Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1998, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1998, Qupperneq 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1998 Fréttir__________________________________ Bjarni Tryggvason geimfari kom til landsins i morgun ásamt fjölskyldu: Ræturnar á íslandi - sagði Bjarni sem yfirgaf ísland fyrir 40 árum „Það er virkilega gott að vera kom- inn aftur til íslands eftir 40 ár i burtu. Ég var ekki nema 7 ára þegar ég yfir- gaf Island en nú er ég kominn aftur. Ég lít á mig bæði sem íslending og Kanadamann en rætumar eru án vafa á íslandi," segir Bjami Tryggvason, fyrsti íslenski geimfarinn, í samtali við DV við komuna til íslands i morgun. Bjami lenti ásamt fjölskyldu sinni á Keflavíkurflugvelli á áttunda tím- anum í morgun. Með Bjama í for vom eiginkonan, Lilyanna Zmijak, og böm þeirra, Michael, 12 ára, og Lauren, 9 ára. Bjami er hér í boði for- seta íslands og mun dvelja hér á landi í 10 daga. Hlakkartil 17. júní „Ég mun verða viðstaddur 17. júní hátíðarhöldin og ég hlakka mjög til þess. Ég fór með 10 íslenska fána út í geiminn og er með nokkra þeirra með mér. Ég ætla að gefa háskólan- um og íslensku þjóðinni fánana til varðveislu. Ég er líka ákveðinn í að ferðast um landið og skoða mig um. Ég á marga ættingja hér á landi. Ég stefhi meðal annars að því að fara til ísaijarðar en móðir mín er þaðan. Ég ætla líka að heimsækja Norðurland. Bjarni Tryggvason kom til landsins á áttunda tímanum í morgun ásamt fjölskyldu sinni. Hér er Bjarni á Keflavíkur- flugvelli ásamt konu sinni, Lilyanna Zmijak, og börnum þeirra, Michael og Lauren. DV-mynd BG Ég mun að sjálfsögðu skoða mig vel um í Reykjavík en þar bjó ég til sjö ára aldurs. Ég er ekki nógu góður í íslenskunni. Þegar hún er töluð við mig rifjast margt upp fyrir mér. Ég skil allavega sumt, en annaö ekki. Ég hefði viljað læra hana betur en það er búiö að vera svo mikið að gera hjá mér undanfarið," segir Bjami. Hann mun halda tvo fyrirlestra í Háskólanum næstkomandi flmmtu- dag. „Annar fyrirlesturinn fjallar um geimvísindi en hinn um ferð mína út í geiminn. Seinni fyrirlesturinn verð- ur svona á léttari nótum. Ég vona aö fólk hafi gaman af. Annars tel ég verulegar líkur á því að ég fari aftur út í geiminn á næstu 2 til 4 árum. Þegar ég fer aftur út mun ég hitta aðra geimfara og geimvísindamenn og þá verður farið yfir málin og hver stefnan er á næstu árum,“ segir Bjami. -RR Þurrkur tefur sprettu DV, Skagafirði: Þurrkatíð, sem staðið hefur samfleytt frá því nokkru fyrir hvítasunnu, er nú farin að hafa veruleg áhrif á sprettu í Skaga- firði, jafnt á túnum og í úthög- um. Spretta á ræktuðu landi er orðin afar hæg þrátt fyrir ágæt- an hita yfir daginn. Sama má segja um úthagann en þar sprettur mun hægar en eðlilegt getur talist og veröur það til þess að i einhverjum tilfellum seinkar því aö fé verði flutt í af- réttir. Þetta er með allra lengstu staðviðraköflum sem komiö hafa því veður er mjög svipað frá degi til dags, norðankaldi og léttskýjað og svo fer hitastig nið- ur undir frostmark um nætur. En þótt flestir séu farnir að von- ast eftir breytingu með ærlegri rigningu var veðráttan í maí með allra hagstæðasta móti fyr- ir sauðfjárbændur og létti þeim verulega vinnuna á þeim mikla annatíma. -Ö.Þ. Ákæruvaldið tapaði máli í gær þar sem ákært var fyrir að skýra rangt frá: Franklín Steiner og fé- lagi hans sýknaðir íslensk löggjöf er það óskýr að ekki er hægt að dæma fólk fyrir að greina rangt frá fyrir dómi. Þetta var ein af niðurstöðunum sem gefnar eru upp í sýknudómi sem kveðinn var upp í máh ákæruvaldsins gegn félaga Franklíns Steiners og Franklín sjálf- um í gær. Telja verður að maðurinn hafi án þess að fá refsingu mátt bera rangt um atvik sem lutu að meintri refsi- verðri hegðun hans, segir m.a. í dóm- inum. Málið var höfðað gegn félaga Franklíns aðallega en einnig gegn Franklín sem hlutdeildarmanni eftir að ákæruvaldið taldí þá hafa borið rangt fyrir dómi í fikniefhamáli sem höfðað var gegn Franklín. Hann var dæmdur í málinu og situr nú inni fyr- ir fikniefnabrot. Á meðan réttarhöld fóru fram í fíkniefnamálinu óskaði Franklín eftir aö félagi hans bæri vitni. Á það var fallist og „tók“ félaginn þá að mestu leyti „á sig sökina". Hann sagðist hafa átt þau fikniefni sem fundust heima hjá Franklín. Dómurinn tók ekki mið Meðal skemmtiatriða á morgun er komu í Nauthólsvík. Á morgun halda íslendingar nær og flær upp á þjóðhátíðardaginn, 17. júní. Eins og fyir verður mikið um að vera til sjávar og sveita og ekki hvað síst í Reykjavík. Dagskráin þar hefst fimm mínútum fyrir tiu með sam- hljómi kirkjuklukkna en fimm mín- útum síðan leggur nýkjörinn forseti Zirkus Zimsen sem verður með uppá- DV-mynd Teitur borgarstjómar blómsveig á leiöi Jóns Sigurðssonar undir heiðursverði skáta. Síðan rekur hver dagskrárlið- urinn annan ims dagskránni lýkur með tónleikum nokkurra vinsælli hljómsveita landsins á tveimur nýj- um sviðum, fyrir framan Iðnó og á Amarhóh. -fin Franklín Steiner, t.h., gengur út úr húsnæði Héraösdóms Reykjaness í gær - nýbúinn að fá sýknudóm. Hann afplánar nú dóm á Litla- Hrauni en á ekki von á að fá á sig auka- refsingu. Franklín verður að líkindum laus úr afplánun snemma á næsta ári. DV-mynd ÞÖK af þeim framburði og sakfehdi Frank- lín. Mennimir vom síðan saksóttir í sér sakamáli fyrir að greina ranglega frá fyrir dómi. Þeir hafa nú báðir verið sýknaðir og rikið dæmt til að greiða 100 þúsund króna málsvamarlaun fyrir Franklín, 100 þúsund fyrir félaga hans og 100 þúsund krónur í saksóknaralaun. í dómi Gunnars Aðalsteinssonar héraðsdómara kemur ffarn að lagaleg staða framangreinds vitnis hafi verið þannig að hún hafi ekki verið refsi- verð samkvæmt gildandi refsiheim- ildum. Að því virtu var Franklín einnig sýknaður fyrir hlutdeUdarbrot. Eftir að nokkrir hliðstæðir sýknu- dómar höfðu verið kveðnir upp í Dan- mörku ákvað löggjafinn að breyta heimUdum í refsUöggjöfinni. í dag er það talið skýrt lögbrot þar í landi þegar vitni greinir rangt frá fyrir dómi. -Ótt Forsetahjónin, Ólafur Ragnar Grímsson og Guðrún Katrín Þorbergsdóttir, heimsóttu aðra stærstu borg Litháens, Kaunas, á sunnudaginn. Borgarbúar fjölmenntu á Ráðhús- torgið og hylltu forsetahjónin með orðunum: „Lifi ísland - takk, ísland." Opinberri heimsókn forsetahjónanna til Eystrasaltslandanna lauk í gær. DV-mynd GTK Stuttar fréttir i>v Hefði ekki veitt Finnur Ingólfs- son viðskiptaráð- herra sagði í kvöldfréttum Rik- issjónvarpsins að hann hefði ekki farið í veiðiferð í boði leigutaka Langár eins og Sólon Sigurðsson, bankastjóri Búnaðarbanka, gerði á sunnudag. Fræðimannsíbúð Sjö fræðimenn hafa fengið afhot af fræðimannsíbúð Jóns Sigurðs- sonar í Kaupmannahöfn frá 1. sept. 1998 til 31. ágúst 1999. Þeir era: Davíð Þór Björgvinsson, Egg- ert Þór Bemharösson, Guðmund- ur Hálfdánarson, Þórunn Sigurð- ardóttir, Kári Bjamason, Páll Theódórsson og Sigurður Stein- dórsson, Bylgjan sagði frá. Flug aftur eðliiegt Flug til Noregs er komið i eðli- legt horf en norsk stjómvöld hafa stöðvað verkfall flugumferðar- stjóra með lagasetningu. Skipaður hefur verið sérstakur sáttasemjari í deilunni. Landbúnaður vottaður Starfshópur landbúnaðarráð- herra um vistvænt ísland hefúr lagt til við landbúnaðarráðherra að all- ar íslenskar landbúnaðarvörur verði vottaðar. Bylgjan greindi frá. Vekur grun Jóhanna Sig- urðardóttir segir að sú staðreynd aö laxveiöiferðir Sólons Sigurðs- sonar banka- stjóra, i Rangá, hafi verið skráðar á útibú bankans á Hellu veki grun um að laxveiðikostnaöur bank- anna sé meiri en hann hefúr verið talinn til þessa. Lýsir stuðningi I viðræðum sínum við Algirdas Saudargas, utanríkisráðherra Lit- háens, lýsti Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra íslands, stuðn- ingi íslands við inngöngu Litháens í NATO og ESB. Vill staðfestingu Rangar upplýsingar yfirstjómar Búnaðarbankans um laxveiðiferðir munu hafa þær afleiðingar að Finn- ur Ingólfsson viðskiptaráðherra mun í ffamtíðinni fá staðfestingu hjá Ríkisendurskoðun áður en hann veitir Alþingi upplýsingar um flóknar bókhaldstölur. Heimsótti lyfjafyrirtæki Halldór Ás- grímsson utanrik- isráðherra heim- sótti á mánudag lyfiafrrirtækið Ilsanta í Litháen sem íslenskir aöil- ar eiga meirihluta í. Þá heimsótti Halldór fyrirtækið Hnit-Baltic sem er að hluta til í eigu verkfræðistofunnar Hnits. Keikó vinsæll Þaö má líkja áhuga fjölmiðla á flutningi Keikós hingað til lands við umstangið sem varð þegar leið- togafúndur stórveldanna var hald- inn í Höfða fyrir 12 árum. Stöð tvö sagði frá. Sluppu við stuð Tveir menn sluppu ómeiddfr þegar bílpallur rakst i raflínu við Búrfellslínu 3. 66.000 volta spenna fór í gegnum bílinn. Bankar neita Ríkisskattstjóri hefur ákveðið að stefha einhverjum banka til að láta reyna á rétt sinn til að fá upp- lýsingar hjá bönkunum um bankainnstæður, vexti og fjár- magnstekjuskatt hóps skattgreið- enda sem valdir hafa verið af handahófi. Bankamir neita að veita þessar upplýsingar með vís- an til bankaleyndar. Morgunblaðið greinir frá þessu. -JP

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.