Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1998, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1998, Side 13
ÞRIÐJUDAGUR 16. JUNI 1998 13 Ábyrgð vísað út og suður „Viöskiptaráöherra telur sig ekki hafa neitt aö óttast og formenn stjórnarflokkanna hafa stutt hann af undraverðu kappi,“ segir Kristín í grein sinni. Virk og ábyrg stjórn- arandstaða gegnir mikil- vægu hlutverki í lýð- ræðisþjóðfélagi. Hún er ekki síður mikilvæg en valdhafar hverju sinni vegna þess að hlutverk hennar er að veita vald- höfum aðhald í stóru sem smáu. Og samfélag- ið á mikið undir því að stjórnarandstaðan sinni hlutverki sínu vel og samviskusamlega. Drambsfull vörn Hér á landi er stjóm- arandstöðunni nokkur vandi á höndum. Hér skortir heíð fyrir því að tekið sé sköralega á mis- fellum í athöfnum vald- hafa og hér skortir hefð fyrir því að valdhafar axli ábyrgð á gjörðum sínum og undirmanna sinna. Hér hefjast umsvifalaust ásakanir um persónulegar hvatir og annarlegar ástæður að baki harðri gagnrýni og valdsmenn leggjast í drambsfuOa vörn. Víðast annars staðar er öðruvísi brugðist við. í sumum löndum er reyndar gagnrýni bæld niður með vopnavaldi, en í sið- menntuðum þjóðfé- lögum axla menn ábyrgð á annan hátt og þurfum við ekki að leita langt eftir fyrirmyndum. Þar segja ráðherrar af sér ef starfshættir og embættisfærslur undirmanna þeirra reynast ámælis- verðar eða saknæm- ar, jafnvel í tilvik- um þar sem sannað þykir að þeir hafí ekki vitað af þeim heldur treyst við- komandi í granda- leysi. Samt axla þeir þá ábyrgð sem þeim hafði verið falin. Stundum víkja þeir tíma- bundið meðan mál era rannsökuð. - En ekki hér. Hér er ábyrgð vísað út og suður. Ráðherrar reigja sig Ekki ég - ekki benda á mig, segja ráðherrar og vísa á undirmenn sem vísa á aðra undir- menn og svo koO af koUi þar til ræst- ingakonan fer að velta fyrir sér hvort hún hafi brugðist. Hér stökkva menn niður í skotgrafir eða bíta í skjaldarrendur að vík- ingasið og höggva mann og annan. Hér tíðkast útúrsnúningurinn að svo má böl bæta að benda á annað verra! Og þannig hafa málin gengið undanfarna mánuði. Ráðherrar í ríkisstjóm Davíðs Oddssonar hafa Kjallarinn Kristín Halldórsdóttir þingkona Kvennalistans Yfir litlu varstu trúr íslenskt samfélag verð- ur ekki samt eftir liðinn vetur. Valdhafar þurfa að stíga niður úr fila- beinsturni sínum og átta sig á að kröfur um siðferði í stóru og smáu gerast æ háværari. Yfir litlu varstu trúr, yfir mikið mun ég setja þig, segir í helgri bók. Mörgum væri hoUt að fara með þau orð með sjálfum sér á hverjum degi. Kristín Halldórsdóttir hvað eftir annað orðið að sæta harðri gagnrýni á störf sín og und- irmanna sinna. TUefnin eru mörg og misjafnlega skiljanleg öllum al- menningi sem veit vart sitt rjúk- andi ráð í þessum gjörningaveðr- um. Hvar sem lyft er loki blasir við iðandi maðkaveita. En ráð- herrar bregða ekki vana sínum. Þeir reigja sig og telja sig yfir gagnrýni hafna. Það virðist ekki einu sinni hafa hvarflað að við- skiptaráðherra að segja af sér þótt mál honum tengd séu nú í rann- sókn hjá ríkissaksóknara. Reiöir formenn Stjórnarandstaðan lagði í lok þings fram tUlögu um skipun sér- stakrar nefndar í samræmi við ákvæði í stjómarskrá til að fjalla um málefni Landsbankans og tengdra fyrirtækja og ekki síst um samskipti viðskiptaráðherra við Alþingi. Eftir vandaða umfjöllun kæmi fram skýrsla um öU efnisat- riði þess. Það hefði verið Alþingi tU sóma og í samræmi við eftirlits- hlutverk þess að taka þannig á málinu. Viðskiptaráð- herra telur sig ekki hafa neitt að óttast og formenn stjómarflokk- anna hafa stutt hann af undra- verðu kappi. Þeir urðu sér raunar til skammar í umræðum um tiUöguna. Annar hagaði sér eins og skólastrákur í ræðukeppni og hinn missti stjórn á sér. Þeim leið greinUega ekki vel. Þeir hefðu átt að fagna vandaðri umfjöUun í þingkjörinni nefnd sem m.a.s. hefði að meirihluta ver- iö skipuð þeirra fuUtrúum. En meirihluti Alþingis hafnaði þess- ari leið. Stjórnarand- staðan má ekki líta með þeim undir lokið. „Ekki ég - ekki benda á mig, segja ráðherrar og vísa á undir■ menn sem vísa á aðra undirmenn og svo koll af kolli þar til ræsting- konan fer að velta fyrir sér hvort hún hafi brugðist.u Listahátíð Það má segja að setning Listahá- tíðar í Reykjavík hafi verið fyndið flopp. Lognið við Reykjavíkurhöfn umræddan dagpart var þvUíkt að kínversku flugdrekarnir náðust ekki á loft utan sá eini sem sveif yfir Faxaskála í þrjár mínútur. Það var stutt gaman fyrir þá sem höfðu lagt á sig langt ferðalag. Blíðan kom sér þó vel meðan þjóð- höfðingjar íslands og Danmerkur gengu með fylgdarliði frá guUi sleginni lystisnekkju drottningar að Hafnarhúsinu til þess að vera viðstaddir opnun hins nýja Errósafns. En jafnskjótt og höfðingjamir hurfu sjónum inn í listaportið hellti rigningin sér yfir hina óbreyttu utan gátta. Þar skoluðust burt krítarverk barnanna á bryggjunni sem þau voru nýbúin að skapa í tilefni dagsins. Nokkur ungmenni á listabraut gerðu tilraun tU þess að hlaupa undir halaprúðum brúðudreka frá Austurlöndum en þegar enn herti rigninguna forðaði drekinn sér í hús. Þar hímdu afrískir stultu- göngumenn og biðu færis að sýna listir sinar á göt- um úti en regnið snerist upp í haglél og lista- fólkið úr hita- beltislöndunum neitaði staðfast- lega að útsetja sig fyrir íslenskt vorveður. Sýn- ing þess var skotin í kaf af snjókúlum him- insins. Mannfjöldinn lagði á flótta og fyUti nærliggjandi kafFihús eða kom sér bara heim. Borgarstjóri skellti upp úr. Listir undir þaki Eftir að atriðin voru komin und- ir þak fór þó flest að ganga sam- kvæmt áætlun og hátíöin reyndist innhaldsrík og fjölbreytt og skilur eftir gott bragð í munni. Þetta var Listahátíð sem opnaði sýn inn í fjarlæga menningar- heima og kima mannlífsins sem ekki eru aUa jafna til umfjöllunar. Þannig var t.d. um óviðjafnanlega leik- sýningu Unga Klara- leikhússins frá Stokkhólmi á Hinu nýja lífi Irinu, þroskaheftu stúlkunnar sem tjáir svo skemmtUega ást- ardrauma sína og sinna líka. Og sirkusinn hennar Victoríu Chaplin, Hringurinn ósýni- legi, verður víst öU- um ógleymanlegur sem hann sáu, sömu- leiðis rödd Galínu Gorchakovu sem tekur í nefið eins og Guðmundur okkar Jónsson tU að auka sér sönggleði. Listin utan húss og lönó Þannig mun hver og einn geyma í minni sér það sem helst hreif hann af stökum listviðburðum. ís- lenskir listamenn sem fengu tæk- ifæri til að vinna með erlendum koUegum og börnin sem tóku þátt í listasmiðjunum horfa á eftir samverkamönn- um sínum og leiðbein- endum með söknuði. En það sem verður eft- ir er mest um vert. Hvatinn sem býr í hverrri Listahátíð tU áframhaldandi ný- sköpunar á öUum svið- um og sú aukna lífs- nautn sem fylgir því að mega næstu mán- uði og ár mæta afurð- um og afsprengjum há- tíðarinnar á fömum vegi í borgarlandinu. Strandlengjan er öll- um opin. Þar hefur Myndhöggvarafélagið komið upp ævintýra- lega skemmtUegri sýn- ingu sem enginn borg- arbúi eða gestur þarf að láta fram hjá sér fara, bara vara sig á flug- vélunum. Og svo er Iðnó endur- fætt. Eftir að Brúna bólan, sem klauf ásýnd hússins í tvennt, var fjarlægð, nýtur fegurð þess sín til fuUnustu jafnt að utan sem innan. Iðnó er listaverk í sjálfu sér. Þar hafa skapast skilyrði fyrir stand- andi litla Listahátíð. Steinunn Jóhannesdóttir „íslenskir listamenn sem fengu tækifæri til að vinna með erlend- uin kollegum og börnin sem tóku þátt í listasmiðjunum horfa á eft- ir samverkamönnum sínum og leiðbeinendum með söknuði.“ Kjallarinn Steinunn Jóhannesdóttir rithöfundur Með og á móti Var knattspyrnukonum sýnd vanvirðing með lokun Laugardalsvallar fyrir landsleikinn við Spán? Vanvirða við stúlkurnar „Laugardals- völlurinn er þjóðarleikvang- ur íslendinga. Hann hlýtur að vera vettvang- ur fyrir A- landslið íslands og þar eiga þau að leika og hvergi annars staðar. Það hlýtur að vera ætlast til þess að þeir sem hafa fengið þessi mannvirki tU umsjónar og rekstr- ar hagi notkun vaUarins þannig að hann sé tUtækur þegar mikU- vægir landsleikir fara fram. Þá geri ég engan greinarmun á því hvort það er A-landslið karla eða kvenna sem um ræðir. Þessi skoð- un mín hefur ekkert með það að gera að leikvöUurinn i Kópavogi er mjög góður og umræddur leikur fór fram við góöar aðstæður. Það skiptir ekki máli i þessu sam- bandi. Umgjörð leikja heftu- mikil áhrif á ffamgang þeirra. ÖU um- fjöUun í fjölmiðlum eða fréttum eykur sjálfstraust leikmanna og skapar betri liðsheild. Mér flnnst því að stúlkunum hafi verið sýnd vanvirða auk þess að leikurinn var ekkert auglýstur. Á sama tíma og landsleikurinn fór fram voru 1000 stelpur að keppa á pæjumóti í Eyj- um og þær og þeirra aðstandendur gera kröfur á sérsamböndin og fé- lögin um að þessu verði breytt. Ég vona að mín rödd holi steininn en ég vU trúa því að það sé aðeins tímaspursmál hvenær jafnréttið verður í reynd.“ Erling Ásgeirsson er formaöur bæjar- ráös Garöabæjar og virkur félags- maöur Stjörnunnar. Sómi að spila í Kópavogi „Frá mínum bæjardyrum séð finnst mér kvennaknatt- spyrnu og landsliðskonum ekki hafa verið sýnd vanvirð- ing með tU- færslu á leikn- Þvert Jóhann G. Kristins- son, vallarstjóri Laugardalsvallar. um. Pvert a móti er þeim sómi að að spUa á KópavogsveUi. Kópavogur er vagga íslenskrar kvennaknatt- spyniu og ég held aö fyrsti kvenna- leikurinn haft einmitt verið spilað- ur þar. Ég tel aö þar sé glæsilegur vöUur og glæsUeg umgjörð og ekk- ert síðra I sjálfu sér að spila þar. Margir vilja oft bera saman karla- og kvennalandsliðin og þannig hefur karlalandsliðið spUað á und- anfórnum árum úti á landi og ég tel að þeim hafi ekki verið sýnd vanvirðing með að spila þar. Þess- um stööum þykir mjög vænt um að fá leiki og í Kópavoginum þótti þeim mjög gott að fá þennan leik. VaUaraðstæður leyfðu ekki meira álag og því varð að hvíla vöUinn. Vandamálið er að það þurfti að byrja snemma á vellinum því Val- bjamarvöUur var ekki klár í vor. LaugardalsvöUur þurfti hvíld til að hann myndi ekki eyðileggjast en stelpurnar eru síðan velkomnar eins og karlarnir um leið og vöUur- inn er kominn í lag.“ -ÓÓJ Kjallarahöfundar Athygli kjaUarahöfunda er vakin á því að ekki er tekið við greinum í blaðið nema þær berist á staf- rænu formi, þ.e. á tölvudiski eða á Netinu. Netfang ritstjórnar er: dvritst@centrum.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.