Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1998, Síða 62

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1998, Síða 62
74 myndbönd » — " Það er engin venjuleg hasarhetja sem heldur uppi ijörinu í Air Force One. Það er sjálfur forseti Bandaríkj- anna sem þarf að sjá um að bjarga málunum þegar forsetavélinni er rænt af hryðjuverkamönnum sem svifast einskis. Markmið þeirra er að fá lausan foringia sinn, hershöfðingj- ann Radek, sem Rússar og Banda- ríkjamenn höfðu sameiginlega tekið höndum í vigi hans i fyrrum Sovétlýð- veldinu Kazakhstan. Forsetanum tekst að fela sig og hryðjuverkamenn- irnir halda að hann hafi komist undan. Þeir eru þó ekki af baki dottnir því þeir hafa nóg af gíslum - þar á með al valda- menn í stjóm- kerfi landsins og hem- .um og síð- *ast en ekki síst: konu for- setans og dóttur. Þeir hóta að i 1 1 þeirra er ekki mætt en lausn Radeks gæti þýtt hundruð þúsunda dauðs- falla. Það kemur því í hlut forsetans að yfirbuga ræningjana og koma þannig í veg fyrir miklar hörmungar. en Air Force One er fyrsta kvik- myndahandrit Andrews W. Marlowes en fyrir framleiðandann Jon Shestack var það akkúrat það sem hann var að leita að. Mikið hefur verið gert af hasarmyndum í Hollywood undanfar- in ár, tæknibrellumar verða vart til- komumeiri og hasarinn varla ofsafengnari. Það var því fátt hægt að gera til að toppa fyrri hasarmyndir annað en að gera hasarhetjuna að valdamesta manni heimsins. í leikstjórastól- inn var fenginn þýski leikstjór- inn Wolfgang Petersen sem sló fyrst i gegn með kafbátatryllinum Das Boot. Sú mynd var tilnefhd til sex óskarsverðlauna, þ.á m. fyrir bestu leikstjóm það var í fyrsta skipti sem slík tilnefning kom á mynd með þýsku tali. Hann gerði næst ævintýramyndina The Neverending Story og ian framtíðarmyndina Enemy Mine. Hann flutti síðan end- anlega til Bandaríkj- anna og gerði spennutryll- Harrison Ford leikur forseta Bandaríkj- UPPAHALDS MYNDBANDIÐ MITT Þorgrímur Þráinsson, framkvæmdastjóri Tóbaksvarnanefndar: Vil myndir sem snerta mig „Ef ég á að nefna einhverja eina ákveðna mynd sem er í uppáhaldi þá er það líklega myndin Dead Poets Society með leikaranum Robin Williams í aðalhlut- verki. Það er mynd sem vakti mig til umhugsunar um lífið og til- veruna. Ég hef mest gaman því að horfa á slíkar myndir, myndir sem snerta mann og hreyfa við manni. Mér finnst þær bestar ef þær fá mig til að líta á líf mitt úr fjarlægð og jafnvel hugsa tvisvar um það á hvað sé best að leggja áherslu í lífinu. Robin Williams finnst mér alveg frábær leikari. Hann leikur nú í myndinni Good Will Hunting sem er verið að sýna í bíóhúsum um þessar mundir og þar skilst mér að hann fari á kostum. Það má því slá því fóstu að ég muni sjá þá mynd fyrr eða síðar. Ég er samt ekki með þessu að segja að venjulegar spennumynd- ir séu bannaðar á mínu heimili. Mér finnst líka gaman að horfa á þær í bland og get nefnt sem dæmi að mér finnst myndin True Lies með Arnold Schwarzenegger mjög skemmtileg. Við þetta má þó bæta að und- anfarið hef ég svelt mynd- bandstækið mitt svolítið. Á því gætu þó orðið breyt- ingar á næstunni þar sem ýmsar myndir sem mig langar til að sjá en ég missti af í kvikmynda- húsunum verða gefn- ar út á myndbandi fljótlega.“ -KJA LAUGARDAGUR 14. MARS 1998 JÖ’V Air Force One: forsetavélinni inn Shattered. Árið 1993 var hann aftur tilnefnd- ur til óskarsverðlauna fyrir bestu leikstjóm en það var fyrir In the Line of Fire. Síðasta mynd hans á undan Air Force One var Outbreak. Andstæðingamir Það kom aldrei neinn annar en Harrison Ford til greina í hlutverk for- setans. Þeir þurftu ein- hvem með mikla per- sónutöfra, viðkunnan- legan, greindarlegan og auðvitað varð hann að vera trúverðugur í hasaratriðunum. Harri- son Ford hefur sýnt allt þetta á farsælum ferli sínum. Hann var til- nefndur til óskarsverð- launa fyrir leik sinn í Witness og hefúr leikið í mörgum af stærstu myndum allra tíma, þ.á m. Star Wars og Indiana Jones trílógiunum. Aðrar myndir hans em m.a. American Graffiti, Blade Runner, The Mosquito Coast, Presumed Innocent, Working Girl, Regarding Henry, Patriot Games, Clear and Present Danger og The Devil’s Own. í hlutverk höfuðpaurs hryðjuverka- mannanna var fenginn Gary Oldman sem hefur leikið marga eftirminnilega skúrka hin síðari ár og er skemmst að minnast Zorg í The Fifth Element. Hann er fæddur í Englandi og vakti fyrst athygli umheimsins i myndun- um Sid and Nancy og Prick up Your Ears. Hann komst síðan á stjömu- kortiö með hlutverkum Lees Harveys Oswalds í JFK og Drakúla greifa í Bram Stoker’s Dracula. Meðal ann- arra mynda hans era State of Grace, Romeo is Bleeding, Tme Romance, Rozencrantz and Guildenstem Are Dead, Leon, Immortal Beloved og The Hryöjuverkamaöurinn og forsetinn. Harrison Ford og Gary Oldman í hlutverkum sínum. Scarlet Letter. Nýverið leikstýrði hann sinni fyrstu mynd, Nil by Mouth, sem vann til verðlauna fyrir bestu leikkonu á Cannes-kvikmynda- hátíðinni. Sterkur leikhópur Glenn Close leikur varaforsetann sem í fjarveru forsetans stjórnar samningaviðræðum við hryðjuverka- mennina frá Hvíta húsinu. Hún hefur fimm sinnum verið tilnefnd til ósk- arsverðlauna, fyrst fyrir sina fyrstu mynd, The World According to Garp. Hinar tilnefhingamar fékk hún fyrir The Big Chill, The Natural, Fatal Attraction og Dangerous Liaisons. Upp á síðkastið hefur hún m.a. leikið í 101 Dalmatians, Mars Attacks! og In the Gloaming. Þá er í myndinni að finna sterkan hóp aukaleikara sem flestir hverjir hafa átt hlutverk í mörgum stórmynd- um. Þar má nefna William H. Macy sem nýlega var tilnefndur til ósk- arsverðlauna fyrir leik sinn í Fargo og á hlutverk í tveimur athyglisverð- um nýjum myndum, Boogie Nights og Wag the Dog. Þarna er einnig Dean Stockwell, sem státar einnig af ósk- arsverðlaunatilnefningu fyrir Married to the Mob og sást síðast í Alien Resurrection. í öðrum hlutverk- um era Wendy Crewson (Fear), hin 12 ára gamla Liesel Matthews (The Little Princess), Paul Guilfoyle (Amistad, Ransom, Extreme Measures, Striptea- se, Quiz Show, Mrs. Doubtfire), Xand- er Berkeley (Amistad, Appollo 13, Lea- ving Las Vegas, Heat, The Rock, A Few Good Men, Terminator 2: Judge- ment Day), Elya Baskin (The Name of the Rose, 2010), Jurgen Prochnow (Das Boot, The English Patient), Le- vani Outchaneichvili (Independence Day), David Vadim (Ransom, G.I. Jane) og nýgræðingurinn Donna Bullock. -PJ Cry, the Beloved Country Cry, the Beloved Country er byggð á hann MJtmri tU'DmrtU^. frægri skáldsögu nóbelskáldsins Al- ans Pattons sem kom út á íslensku undir nafninu Grát ástkæra fósturmold. Talið er að bók þessi hafi átt mikinn þátt í að hrinda af stað baráttunni fyrir af- námi aðskilnaðar- stefnunnar i Suður-Afríku. Sagan gerist árið 1946. Stephen Kumalo er Zulumaður sem á heima í Natal-héraði í námunda við hvítan landeiganda, James Jarvis. Þegar Stephen fréttir að systir hans, sem býr í Jóhannesarborg, sé farin að stunda vændi og að sonur hans, sem einnig er fluttur til borgarinnar, sé kominn í slæman félagsskap ákveð- ur hann að fara til borgarinnar og reyna að bjarga þeim báðum. Þegar hann kemur til borgarinnar liður ekki á löngu uns hans kemst að því að hann er of seinn, sonurinn er flæktur í morð á hvítum manni og það vill einmitt svo til að sá maður er sonur Jarvisar. Með aðalhlutverkin fara James Earl Jones og Richard Harris. leik- stjóri er Darrell Rooth. Mynd þessi var sýnd á kvikmyndahátíð síðast- liðið haust. Skífan gefur út Cry, the Beloved Country og er hún bönnuð börnum innan 12 ára. Útgáfudagur er 18. mars. ekki að njóta frægðarinnar lengi, hann fannst látinn á hótelherbergi rétt rúmlega þrí- tugur og haföi þá tekið of stóran skammt af lyfj- um ásamt því að mikið magn af áfengi var í lík- ama hans. Beverly Hills Ninja er þriðja kvikmyndin sem hann lék aðal- hlutverk í og sú síðasta. Fyrir þrjátíu árum fundu japanskir bardagakapp- ar hvítvoðung sem hafði skolað upp á strönd Japans. Þeir ákváðu að taka barnið að sér og ala það upp sem sitt eigið enda töldu þeir ljóst að hér væri kominn hinn mikli andi Haru. Því miður og þrátt fyrir ein- dreginn vilja japönsku bardaga- kappanna til að kenna Haru listina varð hann algjör þverstæða þess sem spáð hafði verið og klaufalegur með afbrigðum i þokkabót. Þetta á þó eftir að breytast þegar kynþokka- full kona leitar eftir hjálp til að finna horfinn unnusta sinn. Skífan gefur Beverly Hills Ninjha út og er hún leyfð öllum aldurshópum. Útgáfudagur er 18. mars. MOST WANTEl) Most Wanted Jon Voight hefur verið iðinn við kolann eftir að hann var uppgötvað- ur á ný en í mörg ár var hann varla merkjanlegur í kvikmyndaheim- inum. Á síðustu tveimur árum hefur hann leikið í hátt í tug mynda og er Most Wanted ein þeirra en auk hans leika í myndinni, sem leikstýrð er af David Hogan, Keenan Ivory Wayans, Eric Ro- berts pg Paul Sorvino. Aðalpersónan er liðsforinginn James Duinn sem situr inni í her- fangelsi og bíður þess að verða tek- inn af lífi eftir að hafa verið fundinn sekur um morð á yfirmanni sínum. Rétt áður en ráðgert er að lífláta hann er honum boðið að sleppa við refsinguna taki hann að sér vanda- samt verkefni fyrir sveit manna sem kalla sig Black Sheep. Verkefn- ið er fólgið í að taka af lífi iðnjöfur sem talið er að selji eiturefnavopn á svartamarkaðinum. Dunn samþykk- ir þetta en tilræðið mistekst þegar sjálf forsetafrú Bandaríkjanna, sem átti af tilviljun leið fram hjá, verður fyrir skoti. Myndform gefur út Most Wanted og er hún bönnuð börnum innan 16 ára. Útgáfu- dagur er 17. mars.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.