Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1998, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1998, Qupperneq 7
ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1998 7 Hjörleifur f jarri Margrét Frímannsdóttir er nú á góðri leið með að berja Alþýðu- bandalagið inn í samvinnu við Al- þýðuflokkinn. Hún hefur þorra flokksmanna að baki sér í málinu og þar fara fremstir unglið- ar flokksins. Gamla harðlínan í flokkn- um er ekki mjög sátt við þá þróun sem á sér stað. Þannig mun Stein- grímur J. Sigfús- son hafa reynt að andæfa gegn samrunanum á miðstjómarfúndin- um um helgina en hafði ekki erindi sem erflði og var kveðinn i kútinn. Sá sem harðastur er í andstöðu sinni viö samrunahugmyndir er væntanlega Hjörleifur Guttorms- sonalþingismaður sem hótað hefúr klofningi. Svo er að sjá sem baráttu- þrek hans fari þverrandi því hann mætti ekki á miðstjórnarfundinn... Þörf fyrir Þórunni Staða framkvæmdastjóra Fjórð- ungssambands Vestíjarða er nú laus eftir að HaUdór Halldórsson varð bæjarstjóri ísafjarðarbæjar. Sú saga gengur að Pétur H.R. Sigurösson, stjórnar- formaður FV og bæj- arfulltrúi sjálfstæðis- manna, hafi lofað Kristni Jóni Jóns- syni, fráfarandi bæjarsijóra, fram- kvæmdastjóraemb- ættinu. Þetta hugn- aðist ekki öömm sjöllum og var því blásið af. Nú er talið að til greina komi að Þórunn Gestsdótt- ir, fyrrum aðstoðarbæjarstjóri, fái embættið en hún er vegalaus eftir að velheppnaðri Atvinnuvegasýn- ingu Vestfjarða lauk um helgina en þar hélt hún um stjórnartauma. Enn rifja menn upp slagorð Þórunnar þegar hún bauð sig fram til borgar- stjómar á ámm áður: „Það er þörf fyrir Þórunni" en nú er þörfin vænt- anlega hjá Fjórðungssambandinu... Þefað af stólnum Talið er mjög líklegt að Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra iáti af þingmennsku og hverfi til rólegri starfa þegar kjörtimabilinu lýkur. Meðal sjálfstæðis- manna eru þegar miklar vangaveltur irni arftaka hans á ráðherrastóli sitji flokkurinn áfram í ríkisstjóm. Meðal þeirra sem áhuga hafa em þing- mennimir Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Vest- firðinga, og Kristján Pálsson, þing- maður Reyknesinga. Talið er að Kristján eigi meiri möguleika í Ijósi þess aö hann er ekki andstæðingur kvótakerfisins svo sem Einar Krist- inn. Hagsmunir útgerðarinnar munu því aldrei leyfa að Einar fái embætt- ið og allt eins er talið líklegt að flokk- urinn muni láta samstarfsflokknum eftir stólinn fremur en að sleppa hon- um í hendur andstæðinga kvótans. Hríseyjargrennd Bæjarstjórn hins nýja sameinaða sveitarfélags Dalvíkur og nágrennis er nokkur vandi á höndum. Bæjar- stjórinn, Rögnvaldur Skíði Frið- bjömsson, og félagar hans þurfa að ná fram sátt um nafn á króg- ann. Flest atkvæði í skoöanakönnun hlaut nafnið Árdals- vík sem sumir kalla reyndar orðskrípi. Eina tillögu í skoð- anakönnuninni hlaut nafn sem vísar til nálægðarinnar við Hrísey. Sá sem þeirri tillögu skilaði strikaöi yfir öll nöfnin á kjörseðlinum og skrifaði neðst „Hríseyjargrennd". Frekar ólíklegt er að Árdalsvíkingar fallist á tillöguna... Umsjón Reynir Traustason Netfang: sandkom @ff. is ________________Fréttir Landsbankafáni í Hrútafirði Lögreglan á Blönduósi gerði þrjá Lcmdsbankafána upptæka á laugar- daginn. Þrír unglingsstrákar, sem voru að skemmta sér í sumarbústað í Hrútafirði, höfðu á leiðinni norður gripið með sér Landsbankafánann á Akranesi og drógu hann svo að húni við hátíðlega athöfn. Þetta fannst þeim félögum ákaflega snið- ugt uppátæki í ljósi umræðna um bankann og veiðileyfi í Hrútaflarð- ará. Lögreglan hafði ekki sama hú- mor og því voru flöggin gerð upp- tæk. -me ÞJOÐHATIÐ í REYKJAVÍK HATIÐIN HEFST: Ki. 09.55 Samhljómur kirkjuklukkna í Reykjavík Kl. 10.00 f kirkjugarðinum við Suðurgötu. Forseti borgarstjómar, ieggur blómsveig frá Reykvíkingum á leiði Jóns Sigurðssonar. Lúðrasveitin Svanur leikur: Sjá roðann á hnjúkunum háu. Stjómandi: Haraldur Ámi Haraldsson Skátar standa heiðursvörð. Við Austurvöl) Lúðrasveitin Svanur ieikur ættjarðarlög á Austurvelli. Skátar standa heiðursvörð. Kl. 10.40 Háúðin sett: Steinunn Valdís Óskarsdóttir, formaður Þjóðhátíðamefndar, flytur ávarp. Kvennakór Reykjavíkur syngur: Yfir vora ættarlandi. Stjómandi: Sigrún Þorgeirsdóttir. Forseti fsiands, Ólafur Ragnar Grímsson, leggur blómsveig frá íslensku þjóðinni að minnisvarða Jóns Sigurðssonar á Austurvelli. Kvennakór Reykjavíkur syngur þjóðsönginn. AÐ DEGINUM: Skrúðgöngur frá Hallgrímskirkju og Hagatorgi Kl. 13.30 Safnast saman á Skólavörðuholti. Kl. 13.40 Skrúðganga niður Skólavörðustíg að Ingólfstorgi. Kl. 13.30 Safnast saman á Hagatorgi. Kl. 13.45 Skrúðganga frá Hagatorgi f Hljómskálagarð. Lúðrasveitir leika, skátar ganga undir fánum og stjóma báðum göngunum. Ýmislegt er gert bömum og fullorðnum til skemm- mnar á leiðinni s.s. trúðar, fjölda- söngur, trumbuslagarar og fl. Tjörnin og umhverfi Kl. 13.00 - 18.00 f Hallargarði verður minígolf, fimleikasýning (kl. 14.45), leiktæki, listförðun fyrir böm, spákonur, Tóti trúður og félagar (kl. 15.15), glímusýning (kl. 15.45), skyimingar (kl. 16.15) og margt fleira. f Vonarstræti ekur Sautjánda júní lestin. Hljómskálagarður Kl. 14.00 - 17.00 Skátar sjá um tjaldbúðir og þrautabraut. Skátavaka. Aðstaða til bleyjuskipta fyrir ungaböm. Leiktæki fyrir böm. Stóra grillið. Brúðubíilinn Kl. 14.00 og 14.30 Leiksýningar við Tjamarborg. Á Rúntinum Kl. 13.30-18.30 Fjöldi listamanna skemmtir víða um háúðarsvæðið og á sviðum við Iðnó og á Austurvelli: Kómedíuleikhúsið, Zitkus Zimsen, Pétur Pókus, Borgarkórinn, Söngsveitin Fílhatmóma, Léttsveit Harmonikufélags Reykjavíkur, harmonikuleikarar úr Félagi harmonikuunnenda, ungliðar úr Harmonikufélagi Reykjavíkur, Bumbubandið, Stallah hú, Tríó Reynis Sigurðssonar, dixiebandið Öndin, homaflokkar fiá Lúðrasveit verkalýðsins og fleiri. Akstur og sýningar gamalia bifreiða Kl. 13.10 Hópakstur Fombflaklúbbs fslands ffá Kjarvalsstöðum Kl. 13.15 Sýning á Skólavörðu- súg og akstur niður Bankastræti, og sýning á Miðbakka Kl. 12.00 Sýning í Nauthólsvflc á bflum frá stríðsáranum Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn í Laugardal Opið frá 10.00 - 18.00. Leiktæki, skemmtiatriði, leikir, ungviði, dýrum gefið og fl. Hátíðardagskrá á Kjarvalsstöðum Kl. 10.00-18.00 Myndlistar- sýningin Stiklað í súaumnum Kl. 14.00 Útnefndur boigarlistamaður - háúðardagskrá. Týnd börn: Upplýsingar um týnd börn verða í síma 510 6600 Ávarp forsætisráðherra, Davíðs Oddssonar. Kvennakór Reykjavíkur syngur: fsland ögram skorið. Ávarp fjallkonunnar. Lúðrasveitin Svanur Ieikur: Ég vil elska mitt land. Kynnir: Broddi Broddason. Kl. 11.15 Guðsþjónusta í Dómkirkjunni. Sr. Sigurður Amarson prédikar. Prestar dómkirkjusafnaðarins þjóna fyrir altari. Dómkórinn syngur. Þóra Einarsdóttir syngur einsöng. ■ HÁTÍÐARDAGSKRÁ ÍRÁBHÚSINU Tjarnarsalurinn Kl. 12.15-12.30 Móttaka til heiðurs Bjama Tryggvasyni, fyrsta íslendingnum sem farið hefur í geimferð. K114.30 Kvennakór Reykjavíkur Kl. 14.50 Strengjakvartett Kl. 15.05 Sænskur kór, Equinox Kl. 15.30 Félag harmoniku- unnenda í Reykjavík KI. 16.00 Borgarkórinn Kl. 16.30 Lok. Nauthólsvík Siglingaklúbbur ÍTR Kl. 11.00 Fjallahjólakeppni um Öskjuhlíð Kl. 13.00 Skemmtidagskrá. Bátar.bflasýning, leikir, strandball, hljómsveit, grill á staðnum, Zirkus Zimsen og fl. Kl. 13.00 Eskimo models Kl. 13.00 Víkingar gera strandhögg Kl. 13.30 Hundafimisýning Hundaræktarfélags íslands Kl. 18.00 Lok Strætisvagnar ganga milli Nauthólsvíkur og MiObæjarins. Árbæjarsafn - Þjóðhátíðardagskrá Kl. 09.00 - 17.00 Dagskrá hefst kl. 13.00 Þjóðbúningar kynntir og búningasilfur. Handverksfólk við vinnu f húsunum. Fólk hvatt til að mæta í sínum eigin þjóðbúningum Kl. 15.00 Háúðarkaffi ( Dillonshúsi Kl. 16.30 Þjóðdansar. Þjóðminjasafn íslands Kl. 11.00-17.00 Sýning á munum í eigu safnsins. Barnaspítali Hringsins og barnadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur Skemmtikraftar heimsækja bamadeildimar, skemmta bömunum og færa þeim gjafir. Útivistar- og hjólaleikur á 17. júní Kl. 11.00-19.00 íslenski fjallahjólaklúbburinn og Hjólreiðafélag Reykjavíkur gangast fyrir skemmúlegum leik fynr böm, unglinga og fullorðna. Á fjóram stöðum, í Nauthólsvík, Fjölskyldugarðinum í Laugardal, í Hljómskálagarði og við Amarhól getur hjólandi og gangandi fólk fengið sérstakt kort og súmpil og tekið þátt í keppni. Vegleg veiðlaun. Sjá auglýsingu í blöðum. Við Arnarhól Kl. 14.00 Söngsveitin Fflharmonía Kl. 14.20 Söngvar úr Bugsý Malone Kl. 14.40 Möguleikhúsið sýnir Trítiltopp og tröllafjölskylduna Kl. 14.55 Fiðlarinn á þakinu Kl. 15.00 Kómedíuleikhúsið sýnir Tröllið sem prjónaði Kl. 15.15 Hugleikur sýnir Nýjustu tækni og íþróttir Kl. 15.30 Söngvar úr Grease Kl. 15.40 Brooklyn 5 Kl. 15.50 Megasukk Kl. 16.05 Danshópurinn Splazh Kl. 16.15 Stuðmenn og Karlakórinn Fóstbræður Kl. 17.00 Slökkviliðsmenn á reiðhjólum ljúka ferð sinni um landið. l’M KVÖLDIÐ: Við Arnarhól Kl. 18.00 Kl. 20.30 Kl. 20.45 Kl. 21.00 Kl. 21.30 Kl. 22.30 Kl. 23.00 Kl. 23.30 Kl. 24.00 Kl. 00.30 KL. 01.00 Danstónlist Stæner MITH Skítamórall Stuðmenn Kolrassa krókríðandi Vínyll Maus Sóldögg Quarashi Lok. Ingólfstorg Kl. 20.00 Hljómsveitin Neistar Kl. 21.00 Félag harmoniku- unnenda Kl. 22.00 Rússibanar Kl. 23.00 Casinó og Páll Óskar Kl. 24.00 Lok. Ingólfstorg Kl. 14.00 Lúðrasveit verkalýðsins Kl. 14.10 Fimleikadeild Ármanns Kl. 14.35 Þjóðdansafélagið Kl. 14.50 Dansskóli Heiðars Ástvaldssonar Kl. 15.05 Dansskóli Jóns Péturs og Köru Kl. 15.20 Danshópurinn Splazh Kl. 15.30 Dansfélagið Gulltoppur Kl. 15.35 Danspör sýna Latin dansa og fl. Kl. 16.00 Dansfélagið Hvönn Kl. 16.30 Bamadansleikur Eddu Borg Kl. 18.00 Diskótekið Dísa Kl. 19.00 Lok. Umsjón með dagskrá þjóðhátíðar í Reykjavík hefur þjóðhátíðamefnd á vegum íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur. Þjóðhátíðamefnd skipa: Steinunn Valdís Óskarsdóttir formaður, Ingvar Sverrisson og Hilmar Guðlaugsson. Dagskrárstjóri: Gísli Ámi Eggertsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.