Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1998, Page 56
bridge
LAUGARDAGUR 14. MARS 1998
\ 68
Aðalsveitakeppni Bridgefélags Reykjavíkur:
Sveit Málningar ehf. sigraði naumlega
Fyrir stuttu lauk aðalsvei-
takeppni Bridgefélags Reykjavíkur
og sigraði sveit Málningar ehf.
naumlega eftir harða keppni við
sveit Strengs. í sveit Málningar ehf.
spiluðu Baldvin Valdimarsson,
Hjálmtýr Baldursson, Eiríkur
Hjaltason, Hjalti Elíasson og Einar
Jónsson en sveit Strengs var skipuð
Hrannari Erlingssyni, Júlíusi Sig-
urjónssyni, Jónasi P. Erlingssyni,
Steinari Jónssyni og Rúnari Magn-
ússyni.
Umsjón
Feriil Málningar ehf. á toppinn
var ekki þrautalaus, hún vann sveit
Stillingar hf. í undanúrslitum með 2
impum og síðan úrslitaleikinn með
öðrum 2 impum. Hinn undanúr-
m slitaleikinn vann sveit Strengs með
108 impum gegn 70 en andstæðing-
arnir voru sveit Granda hf.
Þegar svo mjóu munar má segja
skák_
að hvert einasta spil sé úrslitaspil.
Við skulum skoða eitt örlagaríkt
spil frá úrslitaleiknum.
N/A-V
* D862
»972
4- D54
4 K65
4 ÁG4
»-
♦ G1083
4 ÁD9873
4 K9
» ÁKDG54
4 K976
4 10
í lokaða salnum sátu n-s Steinar
Jónsson og Jónas P. Erlingsson en
a-v Hjálmtýr Baldursson og Baldvin
Valdimarsson. Þar gengu sagnir á
þessa leið:
Norður Austur Suður Vestur
pass pass 14 14*
dobl pass 4 » allir
pass
Það má segja að eina vandamál
sagnhafa sé að fá tvo slagi á tígul og
Jónas var ekki í neinum vandræð-
um með það. Eftir tígulgosa útspil
Baldvins lét Jónas lítið úr blindum,
fékk slaginn á kóng, tók trompin og
spilaði tígli að blindum og lét lítið.
Austur drap á ás og spilið var unn-
ið. Það voru 420 til n-s.
Við hitt borðið sátu n-s feðgarnir
Hjalti Elíasson og Eiríkur Hjaltason
en a-v Hrannar Erlingsson og Júlíus
Sigurjónsson. Eiríkur fór í veiðiferð
og fékk dágóðan afla:
Norður Austur Suður Vestur
pass pass 4 » dobl
pass 4 4 dobl allir
pass
Þessi samningur fékk þá refsingu
sem hann átti skilið. Eiríkur spilaði
út hjartaás, trompað í blindum,
tigulgosa svínað og Eiríkur fékk á
kóng. Þá kom hjartakóngur, tromp-
aður í blindum, tígull á ás og lauf-
drottningu svínað. Hjalti drap á
kóng og trompaði út. Þá kom laufás
og Eiríkur trompaði. Hrannar fékk
síðan tvo slagi á tromp i viðbót. Það
voru sex slagir. Fjórir niður doblað-
ir og 1100 til n-s. Það er ekki gott hjá
vestri að lofa makker fjórlit í spaða
og hengja hann síðan í 4-3 samleg-
unni. Auðvitað á hann að segja
fimm lauf sem eru aðeins einn nið-
ur með nákvæmri spilamennsku.
Hefði hann gert það væri hann
meistari Bridgefélagsins, eða
þannig.
Þegar svo mjóu munar eru eflaust
fleiri spil sem voru jafn þýðingar-
mikil.
Baldvin Valdimars-
son, fyrirliði sveitar
Málningar ehf.
Þekktir stórmeistarar tefla á Reykjavíkurskákmátinu
- sveit Taflfálags Reykjavíkur sigraði í íslandsflugsdeildinni
Átjánda Reykjavíkurskákmótið
hófst á þriðjudaginn í Faxafeni 12,
húsakynnum Taflfélags Reykjavík-
ur, sem stendur fyrir mótshaldinu.
Á mótinu tefla 66 keppendur frá fjöl-
mörgum löndum. Nákvæmlega
helmingur keppenda er erlendur,
þar af eru margir þekktir stórmeist-
arar. Alls verða tefldar 9 umferðir
og er teflt daglega - lokaumferðin á
miðvikudag.
Stigahæstur keppenda er stór-
meistarinn kunni Ivan Sokolov frá
Bosníu, næstur kemur Englending-
urinn Tony Miles og þriðji er Dan-
inn Curt Hansen. Aðra má fræga
■ telja bandarísku stórmeistarana
Nick de Firmian og Larry Christi-
ansen, Norðmennina Simen Ag-
destein, Rune Djurhuss og Einar
Gausel, þýska stórmeistarann Stef-
an Kindermann, Erling Mortensen,
Danmörku, Stuart Conquest,
Englandi, Jonny Hector hinn
sænska og finnska stórmeistarann
Heikki Westerinen. Þrír íslenskir
stórmeistarar fara fyrir heimavarn-
arliðinu: Helgi Ólafsson, Hannes
Hlífar Stefánsson og Þröstur Þór-
hallsson. Ungir og efnilegir íslensk-
ir skákmenn setja einnig sterkan
svip á mótið og verður gaman að
fylgjast með þeim í baráttunni við
meistarana þekktu.
í fyrstu umferðunum urðu þegar
nokkur óvænt úrslit. Skák Braga
Halldórssonar og Tony Miles lauk
t.a.m. með jafntefli en þar slapp
enski stórmeistarinn með skrekk-
inn - Bragi missti hann í endatafli,
eftir að hafa teflt meistaralega og
náð fram vinningsstöðu. Áskell Öm
Kárason gerði jafntefli við Curt
Hansen, Arnar E. Gunnarsson við
Erling Mortensen, Björn Þorfmns-
son við Stuart Conquest og Tómas
Björnsson við Stefan Kindermann.
Taflfélag Reykjavíkur hefur nú
selt hluta af húsnæðinu við Faxafen
og er því heldur þrengra um kepp-
endur en áður. Aðstaða fyrir áhorf-
endur er þó góð og eru skákir á
efstu borðunum sýndar á sýningart-
öflum. Áhorfendur eru velkomnir á
mótsstað og er aðgangur ókeypis.
SveitTR hélt forystunni
Sveit Taflfélagsins Hellis gerði
sér lítið fyrir og lagði lið Taflfélags
Reykjavíkur að velli með 5 vinning-
um gegn 3 í deildakeppni Skáksam-
bands íslands - íslandsflugsdeild-
inni - um helgina. Þessi sigur Hell-
ismanna nægði þó ekki til þess að
slá vopnin úr höndum TR. Þrátt fyr-
ir ósigurinn hafði TR örugga for-
ystu í keppninni og uröu lyktir þær
að 5 vinningar skildu sveitirnar.
Samanlagður vinningafjöldi réð úr-
slitum um sigurinn og varð sveit
Hellis því að gera sér 2. sætið að
góðu, þrátt fyrir að hafa borið sigur-
orð af öllum andstæðingum sínum.
Úrslitin í l.deild urðu þessi:
1. Taflfélag Reykjavikur 44,5 v.
2. Taflfélagið Heílir 39,5 v.
3. Taflfélag Reykjavíkur, b-sve. 28,5 v.
4. Taflfélag Hólmavíkur 27,5 v.
5. Skákfélag Akureyrar 25 v.
6. Taflfélag Kópavogs 22,5 v.
7. Skákfélag Hafnarfjarðar 19 v.
8. Taflfélag Garðabæjar 17,5 v.
Taflfélag Garðabæjar feUur niður
í 2. deild að ári en b-sveit Taflfélags-
ins Hellis flyst upp í 1. deild.
í 2. deild varð niðurstaðan þessi:
1. Hellir, b-sveit 31 v.
2. Tafldeild Bolungarvíkur 26,5 v.
3. TR d-sveit 25 v.
4. Skákfélag Akureyrar, b-sveit 20 v.
5. TR, c-sveit 19 v.
6. UMSE 18 v.
7. Taflfélag Akraness 17 v.
8. Skákfélag Akureyrar, c-sveit 12 v.
í 3. deild sigraði Skákfélag
Reykjanesbæjar með 31 v., en Skák-
félag Austurlands og Skákfélag Sel-
foss og nágrennis fengu 26 v., og
urðu í 2. - 3. sæti. C-sveit Hellis fékk
22 v., UMSE, b-sveit 18,5 v., Taflfélag
Vestmannaeyja 17 v., Taflfélag
Garðabæjar, b-sveit 16,5 v. og TR, g-
sveit 14 v.
Taflfélag Seltjarnamess sigraði i
4. deild með 11,5 v„ e-sveit Hellis
varð í 2. sæti og e-sveit TR í 3. sæti.
Hraðskákmóti íslands á sunnu-
daginn lauk með sigri Þrastar Þór-
hallssonar.
Lítum á skemmtilega skák úr
glímu Reykjavíkurfélaganna Hellis
og TR, þar sem kunnuglegt stef
kemur þráfaldlega við sögu.
Hvítt: Kristján Eðvarðsson
(Hellir)
Svart: Bergsteinn Einarsson
(TR)
Katalónsk byrjun.
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. g3 d5 4. Bg2
b6 5. Da4+ c6 6. Rf3 Be7 7. Re5
Bb7 8. Rc3 0-0 9. 0-0 Rfd7 10.
Rxd7 Rxd7 11. e4 dxe4 12. Rxe4
Rf6 13. Hdl Rxe4 14. Bxe4 Dd7 15.
c5 bxc5 16. dxc5 Dc7 17. Dc2 f5 18.
Bg2 e5 19. Dc4+ Kh8 20. De6(?)
Had8 (?)
Ekki ber á öðru en 20. - Bxc5 sé
mögulegt. Svarið við 21. Hd7 yrði 21.
- Bxf2+! 22. Kxf2 Db6+ og nú liggur
Ba6+ eða Dxb2+ í loftinu.
21. Be3 f4 22. gxf4 exf4 23. Bd4
Bf6?
Eftir 23. - f3 hefur svartur e.t.v.
óttast 24. Be5 en þá má bjarga sér úr
klípunni með 24. - Hxdl+ 25. Hxdl
Bc8 með óljósu tafli. Hinn gerði leik-
ur virðist „traustari" en hvítur nær
að færa sér hann meistaralega í nyt.
24. Bxf6 Hxf6
25. De5! Dc8
Ekki má sterta við drottningunni
- ef 25. - Dxe5 26. Hxd8+ og mátar.
26. Bh3! Db8
Nú mátti auðvitað ekki taka bisk-
upinn en af tvennu illu var 26. - Da8
skárra.
27. Hd7!
Enn nýtir hvítur sér veikleikann
á 8. reitaröðinni. Hvorki má þiggja
hrók né drottningu vegna mátsins í
borðinu.
27. - He8 28. Dxb8 Hxb8 29. Hel
Hfd8 30. Hc7
Fellur ekki í gildruna 30. Hee7?
Bc8. Virk staða hvíts tryggir honum
nú unnið tafl.
30. - Hfd8 31. b3 Í3 32. Bg4 HfB
33. Bxf3! .t
í Qórða skiptið segir veikleikinn á
8. röðinni til sín!
33. - Hxf3 34. Hxb7 HbfB 35.
He2 H8f5 36. b4 Hg5+ 37. Kfl
- Og svartur gafst upp.