Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1998, Blaðsíða 27
LAUGARDAGUR 14. MARS 1998
27
im
- Jómundur Ólason, bóndi á Skarðshömrum í Borgarfirði,
tekst á við líf án hægri handar
Jómundur Ólason á Skarðs-
hömrum í Norðurárdal varð fyrir
hrikalegu slysi þann 17. september
síðastliðinn. Hann lenti með hægri
handlegg í rullubindivél með þeim
afleiðingum að hann missti hand-
legginn nánast við öxl. Hann
bjargaði lííi sínu með því aö brjóta
handlegginn af svo hann færi ekki
allur inn í vélina. Jómundur er nú
kominn með gervihandlegg og
tekst á ný við bústörfm með konu
sinni, Þórdísi Mjöll Reynisdóttur.
Vilhjálmur Guðjónsson, stoð-
tækjasmiður hjá Össuri hf., segir
að Jómundur sé einstakur. Það sé
mjög algengt að fólk, sem missir
útlim, lendi í miklum geðlægðum
en Jómundur hafi staðið allt af
sér, hann sé ótrúlega jákvæður og
bjartsýnn og það fleyti fólki yfir-
leitt mjög langt. Það má því segja
Stoðtækjasmiðir Össurar hf. segja að bjartsýni og jákvæðni Jomundar sé
aðdáunarverð og það fleyti honum langt.
DV-mynd E.ÓI.
að það hafi verið andleg hæð yfir
Borgarfirðinum það sem af er
vetri.
í janúar fékk Jómundur gervi-
handlegg. Hann gerir honum kleift
að halda um símtól, stýripinna og
þess háttar. Fyrir hálfum mánuði
fékk hann síðan kló á handlegginn
sem gerir honum kleift að stýra
dráttarvél og taka upp hluti.
Klónni stýrir Jómundur með axla-
hreyfingum og er hann nú þegar,
eftir aðeins tvær vikur, farinn að
geta beitt henni sér til gagns. Kló-
in er hönnuð af manni sem sjálfur
missti handlegg og var mjög óá-
nægður með þann gervihandlegg
sem hann fékk.
Jómundur er með verki í hand-
leggsstubbnum en sagði að þeir
vendust. Viihjálmur sagði að það
væri mjög algengt að fólk fengi
„draugaverki" eftir að hafa misst
útlimi.
í viðtali við DV í október sagöi Jó-
mundur meðal annars: „Ég nenni
bara ekki að hugsa um þetta, er að
hugsa um allt annað - framtíðina."
DV-mynd Brynjar Gauti
Jómundur er með gervihandlegg sem gerir honum kleift aö leysa af hendi mörg þeirra starfa sem hann sinnti áður.
Þaö er samt enginn hægöarleikur.
DV-mynd E.ÓI.
Jómundur segir að ekki sé auð-
velt að stunda búskapinn eftir
slysið. Hann segist geta notað
klóna við mjaltir en hann vilji
ekki taka þá áhættu því kýmar
gætu stigið á gervihandlegginn
eða sparkað í hann og þá væri
handleggsstubburinn í hættu.
„Það er alltaf þetta stóra EF...“
sagði Jómundur. -sm
N«*
FráL’ORÉAL.
Nýi hármaskarinn sem
Htar hárið nákvæmlega
þar sem þú vilt.
IHÍA: IIRÍMI AISICiAIRÍAi
L’ORÉAL býður nú upp á
nýjan hármaskara sem er
auðveldur í notkun, með
góðum bursta og fljótandi
áferð. Nú geturðu sett
ögrandi liti í hárið og
þvegið þá síðan úr í næsta
þvotti. Hármaskararnir
fást í átta litum, sem taka
sig vel út í hárinu þínu.
L'ORÉAL
PARiS
- því þú átt það skilið.
•fi-
á dag
alla ævi!
ÍSLENSKUR MJÓLKURIÐNAÐUR