Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1998, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1998, Qupperneq 28
32 Sviðsljós ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1998 SKSSWHHMl ALLTAF NYTT OG FERSKJ Bœjarhrauni 24 - 220 Hafnarfirði - sími 555 3466 fiaíísf NOTAÐAR VINNUVÉLAR TRAKTORSGRÖFUR Case 580K „S“ árg.1989 Case 580K árg. 1990 Case 580K árg. 1989 Case 580K árg. 1989 Case 580F árg. 1978 MF 50 HX árg. 1986 Kr. 1.800.000 án vsk. Kr. 1.800.000 án vsk. Kr. 1.700.000 án vsk. Kr. 1.600.000 án vsk. Kr. 420.000 án vsk. Kr. 1.100.000 án vsk. BOBCAT VINNUVÉLAR BOBCAT 743 árg. BOBCAT 743 árg. BOBCAT 753 árg. BOBCAT 763 árg. BOBCAT 220 árg. 1989 Kr. 1991 Kr. 1991 Kr. 1995 Kr. 1992 Kr. 800.000 án vsk. 1.000.000 án vsk. 1.100.000 án vsk. 1.350.000 án vsk. 850.000 án vsk. VÉLAR& .....PJÉNUSTAhf JÁRNHÁLSI 2,110 REYKJAVlK, SÍMI 587 6500, FAX 567 4274 Ekki er nú öll vitleysan eins: Geri of feit fyr- ir Hollywood Ekki er víst að Geri Halliwell riði feitum hesti frá glimmerborg- inni Hollywood. Kryddpían fyrr- verandi ku víst þykja hafa of mik- ið til að klípa í til að vera al- mennilega gjaldgeng á þeim slóð- um. Svo segir að minnsta kosti breska æsiblaðið News of the World. Og þá hlýtur það að vera rétt. Geri flaug til Hollywood fljót- lega eftir að hún sagði skilið við þær Mel B., Mel C., Emmu og Victoriu. Þar ætlaði stúlkan að tryggja sér hlutverk i kvikmynd sem gera á eftir vinsælum sjón- varpsþáttum frá áttunda áratugn- um, Charlie’s Angels. Enska heimsfréttablaöið segir að Geri þyki bæði of feit og of illi- leg, auk þess sem túttumar á henni þykja í stærra lagi. Enda muna lesendur væntanlega eftir því að Mel okkar B. lagði það í vana sinn að stríða Geri þegar annað brjóstið braut af sér öll bönd og slapp úr prísundinni sem Geri Halliwell þykir hafa of stóra búbba til að komast áfram í kvikmyndaborg- inni miklu. föt stúlkunnar voru. Að vísu voru fötin þau efnisrýr í meira lagi. En meir af Hollywood-ævintýr- um Geri. Hún ætlaði að krækja sér í hlutverk Jill Munroe sem engu ómerkari kynbomba en Farrah Fawcett lék með miklmn glæsibrag á sínum tima. Framleiðandi þátt- anna, hinn vellauðugi Aaron Spell- ing, mun hins vegar hafa ákveðið að vísa leikkonunni upprennandi frá áður en hún gengist undir hæfnispróflð. Traustir heimildarmenn höfðu eftir Spelling að hann teldi að stúlkan ætti enga framtíð fyrir sér i kvikmyndaleik, enginn tæki konu með svona stór brjóst alvarlega. Mönnum þykir þó skjóta skökku við að sílikondrottningin Jenny McCarthy hefur einmitt fengið hlutverk í áðumefndri kvikmynd. Geri lætur þó ekki svona smáat- vik slá sig út af laginu, ef svo má til oröa taka. Kryddpían fyrrverandi er komin heim til Englands að huga að framtíð sinni í sjónvarpi. Hár er svo sannarlega höfuðprýöi hjá þessari fallegu búlgörsku fyrirsætu. Það var tískufrömuðurinn Tania Mihaleva sem hannaöi þessa sérstæðu hár- greiöslu fyrir sýningu í menningarhöllinni í Sofiu, höfuðborg Búlgaríu. Greinir frá heitum nóttum með Mel B Finna rak í rogastans fyrir helgina þegar fyrrverandi Herra Finnland, Henry Saari, greindi í viðtali í síð- degisblaðinu Iltalehti frá heitum nóttum með Kryddpíunni Mel B. Samkvæmt frásögn fegurðarkóngs- ins hittust hann og Mel B, fyrrver- andi tengdadóttir íslands, í fyrsta sinn í Hollywood í janúar síðastliðn- um. Næsti fundur þeirra var í Ma- drid á Spáni í mars og sá síðasti í Helsinki núna í maí þegar Kryddpí- urnar héldu tónleika þar. Það sem þykir gera frásögn Herra Finnlands ótrúverðuga er sú stað- reynd að hann, eins og reyndar sumar Kryddpíumar, hefur að hluta haft ofan af fyrir sér með því að sitja fyrir nakinn. Fingraför tekin hjá Tarantino Þar hitti skrattinn ömmu sína. Bandaríski kvikmyndaleikstjór- inn Quentin Tarantino mátti þola það fyrir helgi að tekin væm af honum fingraför, eins og hann væri ótíndur bófl. Rétt eins og margur kappinn í myndum hans. Quentin hefur nefnilega verið ákærður fyrir að gefa konu á kjaftinn og mátti því sæta þess- ari meðferð. George Michael út með konu Ekkert má nú. Breski poppar- inn George Michael, sem kom út úr skápnum fyrir ekki margt löngu og tilkynnti umheiminum að hann væri hommi, sást úti að borða með fallegri konu um helg- ina. Að sögn netútgáfu breska blaðsins Mirror fengu George og falleg brúnhærð ung kona sér gott í gogginn á Momo’s, vinsæl- um marokkóskum stað.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.