Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1998, Qupperneq 59
TIV LAUGARDAGUR 14. MARS 1998
71
Þorsteinn frá Hamri
Þorsteinn frá Hamri, rithöfundur
og skáld, Smáragötu 2, Reykjavík,
veröur sextugur á morgun.
Starfsferill
Þorsteinn fæddist á Hamri i Þver-
árhlíð. Hann lauk gagnfræðaprófi
og landsprófi við Héraðsskólann í
Reykholti 1954 og stundaði nám við
KÍ 1955-57.
Þorsteinn vann almenn sveita-
störf til 1958 en fékkst síðan við
bókavörslu og vann verkamanna-
störf í Reykjavík samhliða ritstörf-
um. Hann hefur eingöngu fengist
við ritstörf frá 1967.
Þorsteinn var í stjóm Rithöfunda-
félags íslands 1966-68, varamaður í
stjóm Rithöfundasambands íslands
1984-86 og meðstjórnandi 1986-88.
Rit Þorsteins: í svörtum kufli,
ljóð, 1958; Tannfé handa nýjum
heimi, ljóð, 1960; Lifandi manna
land, ljóð, 1962; Skuldaskil, þættir
úr ísl. þjóðlifi, 1963; Langnætti á
Kaldadal, ljóð, 1964; Jórvík, ljóð,
1967; Himinbjargarsaga eða Skógar-
draumur, skáldsaga, 1969; Veðra-
hjálmur, ljóð, 1972; Möttull konung-
ur eða Caterpillar, saga úr sveit-
inni, 1974; Fiðrið úr sæng Dala-
drottningar, ljóð, 1977; Haust í
Skírisskógi, skammdegisprójekt,
1980; Spjótalög á spegil, ljóð, 1982;
Ljóðasafn, 1984; Ný ljóð, 1985; Urðar-
galdur, ljóð, 1987; Ætternisstapi og
átján vermenn, þættir, 1987; Ljóð og
myndir (ásamt Tryggva Ólafssyni),
1988; Vatnsgötur og blóðs,
ljóð, 1989; Hallgrímur
smali og húsfreyjan á
Bjargi, söguþáttur, 1990;
Sæfarinn sofandi, ljóð,
1992; Það talar í trjánum,
ljóð, 1995; Myndir í nótt
og morgni, ljóðaúrval,
1995.
Bækur Þorsteins, Him-
inbjargarsaga; Fiðrið úr
sæng Daladrottningar;
Spjótalög á spegil; úrval
úr Urðargaldri og Vatns-
götum og blóðs vora tilnefndar til
Bókmenntaverðlauna Norðurlanda-
ráðs. Hann hlaut Menningarverð-
laun DV 1981, hlaut stílverðlaun
Þórbergs Þórðarsonar 1991 og ís-
lensku bókmenntaverðlaunin í
flokki fagurbókmennta 1992 fyrir
ljóðabókina Sæfarinn sofandi.
Fjölskylda
Sambýliskona Þorsteins var Ásta
Jóna Sigurðardóttir, f. 1.4. 1930, d.
21.12. 1972, rithöfundur. Foreldrar
hennar vom Sigurður Benjamin
Jónsson, bóndi á Litla-Hrauni, og
Þóranna Guðmundsdóttir hús-
freyja.
Böm Þorsteins og Ástu eru Dag-
ný, f. 31.10. 1958, kennari á Bifröst;
Þórir Jökull, f. 2.11. 1959, prestur á
Selfossi; Böðvar Bjarki, f. 2.11. 1960,
kennari á Bifröst; Kolbeinn, f. 24.1.
1962, starfsmaður hjá Samskipum;
Guðný Ása, f. 11.6.1964, meinatækn-
ir í Reykjavík.
Þorsteinn kvæntist
2.12.1967 Guðrúnu Svövu
Svavarsdóttur, f. 22.12.
1944, myndlistarmanni.
Þau skildu. Foreldrar
hennar: Svavar Ólafsson,
klæðskeri í Reykjavík, og
k.h., Elisabet Lilja Linn-
et, fyrrv. deildarstjóri.
Sonur Þorsteins og
Guðrúnar Svövu er Egill,
f. 7.10. 1968, kírópraktor í
Reykjavík.
Sambýliskona Þorsteins er Lauf-
ey Sigurðardóttir, f. 10.5.1955, fiðlu-
leikari. Foreldrar hennar: Sigurður
Örn Steingrímsson, prófessor í guð-
fræði, og Bríet Héðinsdóttir, leik-
kona og leikstjóri.
Dóttir Þorsteins og Laufeyjar er
Guðrún, f. 2.3.1994.
Bróðir Þorsteins er Þórarinn Við-
fjörð, f. 30.6. 1942, bóndi á Hamri í
Þverárhlíð, kvæntur Karenu Weld-
ing húsfreyju.
Foreldrar Þorsteins voru Jón
Leví Þorsteinsson, f. 22.3. 1900, d.
14.6. 1966, bóndi á Hamri í Þverár-
hlíð, og k.h., Guðný Þorleifsdóttir, f.
28.1. 1907, d. 2.8. 1964, húsfreyja.
Ætt
Jón var sonur Þorsteins, b. á
Hamri, Sigurðssonar, b. í Höll, Þor-
steinssonar, b. á Glitstöðum í Norð-
urárdal, Sigurðssonar, b. í Höll,
Guðmundssonar. Móðir Þorsteins á
Glitstöðum var Þómnn Þorsteins-
dóttir, systir Þorvalds, langafa Sig-
ríðar, móður Halldórs Laxness.
Móðir Þorsteins á Hamri var Þórdís
Þorbjarnardóttir, b. á Helgavatni,
Sigurðssonar og k.h., Margrétar
Halldórsdóttm' fróða, á Ásbjarnar-
stöðum, Pálssonar, langafa Jóns,
fóður Halldórs, stjómarformanns og
arkitekts, og Selmu, forstöðukonu
Listasafns íslands. Móðir Jóns á
Hamri var Þórunn Eiríksdóttir, b. á
Svignaskarði, Ólafssonar, b. á Lund-
um, Þorbjamarsonar, fóður Ólafs,
langafa Bjarna Benediktssonar for-
sætisráðherra, foður Björns
menntamálaráðherra.
Guðný var dóttir Þorleifs, b. á
Hofi í Norðfirði, Torfasonar, b. í
Skuggahlíð í Norðfirði, Jónssonar,
b. á Kirkjubóli, Vilhjálmssonar,
bróður Þóru, langömmu Þóreyjar,
ömmu Eyþórs Einarssonar, for-
manns Náttúruverndarráðs. Móðir
Guðnýjar var Guðfinna Guðmunds-
dóttir, b. á Tandrastöðum, Magnús-
sonar og Guðnýjar Ólafsdóttur.
Móðir Guðnýjar var Mekkín Er-
lendsdóttir, b. í Hellisfirði, Áma-
sonar, ættföður Hellisfj arðarættar,
föður Einars, langafa Jakobs, fööur
rithöfundanna Svövu og Jökuls, fóð-
ur rithöfundanna Illuga, Hrafns og
Elísabetar.
Bókaútgáfan Iðunn heldur Þor-
steini hóf í Gyllta salnum á Hótel
Borg á morgun, sunnudaginn 15.3.,
milli kl. 16.00 og 18.00.
Þorsteinn Jónsson.
Guttormur Pétur Einarsson
Guttormur Pétur Ein-
arsson yfirkerfis-
fræðingur, Árkvörn 2 A,
Reykjavík, verður
sextugur á morgun.
Starfsferill
Guttormur fæddist í
Vestmannaeyjum og ólst
þar upp. Hann lauk
skyldunámi í Eyjum og
við Héraðsskólann að
Skógum, lauk landsprófi
í Vestmannaeyjum,
stúdentsprófi frá MA 1960, lauk
prófi í forspjallsvísindum og
áfangaprófum í efnafræði við HÍ
1961-62, stundaði nám við
Tækniskóla IBM i London 1965-66
og lauk þaðan prófum sem
kerfisfræðingur og hefur auk þess
lokið margs konar námsáföngum í
verslunar- og tölvunarfræðum.
í æsku og á unglingsárum
stundaði Gottormur sjómennsku,
fiskvinnslu, járn- og trésmíðar,
húsamálun og fleiri almenn störf.
Guttormur starfaði í vélsmiðju
Eysteins Leifssonar 1962, vann hjá
SKÝRR 1962-64, hjá IBM á íslandi
1966, var deildarstjóri tölvudeildar
Búnaðarbanka íslands 1967-78,
stundaði eigin verslunar-
rekstur með fyrirtækin
Hafplast sf. og Ámuna
1978-92, starfaði sjálfstætt
við ráðgjafastörf í kerfis-
skipan 1992-93, var full-
trúi í starfsmannahaldi
Ríkisspítala frá 1994 og er
nú yfirkerfisfræðingur í
Tölvuveri spítalanna.
Guttormur sat í stjórn
Heimdallar, var formaður
Félags sjálfstæðismanna í
Árbæjar- og Seláshverfi
1980-82, sat í stjóm Lands-
málafélagsins Varðar 1978-80, stjórn
Fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík 1980-82, í stjórnmála- og
ráðgjafanefnd ríkisstjórnar Gunn-
ars Thoroddsen 1990, var ritari
Borgaraflokksins, varaþingmaður
flokksins og sat á þingi fyrir Borg-
araflokkinn 1990-91, vann í Um-
hverfisráðuneytinu að sérverkefn-
um í atvinnumálum fyrir forsætis-
ráðuneytið í stjómartíð Borgara-
flokksins, var einn stofnenda og for-
maður lengst af í Félagi íslenskra
hugvitsmanna, formaður íbúasam-
taka Ártúnsholts 1994-96, hvatamað-
ur að nýjum baráttusamtökum
stangaveiðimanna fyrir netafriðun
og vistvænum stangaveiðum í ám
og vötnum gegn vægu gjaldi, sem
örvar almenna útivist, og helgar nú
starfskrafta sína félagsstörfum í
Oddfellowreglunni.
Guttormur var sæmdur heiðurs-
merki hugverkastofnunar Samein-
uðu þjóðanna, WIPO, 1986.
Guttormur kvæntist 3.12. 1966
Helgu Sigurðardóttur, f. 8.8. 1942,
verslunarstjóra. Hún er dóttir
Sigurður Helgasonar, f. 30.8. 1921,
forstjóra í Reykjavík, og k.h.,
Kristínar Henriksdóttur, f. 16.12.
1920, húsmóður.
Böm Guttorms og Helgu em Ein-
ar, f. 15.9. 1964, viðskiptafræðingur,
kvæntur Guðrúnu Gunnlaugsdóttur
og er dóttir þeirra Berglind, f. 1995;
Sigurður Egill, f. 27.6. 1969, raf-
magnsverkfræðingur, kvæntur Sig-
rúnu Edwald og eru börn þeirra Eg-
ill, f. 1992, og Ama, f. 1994.
Systkini Guttorms em Páll Jó-
hann, f. 22.1. 1937, fyrrv. flugstjóri;
Pétur, f. 31.10. 1940, leikari og leik-
stjóri; Fríða, f. 21.8. 1945, ljósmóðir;
Sigfús, f. 11.8. 1951. útgerðar-
rekstrartæknifræðingur.
Foreldrar Guttorms: Einar Gutt-
ormsson, læknir í Vestmannaeyj-
um, f. 15.12. 1901, d. 1985, og k.h.,
Margrét Pétursdóttir, f. 29.12. 1914,
húsmóðir.
Ætt
Faðir Einars var Guttormur, b. í
Geitagerði í Fljótsdal, Einarssonar,
b. í Fjallseli, Guttormssonar, stúd-
ents á Arnheiðarstöðum, Vigfússon-
ar, pr. á Valþjófsstað, Ormssonar,
fóður Margrétar, langömmu Gutt-
orms, foður Hjörleifs alþm. Móðir
Einars i Fjallseli var Halldóra Jóns-
dóttir, ættfoður vefaraættarinnar,
Þorsteinssonar.
Móðir Einars læknis var Odd-
björg Sigfúsdóttir, b. á Fljótsbakka,
Oddssonar. Móðir Sigfúsar var Þur-
íður Hallsdóttir, b. á Sleðbrjóti, Sig-
urðssonar, bróöur Bjöms, langafa
Önnu, móður Björns Tryggvasonar,
aðstoðarbankastjóra Seðlabankans.
Margrét var dóttir Péturs, sjó-
manns á Akureyri, Jónatanssonar,
b. á Þúfum í Skagafirði, Magnússon-
ar. Móðir Margrétar var Jóhanna
spákona Benediktsdóttir, b. í Höfða-
hverfi, Ólafssonar, og k.h., Jóhönnu
Rakelar Jónsdóttur.
Guttormur og Helga eru í
útlöndum.
Guttormur Pétur
Einarsson.
Sesselja Jónsdóttir
Sesselja Jónsdóttir, Hjúkrunar-
heimilinu Sunnuhlíö, Kópavogi, áð-
ur búsett í Hamraborg 16, verður
áttræð á morgun.
Starfsferill
Sesselja fæddist í Keflavík, ólst
þar upp og átti þar heima til 1957.
Þá flutti hún í Kópavoginn og bjó í
Birkihvammi 17 til 1973, síðan í
Hamraborg 16.
Sesselja lærði ung sauma hjá
Dýrleifi Ármann. Hún var forstöðu-
kona í mjólkurbúð Mjólkursamsöl-
unnar að Hlíðarvegi 29, Kópavogi,
matráðskona í Víghólaskóla í Kópa-
vogi og umsjónarmaður Safnaðar-
heimilis Digranessóknar við Bjam-
hólastíg.
Sesselja var einn af stofnfélögum
Kvenfélags Keflavíkur. Hún starfaði
einnig í Kvenfélagi Kópavogs og
með ITC-deildinni Kvisti. Þá tók
hún virkan þátt í félagsstarfi eldri
borgara í Kópavogi og söng með kór
þeirra, Söngvinum. Einnig starfaði
hún í kirkjufélagi Digranessóknar.
Fjölskylda
Sesselja giftist 26.10. 1940 Jónasi
Þorvaldssyni, f. á Seyðisfirði 24.3.
1911, skipstjóra og trésmið. Foreldr-
ar Jónasar voru Þorvaldur Jónas-
son, f. 19.12. 1867, d. 20.1. 1954, og
Guðrún Jónasdóttir, f. 1.1.1884, d.
10.2. 1945.
Börn Sesselju og Jónasar: Hörður
Jónasson, f. 23.3. 1942, trésmíða-
meistari og kennari í Kópavogi,
kvæntur Sigrúnu Eliseusdóttur
móttökuritara, þau eiga tvö börn og
fjögur barnabörn; Guðfinna Sesselja
Solvág, f. 24.10.1943, bóndi í Barmen
í Noregi, maki Halvdan Solvág,
skipstjóri þar, og eiga þau fimm
dætur og tíu bamaböm; Guðmund-
ur Þorvar Jónasson, f.
8.5. 1946, kaupmaður 1
Kópavogi, maki Sigrún
Sigvaldadóttir ritari og
eiga þau tvö börn og eitt
bamabam; Jón Her-
steinn Jónasson, f. 25.5.
1949, trésmiður í Kópa-
vogi, maki Anna Krist-
jánsdóttir meinatæknir
og eiga þau þrjár dætur;
Þorvaldur Rúnar
Jónasson, f. 2.5. 1951,
trésmiður í Kópavogi,
maki Ragnhildur Anna
Karlsdóttir verslunar-
maður og eiga þau þrjú
böm.
Systkini Sesselju: Benedikt, f.
17.9. 1919, forstjóri í Keflavík; Guð-
rún, f. 12.7. 1924, húsmóðir í Kefla-
vik; Anna, f. 1.2. 1927, húsmóðir í
Keflavík; Elinrós, f. 23.3. 1928, hús-
móðir í Keflavík; Eyjólfur Þór, f.
15.5. 1933, kennari í Kaup-
mannahöfn; Hólmfríður,
f. 25.7. 1937, húsmóðir í
Keflavík; Kristján Anton,
f. 6.7. 1939, aðstoðarskóla-
stjóri.
Foreldrar Sesselju vora
Jón Eyjólfsson frá Garðs-
horni í Keflavík, f. 16.4.
1894, d. 1.2. 1969, útgerðar-
maður í Keflavík, og k.h.,
Guðfinna Sesselja Bene-
diktsdóttir frá Breiðabóli á
Svalbarðströnd, f. 14.5.
1897, d. 28.7. 1982. Jón og
Guðfinna bjuggu I Kefla-
vík.
Sesselja tekur á móti gestum í
Safnaðarheimili Digraneskirkju á
afmælisdaginn, sunnudaginn 15.3.,
kl. 15.30.
Sesselja Jónsdóttir.
lil hamingju með
afmælíð 15. mars
85 ára
Anna Guðmundsdóttir,
Múlavegi 24, Seyðisfirði.
80 ára
Ingunn Hróbjartsdóttir,
Eyjahrauni 40, Þorlákshöfn.
Sesselja Hróbjartsdóttir,
Kumbaravogi, Stokkseyri.
Svanhvít Stefánsdóttir,
Nýbýlavegi 62, Kópavogi.
75 ára
Emma Magnúsdóttir,
Hvanneyrarbr. 69, Siglufirði.
Soffía Axelsdóttir,
Álmholti 8, Mosfellsbæ.
Valtýr Júlíusson,
Hítameskoti, Kobeinsstaöahr.
70 ára
Ragnar
Þorbergsson
matsmaður,
Snælandi 5,
Reykjavík.
Hann tekur á móti
gestum í salnum Dúndur,
Dugguvogi 12, Reykjavík,
laugardaginn 14.3. frá kl.19.30.
Guðrún Guðjónsdóttir,
Hjallavegi 3, Suðureyri.
Jóhann Gíslason,
Kvistalandi 16, Reykjavík.
Jóhannes Oddsson,
Vesturgötu 57 A, Reykjavík.
Jón Guðleifur Pálsson,
Öldugranda 11, Reykjavík.
Siguröur Árnason,
Otrateigi 32, Reykjavík.
60 ára
Sveinn Vilhjálmsson,
Ártröð 14, Egilsstöðum.
Dagný Ásgeirsdóttir,
Lautasmára 5, Kópavogi.
Dagný Þorgilsdóttir,
Smárahvammi 9, Hafharfirði.
Halla Guðmundsdóttir,
Hjallabraut 96, Hafnarfirði.
Nína Victorsdóttir,
Urðarbakka 20, Reykjavík.
Sigþór Sigurðsson,
Klapparstig 35, Reykjavík.
Sturlaugur Jóhannesson,
Þórufelli 2, Reykjavík.
Una Guðmundsdóttir,
Stekkjarholti 10, Akranesi.
50 ára
Elísabet Karlsdóttir,
Gauksmýri 1, Neskaupstaö.
Friðjón Edvardsson,
Björtuhlíð 2, Mosfellsbæ.
Geir Guðmundsson,
Reykjavegi 53, Mosfellsbæ.
Guðrún Jónsdóttir,
Barrholti 39, Mosfellsbæ.
Gylfi Guðmundsson,
Urðarvegi 8, ísafirði.
Markús Hávarðsson,
Tungusíðu 22, Akureyri.
Ragna B. Björnsdóttir,
Birkihlíö 4 A, Hafnarfiröi.
Vigdís Sigurðardóttir,
Sævangi 12, Hafnarfirði.
40 ára
Ásvaldur Æ. Þormóðsson,
Stóru-Tjörnum, Húsavík.
Bjarni Valur Ólafsson,
Jöklafold 25, Reykjavík.
Dagfríðin- G. Amardóttir,
Norðurvöllum 50, Keflavik.
Friðveig E. Rósadóttir,
Hringbraut 105, Reykjavik.
Jenný Garðarsdóttir,
Brattholti 3, Hafnarfirði.
Kolbrún Stefánsdóttir,
Kaplaskjólsvegi 64, Reykjavík.
Magnús Ólafsson,
Reynimel 92, Reykjavík.
Ragnar Stefán Brynjarsson,
Litluhlíð 4 A, Akureyri.
Sigurrós Sigurhansdóttir,
Foldahrauni 8, Vestmeyjum.
Stefán Geir Pálsson,
Heiðarlundi 3 B, Akureyri.
Þuríður Jana Ágústsdóttir,
Keldulandi 21, Reykjavík.