Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1998, Page 42
54
LAUGARDAGUR 14. MARS 1998
1
Söluskattinn til baka
Pólverjar hafa samþykkt lög
sem heimila ferðamönnum að
fá endurgreiddan söluskatt
þegar þeir yfirgefa landið. í
| Póllandi er söluskattur á flest-
> um vörum 22% þannig að
ferðamenn eru að bera umtals-
Fornleifafræðingar í Róm
duttu í lukkupottinn á dögun-
um. Það var reyndar fyrir ein-
skæra tilviljun að þeir rákust
á 2000 ára gamla lágmynd í
einum af mörgum göngum sem
liggja að hinu fræga baðhúsi
ÍTrajanusar í miðborg Rómar.
Málverkið sýnir Rómaborg
' ‘ eins og hún kom listamannin-
Ium fyrir sjónir fyrir tvö þús-
und árum.
Glæsileiki á ný
Penn-lestarstöðin í New
York mun innan skamms
verða flutt úr neðanjarðar-
húsakynnum sínum og upp á
götuna fyrir ofan. Uppruna-
lega Penn-stöðin var byggð
áriö 1910 í glæsilegum róm-
verskum stíl og þótti stórkost-
legt mannvirki. Húsið var
hins vegar rifíð árið 1963 og
Ísíðan þá hafa lestarfarþegar
verið boðnir velkomnir neðan-
jarðar.
Nýja Pennstöðin verður í
húsi pósthúss New York-borg-
ar sem er byggt í sama stíl og
hin horfna stöö.
Súrrealismi í Briissel
Flestir sem heimsækja
Brússel eru þangað komnir í
viðskiptaerindum. Á næst-
unni kann þetta að breytast en
brátt verður opnuð sýning á
verkum belgíska súrrealistans
René Magritte í Konunglega
listasafninu. Sýningin er mik-
il að vöxtum og telst til merk-
isviðburða í Brússel á þessu
I árL
Neðansjávarbrúðkaup
Brúðkaupsdagurinn er einn
| merkilegasti dagur í lífi flestra
hjóna. Allt er lagt undir til að
gera daginn sem eftirminni-
legastan. Skrýtnar uppákomur
á brúðkaupsdaginn eru svo
sem ekkert nýjar af nálinni en
nú kvað vera í tísku að gifta
sig neðansjávar á Bahamaeyj-
um. Það fylgir hins vegar sög-
unni að hjónaefnin þurfa
ásamt öðrum venjulegum und-
• irbúningi að sækja námskeið í
köfun. Hvað brúðkaupsgestina
varðar þá er þeim, sem það
kunna, frjálst að kafa en hin-
um býðst að sitja í þægilegum
kafbát og fylgjast með athöfn-
inni þaðan. Það er víst ekki öll
vitleysan eins ...
B____________
wmmmmM■—bmí
Islantilla á Spáni er einn vinsælasti áfangastaöur íslenskra golfáhugamanna. Hér sést hluti vallarins og glæsilegt klúbbhúsiö í bakgrunni.
Goif erlendis nýtur vaxandi vinsælda:
Lengir sumarið í annan endann
Golflþróttin hefúr sótt mjög í sig Urvai-Utsýn munu einnig bjóða ferð
veðrið síðustu ár en þrátt fyrir að hér
á landi séu prýðisgolfvellir hafa hóp-
ferðir á erlenda golfvelli færst mjög í
vöxt undanfarin misseri. Ástæðan er
aðailega sú að sumarið hér á landi er
fremur stutt og með þessum ferð-
um tekst kylfingum að lengja /
leiktímann nokkuð í annan
endann.
Páskaferð til
Portúgals
Hjá Úrval-Útsýn
starfar golfdeild
sem sérhæflr sig í
hópferðum á er-
lenda golfvelli en
sér einnig um að
skipuleggja ferðir
fyrir einstaklinga.
Peter Salmon golf-
fararstjóri segir
mikinn vöxt i þessum
ferðum og að ferða-
skrifstofan anni tæpast
eftirspurn. „Við verðum
með vorferðir til
Albufeira í Portú-
gal en þar eru að-
stæður mjög
ákjósanlegar. Þar
verður leikið á
fimm golfvöllum
svo fjölbreytnin
er mikil. Þá er
mikill kostur að
allir vellimir eru
í innan við
fimmtán mínútna fjarlægð ffá hótel-
inu. Það verður 10 daga páskaferð og
svo tvær .níu daga ferðir seinna í apr-
0. í þessum ferðum eru innifaldir niu
golfhringir þannig að fólk ætti að geta
leikið nægju sína,“ segir Peter.
Auk þess efnir ferðaskrifstofan til
byijenda- og háforgjafarferðar á þessar
slóðir þann 14. apríl. Hámarksfjöldi
þátttakenda er 16 manns og kennsluna
mun annast Magnús Birgisson golf-
kennari.
á annan áfangastað í Portúgal en það
er Vilar do Golf sem þykir ágætur.
„Við erum að byrja með þennan stað
aftur vegna
m i k -
,-3
Golfvöllurinn Vilamoura 2 meö bæ-
inn Albufeira í baksýn.
illar
eftirspurn-
ar en það er frá-
bært að spila golf
á þessum stað.
Vellirnir eru
tveir, báðir skóg-
arvellir, og státa
af afar fjölbreyttu
landslagi.
til Islantilla og svo verður örugglega
áfr_am,“ segir Petef.
í Islantilla er ekki nema tveggja
minútna akstur á golfvöllinn sem þyk-
ir afar spennandi. Völlurinn er 27 hol-
ur og er þekktur fyrir vel staðsettar
vatnshindranir og ótrúlegan halla á
nokkrum brautum. Hann þykir þó
venjast vel og vera skemmtilegur yfir-
, ferðar. Þrjár vorferðir verða til
Islantilla og þar af ein páskaferð.
Þá verður efnt til sérstakrar
ferðar fyrir 60 ára og eldri sem
tilheyra klúbbi sem kallar sig
Úntalsfólk.
Útakmarkað golf
Golfferð til Skotlands er nýj-
ung hjá Úrval-Útsýn og segir
Peter mikla
eftirvænt-
ingu ríkja
varðandi ferð-
ir þangað en
efnt verður til
tveggja ferða;
þann 25. apríl og 2.
i nk.
Farþegamir munu
dvelja á eyjunni Islay
sem er rómuð fyrir
náttúru- og söguminj-
ar. Gist verður á hót-
eli sem var reist fyrir
250 árum. Það er fleira fomt á eyjunni
því golfvöllurinn, sem leikið verður á,
er rúmlega hundrað ára, gerður árið
1891. „Þetta er einstakur staður og
minnir kannski svolítið á ísland enda
er ffemur rólegt svo ég mæli ekki með
þessum stað við þá sem vilja sletta ær-
lega úr klaufunum. Þetta er hins vegar
kjörlendi þeirra sem vilja spila golf ffá
morgni til kvölds því farþegum er
heimflt að leika eins mikið og þeir
kjósa án aukagjalds. Þá er gott að
slappa af þama og njóta skoskrar
menningar á kvöldin,“ segir Peter.
Glæsigolf á frlandi
Samvinnuferðir-Landsýn bjóða
einnig hópferðir í golf á vori komanda.
í tilefhi 20 ára afmælis ferðaskrifstof-
unnar verður efnt til helgarferðar í lok
þessa mánaðar. Þá er förinni heitið til
Dyflinnar þar sem leikið verður á St.
Margaret og Dmidls Glen golfvellin-
um. Mikið verður um dýrðir í þessari
ferð og tekur
írska ferða-
málaráðið
þátt í herleg-
heitunum.
Fararstjóri
verður Sig-
urður Pét-
ursson.
Golfásól-
Vilar do Golf er í 20 kílómetra fjar-
lægö frá landamærum Portúgals og
Spánar.
Spánn stendur upp úr
Sá staður sem hefur verið hvað vin-
sælastur meðal fslenskra kylftnga er
þó að mati Peters Islantilla á Spáni.
„Þetta er nýtt ferðamannasvæði sem
er enn í mótun. Það gerir það að verk-
um að verðlagið er afar hagstætt mið-
að við gæði. Það er enginn vafl að
Islantilla er á góðri leið með að verða
fyrirtaks ferðamannastaður. Síðastlið-
in tvö ár höfum við sent flesta kylfinga
Fyrir þá sem
vilja sameina
sólarlanda- og golfferð bjóða Sam-
vinnuferðir-Landsýn 13 daga ferð tfl
sólskinseyjarinnar Mallorca. Þar verð-
ur leikið á þremur golfvöllum sem all-
ir era 18 holur. Skipulagðar ferðir
verða sex daga ferðarinnar en hina
dagana getur fólk slappað af og spókað
sig á ströndinni en gist verður í
strandbænum Cala d’Or.
Aftur í haust
Þessi völlur kallast Pine Cliffs og er
á Albufeira-svæöinu í Portúgal.
loftið hreint og friskandi. Umhverfið
Það er ljóst að íslenskir golfáhuga-
menn hafa úr mörgu spennandi að
velja þegar vorferðir ferðaskrifstof-
anna eru skoðaðar. Ekki er liklegt að
efnt verði aftur til slíkra hópferða fyrr
en á hausti komanda. -aþ
Snjóhótel í Svíþjóð:
Kaldar nætur
Það hljómar kuldalega en snjóhótelið
í Svíþjóð hefur verið staðreynd um
nokkurra ára skeið. Hótelið er í þorpinu
Jukkasjarvi sem er 200 kílómetra norð-
ur af heimskautsbaug.
Það er mikið verk að reisa hótelið og
hefst bygging þess að jafnaði í október
og tekur um sex vikur.
Hótelið er enda engin smásmíð og
telst nú vera um 4000 fermetrar.
Snjóhótelið er jafhan kynnt sem æv-
intýraveröld og er gestum lofað að þeir
muni upplifa köldustu, eða að minnsta
kosti kuldalegustu, nótt ævinnar. Þrátt
fyrir kuldann streyma ferðamenn til
Jukkasjárvi til þess að prófa þessa ein-
stöku gistingu en almennt er þjónustan
á hótelinu sambærUeg við hótel sem
byggð era úr varanlegri efnum. Það
væsir svo sem ekki um gestina sem sofa
í hlýjum heimskautasvefnpokum og
vakna endurnærðir í köldu en hreinu
lofti.
Það era að verða síðustu forvöð að
gista á hótelinu í vetur en i aprfl byrjar
það venjulega að bráðna og er hefllum
horfið um mitt sumar. Reuter