Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1998, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1998, Page 32
nn Ummæli Menningarlegt hryðjuverk 36 „Samkvæmt menningar- gildi var Stöð 2 « heldur æstari af komu Rolling Stones en rík- í isrásin og sá fram á að þarna gæti hún unnið stórt menn- ! ingarlegt hryðjuverk á þjóðinni við hróp og köll og blístur og eitthvert dóp i unglingaskril við Sundahöfn undir hand- leiðslu 68 kynslóöarinnar. Indriði G. Þorsteinsson rit- höfundur í fjölmiðlarýni í Morgunblaðinu. Bóla sem springur „Matvörumarkaðurinn er eilífur slagur en ég tel að þessar lækkanir nú séu komnar frá mönnum sem vilja slá sig til riddara með einhverjum auglýsingabrell- um. Þetta er bara bóla sem springur." Júlíus Jónsson í Nóatúni, ÍDV. Foringinn sem ræður „Maður er meira að segja viss um að Ámi Johnsen fer til hans og biður um leyfi áður en hann gefur út hljóm- plötu.“ Guðmundur Andri Thors- son rithöfundur, um stöðu Davíðs Oddssonar í Sjálfstæðisflokknum, í DV. Sundurskomar heiðar „Ef þig sker í augu og hjarta hvernig jeppaskrattar hafa rist sundur heiðina sem þú gengur á, þá skaltu þakka fyrir að ekki er Guðni Ágústs- son búinn að leggja veg upp á Heklu." Árni Bergmann rithöfundur, ÍDV. Skattpíningarstefna krata „Ég er algerlega andvígur skatt- píningarstefnu krata.“ Steingrímur J. Sigfússon, í Degi. Enginn í fýlu hjá okkur „Það er fólki lífsins ómögu- legt að vera í einhverri fýlu á böllum með okkur.“ Páll Óskar Hjálmtýsson, ÍDV. ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1998 DV Gísli G. Jónsson torfærubílstjóri: í torfæruna „Gott gengi mitt skapast af þvi að ég er með góðan bíl og svo hef ég verið heppinn, ekki lent í neinum óhöppum. Ég haföi fyrir sumarið undirbúið mig vel og farið vel yfir það hvemig ég ætla að keyra og það hefur allt gengið eftir,“ segir Gísli G. Jónsson, íslandsmeistari í tor- færuakstri, sem hefur unnið tvær fyrstu keppnirn- ____________ sumn.a Þessu Maður dagsins Gísli þvi að mótorinn hjá mér sprakk í keppni og varð ég nánast að henda honum í heilu lagi. Þannig óhapp er mjög kostnaðarsamt. NÚ er ég og fleiri að vona að vinsældir tor- fæmnnar erlendis, þar sem hún er sýnd á alþjóðlegum sjónvarpsstöðv- um, verði til þess að erlendir styrkt- araðilar komi inn í keppnina en það keyrir sama bíl og í fyrra: „Hann er alveg óbreyttur frá því ég tók mig til eftir fyrstu keppnina í fyrra og breytti honum mikið. Eftir það hefur mér gengið mjög vel með bílinn, tókst að verða íslandsmeistari og stefnan er tekin á að endurtaka leikinn í ár. Ég þekki vel til þeirra bíla sem eru í keppninni enda eru þetta sömu bíl- ar og vom með í fyrra, það er að- eins að skipt hefur verið um bíl- stjóra á sumum þeirra. Gísli er spurður hvort ekki sé mikill kostnaður við að halda úti torfærubil? „Þetta er erfiður rekst- ur. Það getur orðið mikið hnjask á einum bíl eftir eina keppni og það era aðeins bílstjóramir sem em tryggðir, allur kostnaður annar vegna mótorbilunar og veltu og fleira lendir á okkur svo það er nauðsynlegt að vera með styrktar- aðila. Ég hef lent í Gísli G. Jónsson. hefur ekki gerst enn þá.“ Gisli er búinn að taka þátt í tor- færukeppni frá því árið 1991 og hann segir að hann gæti ekki staðið í þessu væri hann ekki sjálfur með bílaverkstæði: „Ég bý í Þorláks- höfn og rek þar Bíliðjuna þar sem ég geymi bílinn og geri við hann þeg- ar þarf. í vetur tók ég mér frí fj frá verk- stæð- inu, var með mann þar og var við vinnu í Búrfellslínu 3. Bróðir minn var verktaki þar við að setja undirstöð- ur undir möstrin og vann ég hjá honum. Gísli segir að lítill tími sé fyrir önnur áhugamál: „Það fer allt sum- arið í torfæruna, það tekur tíma að undirbúa bílinn og fara með hann um allt landið. Annars hef ég gaman af úti- vem og að fara í úti- legu en hef lítinn tíma og mun hafa lítinn tíma til þess meðan ég stunda tor- færukeppnina." Eiginkona Gísla heitir Vigdís Helgadóttir og eiga þau tvær dæt- ur, Þóru Birnu og Dag- -HK Buttercup skemmtir í Grundarfiröi annaö kvöld. Þjóðhátíðarball á Kristjáni IX. Hljómsveitin Buttercup mun skemmta Grundfirðingum á þjóð- hátíð. Mun sveitin spila á Krist- jáni IX. Hljómsveitin mun meöal annars leika lög sem hún hefur verið að taka upp. í Buttercup eru Heiðar, trommur, Valur, söngur, Símon, bassi, og Davíð, gítar. Útgáfutónleikar Geirfuglanna Hljómsveitin Geirfuglarnir mun halda útgáfutónleika á Sóloni ís- landusi i kvöld kl. 23. Sama dag kemur út geislaplata sem inniheld- ur fnnmtán frumsamin lög. Skemmtanir André Bachmann á Sir Oliver Gleðigjafinn André Bachmann mun ásamt félögum skemmta á Sir Oliver i kvöld. Meðal annars sýnir eldgleypir listir sínar og munnhörpuleikarinn Sigurvin kemur fram. Annað kvöld, þjóðhá- tíðarkvöldið, kemur fram söng- konan Andrea Gylfadóttir og syngur djass- og blúslög við undir- leik gítarleikarans Eðvarðs Lárus- sonar sem leikur órafmagnað. Bridge Bandaríkjamennirnir Bob Hamman og Nick Nickell voru sig- urvegarar á síðasta Cavendish tví- menningsmóti sem spilað var í Las Vegas 6.-10. mai síðastliðinn. I öðru sæti komu sigurvegarar síðasta árs, Zia Mahmood og Steve Weinstein. Eins og kunnugt er em pörin á mót- inu boðin upp á útboðsmarkaði í upphafi móts og segja má að þeir sem fjárfestu í Hamman-Nickell hafi átt góða fjárfestingu, því þeir fóru á sjöunda hæsta verðinu (33.000 bandaríkjadalir). Verðlaunin fyrir fyrsta sætið vora 280.000 dollarar. Frakkarnir Paul Chemla- Chrstian Mari seldust á hæsta verðinu, 55.000 dollara, en enduðu í 6. sæti sem þó gaf 70.000 dollara verðlaun. Hér kemur fjörugt spil úr mótinu þar sem a-v ákváðu að taka fórn í 7 lauf. Sagnir gengu þannig, norður gjafari ♦ ÁK1086 V K105 ♦ D8642 ♦ - * 9 G762 * K973 * KD96 * DG54 * Á984 * ÁG * Á103 og n-s á hættu: Norður Austur Suður Vestur Zia Krekor. Weinst. Blanch. 14 pass 3 # dobl 3 ♦ 7 * pass pass dobl p/h Ný umferðar- merki Vegagerðin og Umferðar- ráð hafa lagt til við dóms- málaráðuneyti að ný um- ferðarmerki verði tekin upp i umferðarmerkjareglugerð. Það skal tekið fram að texti, sem skýrir merkið, kann að breytast við endanlega ákvörðun. í dag eru birt tvö þjónustumerki. Fundaaðstaða Merki þetta vísar á stað sem býður upp á fundaað- stöðu. Umhverfi Hraðbanki Merki þetta vísar á hrað- banka. Olnbogaskot Myndgátan hér aö ofan lýsir nafnoröi. Þriggja laufa sögn (gervi) Wein- steins var gamekrafa og áhugi á slemmu. Pass suðurs var krafa og sterkari sögn en dobl, en eigi að sið- ur valdi Zia frekar að verjast í þess- um samningi. Vörnin var mis- kunnarlaus, laufútspil sem sagnhafí tók í blindum og síð- an kom hjarta á drottningu. Weinstein drap á ás, spilaði laufás og meira laufi. Litlu hjarta var þá spilað úr blindum, en Zia varðist vel með því að spila ÁK í spaða, trompað í blindum, en tígulásinn og spaðaslagur til viðbót- ar tryggðu spilið 6 niður (1400). Þar sem 6 spaðar virðist vera eðlilegi samningurinn, leit út fyrir að fóm- in væri í góðu lagi, en fjölmörg pör fóru alla leið í 7 spaða. Sum n-s-pör- in fengu minni tölu í laufafórninni og Zia- Weinstein græddu því heil- mikið á spilinu. ísak Örn Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.