Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1998, Síða 28
28
LAUGARDAGUR 14. MARS 1998
fréttaljós
Að kunna að fara með peninga
- gripið niður í fréttaskrif DV um Sverri Hermannsson bankastjóra
Sverrir Hermannsson bankastjóri
hefur lengi veriö með litríkari mönn-
um á opinberum vettvangi, bæði sem
alþingismaður og ráðherra Sjálfstæð-
isflokksins og nú hin síðustu ár sem
bankastjóri Landsbankans. Hann hef-
ur oft verið umdeildur enda iðulega
haft munninn fyrir neðan nefið og
ekki vanrækt að beita honum.
Þessa dagana beinast spjótin mjög
að Sverri fyrir meinta misnotkun
hans á aðstöðu sinni í stöðu banka-
stjóra, að hann hafl leigt sjálfum sér
og öðrum bankastjórum veiðileyfi í
Hrútafjarðará en veiðifélagið Bálkur,
sem sér um rekstur árinnar og sölu
veiðileyfa, er skráð á nafn eiginkonu
og sonar Sverris. Óljóst er hvort bank-
inn hefur boðið Sverri í veiði í ána
eins og öðrum bankastjórum og
Sverrir þannig haft tvöfaldan hagnað
af veiðinni en málið hefur valdið mik-
illi gremju hjá almenningi sem þykir
það lykta illilega af sérhagsmunapoti,
sukki og siðleysi. Spumingar hafa
jafnvel vaknað um hvort framferði
Sverris í málinu varði við lög og af
sjálfu leiðir að það mundi varða emb-
ættismissi.
I skoðanakönnun DV, sem birtist í
gær, var spurt hvort viðkomandi væri
fylgjandi eða andvígur því að Sverri
Hermannssyni, bankastjóra Lands-
bankans, yrði sagt upp starfi vegna
„laxveiðimálsins". Af þeim sem af-
stöðu tóku sögðust 64,3% vera fylgj-
andi brottvikningu og 35,7% voru
henni andvíg. Vissulega harður dóm-
ur alþýðunnar það.
Hitt er ljóst að þrátt fyrir mikinn
hita í málinu og að því er viröist
nokkuð augljósa málavexti þá má
ekki gleyma því að hvorki skýrsla
Ríkisendurskoðunar né álit banka-
ráðs hafa enn komið fram, né hefur
Sverrir sjálfur fengist til að tjá sig um
málið og því er of snemmt að kveða
upp endanlegan úrskurð í því.
Þeirri spumingu má hins vegar
kasta fram hvort Ríkisendurskoðun
sé óvilhallur aðili í málinu þar sem
hún hefur árum saman haft það hlut-
verk með höndum að yfirfara reikn-
inga bankans og að því er best er vit-
að ekki gert athugasemdir í málinu.
Hins vegar er eftirtektarvert að sam-
kvæmt heimildum DV hefur Ámi
Tómasson, aðalendurskoðandi bank-
ans, gert slíkar athugasemdir ítrekað
og varð það hugsanlega til þess að
bankastjóm Landsbankans mun hafa
ákveðið á síðasta ári að taka fyrir
þessi viðskipti við Sverri og fjöl-
skyldu hans.
Umdeildur frá byrjun
Feriil Sverris hjá Landsbankanum
hefur verið skrautlegur, jafhvel áður
en hann hóf störf hjá bankanum sem
einn stjómenda hans. Mikil átök urðu
um veitingu bankastjórastöðunnar
sem eymamerkt var Sjálfstæðis-
flokknum. Hermt var í fréttum að
Jónas Haralz bankastjóri vildi fá
Tryggva Pálsson, núverandi fram-
kvæmdastjóra íslandsbanka og þáver-
andi yfirmann fjármálasvið Lands-
bankans, sem eftirmann sinn og
starfsmenn bankans söfnuðu undir-
skriftum fyrir því að innanhússmað-
ur yrði ráðinn til starfans. Þegar
ganga átti frá ráðningu Sverris í árs-
lok 1986 reyndust skyndilega þrír
bankaráðsmenn af fimm vera honum
andsnúnir, þeirra á meðal Ámi Vil-
hjáimsson, annar fulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins í ráðinu. Samkomulag
Sverrir Hermannsson bankastjóri.
stjómarflokkanna var því 1 uppnámi
en á endanum var Ámi beygður og
hann sagði af sér í ráðinu. „Sverrir er
kandidat Sjálfstæðisflokksins," var
haft eftir Pétri Sigurðssyni, formanni
ráðsins og fulltrúa SjáÚstæðisflokks-
ins.
Ögurvík hf.
Laxveiðimál það sem nú er komið
upp virðist þannig vaxið að Sverrir
hafi ekki hirt um að fara mjög ná-
kvæmlega eftir „etikettunni". Sverrir
hefúr áður mátt sæta gagnrýni fyrir
slíkan sveigjanleika en rúmu ári eftir
að hann varð bankastjóri birtust frétt-
ir i fjölmiölum um að Sverri hefði
láðst að segja af sér stjómarfor-
mennsku og selja eignarhlut sinn í út-
gerðarfyrirtækinu Ögurvík hf. Þetta
þótti ekki góð latína enda andstætt
bankalögum, sem segja að bankastjór-
um sé óheimilt að sitja í stjóm stofn-
ana eða atvinnufyrirtækja utan bank-
ans eða taka þátt í atvinnurekstri sem
óháð er bankanum.
„Það virðist ljóst að Sverrir Her-
mannsson hefur ekki staðið við allar
formskyldur hvað varðar afsögn sina
sem stjómarformaður Ögurvíkur hf.
Hann hefur fengið bréf frá Bankaeftir-
litinu um að honum beri að ljúka því
fyrir 15. febrúar. Varðandi eignarhlut
Sverris í fyrirtækinu þá er það mál til
sérstakrar meðferðar. Þannig er að
það hefur aldrei reynt á þetta fyrr og
því verður að skoða það sérstaklega,"
var haft eftir Jóni Sigurðssyni, þáver-
andi viðskiptaráðherra, um máliö í
DV 28. janúar 1989.
Sverrir skýröi málið síðar, hann
hafði sagt af sér stjómarformennsku
vorið áður en því miður hefði honum
enn ekki tekist að selja þann 3-5%
hlut sem hann átti í fyrirtækinu. Það
var svo í júlí sama ár að fréttir birtust
um að Sverrir hefði selt hlut sinn í
Ögurvík hf., kaupandi var Olíufélagið
Skeljungur og undirritaði Indriði
Pálsson forstjóri samninginn.
Hús bankans í Ögri
Menn sem era áberandi í þjóðlífinu
mega oft sæta þvi að gerðir þeirra séu
gagnrýndar og stundum að því er
virðist að ósekju. Þannig komst Sverr-
ir í almenna umræðu og fréttir sum-
arið 1993 fyrir þá meintu sök að hafa
Innlent
fréttaljós
PállH.Hannesson
fengið bankann til að kaupa gamalt
íbúðarhús á æskuslóðum sinum, Ögri
við ísafjarðardjúp, fyrir 11 milljónir
króna. „Sverrir Hermannsson er
fæddur og uppalinn í Ögumesi, í
næsta nágrenni við Ögur. Ég býst við
að húsið hafi verið selt bankanum að
hans frumkvæði, án þess að ég viti
neitt um það,“ var haft
eftir Smára Haraldssyni,
bæjarstjóra á Isafirði.
Tveimur dögum síðar var
birt frétt þess efnis að
Sverrir hefði hvergi kom-
ið nærri kaupunum.
„Sverrir kom hvergi
nærri framgangi mála
milli Minjaverndar og
Landsbankans. Hann
vildi ekki skipta sér neitt
af þessu vegna tengsla
sinna við svæðið. Þetta
fór eftir formlegum leið-
um innan bankans," var
haft eftir Þorsteini Bergs-
syni hjá Minjavemd.
Bankinn heyrir
ekki
undir Ríkisend-
urskoðun
Sverrir Hermannsson
hefúr, eins og kunnugt er,
beðið um úttekt Rikisend-
urskoðunar á „meintmn
kaupum Landsbanka ís-
lands á veiðileyfum af
leigutaka Hrútafiarð-
arár“ og bíður nú banka-
ráð Landsbankans sem
og aðrir þeirrar úttektar.
„Ég minni á að ríkisend-
urskoðandi er jafnframt
endurskoðandi bankans,“
segir Sverrir 1 fréttatil-
kynningu um málið. Eitt-
hvað hafði Sverrir annað
álit á hlutverki Ríkisend-
urskoðunar í mai 1989.
Þá óskuðu níu þingmenn
Sjálfstæðismanna eftir
sérstakri skýrslu Ríkis-
endurskoðunar um tryggingar Lands-
bankans vegna skulda Sambands ís-
lenskra samvinnufélaga við bankann.
„Ég átta mig ekki á þessari ósk fyrr-
um félaga minna í Sjálfstæðisflokkn-
um. Bankinn heyrir ekki undir Ríkis-
endurskoðun þótt hann sé í ríkiseign.
Hann hefúr sína kjömu endurskoð-
endur og til er sérstakt bankaeftirlit
sem fylgist með bönkunum," sagði
Sverrir í samtali við DV. „Þetta er
bara misminni hjá Sverri," sagði Hall-
dór V. Sigurðsson, þáverandi ríkis-
endurskoðandi, og sagðist ekki vilja
tjá sig um málið frekar fyrr en þing-
menn hefðu fengið skýrslu stofnunar-
innar.
Hátekjumenn
borgi sjálfir
„Mín skoöun er sú að hátekjumenn
geti borgað fyrir sín laxveiðileyfi sjálf-
ir,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon al-
þingismaður þegar DV leitaði álits
hans á laxveiðimáli Landsbankans á
dögunum. Sverrir Hermannsson telst
sennilega til hátekjmnanna. I fréttum
um samanburð á launum bankastjóra
hefúr hann setið þar í fyrsta eða öðra
sæti. í ffétt DV um meðaltekjur ríkis-
forstjóra 1994 má lesa að Sverrir tróni
þar á toppnum með 876 þúsund króna
mánaðarlaun sem era nærri tvöfaldar
tekjur forsætisráðherra sama ár.
Næstur á lista var Stefán Pálsson,
bankastjóri Búnaðarbanka, og Hall-
dór Jónatansson, forstjóri Landsvirkj-
unar, í því þriðja. Meðalmánaðartekj-
ur ríkisforstjóranna þetta árið vora
487 þúsund krónur.
Lífeyrissjóðsmál Sverris, sem hefur
gegnt störfum alþingismanns og ráð-
herra, era líka í þokkalegu lagi enda
era honum tryggðar lífeyrisgreiðslur
á öllum þrennum vígstöðvum. Ljósi
var varpað á mismunandi lífeyris-
greiðslur manna í DV í fréttaskýringu
árið 1990. Þá var staðan sú að Dags-
brúnarverkamaður fengi 14.700 kr. á
mánuði í lífeyrisgreiðslur eftir 20 ára
starf. Alþingismaður fengi eftir sama
starfstíma 95.400 kr. „Hafi hann verið
ráðherra í 8 ár bætast 51 þúsund
krónur við og ljúki hann ferlinum
sem bankastjóri í 8 ár bætast 131 þús-
und krónur við, þ.e. 50 prósent af
bankastjóralaununum, og er þá lífeyr-
irinn orðinn 277 þúsund krónur á
mánuði. Hann hækkar sem sé í laun-
um um 15 þúsund krónur á mánuði
við að láta af störfum sem banka-
stjóri, hafi ferillinn verið alþingis-
maður, ráðherra og bankastjóri."
í febrúar 1996 mátti lesa í DV að
Sverrir Hermannsson fengi þegar
greiddar 140 þúsund krónrn- á mánuði
í lífeyrissjóðsgreiðslur, þó svo hann
væri í fullu starfi og á fúllum launum
sem bankastjóri Landsbankans.
Lífreynslusaga?
Þó svo hér hafi rétt verið gripið nið-
ur í örfáa þætti sem fréttnæmir hafa
þótt af Sverri Hermannssyni 1 gegn-
um árin er auövitað flest ósagt. Sverr-
ir hefur verið bankastjóri á erfiðu
tímabili fyrir bankann sem hefur tap-
að milljörðum i afskrifúðum lánum á
síðasta áratug og á endanum þurfti
ríkið að hlaupa undir bagga.
Kjartan Gunnarsson minntist þessa
í ræðu á aðalfundi bankans 6. mars sl.
„Minnisstæðast frá þessum tíma er
fundur endurskoðenda bankans og
rikisendurskoðanda með mér í febrú-
ar 1993 þegar þeir greindu mér frá því
að ekki mundi reynast unnt að gera
Landsbankann upp fyrir árið 1992
nema með a.m.k. 2-3 milljarða tapi og
við það mundi bankinn fara niður fyr-
ir öll mörk um eigið fé.“ En eins og
Kjartan sagði brást ríkisstjómin „vel
og rösklega við málinu og undir for-
ystu þáverandi og núverandi forsætis-
ráðherra vora afgreiddar á Alþingi
nauðsynlegar heimildir til handa
Landsbanka íslands."
LÍÚ fékk Sverri til að flytja ræðu á
aðalfundi sínum í maí 1994. Efnið var
hvort vænta mætti góðæriskafla
næsta áratug í banka- og flármálum
og hvemig íslendingar myndu þola
það. Hvað sem svo má að öðra leyti
um Sverri segja þá er ljóst að hann
hefúr hæfileika til að koma mönnum
á óvart og liggur ekki á skoðunum
sínum. IDV mátti lesa: „Sverrir sagði
mikla óráðsíu ríkja í fjármálum Is-
lendinga, jafnt fyrirtækja sem ein-
staklinga, sem m.a. mætti skýra með
kunningsskap, fyrirgreiðslu og at-
kvæðakaupum stjórnmálamanna.
Hann sagði byltingu yfirvofandi þegar
verið væri að mala þjóðarauðinn und-
ir örfáa menn og skaut væntanlega
þar með á útgerðarkóngana í landinu.
Sverrir sagði að stanslaust góðæri
gæti rikt hér á landi „ef menn kynnu
bara að fara með peninga." Kristján
Ragnarsson, formaður LÍU, var svo
inntur álits á ræðu Sverris. „Ég sagð-
ist hafa skilið þessa ræðu sem líf-
reynslusögu bankastjórans, sem al-
þingismanns, „kommísars" og ráð-
herra,“ var svar Kristjáns.
IBM notendaráðstefna Hótel Ork 23. og 24. mars
iílss’ásimf sss5 ksifmi swww.sifSssirp.i
iv i á s k í p 1 i Wánari upplýsingar á Hýherjavefnum og hjá Onsari: omarý/ nyherjí.is
NÝHERJI