Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1998, Page 58
%
70
LAUGARDAGUR 14. MARS 1998 JjV
X
Erlingur Gíslason
Erlingur Gísli Gíslason, leikari
og leikstjóri, Laufásvegi 22, Reykja-
vík, varð sextíu og fimm ára í gær.
Starfsferill
Erlingur fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp. Hann lauk stúdents-
prófi frá MR 1953, stundaði nám i ís-
lensku við HÍ 1953-54, lauk prófi í
forspjallsvísindum frá HÍ 1954, prófi
frá Leiklistarskóla Þjóðleikhússins
1956, stundaði nám við Tónlistar-
skólann í Reykjavík 1953-54, nam
leikhúsfræði við Háskólann í Vínar-
borg og leiklist við Leiklistarskóla
Helmuts Kraus í Vin 1956-57, fór
kynnisfor um Evrópu og á leiklist-
arnámskeið í London og Berlín
1965-66 og sótti námskeið í gerð
kvikmyndahandrita hjá Dramatiska
Institutet í Sviþjóð.
Erlingur var leikari og leikstjóri
hjá Þjóðleikhúsinu, Grímu og Leik-
félagi Reykjavikur 1957-91, hefur
farið með fjölda hlutverka í útvarpi
og sjónvarpi og ýmis hlutverk í
kvikmyndum, var kennari hjá
Bandalagi íslenskra leikfélaga,
Leiklistarskóla Þjóðleikhússins og
ríkisins, við Gagnfræðaskóla
Reykjavíkur og Gagnfræðaskóla
Kópavogs.
Erlingur var einn af stofnendum
Leikklúbbsins Grímu 1961. Hann
var formaður Leikarafélags Þjóð-
leikhússins 1967-69 og Félags ís-
lenskra leikstjóra 1975-77 og
1979-81, fulltrúi Alþýðubandalags-
ins í Reykjavík á landsfundum Al-
þýðubandalagsins frá 1987 og sat í
framkvæmdastjórn Leiklistarráðs
fyrir Félag leikstjóra á íslandi
1990-91.
Erlingur og Brynja,
eiginkona hans, sömdu
leikritið Flensað í Mala-
koff og Erlingur samdi,
ásamt öðrum, leikritið
Flugleik. Hann samdi
handrit að stuttmyndinni
Símon Pétur fullu nafni
1988 og Reykjavíkur-
stúlku.
Erlingur hlaut verð-
laun Listahátíðar í
Reykjavík 1988 fyrir
myndina Símon Pétur
fullu nafni og handritastyrk úr
Kvikmyndasjóði.
í garðinum sínum hafa þau Er-
lingur og Brynja reist lítið hús sem
þau kalla Skemmtihúsið. Þar hafa
þau vinnuaðstöðu og síðar meir af-
drep í ellinni.
Fjölskylda
Eiginkona Erlings er Brynja
Benediktsdóttir, f. 20.2. 1938, leik-
stjóri, höfundur og leikari. Hún er
dóttir Benedikts Guðjónssonar, f.
3.3. 1909, d. 12.4. 1982, kennara og
skólastjóra í Mýrdal og síðar kenn-
ara í Reykjavík, og k.h., Róshildar
Sveinsdóttur, f. 21.2. 1911, handa-
vinnu- og yogakennara.
Sonur Erlings og Brynju er Bene-
dikt, f. 31.5.1969, leikari í Reykjavík
sem vinnur um þessar mundir við
leikstjóm í Malmö.
Fyrri kona Erlings var Katrín
Guðjónsdóttir, f. 27.3. 1935, nú látin,
kennari.
Synir Erlings og Katrínar eru
Guðjón, f. 15.12.1955, tölvuverkfræð-
ingur í Svíþjóð og á hann þrjá syni;
Friðrik, f. 4.3. 1962, rithöfundur í
Reykjavík.
Systkini Erlings eru
Anna, f. 30.12. 1924, hús-
mæðrakennari í Reykja-
vík; Einar Ólafur, f. 6.4.
1929, flugstjóri í Reykja-
vík.
Foreldrar Erlings:
Gísli Ólafsson, f. 21.11.
1898, d. 11.4. 1991, bakara-
meistari í Reykjavík, og
k.h., Kristín Einarsdóttir,
f. 26.9. 1899, húsmóðir.
Ætt
Gísli var bróðir Sigurjóns mynd-
höggvara. Gisli var sonur Ólafs,
verkam. á Eyrarbakka Árnasonar,
b. í Þórðarkoti, Eiríkssonar, b. á
Mosastöðum, Guðmundssonar.
Móðir Árna var Sigríður, systir
Halldóru, langömmu Svanhildar,
móður Sigurgeirs biskups, fóður
Péturs biskups. Sigríður var dóttir
Ólafs, b. í Hreiðuborg, Jónssonar.
Móðir Ólafs á Eyrarbakka var Mar-
grét Gísladóttir, b. í Hreiðuborg,
Halldórssonar, og Guðnýjar, systur
Sigríðar á Mosastöðum.
Móðir Gísla var Guðrún Gísla-
dóttir, b. í Stokkseyrarseli, Andrés-
sonar, b. í Stóru-Sandvík, Gíslason-
ar, og Elísabetar Kristófersdóttur.
Móðir Guðrúnar var Guðný, hálf-
systir Kristínar, langömmu Ingi-
bjargar Sólrúnar borgarstjóra. Guð-
ný var dóttir Hannesar, b. í Tungu í
Flóa, bróður Þorkels, langafa Ragn-
ars í Smára og Guðna Jónssonar
prófessors og langalangafa Karls
Guðmundssonar leikara. Hannes
var sonur Einars, spítalahaldara í
Kaldaðamesi, Hannessonar, ættfoð-
ur Kaldaðarnesættarinnar, Jónsson-
ar, bróður Ólafs í Hreiðuborg. Móð-
ir Guðnýjar var Guðný, systir Mar-
grétar í Þórðarkoti og Sigríðar,
langömmu Baldurs Möller.
Kristín er dóttir Einars, verslun-
armanns í Reykjavík, Einarssonar,
sjómanns á Melnum í Reykjavík,
Bjarnasonar, í Saltvík, Ingimundar-
sonar, bróður Ólafs, langafa Val-
gerðar, ömmu Einars Benediktsson-
ar sendiherra. Systir Bjarna var
Helga, langamma Jakobs Möllers
ráðherra og Frans, fóður Hans G.
Andersen sendiherra. Móðir Einars
á Melnum var Sigríður Einarsdótt-
ir, b. í Stíflisdal, Jónssonar. Móðir
Einars var Ingveldur Jónsdóttir,
systir Guðna, ættföður Reykja-
kotsættar, langafa Halldórs, afa
Halldórs Kiljans Laxness. Guðni
var einnig langafl Guðna, langafa
Vigdísar forseta. Móðir Einars
verslunarmanns var Kristín Glsla-
dóttir, b. í Grænuhlíð við Reykja-
vík, Péturssonar.
Móðir Kristínar var Anna Jóns-\
dóttir, b. í Ártúni, Jónatanssonar.
Móðir Jóns var Aðalbjörg Jónsdótt-
ir. Móðir Aðalbjargar var Rannveig
Magnúsdóttir, pr. á Hrafnagili, þess
er „settist upp á Skjóna”, Erlends-
sonar. Móðir Rannveigar var Ingi-
björg Sveinsdóttir, lögmanns og
skálds, Sölvasonar, klausturhaldara
á Munkaþverá, Tómassonar, bróður
Tómasar, ættfoður Hvassafellsætt-
ar, langafa Jónasar Hallgrímssonar
skálds. Móöir Önnu var Maren Sig-
uröardóttir, hreppstjóra í Árúni,
Jónssonar og Guðrúnar Jónsdóttur.
Erlingur Gíslason.
Agúst Matthías Sigurðsson
Agúst Matthías Sigurðsson,
sóknarprestur að Prestbakka í
Hrútafirði, verður sextugur á
morgun.
Starfsferill
Ágúst fæddist á Akureyri en ólst
upp á Möðruvöllum í Hörgárdal.
Hann lauk stúdentsprófi frá MA
1959, embættisprófi í guðfræöi frá
HÍ 1965, stundaði framhaldsnám við
Árósaháskóla og lauk þaðan prófum
með danskt prestaréttindapróf.
Ágúst var vigður til prests í
Hóladómkirkju 1965. Hann var
aðstoðarprestur hjá föður sínum,
sóknarprestur í Vallanesi, í
Nesþingum, lengst af á Mælifelli og
er nú sóknarprestur á Prestbakka.
Þá var hann sendiráðsprestur í
Kaupmannahöfn 1983-89.
Ágúst var jafnframt kennari í
fjórtán vetur og talsímavörður
árum saman á Möðruvöllum og á
Mælifelli.
Ágúst var sýslunefndarmaður í
Skagafjarðarsýslu, sat í stjómum
Sálarrannsóknafélags Skagafjarðar,
Tónlistarfélags sýslunnar, í stjóm
FUF í Eyjaflrði og framsóknar-
félags Bæjarhrepps. Hann var
umsjónarmaður Húss Jóns
Sigurðssonar í Kaupmannahöfn,
túlkur íslenskra fanga og sjúklinga
og sat í menntamálanefnd norrænu
sendiráðanna í Kaupmannahöfn
1983-89. Þá var hann fylgdarmaður
og túlkur þýskumælandi hesta-
manna á fjöllum á Mælifells-
árunum.
Ágúst er höfundur ritsins Forn
frægðarsetur I.-IV. bindi, útg.
1976-82. Eftir hann liggja ýmsar
ritgerðir í bókum og tímaritum,
fjöldi blaðagreina og útvarpserinda
og fyrirlestrar um ísland, þjóð og
sögu, sem hann flutti í Danmörku
1981-89.
Fjölskylda
Ágúst kvæntist 8.1. 1965 Guðrúnu
Láru Ásgeirsdóttur, f. 14.11. 1940,
kennara, prestskonu og
fyrrv. símstöðvarstjóra.
Hún er dóttir Ásgeirs Ó.
Einarssonar, dýralæknis
í Ási í Reykjavík, og k.h.,
Láru Sigurbjörnsdóttur
kennara.
Böm Ágústs og
Guðrúnar Láru em
Láras Sigurbjörn, f. 9.8.
1965, byggingarverkfræð-
ingur og verkefnastjóri
hjá Vegagerð danska
ríkisins í Kaup-
mannahöfn, búsettur á
Sjálandi, kvæntur Signe Gjerlufsen
byggingarefnafræðingi og era böm
þeirra Stefán Lárus, Julie, María og
Mathias; María, f. 20.2. 1968, prestur
við Háteigskirkju í Reykjavík,
búsett í Mosfellsbæ, gift Þresti
Jónssyni rafmagnsverkfræðingi og
eru börn þeirra Kolbeinn og
Ragnhildur.
Systkini Ágústs eru Sigrún, f.
28.8. 1929, sjúkraliði í Reykjavík;
Bjöm, f. 9.5. 1934,
lögregluvarðstjóri í
Reykjavík, búsettur i
Kópavogi; Rannveig, f.
6.4. 1940, cand. phil. og
kennari í Stokkhólmi.
Foreldrar Ágústs voru
Sigurður Stefánsson, f.
10.11. 1903, d. 8.5. 1971,
prófastur og vígslubiskup
í Hólastifti, og k.h., María
Ágústsdóttir, f. 30.1. 1904,
d. 18.8. 1967, cand. phil.
og prestskona.
Ágúst verður að
heiman á afmælisdaginn. Þann dag,
sunnudaginn 15.3. kl. 14.00, mun
síra Ágúst messa með síra Maríu,
dóttur sinni í kapellunni á Elli-
heimilinu Grund í Reykjavík.
Ágúst Matthías
Sigurösson.
Kristinn Bjarnason
Kristinn Bjamason bif-
reiðarstjóri, Grundar-
gerði 13, Reykjavík, er
sjötugur í dag.
Starfsferill
Kristinn er fæddur í
Búðardal og ólst þar upp.
Hann fluttist til Reykja-
víkur 1946. Kristinn tók
meirapróf 1948 og hefur
siðan verið vagnstjóri hjá
SVR. Hann á því fimmtíu
ára starfsafmæli hjá SVR
í haust. Kristinn hefur auk þess
keyrt leigubíl á Bæjarleiðum frá
1955.
Kristinn hefur haft áhuga á göml-
um bílum, hefur starfað í Fordbíla-
klúbbnum og á Ford vörabíl, 1947
árgerð, sem hann hefur
gert upp frá grunni
ásamt kunningjum sín-
um.
Fjölskylda
Systkini Kristins: Guð-
mundur, f. 1917, vélstjóri
í Stykkishólmi, kvæntur
Herdísi Torfadóttur; Sig-
riður, f. 1919, sem er lát-
in, húsmóðir í Reykjavík,
var gift Kristjáni Einars-
syni húsasmiðameistara,
umsjónarmanni Langholtskirkju;
Lilja, f. 1921, nú látin, var gift Gunn-
ari Marinóssyni, fangaverði í
Reykjavík, en hann lést 1982; Guð-
rún, f. 1923, d. 1987, húsmóðir í
Reykjavík; Hermann, f. 1925, bóndi
á Leiðólfsstöðum i Laxárdal, kvænt-
ur Sigrúnu Jóhannesdóttur; Ósk, f.
1931, húsmóðir i Reykjavík, gift
Hjörleifi Jónssyni, starfsmanni
Hitaveitu Reykjavíkur; Jens Lindal,
f. 1933, vörubílstjóri í Reykjavík,
kvæntur Þorbjörgu Pálsdóttur.
Hálfsystkini Kristins eru Jó-
hanna Bjamadóttir, nú látin, hús-
móðir í Reykjavík, gift Gísla Gísla-
syni verkamanni sem einnig er lát-
inn; Margrét Bjamadóttir, gift Peter
Petersen, skipasmið í Humlebæk í
Danmörku; Ámi Jónsson, verka-
maður í Reykjavík, sem lést 1951.
Foreldrar Kristins vora Bjarni
Magnússon, f. 24.11. 1870, d. 20.11.
1960, bóndi í Búðardal, og k.h., Sól-
veig Ólafia Ámadóttir, f. 9.8.1889, d.
19.7. 1973, húsfreyja.
Ætt
Bjeuni var sonur Magnúsar, b. í
Gröf og á Svalhöfða í Laxárdals-
hreppi, Sigurðssonar, b. í Ljár-
skógaseli, Bjarnasonar, b. á Víg-
holtsstöðum, Tómassonar. Móðir
Magnúsar var Kristín Jónsdóttir, b.
á Lambastöðum, Bjamasonar og
Þuríðar Magnúsdóttur.
Móðir Bjama var Steinunn Böðv-
arsdóttir, b. á Sámsstöðum, Guð-
mundssonar, og Helgu Magnúsdótt-
ur, ættföður Laxárdalsættar, Magn-
ússonar.
Sólveig Ólafia var dóttir Áma, b.
á Borg í Reykhólasveit, Jónssonar,
og k.h., Sigríður Bjarnadóttir.
Kristinn er að heiman á afmælis-
daginn.
Kristinn Bjarnason.
Til hamingju
með afmælið
14. mars
90 ára
Guðmundur R. Magnússon,
Hrafnistu í Reykjavík.
85 ára
Guðmimdur Sigurjónsson,
Ljósheimum 4, Reykjavík.
Hallgrímur Eðvarðsson,
Helgavatni,
Sveinsstaðahreppi.
Skafti Kristófersson,
Hnitbjörgum, Blönduósi.
75 ára
Sigríður Magnúsdóttir,
VíðUundi 20, Akureyri.
Steinunn Guðmundsdóttir,
Einilundi 6 C, Akureyri.
70 ára
Anna Þorgilsdóttir,
Rauðagerði 64, Reykjavík.
Guðmunda
Guðmundsdóttir,
Háaleitisbraut 145, Reykjavík.
60 ára
Edith Dam Ragnarsson,
Suðurvíkurvegi 2, Vík.
Smári Jónas Lúðvíksson,
Háarifi 33 Rifi.
50 ára
Agnar
Pétursson
byggingameistari,
Stekkholti 15,
Selfossi.
Eiginkona hans er
Þóra Guðjóns.
Þau taka á móti gestum í
Tryggvaskála á Selfossi í dag
kl. 20.00.
Guðrún Ingólfsdóttir,
Sævangi 38, Hafnarfirði.
Halla Guðmundsdóttir,
Steini, Skarðshreppi.
Hildur Hávarðardóttir,
HjaUastræti 36, Bolungarvík.
Ingibergur Vilbjálmsson,
Reykhólaskóla,
Reykhólahreppi.
Kristbjörg Eðvaldsdóttir,
Klyfjaseli 12, Reykjavik.
Kristjana Kristjánsdóttir,
Þverá, Skaftárhreppi.
Margrét Kristinsdóttir,
Skógarhólum 23 B, Dalvík.
María Kristín Lárusdóttir,
Laufvangi 18, Hafnarfirði.
Paul D. Arnar O’Keeffe,
Austurströnd 8,
Seltjamarnesi.
Sigurbjöm Ólafsson,
Fífumóa 5 B, Njarðvík.
Sigurborg Gísladóttir,
Blómsturvöllum 45,
Neskaupstað.
40 ára
Aton Emil Bragason,
Skólabraut 2 Akranesi.
Guðfinna Hólmfríður
Pálmadóttir,
Hlíðarvegi 12, Ólafsfirði.
Gunnlaugur Magnússon,
Miðfelli I,
Hranamannahreppi
Hörður Jóhannsson,
Hraunbæ 88, Reykjavík.
Jóhanna María
Einarsdóttir,
Háteigi 25, Keflavík.
Magnús Hafsteinn
Skaftason,
Hliðargötu 28, Fáskrúðsfirði.
Rannveig Hallvarðsdóttir,
Gnitanesi 2, Reykjavík.
Sigríður Ólafsdóttir,
Frostaskjóli 89, Reykjavík.
Valdimar F. Valdimarsson,
Foldasmára 16, Kópavogi.