Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1998, Side 21

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1998, Side 21
UV LAUGARDAGUR 14. MARS 1998 21 H//í strýkur kviðinn og segist meira að segja hafa fitnað. Aldrei bakslag Aðspurð hvort erfitt hafi verið að trúa því að þetta gengi svo vel sem raun hefur orðið segir Kolbrún að á meðan á lyfjameðferðinni stóð hafi hún hugsað í hverri skoðun að ef útkoman yrði slæm myndu þau bara takast á við það. Þau séu hins vegar þakklát fyrir að ekkert bakslag hafi komið allan tímann og þess vegna séu þau svo bjartsýn. Staðreyndin sé engu að síður sú að meinið sé ólæknandi. Læknamir bakki ekki með það. Egill segir konu sína hafa fylgt sér í gegnum allt ferlið. Hún hafi alltaf komið með hon- um til Reykjavíkur og verið honum ómetan- leg stoð. Hann segir samband þeirra hjóna hafa verið mjög gott áður en hann veiktist og það hafi ekkert breyst. Þau eru þakk- lát fyrir þá íbúð sem þau leigja af Krabba- meinsfélaginu á Rauð- arárstígnum. Þar hafi þau allt til alls og geti því notið þess að vera saman eins og fjöl- skylda. Þessar íbúðir séu ómetanlegar krabbameinsveiku fólki sem þarf að koma utan af landi. Álagið sé nóg þótt ekki þurfi það að búa inni á vinum og ættingj- um. Þama hafi þau húsnæði alger- lega út af fyrir sig og reyni að hafa heimilislífið eins eðlilegt og frekast er unnt. Bömin em að vísu í skóla á Akureyri. Lán að ég tryggði mig „Við heyrum í þeim daglega og fáum klögur frá þeim á víxl, rétt eins og við værum heima. Við fór- um svo norður um hverja helgi og þau hafa komið til okkar hingað á Rauðarárstiginn," segir Egill. Ferðirnar til borgarinnar em orðnar fjölmargar og fólk vinnur ekki við þessar aðstæður. Hvemig er hægt að halda þetta út fjárhags- lega? „Ástæðan fyrir þvi að við erum ekki í mjög vondum málum fjár- hagslega er sú að ég var slysa- og sjúkratryggður. Ég myndi ekki vilja hugsa þá hugsun til enda ef ég hefði ekki verið tryggður þvi þeir fjár- munir sem ég hef fengið þar hafa al- gerlega haldið okkur uppi. Það sem kemur frá Tryggingastofnun em smápeningar sem skipta litlu máli. Konan borgar farmiðann sinn sjálf í fluginu en ég fæ hann greiddan frá Tryggingastofnun. Það fyndna í þessu er þó að ég þarf að borga þús- und krónur af hverjum miða og þeim er alveg sama hvernig miða ég kaupi, hvort ég kaupi dýrasta far- gjaldið á um 14 þúsund krónur eða það ódýrasta sem er um helmingi ódýrara." Egill er ekki sáttur við samskipti sín við Tryggingastofium. Hann segir að í Reykjavík sé þetta svo mikið bákn að starfs- fólkinu virðist finnast það vera hlutverk sjúklinganna að kom- ast að því hverju þeir eigi rétt á. Geri þeir það ekki sé það þeirra sjálfra mál. Á Akur- eyri hafi hann mætt öðru viðmóti. Þar hcifi honum verið sagt hvað honum bæri og hvað hann ætti að fá. Þessi munur á milli staða finnst honum óeðlilegur. Bænin hjálpar „Ég hef alla tíö verið trúaður og finn mikinn styrk í bæninni. Vinir og ættingjar hafa beðið fyrir mér og það finnst mér gott. Ég er ekki í nokkrum vafa um að góðri heilsu minni í dag geti ég þakkað það að ég hef getað leitað til guðs,“ segir Egill Stefánsson, sem reiknar með að ljúka geislameðferð í bili eftir þrjár vikur. Hvað þá tekur við seg- ir hann tímann verða að leiða í ljós en með bjartsýnina, baráttuþrekið, umhyggju fjölskyldunnar og trúna á guð að vopni er vonandi að hann nái að sigrast á óvini sínum. -sv ( Lærdómnum verður að halda áfram þrátt fyrir allt og mamman segist vera strangur kennari. ir. Því miður eru þær bara fjórar og því þurfti t.a.m. að vísa 30 manns frá á síðasta ári. Börnin sakna vinanna „Mér hefði reynst þetta miklu erf- iðara ef ég hefði ekki getað haft bömin með mér og þau er sátt við að vera hvar sem er, svo fremi ég sé með.“ Jóhanna segir að bömin fái send verkefni úr skólanum í Eyjum og hún láti þau læra. Þrátt fyrir fjar- vem á hún ekki von á að börnin muni dragast aftur úr þótt þau þurfi að dvelja þessar vikur í Reykjavík meðan mamma er í geislunum. Og mamman viðurkennir að líklega sé hún frekar strangur kennari. „Börnin sakna vitaskuld vina sinna að heiman en þau hafa félags- skap hvort af öðru. Þau em dugleg í náminu og síðan reynum við að gera eitthvað saman, fara í laugam- ar eða slíkt.“ Jóhanna segir að fræðsla um krabbamein skipti mestu máli að sínu mati. Henni hafi t.d. verið mjög mikilvægt að fá að hitta konur sem höfðu fengið sams konar krabba- mein og sjá hversu vel þeim famað- ist þrátt fyrir það. „Mér var mjög fljótt sagt hversu miklar líkur væm á því að að ég fengi bata. Ég er þreytt eftir geisl- ana en að öðra leyti er ég mjög hress. Ég hef mikla ánægju af lífinu og mér hefur lærst að maður á að lifa á meðan maður lifir, hversu lengi sem það er, og njóta þess,“ seg- ir Jóhanna Finnbogadóttir og brosir breitt. -sv 49.900) ’ 59r3W,-s,s NSX-AV65 ■ Þessum hljómtækjum fylgja 5 hátalarar 3-Diska geislaspilari • Magnari 15-1-15 W RMS • SUPER T-BASSI • Hægt er að tengja myndbandstæki við stæðuna • Fyrirfram forritaður tónjafnari með ROCK- POP-JAZZ • Al leiðsögukerfi með Ijósum • 32 stöðva minni á útvarpi, klukka, timer og svefnrofi • Tengi fyrir aukabassahátalara (Super Woofer) • Tvöfalt segulband Fjarstýring • Segulvarðir hátalarar. LÆKKUN lOOOt- 3-Diska geislaspilari • DOLBY PRO-LOGIG Surround magnari 40+40 W RMS á framhátalara, 25 W RMS á miðjuhátalara, 25 W RMS á bakhátalara • 5 hátalarar fylgja • SUPER T-BASSI (3ja þrepa) • Hægt er að tengja myndbandstæki við stæðuna • KARAOKE hljóðkerfi með DIGITAL ECHO og sjálfvirkum radddeyfi Hægt er að tengja 2 hljóðnema við stæðuna • Fyrirfram forritaður tónjafnari með ROCK-POP-CLASSIC • Nýr fjöllita skjár • Al ieiðsögukerfi meö Ijósum 32 stöðva minni á útvarpi, klukka, timer og svefnrofi • Tengi fyrir aukabassahátalara (Super Woofer) • Jvöfalt auto reverse segulband • Fullkomin fjarstýring fyrir allar aðgerðir • D.S.P. „Digital signal processor" fullkomið surround hljómkerfi sem líkir eftir Disco-Hall-Live • Segulvarðir hátalarar. 1998 hljomtaekin fra aiwa cru kraftmikil, hljómsóð og nýstárleg í útliti. Tækin eru k hlaðin öllum tækninýjungum sem §1 völ er á. Komiö og kynnist i hljómtækjum í algjörum sérflokki. 38 •Sími 5531133 www.xnet.is/rb biíim Í,LlT: ReýKíávik: Heimskririglán Krihgluhni - HafnarfjSraur: Rafbúö Skúla -'GriridáVfkí HStölriöÉlþJöhOífta' Guðmundar - Keflavík: Sónar - Akranes: Hljómsýrmorgarnes: Kaupfélag Borgfirðinga - Blönduós: Kaupfélag Húnvetninga Hvamstangi: Rafeindaþjónusta Odds Sigurðssonar - Sauðárkrókur: Skagfirðingabúð - Búðardalur: Verslun Einars Stefánssonar Bolungarvik: Vélvirkinn - ísafjörður: Ljónið / Frummynd - Siglufjörður: Rafbær - Akureyri: Tölvutæki Bókval - Húsavík: Ómur Vopnafjörður: Verslunin Kauptún - Egilsstaðir: Rafeind - Neskaupsstaður: Tónspil Eskifjörður: Rafvirkinn - Seyðisfjörður: Turnbræður - Höfn: Rafeindaþjónusta BB - Hella: Gilsá - Selfoss: Radíórás - Þorlákshöfn: Rás - Vestmannaeyjar: Eyjaradló 3-Diska geislaspilan • Magnari 45+45 W RMS • SUPER T-BASSI (3ja þrepa) Hægt er að tengja myndbandstækr við stæðuna • KARAOKE hljóðkerfi með sjálfvirkum radddeyfi • Hægt er að tengja hljóðnema við stæðuna • Fyrirfram forritaður tónjafnari með ROCK-POP-CLASSIC • Nýr fjöllita skjár Al loiðsögukerfi meö Ijósum • 32 stöðva minni á útvarpi, klukka, timer og svefnrofi • Tengi fyrir aukabassahátalara (Super Woofer) • Tvöfalt auto reverse segulband • Fullkomin fjarstýring fyrir allar aðgerðir • Segulvarðir hátalarar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.