Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1998, Síða 2
2
LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1998 T>V
Dómurinn sem ógilti vinnureglur Þróunarsjóðs í máli Vinnslustöðvarinnar:
Varðar tugi fyrirtækja
- sjóðurinn gaeti þurft að greiða allt að 200 milljónir ofan á 406 milljónir
Útgjöld Þróunarsjóðs sjávarútvegs-
ins til kaupa á úreltum fiskvinnslu-
stöðvum í landinu gætu numið allt að
200 milljónum króna ef mið er tekið af
dómi sem gekk í vikunni. Hér er um að
ræða greiðslur til handa um 20 fisk-
vinnslufyrirtækjum í landinu sem Þró-
unarsjóður hafnaði að afgreiða á þeim
forsendum aö eigendumir uppfylltu
ekki skilyrði um vinnureglur sjóösins
- reglur sem nú hafa verið dæmdar
ólögmætar.
Eins og fram kom í DV í gær vann
Vinnslustöðin i Vestmannaeyjum mál
á hendur Þróunarsjóði í vikunni. Stöð-
in sótti um afgreiðslu á úreldingu á
fjórum frystihúsum en var hafnað á
þeim forsendum að Vinnslustöðin
heiði ekki útvegað kaupanda að eign-
unum - kaupanda sem myndi nota hús-
in í öðrum tilgangi en til vinnslu í sjáv-
arútvegi. Þessar vinnureglur hafa nú
verið dæmdar ólögmætar og andstæðar
tilgangi löggjafar.
Fasteignamat eignanna í Vest-
mannaeyjum er um 229 milljónir
króna. Gert er ráð fyrir að ef sjóðurinn
afgreiðir umsóknina, eins og dómurinn
kveður á um, og heimilar síðan úreld-
ingu muni hann kaupa eignimar á 75
prósent af fasteignamati - á röskar 150
milljónir króna. Þá er miðað við há-
marksverð.
Hinrik Greipsson, framkvæmda-
stjóri Þróunarsjóðs, sagði við DV í
gær, að um tveir tugir mála liggi fyrir
sem teljast hliðstæð umsókn Vinnslu-
stöðvarinnar. Þar er átt við umsóknir
sem sjóðurinn hafnaði að afgreiða á
grundvelli hinna nú ólögmætu vinnu-
reglna. Hinrik segir að mál Vinnslu-
stöðvarinnar sé langstærst. Hann segir
að andlag kaupverðs sjóðsins á hinum
tveimur tugunum af frystihúsum og
fiskvinnslustöðvum muni því vart
nema meira en samtals 50 milljónum.
Þróunarsjóður sjávarútvegsins
keypti fasteignir og tæki til úreldingar
af fiskvinnslufyrirtækjum í landinu
fyrir 406 milljónir króna á því tímabili
sem honum var heimilt að kaupa eign-
ir vegna úreldinga - á árunum 1995
fram á seinni hluta árs 1997. Þetta var
gert samkvæmt lögum í því skyni að
draga úr afkastagetu i sjávarútvegi en
auka á hinn bóginn arðsemi í atvinnu-
greininni. Hér var um að ræða af-
___________s___________ "_________iiJll----------- ■...i,l..I '................
Móðir fanga sem fyrirfór sér fór á Litla-Hraun á fimmtudag þar sem hún heimsótti kunningja sonar sms^
greiðslu á um tveimur tugum um-
sókna.
Úrslit í þessu hagsmunamáli munu
nú í fyrsta lagi velta á því hvort Þróun-
arsjóðurinn unir eða áfrýjar framan-
greindum dómi. Siðan hvort sjóðurinn
muni þurfa að afgreiða tuttugu um-
sóknir sem hafði verið hafnað og
greiða allt að tvö hundruð milljónir
króna til úreldingar fasteigna í sjáv-
arútvegi.
Þróunarsjóður sjávarútvegsins
uppistendur af fé sem aðilar í sjávarút-
vegi hafa sjálflr og munu sjálfir greiða
í þangað til sjóðurinn hefur greitt upp
lán sem tekin voru hjá ríkinu í þvi
skyni að greiða fyrir úreldingar fisk-
vinnslustöðva og skipa.
-Ótt
Móðir fanga:
Vill þakka
föngunum
hlýhug
- vegna fráfalls sonar
Móðir fanga sem framdi sjálfsvíg á
Litla-Hrauni vill fá aö þakka fongum
þann hlýhug sem þeir sýndu við út-
för sonar hennar fyrir rúmri viku.
DV fór með henni að Litla-Hrauni á
fimmtudag þar sem hún hitti meðal
annars kunningja sonar síns. Hún
segir að það hafi snert sig mjög þeg-
ar fangarnir sendu syni hennar
krans með áletrun og undirritað „70
vinir“. Móðirin fékk ekki að ávarpa
fangana á fimmtudag þar sem form-
lega þarf að sækja um leyfi til slíks
til Fangelsismálastofnunar.
„Ég ætla að sækja um þetta leyfi
strax eftir helgi. Hlýhugur fanganna
hefur hjálpað mér mikið á erfiðum
tímum og stuðningur þeirra er ómet-
anlegur. Þá vil ég taka skýrt fram að
fangaverðimir hafa sömuleiðis verið
mér góðir,“ segir hún. -rt
Glerflutninga-
kerru stoliö
Lögreglan í Kópavogi lýsir eftir
glerflutningakerru sem var stolið
fyrir utan Skemmuveg 6 í fyrrinótt.
Kerran er krossviöarklædd og 2.7
metrar á hæð. Kerran er um 700 þús-
und króna virði. Þeir sem geta gefið
upplýsingar um hvar kerruna er að
finna eru vinsamlegast beðnir að
hafa samband við lögregluna í Kópa-
vogi. ‘RR
Tugir katta hafa horfið í Vogahverfi:
Rófa skor-
in af ketti
- ómanneskjulegt, segir eigandinn
„Kötturinn kom veinandi heim
og rófan hékk hreinlega á skinn-
flipum. Þetta var hræðileg sjón. Við
fórum með hann á dýraspítala og
dýralæknirinn taldi langlíklegast
að rófan hefði verið skorin af hon-
um. Þetta er hræðileg ómanneskju-
legt og maður skilur ekki hvernig
einhver getur gert svona," segir
Oddur Guðlaugsson, ibúi í Skipa-
sundi í Reykjavík.
Köttur Odds, hann Pjakkur, kom
slasaður heim á dögunum og er
völdum. Mikil óánægja er meðal
kattareigenda í hverfinu þar sem
fjöldi katta hefur horfið að undan-
fórnu. Á dögunum fundust tveir
kettir dauðir í ruslatunnu. Lögregl-
an hefur fengið málið í sínar hend-
ur en rannsókn hefur ekki borið ár-
angur. -RR
Oddur Guðlaugsson og kötturinn
hans, Pjakkur, sem missti rófuna.
Talið er að hún hafi verið skorin af
honum.
-------1 s
stuttar fréttir
Arekstrahrina
Alls voru 14 árekstrar til-
kynntir til lögreglunnar í
Reykjavík frá hádegi til klukkan
sex í gær. Þetta er óvenjumikið á
einum degi.
Forsetinn í frystihús
Forsetahjónin skoðuðu í gær
frystihús og út-
gerð sem rekin er
af íslenskum fyr-
irtækjum i Gu-
aymas i Mexíkó.
Einnig voru þau
viðstödd stofnun
íslensk-mexí-
kósks fisksölu-
fyrirtækis.
Stykkishólmslistinn
Framboðslisti Stykkishólms-
listans hefur veriö samþykktur.
Erling Garðar Jónasson er í
fyrsta sæti, Davíð Sveinsson í
öðru og Sigurborg Sturludóttir í
þriðja.
Tindar klárir
Framboðslisti Tinda við bæj-
arstjómarkosningarnar á Seyðis-
firði hefur einnig verið ákveð-
inn. Þar er Ólafia Þórunn Stef-
ánsdóttir í fyrsta sæti, í ööru
sæti er Sigurður Þór Kjartans-
son, Egill Sölvason er í þriðja
sæti og Lukka Sigríður Gissurar-
dóttir hjúkrunarforstjóri í fjórða
sæti.
Þrjú embætti auglýst
Biskupsembættið hefur aug-
lýst þrjú embætti laus til um-
sóknar. Þetta eru embætti sókn-
arprests í Skagastrandarpresta-
kalli, sóknarprests í Ofanleitis-
prestakalli í Vestmannaeyjum og
sóknarprests í Útskálaprestakalli
í Kjalamesprófastsdæmi.
111 þús. sjá Titanic
Ríflega 111 þúsund manns
hafa séð kvik-
myndina Titan-
ic frá þvi hún
var frumsýnd
hér á landi á
nýársdag. Þetta
jafngildir því að
yfir 40% lands-
manna hafi séð
Dessa mynd. Heildartekjur
myndarinnar hér á landi nema
um 70 milljónum króna.
ÁTVR hætt innflutningi
Ný reglugerð um ÁTVR tekur
gildi 15. maí. Samkvæmt henni
hættir ríkiö innflumingi á áfengi
til sölu í vínbúðum og á
vínveitingastööum. Undirbúin
veröur opnun vinbúða í
Mosfellsbæ og Dalvik.
Grandi greiðir arð
Samþykkt var á aðalfundi
Granda, sem haldinn var í gær,
að greiddur yröi 9% arður til
hluthafa. Stjórn félagsins var
endurkjörin á fundinum.
Stúlkan látin
Amal Thir Sa’eed, fimm ára
stúlka frá Bagdad, sem komið var
undir læknishendur í Amsterdam
af Friði 2000, lést í gærkvöldi á
sjúkrahúsi i Amsterdam. Ástþór
Magnússon, forseti Friðar 2000,
sendi Kofi Annan, aðalritara
Sameinuðu þjóðanna, bréf þar sem
hann skoraði á hann að létta
þjáningar fólksins í Irak.
Bréf til ráðherra
Formenn landsfélaga Rauða
krossins á
Norðurlöndum
og i Eystrasalts-
ríkjunum hafa
ritað forsætis-
ráðherrum
landa sinna bréf |
þar sem hvatt
er tfi að móta
alþjóðalög um vemdun barna
gegn þátttöku í vopnuðum átök-
um. Anna Þrúöur Þorkelsdótt-
ir, formaöur Rauða kross ís-
lands, undirritaði bréfið. -HI