttir
LAUGARDAGUR 14. MARS 1998
Beiðni til danskra yfirvalda um framsal tveggja íslenskra barna:
Malið komið fýrir
danska dómstóla
- faðirinn fór með börnin með leynd úr landi, segir lögmaður móðurinnar
Danskir dómstólar hafa fengið til
meðferðar beiðni um framsal
tveggja íslenskra bama, 3ja og 7 ára.
Foreldrar þeirra eru íslensk hjón.
Að sögn Óskars Thorarensen hér-
aðsdómslögmanns, lögmanns móð-
urinnar, bjó fjölskyldan áður í Dan-
mörku. Þau kómu öll til landsins 1.
maí sl. Þá var samkomulag með
hjónunum um að móðirin yrði
áfram á íslandi með hömin en faðir-
inn fór aftur til Danmerkur. Bömin
fengu íslenskt lögheimili. Um síð-
ustu mánaðamót kom faðirinn til
landsins, að því er talið var til að
ganga frá skilnaðinum. Hann fékk
að umgangast bömin. Þegar móðir
þeirra ætlaði að vitja bamanna 3.
mars sl. kom í ijós að þau vora horf-
in ásamt foðumum.
Var búinn aö kaupa farseöla
„Faðirinn fór með bömin með
leynd úr landi. Ég hef fengið það stað-
fest í gegnum lögreglu að hann var
búinn að kaupa farseðla fyrir dreng-
ina áður en hann kom til landsins.
Hann fór með drengina úr landi að
morgni 3. mars sl.,“ segir Óskar.
íslenska dómsmálaráðuneytið
sendi beiðni til danska dómsmála-
ráðuneytisins fyrr í vikunni þar sem
krafist var að bömin yrðu afhent
móðurinni. í gær fékkst það staðfest
hjá danska dómsmálaráðimeytinu að
málið hefði verið lagt fyrir danska
dómstóla i gær.
„Móðirin hefúr umsjá bamanna.
Þau era tekin með leynd úr hennar
umsjá. Því er þetta litið mjög alvarleg-
um augum enda mjög gróft brot. Það
er ijóst að málið mun taka einhvem
tíma fyrir dönskum dómstólum," seg-
ir Óskar.
Framsalsbeiðnin styðst við ákvæði
í 39. grein bamalaga. Þar segir að fari
foreldrar sameiginlega með forsjá
bams sé öðra óheimilt að fara með
bam úr landi án samþykkis hins. Þá
er einnig vísað til þess að málið varði
við almenn hegningarlög.
-RR
Verklagsreglur ekki notaðar við sölu á Samábyrgð íslands:
Pólitísk ákvörðun
Dr. Gísli sá fær-
asti í heiminum
DV, Ósló:
„Það var alveg sama hvem ég
spurði. Allir, jafiit lögfrasðingar sem
sálfræðingar, vora á einu máli um að
dr. Gísli Guðjónsson í Lundúnum
væri maðurinn sem ég þyrfti að leita
til, segir Arvid Södin, veijandi norsks
drengs sem grunaður er um að hafa
nauðgað og myrt frænku sína,
Birgitte Tengs og myrt hana.
Dr. Gísli hefúr nú af yfiréttinum í
Björgvin í Noregi verið valinn sér-
stakur sáifræðilegur ráðgjafi í mál-
inu, sem kemur fyrir dóm öðra sinni
um miðjan næsta mánuð. Drengurinn
játaði á sig verknaðinn en verjandi
hans telur að játningin sé einskis
virði og stafi af sektarkennd vegna
dauða frænkunnar.
Dr. Gísli er einmitt sérfræðingur í
að afhjúpa falskar játningar og er við-
urkenndur fyrir störf sín í Bretiandi.
Södin sagöi að nafii dr. Gísla bæri nú
hæst í heiminum á þessu sviöi. í Nor-
egi era nú ekki starfandi menn með
menntun dr. Gísla og því varð að leita
út fyrir landsteinana.
Birgitte Tengs-málið er talið eitt
erfiðasta morðmál í Noregi. Drengur-
inn, frændi hinnar myrtu, var dæmd-
ur í 14 ára fangelsi á síöasta ári fyrir
morðiö en margir efast um réttmæti
dómsins. -GK
Þaö er ekki bara yngsta fólkib sem hefur yndi af þvf að gefa fiöurfénaðinum brauö. Berglind Harpa Siguröardóttir
var viö Reykjavíkurtjörn aö gefa gæsunum brauö og virtist heilla þær upp úr sundfitunum því þær biöu brauömol-
ans þolinmóöar meö kvaki og ööru kurteisishjali. DV-mynd GVA
- segir Finnur Ingólfsson viðskiptaráöherra
Lagt hefúr veriö fram frumvarp á
Alþingi, sljómarfrumvarp, um stofii-
un hlutafélags um Samábyrgð ís-
lands á fiskiskipum. í kjölfarið er
ætlunin að selja fyrirtækið bátaá-
byrgðarfelögum og útgerðarmönnum
sem hafa verið í viöskiptum hjá fyr-
irtækinu en felögin hafa um áratuga-
skeið deilt við ríkisvaldið mn eignar-
haldið á þeim. Kaupverðið er 190
milljónir króna en afkoma Samá-
byrgöarinnar hefúr verið góð undan-
fárin misseri. í frumvarpinu er gert
ráö fyrir því að hlutafélagiö taki til
starfa 1. júlí næstkomandi.
AthygÚ vekur aö ekki er farið að
verklagsreglum um útboð og sölu
ríkisfyrirtækja viö sölu fyrirtækis-
ins. „Það var einfaldlega pólitísk
ákvörðun að fara svona að. Við mun-
um nota söluhagnaöinn til þess að
fjármagna smíði á nýju varðskipi,“
sagði Finnur Ingólfsson
Að hans mati er salan farsæl lausn
á gömlu vandamáli, nefixilega deil-
unni á eignarhaldi á þessu tæplega
90 ára gamla fyrirtæki. „Bátaábyrgð-
arfelögin hafa í gegnum árin lagt
fram lögfræðilegar álitstgeröir um að
þær ættu Samábyrgöina. Ríkið hefúr
sömuleiðis fengið lögfræðiálit þar
sem segir að það sé eigandi fyrirtæk-
isins,“ sagði ráðherra. Meö kaup-
unum viðurkenna bátaábyrgðarfé-
lögin að ríkið sé réttur eigandi Sam-
ábyrgðarinnar.
Eins og áöur segir hijóðar kauptil-
boðið upp á 190 milljónir króna. Þaö
era útgerðarmenn sem hafa verið
tryggðir hjá fyrirtækinu og þau fiög-
ur bátaábyrgðarfélög sem eru starf-
andi hér á landi. Sveinn Hjörtur
Hjartarson er einn þeirra sem fara
fyrir tilboðshöfúm og segir hann að
þessir aðilar muni halda áfram að
einskorða sig við bátatryggingar.
„Þessi kaup era farsæl lausn á gömlu
vandamáli," sagði hann enn fremur.
Viðskiptaráðherra segir að afkoma
Samábyrgðarinnar hafi verið góð að
undanfómu en rekstrarumhverfi fyr-
irtækisins hefúr breyst nokkuð í
kjölfar samninganna um hið Evr-
ópska efiiahagssvæði. Áriö 1993 var
einkaréttur bátaábyrgðarfélaganna á
tryggingum á bátum sem era minni
en 100,49 rúmlestir afnuminn ásamt
undanþágu þessara félaga á greiöslu
á tekju- og eignaskatti. -JHÞ
Skýrsla um skattaeftirlit
Einfoldun og samhæfing nauösyn
- aðrir Norðurlandabúar fá skattskýrslumar útfylltar
Ríkisendurskoðun sendi frá sér í
gær skýrslu um skattaeftirlit á ís-
landi. Skýrslan er öðrum þræði unn-
in samhliöa samnorrænni könnun á
skattaeftirliti og virðist svo sem flest
þau vandamál sem skattaeftirlit
hrjáir hérlendis, mætti betrumbæta
með einfaldara framtali og samhæf-
ingu skattakerfisins. Er á það bent
að á öllum Norðurlöndum (Finnland
er imdanskiliö í skýrslunni) utan ís-
lands, fá einstaklingar skattaframtöl
sín fyrirfram útfyllt í samræmi við
upplýsingar skattayfirvalda úr mið-
lægum skrám. Sé talið að fúllnægj-
andi gögn fylgi skattframtölum,
fylgja einnig drög að álagningu opin-
berra gjalda. Telur Ríkisendurskoð-
un meira agaleysi í skattamálum
rikjandi hérlendis, og nefnir stofn-
unin í því sambandi að hlutfall áætl-
unarframtala er a.m.k. sjöfalt hærra
hér á landi en í Svíþjóð.
Ríkisendurskoðun bendir á aö
þjónusta við skattgreiðendur er ekki
jafiimikil á íslandi og i samanburð-
arlöndunum. Þá kemur fram að rík-
isskattstjóri afgreiðir aöeins þriðj-
ung kærumála til yfirskattanefiidar
á tilskildum tíma, meðan að yfir-
skattanefiid tekst aðeins að afgreiða
þriðjung mála sem til hennar berast
á tilskildum tima. -phh
Hvar var Týri?
Innkoma Valtýs Sigurbjarnar-
sonar í pólitíkina á Akureyri varð
ekki meö neinum bravör, hvað sem
síðar kann aö veröa. Sigfriður Þor-
steinsdóttir ákvað
nefhilega að berjast fyr-
ir 3. sæti listans og fór
svo að henni tókst að
sigra Valtý með einu
atkvæði þegar kosið
var milli þeirra. Það
skondna viö þetta var
að Valtýr mætti ekki
á fundinn þar sem atkvæöagreiðsl-
an fór fram en atkvæði hans heföi
nægt til að jafha metin við Sigfríöi.
Ef hann svo hefði náð að „plotta“
bara eitt atkvæði yfir kaffibolla fyrir
atkvæðagreiðsluna hefði hann unniö
og væri öraggur með sæti í bæjar-
stjóm. En svona er þetta og Sigfríður
sannaði aö gamla máltækiö „sú hlær
best sem síöast hlær“ er í fullu gildi.
Af Valtý er það hins vegar að segja
að hann var ekki bara felldur úr 3.
sætinu, heldur út af listanum og lýk-
ur hans pólitísku sögu hér að sinni...
Sigurður gegn VISA
Siguröur Lárusson kaupmaður,
sem kærði sjálfdæmi kreditkortafyr-
irtækjanna í því að ákveða sér þókn-
un frá kaupmönnum, er greinilega
ekki vinsælasti maður
innanbúðar hjá Visa-ís-
land. í nýlegu frétta-
bréfi fyrirtækisins,
VISA-póstinum, er
Sigxmður tekinn
hressilega fyrir og
hefur Sandkom frétt
aö hann ætli sér ekki
aö sitja undir því sem þar kemur
fram og jafiivel að höfða mál fyrir róg-
bm-ö og meiöyrði. Eftir að málflutn-
ingi var lokið í fyrmefhdu kærumáli
hittust þeir Siguröur og Einar S. Ein-
arsson, forstjóri VISA. Einar sagöi
viö Sigurö að nú væri hann búinn að
ragga bátnum. „Við eram báðir úr
sama skólanum og þú hefðir kannski
átt að lesa Samvinnusöguna aðeins
betur, söguna um það þegar Islenskir
bændur, kaupfélags- og samvinnu-
menn hrundu einokunarverslun
danskra kaupmanna," sagði Siguröur.
Eini borgarfulltrúinn
íbúasamtök Grafarvogs buðu þing-
mönnum Reykjavíkur til fúndar við
sig í Fjörgyn í síðustu viku. Fundar-
efnið var að sjálfsögðu hin sígilda
Gullinbrú. Friörik Han-
sen, formaður samtak-
anna, bauö þingmenn-
ina velkomna með því
að hella sér yfir þá og
kenna þeim um að
Grafarvogur væri að
verða þriðja flokks
hverfi. Geir H. Haar-
de setti á sig snúð og svaraði
fúllum hálsi fyrir hönd þingmanna
og kvað þá ekki vera hyski. Þing-
menn voru næstum allir mættir. Þa^
vakti hins vegar athygli að þó borg-
arfúlltrúum hefði ekki verið boðið
var þó einn mættur. Það var enginn
annar en Árni Sigfússon sem
skemmti sér konunglega meðan
skömmunum var ausið yfir þing-
menn. Enginn fulltrúi Reykjavíkur-
listans lét sjá sig...
Sigga ritstjóri
Útgáfan Fróði lætur ekki deigan
síga þótt heldur betur hafi slegið í
bakseglin hjá flaggskipinu Mannlífi
frá metsöludögunum er þeir Frankl-
' ín Steiner og Hrafii
jjökulsson seldu blað-
ið. Nú mun Magnús
Hreggviðsson, aðal-
eigandi útgáfunnar,
| vera að velta fyrir
sér að endurvekja
I Vikuna gömlu sem
I var einu sinni óhjá-
tí kvæmileg lesning á hverju heimili.
Hann er sagöur hafa augastað á rit-
| stjóra sem er engin önnur en þulan
| og dagskrárgerðarkonan Sigríður
|j Amardóttir...
I Umsjón Reynir Traustason
. Netfang: sandkorn @ff. is