Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1998, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1998, Side 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1998 Neytendur i>v Verökönnun DV á ís: Töluverður verðmunur 200 180 160 140 120 100 80 60 40 20 0 130 125 135 Isbjörninn Dairy ■ 145 ísbúð ísbúöin Ishöllin Svarti ís með súkkulaðidýfu 185 180 160 160 140 125 130 Skalli Skalli Eddufelli Queen vesturbæjar Alfheimum Melhaga svanurinn Hraunbæ Laugalæk Reykja- Garöa- víkurvegi torgi Skalli Söluturn Nesti Isbúðin Fossnesti Hyrnan Kaupvangs- stræti DV-graf IH DV kannaði í gær verð á ís í brauð- formi á höfuðborgarsvæðinu, Akur- eyri, Selfossi og í Borgamesi. Alls voru 14 ísbúðir í könnuninni. Af þeim hefur Dairy Queen tvær búðir og Nesti fjórar. Sama verðið er á öllum útsölustöðum þeirra. Þær eru því tald- ar sem ein búð hvor. Athugað var verð á millistærð af ís í brauðformi, með dýfu og með dýfu og hrísi. Einnig verð á bamaís. Skalli, Reykjavíkurvegi og Hraun- bæ, og Sælgætis- og videóhöllin, Garðatorgi, selja aðeins stóran og lít- inn ís. Sama gildir um Isbúðina, Kaup- vangsstræti 3 á Akureyri, Fossnesti á Selfossi og Hymuna í Borgamesi. Þessum krökkum þykir ís býsna Ijúffengur. Ódýrt í Svarta svaninum Svarti svanurinn er með lægsta verðið í þremur af fjórum flokkum sem kannaðir voru. ís í brauðformi kostar 100 kr. þar. ís með dýfu kostar 120 kr. og ís með dýfu og hrísi 140 kr. Barnaís er hins vegar ódýrastur í ís- höllinni við Melhaga og í Fossnesti á Selfossi. Þar kostar hann 75 kr. sem er fimm krónum ódýrara en í Svarta svaninum. íshöllin býður ís í brauð- formi á 110 kr., með dýfu á 130 kr. og með hrísi kostar hann 170 kr. Tilboð í Fossnesti Fossnesti á Selfossi er með ís- daga. Þar kostar ís í brauðformi 110 kr., með dýfu 130 kr. ís meö dýfu og hrísi kostar 150 kr. og barnaís kost- ar, eins og áður sagði, 75 kr. í Isbúðinni, Kaupvangsstræti 3 á Akureyri, kostar ísinn 165 kr., 185 kr. meö dýfu og 210 kr. með dýfu og hrísi. Þetta er hæsta verðið í úrtak- inu fyrir þessar tegundir. Barnaís- inn kostar 120 kr. á Akureyri en er dýrastur á 130 kr. i Hyrnunni í Borgarnesi. Þar kostar ísinn 160 kr., 180 kr. með dýfu og 200 kr. með dýfu og hrísi. Þessar búðir bjóða aðeins upp á stóran og lítinn ís. Svipað verð Verðið er á svipuðu róli hjá mörgum búðanna. ísbjörninn, Eddufelli 6, Dairy Queen, Hjarðar- haga og Ingólfstorgi, ísbúð Vestur- bæjar og íshöllin eru allar með ís í brauðformi á 110 kr. Barnaísar hjá sömu búðum kosta 80. kr. ísbúðin í Álfheimum selur ís í brauðformi á 120 kr. Sama verð er boðið hjá Skalla við Laugalæk. Nesti á Ár- túnshöfða, Bíldshöfða, í Fossvogi og við Reykjavíkurveg hefur sama verð. Þar kostar ís í formi 115 kr., með dýfu 125 kr. og barnaís 80 kr. Ekki er boðið upp á hrís hjá Nesti. Mikill munur Munurinn á hæsta og lægsta verði er talsverður. Svarti svanur- inn selur ís í formi á 100 kr. en ís- búðin, Kaupvangsstræti, á 165 kr. Þar munar 65 kr. Sömu búðir bjóða ís með dýfu á 120 og 185 kr. Þar munar einnig 65 kr. Þá munar 70 kr. á ís með dýfu og hrísi. Dýrasti barnaísinn kostaði 130 kr. í Hyrnunni en sá ódýrasti 75 kr. í Fossnesti og íshöllinni við Melhaga. -sf f kvöld á ingólfskaffi Bein útsending verdur á Bylgjunni f samvinnu við Giraf Látið ykkur ekki vanta á besta ball vikunnar Sálin hans Jóns míns og Bylgjan í kvöld á ingólfskaffi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.