Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1998, Page 37
J>V LAUGARDAGUR 14. MARS 1998
V
Ik
49
r
Sigurður Magnússon sýnir í Asmundarsal, listmálari með óvenjulegan feril:
Danssmiðja Hermanns Ragnars og Dansskóli Auðar Haralds:
Danssmiðja Her-
manns Ragnars og
Dansskóli Auðar Har-
alds efna til veglegrar
innanskóladanskeppni
á Broadway, Hótel ís-
. landi, á morgun,
l simnudaginn 15. mars.
Keppt verður í sam-
kvæmisdönsum, kán-
trílínudönsum og suð-
uramerískum dönsum.
Innanskólakeppnin
er árlegur viðburður
þar sem ungum og
öldnum nemendum
| skólanna gefst tæki-
færi til að spreyta sig á
dansgólfinu. Nú sem
I endranær stefnir í
góða þátttöku.
Lifandi tónlist
Unnur Arngrímsdóttir danskennari með verðlaunin sem hún mun afhenda á morgun. Á
boröinu eru Silfurskórnir, verölaun fyrir bestan fótaburð, og Unnur heldur á
Hermannsbikarnum, sem afhentur er fyrir bestan árangur í keppninni. DV-mynd Pjetur
Búist er við harðri
keppni í samkvæmis-
dönsunum en þar mun
í fyrsta sinn á íslandi
. vera dansað undir lif-
andi tónlist. Hin nýja
hljómsveit, Svartur ís,
| sem skipuð er þunga-
vigtarliði tónlistar-
manna, mun sjá um
svífandi suðuramer-
íska sveiflu.
Keppni í línudansi
er nú haldin í annað
sinn, samhliða innan-
skólakeppninni. Víst
er að keppnin verður
hörð og spennandi því
| mikill metnaður og
| áhugi er ríkjandi með-
al þátttakenda sem og
annars áhugafólks um
þessa skemmtilegu
dansa.
Mörg af bestu
danspörum landsins verða á
Broaddway á morgim og etja
kappi við hvert annað. Því er
óhætt að lofa ánægjulegri
skemmtun fyrir aUa fjölskylduna.
Keppnirnar hefjast kl. 14 og húsið
verður opnað klukkustund áður.
Miðaverð er 500 kr en fritt fyrir 4
ára og yngri.
Vegleg danskeppni
á Broadway
\
\
\
\
\
\
\
Fyrsta sýningin heima
Sigurður Magnússon listmálari
opnar málverkasýningu í Ásmund-
arsai, Listasafni ASÍ, í dag, laugar-
dag. Sýnd verða á annan tug mál-
verka. Þetta er fyrsta einkasýning
Sigurðar hér á landi en áður hefur
hann haldið tvær einkasýningar í
London Galerie Vermillon og sendi-
ráði Islands þar í borg. Einnig voru
verk hans kynnt sl. sumar í The
Main Street Gallery á Nantuctet Is-
land í Bandaríkjunum og fyrirhug-
uð er önnur sýning hans þar í maí
nk. Auk þessa hefur Sigurður tekið
þátt í samsýningum, bæði hér
heima og erlendis.
Sigurður lauk prófi frá Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands árið
1991 og hélt til framhaldsnáms í
Englandi tveimur árum siðar. Þar
lauk hann prófi frá Goldsmith’s
College, University of London árið
1994 og árið 1996 M.A. gráðu í mál-
aralist frá Central St. Martins Col-
lege of Art and Design, London
Institute. Sigurður fluttist heim til
íslands fyrir rúmu ári og hefur
Sigurður Magnússon.
helgað sig málaralistinni. Ferill Sig-
urðar er um margt óvenjulegur.
Hann lauk sveinsprófi í rafvéla-
virkjun árið 1969 og um miðjan átt-
unda áratuginn stofnaði hann
ásamt fleirum Framleiðslusam-
vinnufélag iðnaðarmanna (Rafafl-
Stálafl), og var í forystu fyrir þeim
rekstri næstu 13 árin. Síðan rak
Sigurður um árabil ísvör-bygging-
arefni, heildsölufyrirtæki með
skipastál og byggingarvörur.
Einnig var hann virkur i félagsmál-
um og stjómmálum á þessum ámm
og gegndi ýmsum trúnaðarstörfum
á því sviði fyrir Alþýðubandalagið.
Hann settist síðan á skólabekk í
MHÍ, tæplega fertugur að aldri, eins
og fyrr er getið.
Sýningin í Ásmundarsal er opin
alla daga nema mánudaga og stend-
ur til 28. mars.
Far, eitt málverka Sigurðar á sýn-
ingunni, málað á síðasta ári. Sýnd
verða á annan tug málverka.
Barðshyrna, fjallið myndarlega sem skiptir Fljótunum í tvennt. I fjallinu
var haldið fyrsta opinbera skíðamótið hér á landi, að því er taliö er, áriö
1905. DV-mynd ÞÁ
Almenningsskíða-
ganga í Fljótum
- tveir sænskir göngugarpar boða komu sína
DV, Sauðárkróki:_________________
Það verður mikið að gerast í
Fljótum í Skagafirði næstkomandi
laugardag, 21. mars, en þá ætlar
Skiðafélag Fljótamanna að gangast
fyrir almenningsskíðagöngu. Boðið
verður upp á 5 og 10 kílómetra vega-
lengdir og þeir sem treysta sér til
geta gengið um 50 kílómetra og
verða ekki stöðvaðir í þeim áform-
um. Sú vegalengd verður í boði fyr-
ir hörðustu keppnismennina og hef-
ur ekki áður farið fram göngu-
keppni á svo langri vegalengd hér á
landi.
Meðal annarra hafa boðað þátt-
töku sína í þessa fyrstu opinberu
Fljótagöngu tveir sænskir
göngugarpar sem státa af mjög góð-
um árangri í Vasagöngunni og fleiri
stórkeppnum af því taginu.
Fyrsta mótið 1905
Skíðaíþróttin á sér ríka hefð í
Fljótum, enda snjóþung sveit og
skíðin því helsta farartæki Fljóta-
manna um langan aldur. Brautryðj-
endur skíðaíþróttarinnar i Fljótum
voru Einar Baldvin Guðmundsson,
bóndi á Hraunum, og séra Jón-
mundur Halldórsson, prestur á
Barði. Sagt er að eitt sinn er stórt
og mikið eikartré rak á Hraunsmöl-
ina hafi Einar Baldvin látið smíða
úr því 300 pör af skíðum sem hann
gaf Fljótamönnum. Séra Jónmund-
ur á Barði efndi tU fyrstu skíða-
keppninnar í Fljótum, sem talin er
sú fyrsta á íslandi, i Barðshyrnu
árið 1905.
Áætlað er að ef veður og færi
leyfir muni fimmtíu kilómetra
brautin liggja milli endabæja í
Austur-Fljótum, Hrauna og Þrasa-
staða í Stíflu og í lokin mun braut-
in sveigja með fram Barðshyrnu
og endamark verða við Barðslaug,
en veitingar að lokinni göngimni
verða í Sólgarðaskóla. Það mun
einmitt hafa verið á þeim slóðum
sem brautin liggur um sem þeir
Einar Baldvin á Hraunum og Jón-
mundur á Barði iðkuðu sína íþrótt
á sínum tíma.
Skráning í gönguna er hjá Þór-
halli í síma 453 5757 á Sauðárkróki
eða hjá Trausta í sima 467 1030 í
Fljótum. -ÞÁ
(Wtyndlist
v