Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1998, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1998, Blaðsíða 15
14 FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 1998 FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 1998 27 íþróttir Þórey á flugi í Kaplakrika - bætti íslands- og Norðurlandamet Völu Þórey Edda Elísdóttir, stangarstökkvarinn efnilegi úr FH, sló hressilega í gegn á frjálsíþróttamóti í Kaplakrika í gærkvöld. Þórey geröi sér lítið fyrir og sló íslands- og Norðurlandamet Völu Flosadóttur í stangarstökki utanhúss með því að svífa yfir 4,18 metra. Met Völu var 4,17 metrar en hún hefur hins vegar stokkið 4,44 metra innanhúss og ætti að hafa alla burði til að endurheimta þetta met innan skamms. Þórey er hins vegar methafmn í dag og framfarir hennar eru stórkostlegar. ísland á tvo bestu stangarstökkvara Norðurlanda utanhúss sem er heldur betur glæsilegur árangur. -VS Yfirburðir en tæpt - þegar Leiftur sigraði ÍR-inga, l-ö DV, Ólafsfirði Leiftur sigraði ÍR, 1-0, í ákaflega kaflaskiptum leik í Ólafsfirði í gær- kvöld. Fyrri hálfleikurinn var hrein eign heimamanna sem áttu að geta skorað fjölda marka. Yfirburðir Leifturs í fyrri hálfleik voru með ólíkindum og það var eins og ÍR-ing- ar vissu ekki i hvorn fótinn þeir ættu að stíga. Á þessum kafla var hrein unun að horfa á samspil Leiftursmanna. Liðið var talsvert breytt frá síðustu tveim leikjum. Lazorik var kominn í fremstu víglínu í stað Steinars, Baldur og Páll Guðmundsson inn á miðjuna, en Kinnaird er meiddur. Ef Leiftursmenn spila eins og þeir gerðu í fyrri hálfleik þá leikur eng- in vafi á því að liðiö verður í topp- baráttunni. Sérstaka athygli vakti þó framganga John Nielsens, sem átti glimrandi leik og skot hans að marki ÍR voru hreint út sagt frá- bær. Þá var Lazorik mjög góður. En þetta breyttist í seinni hálf- leik. Þá voru heimamenn að dúlla með boltann; liðsheildin var ekki til staðar og menn gerðust eigingjarn- ir. Og það var eins og við manninn mælt, andstæðingurinn, sem hafði verið í felum mestallan tímann, mætti á svæðið og gerði örvænting- arfullar tilraunir til að jafna. ÍR-ingar voru ekki langt frá því að jafna á lokamínútum leiksins, sem voru ótrúlega spennandi miðað við leikinn í heild. Sigurinn var því furðu tæpur þrátt fyrir allt. Þetta gerðist þrátt fyrir að ÍR-ingar væru einum færri síðari hluta leiksins. ÍR-ingar áttu frekar dapran dag en lið er aldrei betra en andstæðingur- inn leyfir. Það var ekki fyrr en seint í síðari hálfleik að Leiftursmenn hleyptu gestum sínum inn í betri stofuna og þá er voðinn vís. Ólafur Þór var langbestur ÍR-inga, enda hafði hann nóg að gera í markinu. Páll Guðlaugsson, þjálfari Leift- urs, var ekki kátur með sína menn í lokin, sagði að liðið hefði misst einbeitinguna í seinni hálfleik.Páll Guðmundsson var hins vegar alsæll með sigurinn og brosti breitt í bún- ingsklefa, sagði að aðalatriðið væri að ná stigum. -HJ Uppboð Uppboö munu byrja á skrifstofu embættisins aö Auöbrekka 10, Kópavogi, sem hér segir á eftir- _________farandi eignum.___________ Ásbraul 9, 1. hæð, þingl. eig. Garðar Guðjónsson, gerðarbeiðandi Byggingar- sjóður ríkisins, miðvikudaginn 3. júní 1998 kl. 10.00. Blikahjalli 12, 14, 16 og 18, þingl. eig. Jón og Salvar ehf., gerðarbeiðendur Bergverk ehf. og Sýslumaðurinn í Kópa- vogi, miðvikudaginn 3. júní 1998 kl. 10.00. Efstihjalli 25, 0001, þingl. eig. Þorvarður Einarsson og Guðbjörg Halldóra Ólafs- dóttir, gerðarbeiðendur Húsbréfadeild Húsnæðisstofnunar ríkisins og Sýslu- maðurinn í Kópavogi, miðvikudaginn 3. júm' 1998 kl. 10.00. Engihjalli 11,3. hæð A, þingl. eig. Júlíus Rafn Júlíusson, gerðarbeiðendur Bygg- ingarsjóður ríkisins og Tollstjóraskrif- stofa, miðvikudaginn 3. júní 1998 kl. 10.00, Grundarsmári 12, þingl. eig. Timbur- vinnsla H.J. ehf., gerðarbeiðandi Eignar- haldsfél Alþýðubankinn hf., miðvikudag- inn 3. júní 1998 kl. 10.00. Hlíðarhjalli 24, 0201, þingl. eig. Vilhelm Guðmundsson og Anna Vilborg Hall- grímsdóttir, gerðarbeiðendur Byggingar- sjóður ríkisins og Húsbréfadeild Hús- næðisstofnunar ríkisins, miðvikudaginn 3. júní 1998 kl. 10.00. Hlíðarhjalli 63, 0201, þingl. eig. Hólm- lríður Kristjánsdóttir, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður verkamanna, miðviku- daginn 3. júní 1998 kl. 10.00. Hlíðarhjalli 64, 0201, þingl. eig. Ingi- björg Hauksdóttir, gerðarbeiðandi Bygg- ingarsjóður ríkisins, miðvikudaginn 3. júm' 1998 kl. 10.00. Hófgerði 9, þingl. eig. Jóhanna Bjöms- dóttir og Ingvar Oddgeir Magnússon, gerðarbeiðandi Húsbréfadeild Húsnæðis- stofnunar ríkisins, miðvikudaginn 3. júní 1998 kl. 10.00. Huldubraut 13, efri hæð, þingl. eig. Jó- hann S. Vilhjálmsson og Guðmunda Ingj- aldsdóttir, gerðarbeiðendur Búnaðar- banki íslands, Byggingarsjóður ríkisins og Sýslumaðurinn í Kópavogi, miðviku- daginn 3. júní 1998 kl. 10.00. Kjarrhólmi 36, 1. hæð A, þingl. eig. Sæv- ar Sigurhansson og Ólöf Guðrún Jóns- dóttir, gerðarbeiðandi Bæjarsjóður Kópa- vogs, miðvikudaginn 3. júní 1998 kl. 10.00.________________________________ Laufbrekka 24,0201, þingl. eig. Haraldur Emst Sigurðsson og Margrét Gústafsdótt- ir, gerðarbeiðendur Eignarhaldsfélagið Jöfur ehf., Húsbréfadeild Húsnæðisstofn- unar ríkisins og Samvinnusjóður íslands hf., miðvikudaginn 3. júní 1998 kl. 10.00. Lyngheiði 21, 0201, þingl. eig. Bjöm J. Ingibjartsson, gerðarbeiðandi Sameinaði lífeyrissjóðurinn, miðvikudaginn 3. júní 1998 kl, 10.00._______________________ Nýbýlavegur 66, 1. hæð t.h., þingl. eig. Guðrún Sigurðardóttir, gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður verslunarmanna, miðviku- daginn 3. júní 1998 kl. 10.00. Reynihvammur 31, þingl. eig. Ragnheið- ur Kr. Sigurðardóttir, gerðarbeiðandi Sameinaði lífeyrissjóðurinn, miðviku- daginn 3. júní 1998 kl. 10.00. Skjólbraut 2, 010101, þingl. eig. Gunnar Guðmundsson og Silva Þórisdóttir, gerð- arbeiðendur Lífeyrissjóður starfsm. ríkis- ins, Olfuverslun Islands hf. og Ríkisút- varpið, miðvikudaginn 3. júní 1998 kl. 10.00.________________________________ Smiðjuvegur 4, 0211, þingl. eig. GMÞ Hummer-umboðið ehf., gerðarbeiðandi P. Samúelsson ehf., miðvikudaginn 3. júní 1998 kl. 10.00,_______________________ Trönuhjalli 11,0401, þingl. eig. Guðlaug- ur I. Guðlaugsson, gerðarbeiðandi Bygg- ingarsjóður ríkisins, miðvikudaginn 3. júní 1998 kl. 10.00.__________________ Tunguheiði 6, 2. hæð t.h., þingl. eig. Hreinn Ámason, gerðarbeiðandi Bygg- ingarsjóður ríkisins, miðvikudaginn 3. júní 1998 kl, 10,00,__________________ Þinghólsbraut 15, þingl. eig. Ámi Ed- winsson, gerðarbeiðendur Búnaðarbanki íslands og Bæjarsjóður Kópavogs, mið- vikudaginn 3. júní 1998 kl. 10.00. SÝSLUMAÐURINN í KÓPAVOGI Leiftur (1)1 ÍR (0)0 1-0 Kári Steinn Reynisson (44.) skoraði auðveldlega af stuttu færi eft- ir frábæran einleik Peters Ogaba inni i teig. Lið Leifturs: Jens Martin Knud- sen - Steinn V. Gunnarsson, Andri Marteinsson @, Þorvaldur Sveinn Guðbjörnsson (Sindri Bjarnason, 72) - Peter Ogaba. Páll Gíslason, Páll Guðmundsson @LJohn Nielsen @, Baldur Bragason @ (Davíð Garðars- son 77.) - Kári Steinn Reynisson l@ (Uni Arge 72.), Rastislav Lazorik Lið ÍR: Ólafur Þór Gunnarsson @ - Magni Þórðarson, Kristján Hall- dórsson @, Garðar Newman, Joe Tortolano - Geir Brynjólfsson (Heiö- ar Ómarsson 77.), Arnar Þór Valsson (Ásbjöm Jónsson 56.), Bjarni Gaukur Sigurðsson, Arnljótur Davíðsson (Guðjón Þorvarðarson 56.), Sævar Þór Gíslason - Kristján Brooks. Markskot: Leiftur 20, ÍR 6. Horn: Leiftur: 7, ÍR 6 Gul spjöld: Páll Gísla (L), Baldur (L), Steinn (L), Arnar (lR), Bjarni Gaukur (ÍR), Guðjón (ÍR), Heiðar (ÍR). Rautt spjald: Magni (ÍR) 70 mín. Dómari: Bragi Bergmann, ákveð- inn. Áhorfendur: Um 250. Skilyrði: Frábær völlur, gola, svalt. Maður leiksins: John Nielsen, Leiftri. Gríðarlega sterkur, send- ingar góðar og frábær langskot sem sköpuðu mikla hættu. BKand í poka Tómas Ingason, knattspyrnumaður, gekk á dögunum til liðs við Stjörnuna og mun leika í marki liðsins i 1. deildinni í sumar. Tómas kemur frá Val og hefur verið varamarkvöröur liðsins undanfarin ár en hann er 20 ára gamall. Nói Björnsson er aðstoðarþjálfari KA-liðsins i knattspyrnu i sumar. Þaö er kannski ekki í frásögur fær- andi en hver hefði trúað því fyrir ára- tug að Nói ætti eftir að hrópa: Áfram, KA. Nói lék um árabil með hinu Ak- ureyrarliðinu og er leikjahæsti leik- maður Þórsara í meistaraflokki. Daniel Hjaltason skoraöi bæði mörk Leiknis úr Reykjavík sem vann góðan útisigur á Ægi, 0-2, í 2. deild- inni í knattspyrnu í gærkvöld. Guömundur Baldursson, þjálfari Hamars og fyrrum Valsmaður, skor- aði glæsimark úr aukaspyrnu fyrir lið sitt í gærkvöld þegar það gerði 1-1 jafntefli við KFR á Hvolsvelli i A-riöli 3. deildar. Ágúst Daöi Guömundsson skoraöi þrennu fyrir Aftureldingu sem vann Bruna, 7-0, i sama riðli. Þar tapaöi einnig Snæfell fyrir Létti, 2-6. Sindramenn frá Hornafiröi skor- uðu 17 mörk á Djúpavogi í gærkvöld. Þeir unnu þar Neista, 2-17, i E-riðli 3. deildarinnar. Magni sigraöi Nökkva, 3-1, i D-riðl- inum á Grenivík og að Laugum vann HSÞ-b sigur á Neista frá Hofsósi, 3-2. -GH/VS Þróttur 0 Fram 0 Lið Þróttar: Fjalar Þorgeirsson - Þorsteinn Jfalldórsson @. Daði Dervic @@, Páll Einarsson @, Vil- hjálmur Vilhjálmsson - Logi Jóns- son, Ingvar Olason, Ásmundur Har- aldsson, Gestur Pálsson (Gunnar Gunnarsson 81.) - Tómas Ingi Tómas- son, Hreinn Hringsson. Liö Fram: Ólafur Pétursson @ - Sævar Guðjónsson, Jón Sveinsson, Þórir Áskelsson - Ásmundur Amar- sson, Árni Ingi Pjetursson, Freyr Karlsson, Þorvaldur Ásgeirsson, Kristófer Sigurgeirsson (Hallsteinn Arnarson 72.) - Þorbjörn A. Sveins- son, Baldur Bjarnason @. Markskot: Þróttur 6, Fram 7. Horn: Þróttur 9, Fram 7. Gul spjöld: Ingvar (Þ), Vilhjálmur (Þ), Freyr (F), Þorbjörn (F). Dómari: Ólafur Ragnarsson, sæmilegur. Áhorfendur: 858. Aðstæður: Hægur vindur, skýjað, völlurinn laus í sér. Maður leiksins: Daði Dervic, Þrótti. Var mjög traustur í vörn Þróttara og stöðvaði ófáar sóknir Framara. Skilaði boltanum undan- tekningarlaust vel frá sér. r>v dv Meistarabragur - á Eyjamönnum sem unnu stórsigur í Keflavík, 0-3 DV, Suöurnesjum: Ef Eyjamenn halda áfram á þeirri braut sem þeir voru á í Keflavík í gær- kvöld verður erfitt að ná meistaratitl- inum úr höndum þeirra. Þeir unnu mjög sannfærandi sigur á bikarmeist- urunum, 0-3, og eru einir í efsta sæti úrvalsdeildarinnar. Úrslitin voru nánast ráðin eftir 38 mínútur en þá hafði Steingrímur Jó- hannesson skorað tvö mörk og Jens Paeslack eitt. Þar við sat en bæði lið fengu mörg færi til að bæta við marka- töluna í líflegum leik sem var ágæt skemmtun þrátt fyrir markamuninn. „Ég er mjög ánægður með leikinn og við náðum að klára dæmið í fyrri hálfleik. Það var gott að fara inn í hálfleik þremur mörkum yfir. Leikur okkar er að þéttast og við erum að finna taktinn betur og bet- ur,“ sagði Bjarni Jó- hannsson, þjálfari Eyjamanna, við DV. „Þetta var slappt hjá okkur í byrjun og það er kjaftshögg fyr- ir hvaða lið sem er að fá á sig svona mörk snemma í leiknum. Við áttum okkar færi en svona er fótbolt- inn. Hlutimir féllu ekki fyrir okkur i þessum leik, hvorki sóknarlega né varn- arlega. Menn gáfust þó ekki upp en við vitum að við getum betur,“ sagði Gunn- ar Oddsson, miðju- maður og annar þjálfara Keflvíkinga, við DV. Eyjamenn léku án efa sinn besta leik á tímabilinu og spil- uðu nær óaðfinnan- lega allan tímann. Það er vart hægt að finna veikan hlekk í Steingrímur Jóhannesson skor- liðinu. Liðið leikur aði tvö mörk í gær og er nánast sterkan og skynsam- óstöðvandi þessa dagana. an varnarleik og beitir hættulegum sendingum á hina mögnuðu sóknarmenn sína, Steingrím og Paeslack. Steingrímur var stór- hættulegur í sókn liðsins, fljótur og vakandi fyrir öllum möguleikum og hlýtur að fara að banka á dyr lands- liðsins. Auk tveggja marka sló Bjarki, markvörður Keflavíkur, boltann tvisvar i slána eftir skot Steingríms. Keflvíkingar virkuðu frískari til að byrja með en slæm varnarmistök komu þeim í erflða stöðu. Þeir fengu samt talsvert af færum til að rétta sinn hlut. Ólafur Ingólfsson var sér- staklega beittur en hafði ekki heppn- ina með sér. Liðsheildina vantaði hjá Keflavík og slíkt dugir ekki gegn svona sterkum andstæðingum. -ÆMK Baldur Bjarnason, Framari, skallar boltann í mark Þróttara án þess aö Fjalar Þorgeirsson markvörður fái rönd við reist. En markið var dæmt af, Baldur var talinn hafa brotið á Fjalari, og það var mjög umdeildur dómur. DV-mynd Brynjar Gauti „Visst skref fram á viö“ - Framarar enn án marka en fengu fyrsta stigið með 0-0 jafntefli við Þróttara Framarar hafa enn ekki reimað á sig skotskóna og hafa nú spilað í 270 mínútur án þess að skora mark í úr- valsdeildinni eftir 0-0 jafntefli gegn ný- liðum Þróttar i Laugardalnum í gær. Safamýrarpiltamir náðu að vísu að skora þegar Baldur Bjamason skallaði inn fyrir marklínuna en Ólafur Ragn- arsson dæmdi það af þar sem Baldur hefði stuggað við Fjalari markverði. Undirritaður gat ekki séð neitt at- hugavert og eftir leikinn sagðist Bald- ur eingöngu hafa stokkið upp með Fjalari án þess að brjóta á honum. „Mér fannst við öllu sterkari aðil- inn en náðum ekki að skapa okkur nein sérstök færi. Við vorum búnir að fá á okkur 6 mörk fyrir leikinn og fyr- ir vikið spiluðum við kannski af of mikilli varfærni. En það er jákvætt að við höfum ekki tapað leik á mótinu þar sem hvert stig er dýrmætt í barátt- unni,“ sagði Þorsteinn Halldórsson, fyrirliði Þróttar, við DV eftir leikinn. Leikur Reykjavíkurliðanna var með daufara móti og bar þess keim að hvorugt liðið ætlaði sér að tapa og taka óþarfa áhættu í leiknum. Fyrir vikið var leikurinn á köflum miðju- hnoð og ekki mikið um opin mark- tækifæri. Þróttarar hugsuðu frekar um að stoppa í vörn sína, sem fyrir leikinn hafði lekið inn 6 mörkum, frekar en að spila sama góða sóknar- boltann og í fyrstu tveimur umferðun- um. Daði Dervic lék mjög vel hjá Þrótturum og þeir Þorsteinn og Páll Einarsson voru fastir fyrir í vörninni. Framarar geta fagnað því að vera komnir á blað en áhyggjuefni fyrir lið- ið hlýtur að vera markaleysið. Fram- ararnir hafa ekki staðið undir þeim væntingum sem til þeirra voru gerðar fyrir mótið og sérstaklega hefur sókn- arleikurinn verið bitlaus. Baldur og Þorbjörn gerðu ágæta hluti á köflum í sókninni en fengu lítinn stuðning frá miðjumönnunum. „Þessi leikur var visst skref fram á við og mér finnst aðeins vanta herslumuninn. Menn voru að berjast en undir niðri voru menn hræddir um að tapa leiknum og því var sóknar- þunginn kannski ekki nægilega mik- Ul,“ sagði Jón Sveinsson, fyrirliði Fram, við DV eftir leikinn. -GH íþróttir Kefíavík (0)0 ÍBV (3)3 0-1 Steingrímur Jóhannesson (14.) komst innfyrir vörn Keflavíkur eftir sendingu Kristins Lárussonar og slæm varnarmistök og renndi boltanum undir Bjarka markvörö. 0-2 Steingrímur Jóhannesson (22.) fékk langa sendingu frá Inga Sigurðssyni, komst fram hjá Bjarka og sendi boltann í tómt markið. 0-3 Jens Paeslack (38.) meö miklum þrumufleyg af 20 m færi eftir fallega sókn og sendingu Steingrims. Lið Keflavíkur: Bjarki Guð- mundsson - Snorri Már Jónsson @, Guðmundur Oddsson, Kristinn Guð- brandsson, Gestur Gylfason (Georg Birgisson 77.) - Róbert Sigurösson, Gunnar Oddsson, Eysteinn Hauksson (Karl Finnbogason 27.), Adolf Sveins- son - Ólafur Ingólfsson @, Guö- mundur Steinarsson (Vilberg Jónas- son 70.) Lið ÍBV: Gunnar Sigurðsson @ - Steinar Guðgeirsson (Hj^ti Jónsson 86.), HlynurStefánsson @, Zoran Miljkovic @, Hjalti Jóhannesson (Kjartan Antonsson 84.) - Jngi Sig- urðsson, Ivar tagimarsson @, Sigur- vmólafsson @, Kristinn Lárusson @@ - Jens Paes]ack@, Steingrím- ur Jóhannesson @@. Markskot: Keflavík 16, ÍBV 12. Horn: Keflavík 7, ÍBV 5. Gul spjöld: Steinar (V), Ingi (V). Dómari: Guðmundur Stefán Mar- iasson, mjög góður. Áhorfendur: Um 650. Skilyrði: Frábært veður, sól og andvari, völlurinn aö koma til. Maður leiksins: Steingrímur Jóhannesson, IBV. Skoraði tvö mörk og lagði eitt upp, og hefði getað gert þrjú í viðbót. Gríðarlega fljótur og gerði mikinn usla i vörn Keflavíkur. Eysteinn Hauksson, Keflavík, þurfti að yfirgefa völlinn snemma vegna meiðsla sem háðu honum frá byrjun leiks. FÍprVrV ií ÚRVALSDEILD ÍBV 3 2 1 0 9-4 7 Leiftur 3 2 0 1 4-3 6 Grindavík 3 1 2 0 5-3 5 KR 3 1 2 0 3-1 5 Keflavík 3 1 1 1 3-5 4 Þróttur R. 3 0 3 0 6-6 3 Valur 3 0 3 0 4-4 3 ÍA 3 0 2 1 3-5 2 ÍR 3 0 1 2 2-4 1 Fram 3 0 1 2 0-4 1 Á mánudag leika Grindavík-Þrótt- ur, ÍR-ÍBV, Fram-ÍA og Leiftur-KR og á þriðjudag mætast Valur og Kefla- vik. Akranes (0)1 Valur (1)1 O-l Jón Þ. Stefánsson (2.) skallaði boltann í hægra homið eftir send- ingu Heimis Porca og Þórður gerði ekki tilraun til að verja. 1-1 Ragnar Hauksson (57.) með viðstöðulausu skoti út við stöngina nær, óverjandi fyrir Lárus, eftir send- ingu Unnars Valgeirssonar. Lið ÍA: Þórður Þórðarson - Krist- ján Jóhannsson, Sturlaugur Haralds- son, Slobodan Milisic @, Steinar Ad- olfsson @ - Alexander Högnason (Unnar Valjeirsson 51.) Pálmi Har- aldsson @@, Jóhannes Harðarson, Heirmr Guöjónsson - Ragnar Hauks- son @, Sigurður Ragnar Eyjólfsson (Hálfdán Gíslason 66.) Lið Vals: Lárus Sigurðsson @@ - Ágúst Guðmundsson (Jóhann Hreiðarsson 46.), Bjarki Stefánsson, Stefán Ómarsson, Grtour Garðars- son - Ólafur Stígsson @ (Guðmund- ur Brynjólfsson 90.), Sigurbjörn Hreiðarsson, Heimir Porca @, Hörö- ur Már Magnússon, Jón Þ. Stefánsson @, Arnór Gunnarsson (Ingólfur Ing- ólfsson 51.) Markskot: ÍA 16, Valur 8. Horn: ÍA 7, Valur 1. Gul spjöld: Ragnar (ÍA), Unnar (ÍA), Hörður Már (Val). Dómari: Egill Már Markússon, ágætur. Áhorfendur: 850. Skilyrði: Norðangola, léttskýjað og völlurinn mjög góður. Maður leiksins: Lárus Sigurðs- son, Val, varði oft meistaralega og tryggði Valsmönnum eitt stig. Brugge býður 80 milljónir - í Arnar Grétarsson hjá AEK Belgísku meistararnir Club Brugge hafa gert AEK frá Aþenu tilboö í íslenska knattspyrnu- manninn Arnar Grétarsson. Boðið hljóðar upp á 80 milljónir ís- lenskra króna. Þar með er í gangi hörð keppni þriggja fé- laga, Club Brugge, AEK og belgíska stórveld- isins Anderlecht, um Arnar. Eins og áður hefur komið fram í DV er Anderlecht reiðubúið til að greiða á bilinu 40-80 milljónir fyrir Arnar, sem á tvö ár eftir af samningi sínum við AEK. Gríska félagið hefur líka allan hug á að halda Arnari og hyggst bjóða hon- um nýjan og betri samning til fjög- urra ára. „Þetta er orðin dálítið snúin en spennandi staða. AEK hefur málið í sínum höndum, ég er samnings- bundinn félaginu og það getur ein- faldlega neitað öllum tilboðum. Club Brugge og Anderlecht eru stórir og öflugir klúbbar og það yrði varla leiðin- legt að spila með hvorum sem væri. Á móti kemur að okkur hefur liðiö mjög vel í Grikklandi og AEK er mjög stórhuga fyrir næsta tímabil," sagði Arnar Grétarsson í samtali við DV í gærkvöld. Grískir fjölmiöl- ar hafa fjallaö mikið um málefni AEK síðustu daga og gagnrýnt fé- lagið harkalega fyrir að vera ekki búið að ganga frá málum varðandi Arnar og fleiri leikmenn. Stjóm AEKhefur sett markið hátt fyrir næsta tímabil, eftir að hafa hafnað í þriðja sæti í vetur. -VS í M. Lárus var frábær - tryggöi Val stig á Akranesi, 1-1 DV Akranesi Valsmenn gátu þakkað mark- verði sínum, Lárusi Sigurðssyni, fyrir jafntefli, 1-1, gegn ÍA á Akra- nesi í úrvalsdeildinni í gærkvöld. „Við skoruðum mark á annarri mínútu og áttum tíu mínútna kafla þar á eftir, síðan tóku Skagamenn öfl völd í fyrri háfleik og héldu þeim út fyrri háfleikinn. Við vorum bún- ir að sætta okkur við þetta eina mark og ætluðum að reyna að lifa á því án þess að berjast fyrir því. Við reyndum að gera betur í seinni hálf- leik og halda boltanum aðeins betur og liggja svolítið meir á boltanum og undirbúa sóknirnar betur en okkur gekk mjög illa. Skagamenn voru mjög ákveðnir, þeir máttu ekki við því að tapa stigum og við fengum lítinn frið. Við náðum stigi hérna og erum þakklátir fyrir það og það má eiginlega segja að Skaga- menn hafl leitt leikinn lengst af,“ sagði Kristinn Björnson, þjálfari Vals. Valsmenn byrjuðu leikinn vel. Jón Þ. Stefánsson skoraði strax og skömmu seinna björguðu Skaga- menn á línu en eftir það var fyrri háfleikur Skagamanna. Þeir áttu fjölda góðra færa en oftast varði Lárus meistaralega. Hörður Már Magnússon átti þó skot í stöng Skagamanna á lokamínútu fyrri hálfeiks. Seinni háfleikurinn var eins þar hefðu Skagamenn öll völd og óðu í færunum en tókst aðeins að skora eitt mark, Ragnar Hauksson var þar að verki. Bestir í liði Vals voru þeir Lárus Sigurðsson, Ólafur Stígsson og Jón Þ. Stefánsson. Valsliðið virkar mjög jafnt og baráttuglatt og gæti tekið mörg stig á því, en blandar sér að öllum líkindum ekki í toppbarátt- una. „Við vorum ekki ánægðir með það að fá bara eitt stig. Við teljum ^ að við höfum skapað okkur það mikið af færum að við áttum að klára leikinn. Úr því sem komið er þá er ekkert annað en að bretta upp ermarnar og taka næsta leik,“ sagði Steinar Adolfsson Skagamaður sem átti góðan dag ásamt þeim Pálma Haraldssyni og Ragnari Haukssyni. Það sem er samnefnari fyrir leik Skagamanna er einfalt: Framherji óskast. í tveimur heimaleikjum Skagamanna á móti Val í gærkvöld og Keflavík voru Skagamenn betri en gátu ekki nýtt færin og þar vant- ^ ar reyndan framherja til að klára málin. Ragnar Hauksson og Sig- urður Ragnar Eyjólfsson eru vissu- lega efnilegir en vantar meiri reynslu. -DVÓ íþróttafréttir einnig á bls. 32

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.